Morgunblaðið - 28.06.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.06.1960, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 28. júní 1960 MORGUNBLAÐIÐ 23 Fyrsta markið: Knötturinn hrekkur af vamarleikmanni Red Boys í mark. — Sendingin var ætiuð Helga Björgvinssyni, en hafnaði til allrar lukku í marki Red Boys. Akranes — Red Boys á sunnudag Eitt mark hjá hvoru liði - bæði sjálfs- mörk RED BOYS frá Luxemborg mætti Akranesliðinu á sunnu- dagskvöldið. Leikurinn var vægast sagt lélegur, þó á köfl- um (einkum undir lokin) væri barizt af krafti og þá af meira kappi en forsjá. Gest- irnir voru öllu ákveðnari í leik sínum nú en gegn KR. Þeim er nokkur afsökun í malarvellinum, því þar tekur knötturinn önnur viðbrögð en á grasi, sem þeir eru vanir. En liðið hefur ekki megnað í tveim leikjum að sýna okk- ur neitt það, sem íslenzk knattspyrna býr ekki yfir. — Hafa okkar menn þó oft feng- ið að heyra það, að þeir séu í lélegri klassanum. * GAMALKUNNIR GARPAR Akranes kom með tvo gamal- kunna menn fram á leikvanginn — eftir allanga fjarveru þeirra N Breiðablik vann Revni j ÍSLANDSMÓTIÐ í 8. deild héit áfram á sunnudaginn var í Sand- gerði. Þar mættust UMF Breiða- blik úr Kópavogi og Reynir í Sandgerði. Flestir Suðurnesjamenn munu hafa spáð Færeyjarförunum létt- um sigri yfir Breiðabliki því eng ar frægðarsögur hafa verið skrif- aðar um knattspyrnusigra þeirra Kópavogsbúa. En hér fór nokkuð á annan veg. Breiðablik sigraði með einu marki gegn engu. Leikurinn í heild var lélegur, einkum þó af Sandgerðinga hálfu. Nokkur vindur var, og því áríð- andi að reyna að halda knettinum niðri. Hefði maður ætlað að jafn leikvanir menn og margir Sand- gerðinganna eru, gerðu sér ljósa þessa staðreynd, en svo virtist þó ekki vera. Leikur þeirra ein- kenndist af táaspörkum og há- spyrnum í tíma og ótíma en sam- leikur fyrirfannst ekki. Leið Breiðabliks virðist að miklu leyti vera skipað ungum og óreyndum leikmönnum. Þeir voru nokkuð hreyfanlegir og fljótir á knöttinn og þeir unnu flest einvígi, hins vegar vantar liðið skotmenn. Dómari var Gunnar Aðalsteins- son og átti hann lélegan dag. — BÞ. frá knattspyrnumótum. Voru það Þórður Þórðarson og Jón Leós- son. Settu þeir báðir svip á lið- ið. Þórður var hættulegasti fram- herjinn og sá eini sem skapaði mikla hættu í vörn Red Boys. En snerpan er nú ekki sú sama né geta, enda vonlegt vegna langrar fjarveru frá æfingum og keppni. En vinsæll er Þórður ennþá og gaman er að hafa hann með sem og Jón, sem er harður og fylginn sér — stundum um of. * SJÁLFSMÖRKIN Akranes tók forystuna í mörkum á 14. mín. Var tekin hornspyrna frá hægri á Red Boys. Helgi Björgvinsson skall aði að og Þórður fær knött- inn í lokuðu færi á hægra kanti. Hann spyrnir til marks snöggu skoti sem lendir í varn armanni og þaðan í markið. Þetta mark jöfnuðu Red Boys 2 mín. fyrir leikhlé, næstum á sama hátt. Sótt var upp hægri væng og þaðan skotið úr lokuðu færi. Helgi snerti knöttinn en fangaði ekki. Knötturinn barst að marklínu þar sem Jón ætlaði að hreinsa en mistókst og setti SEXTÁN leikir hafa farið fram í knattspyrnumótum yngri flokk anna síðan við birtum þennan dálk fyrir viku. Er hér um að ræða Reykjavíkurmótið í knatt- spyrnu og Landsmótið sem nú er byrjað. Helztu fréttir frá Reykjavíkur mótinu eru þær, að KR hefur tryggt sér sigur í 3. flokki A. Einn leikur er eftir í mótinu Val- ur-Víkingur, en hann getur ekki haft áhrif á úrslitin. Einstök úrslit í leikjum voru þessi: Reykjavíkurmótið: 2. flokkur A Fram:Þróttur 0:0 KR:Víkingur 6:0 3. flokur A KR—Víkingur 4:3 — KR hef- ur hlotið 5 stig, í þessum flokki og þar með unnið mótið. Fram var sigurvegari í þessúm flokki í fyrra. Þjálfari KR-ingana er Örn Steinsen. knöttinn í netið. Leikurinn stóð 1:1 í hálfleik og það bæði sjálfsmörk. * AKURNESINGAR SÆKNARI . . . Akranes var í byrjun miklu sæknara lið. Fyrstu 20 mínúturn- ar náðu Red Boys aldrei að skapa tækifæri sem gæfi vonir um mark. En hálfleikurinn jafnaðist er á leið. Þó áttu Akurnesingar góð færi, t. d. komst Ingvar Elís- son í „dauðafæri“ en mistókst herfilega. Á . . . EN KLAUFSKIR Síðari hálfleikurinn var mark laus. Akurnesingar áttu tvö beztu tækifærin — Ingvar í bæði skiptin. í fyrra skiptið stóð hann óvaldaður á markteig en mis- tókst herfilega. í hið síðara fékk hann góða sendingu fyrir, en sendi hátt yfir. Red Boys áttu nokkur skot, sum góð, en Helgi forðaði allri hættu. Leikurinn var mjög skipulags- laus af beggja hálfu. Skagamenn náðu aldrei saman. Beztur var Sveinn Teitsson, þó margoft hafi hann átt betri leik. Framlínan var mjög sundurlaus og óskipu- leg í mesta máta. Voru innherj- arnir oftast báðir á vinstra kanti og varð þó aldrei séð, að liðið byggði upp leik sinn með þeirri aðferð, heldur þvert á móti brotn aði leikur þess oft á þessu ráfi hægri innherjans yfir á miðju og yfir til vinstri. Markvörðurinn er bezti maður liðs Red Boys. Letsch er góður uppbyggjari, en hann lék nú að- eins fyrri hálfieik, og margt af því sem hann gerir vel skemma aðrir með klaufaskap. 4. flokkur A Fram: Þróttur 3:1 KR:Víkingur 8:2 4. flokkur B Valur:Fram C 2:1 KR:Víkingur 3:1 5. flokkur A Fram:Þróttur 10:1 KR-Víkingur 0:1 5. flokkur B Valur:Víkingur 0:1 KR:Víkingur b 2:3 Landsmótin: í Hafnarfirði léku Hafnfirðing- ar við Keflvíkinga tvo leiki, annan í Landsmóti 4. flokks og hinn í 2. flokki. Jafntefli varð í 4. flokki 1:1, en Hafnfirðingar .báru sigur úr býtum í 2. flokki 3:2. — Á sunnudaginn léku svo Hafnfirðingar og Akurnesingar í Landsmóti 3. flokks. ÍA vann 3:1. — A. St. KR sigurvegari í 3. fí. A Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem styrktu Jónu dóttur okkar, til læknishjálpar erlendis og á einn eða annan hátt hafa sýnt okkur einstaka velvild og hjájpsemi í veiki)idum hennar. — Guð blessi ykkur öll. Mállríður Halldórsdóttir, Arnór Stígsson. Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glödci mig á 75 ára afmæli minu 23. júní sl. með heimsóknum, gjöf- um blómum og heiliaskeytum. — Guð blessi ykkur öll. Björg Guðmundsdóttir, Þórsgötu 7 A. Hjartanlega þakka ég öllum sem glöddu mig með heim- sóknum, gjöfum og skeytum á 60 áfa afmæli mínu 16. júní s.l. —■ Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Kr. Guðmundsson, Jófriðarstaðavegi 8, Hafnarfirði. Þakka af alhug börnum mínum, frændfólki og vinum, f jær og nær, allan hlýhug og virðingu mér sýnda á 70 ára afmæli mínu þ. 13. þ.m. St. Einingunni nr. 14 af I.O.G.T. og öðrum reglufélögum mínum þakka ógleymanlega kvöldstund í G.T. húsinu 15. þ. m. Árna öllum árs og friðar. Kristjana Ó. Benediktsdóttir Oldugötu 41 Móðir okkar, tengdamóðir og amma, VALGERÐUK ANNA GUÐNADÓTTIR andaðist að Landakotsspítala þann 26. þessa mánaðar. Guðni Ólafsson, Magnea Magnúsdóttir Páll Ólafsson, Asgerður Jakobsdóttir og synir Móðir mín STEENUNN BJÖRNSDÓTTIR frá Þurá, Sólvédlagötu 39 andaðist föstudaginn 24. júní Sigrún Bjarnadóttir Eiginmaður minn HAULDÓR SKAPTASON andaðist laugardaginn 25. þessa mánaðar. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna. Hedvig Skaptason Hjartkær eiginmaður minn BJARNI GUÐNASON trésmíðameistari lézt að Landspítalanum 26. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda. Ingibjörg Gamalíelsdóttir Hjartkær systi okkar JOHANNE KAROLINE HALDORSEN verður jarðsett frá Dómkirkjunni .fimmtudaginn 30. júní kl. 1,30 e.h. Ragnar Severin Haldorsen, Haldor Johan Haldorsen Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð við andlát og jarðarför eiginkonu, móður og systur JÓNU G. STENGRIMSSEN Elín Alfhild, Sverre Stengrimssen. Alúðarþakkir færum við öllum fjær og nær sem auð- sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför , okkar ástkæra föður, afa og bróður ANDRESÁR INGIMUNDARSONAR Hellukoti, Stokkseyri. Jórunn Andrésdóttir, Guðrún Andrésdóttir, Margrét Andrésdóttir, Kristmundur Andrésson, Ester Þorsteinsdóttir, Gunnar Ingimundarson. Innilegt þakklæti öllum þeim er sýndu mér samúð og velvild við andlát mannsins míns. AUÐBJÖRNS EMILSSONAR, málarameistara þann 11. marz sl. — Sérstaklega þakka ég hjartanlega hljónunum frú Sesselju Hinriksdóttur og Georg Pálssyni, Skipasundi 55, Reykjavík, sem reyndust manninum mín- um sem beztu foreldrar meðan hann dvaldist á sjúkra- húsi syðra. Eskifirði, 24. júní 1960 Fyrir mína hönd og annara vandamanna. Margrét Guðmundsdóttir 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.