Morgunblaðið - 05.02.1961, Blaðsíða 1
24 siður
48. árgangur
29. tbl. — Sunnudagur 5. febrúar 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsii
Óttazt oð 20
manns hafi farizf
er öskuhaugur hrundi
LlEGE, Belgíu, 4. febr. (Reuter)
Það slys varð í námabænum
Moulin-Sous-Fleron í námunda
við Liege í gær, að ösku og gjall
haugur, um hundrað metra hár,
hrundi yfir sex íbúðarhús og
eina verksmiðjubyggingu. Allt
að tuttugu manns munu hafa graf
Eldflaug
til iðra
jarðar
London, Jf. febrúar — fReuter)
SOVÉZKIR vísindamenn vinna
nú að rannsóknum á „jarðfræði-
legri eldflaug“, sem senda á til
iðra jarðar.
Rússneskur jarðfræðingur,
Dmitry Nalivkin, skýrði frá
þessu á ársþingi Sovézku vís-
indaakademíunnar.
Samkvæmt frásðgn Tass-
fréttastofunnar, sagði Nalivkin,
að merm hefðu nú allgott vald
og þekkingu á himingeimnum,
en þeir hefðu enn sem komið
væri enga hugmynd um hvað
um væri að vera 10—20 km
undir fótum okkar. Segir Naliv-
kin, að rússneskir vísindamenn
hafi þegar lagt drög að slíkum
rannsóknum, en þær verði mjög
umfangsmiklar. Eldflaug sem
send yrði að iðrum jarðar yrði
að gerast úr sérstökum málm-
nm. Annað mál, sem mjög væri
xnikilvægt og biði úrlausnar
væri að ákvarða nákvæmlega
aldur jarðarinnar, sem nú er
talin vera þriggja til sex milj-
arða ára gömul. En með jarð-
efnafræðilegum rannsóknum,
eetti að verða mögulegt, að
ákvarða aldur hepnar mun nán-
ar, sagði Nalivkin.
Hitabylgja ó
heimskautinu
WELLINGTON, Nýja Sjá-
landi, 4. febrúar, (Reuter). —
Hitabylgja virðist nú ganga
yfir Suðurskautslandið. Á a.
m.k. tveim athugunarstöðvum
hefur hiti mælzt ofar frost-
marki undanfarna daga og
allt að 5,5 gráðum á Celsíus.
Að sögn W.S. Lantermanns,
yfirveðurfræðings bandaríska
sjóliðsins á Suðurskautinu,
hefur veðurfar verið óvenju
hlýtt undanfarið og tíðum
rigning og slydda. Að öllu
jöfnu er slydda ekki óvenju-
leg úti við ströndina á þess-
um tíma árs, en afar fátið inni
í landi.
A Byrd-stöðinni, sem ligg-
ur undir 18 feta snjólagi, hef
ur undanfarna daga verið hiti
um frostmark og stormur og
regn svo mikið að stórir læk
ir mynduðust. Likja menn á-
hrifunum helzt við hitabeltis
storma.
izt undir haugnum og er óttazt
að allir hafi farizt.
Undanfarna daga hefur mikið
rignt í héraðinu og var fyrir
nokkru tekið að hrynja smáveg
is gjall og renna úr haugnum en
síðan hrundi framhlið hans yfir
húsin. í nótt og í dag hefur ver
ið unnið að björgunarstarfi með
jarðýtum og hafa sex lík fund-
izt þegar. Neyðaróp og köll heyrð
ust úr haugnum í alla nótt, en
undir morgun þögnuðu þau ger-
samlega.
Baudouin konungur og Fabiola
lögðu þegar af stað í morgun frá
Brússel til slysstaðarins. Enn
rignir mikið í suðurhluta lands
ins.
Kommúnistar óska gerð
ardóms í kjaradeilum
\VHI Karl Guðjónsson slíka lausn í Eyjum?\
A ALÞINGI haf-a þeir Lúðvík
Jósefsson og Karl Guðjónsson,
þingmenn kommúnista, lagt fram
frumvarp til laga um gerðardóm
í ákveðnum kjaradeilum. Vilja
þeir að deilur
I um fiskverð það,
sem vinnslu-
| stöðvar greiði sjó
mönnum og út-
vegsmönnum
skuli leystar
með gerðardómi,
j§ þar sem opinber
embættismaður
hafi oddaat-
kvæði. Samkvæmt frumvarpinu
á gerðardómurinn að hafa endan
legt ákvörðunarvald, hvort sem
aðilum líkar dómur hans betur
eða verr.
Þjóðviljinn ræðir í ritstjórnar-
grein í gær um kjaradeilur og
segir ríkisstjórnina hafa svikið
fyrirheit að gerast ekki þátttak-
andi i deilum hinna mismunandi
stétta þjóðfélagsins. Lætur blað-
íð að því liggja, að útilokað sé
fyrir stjórnarvöldin að láta vinnu
deiiur afskiptalausar, enda var
það meginstefna vinstri stjórn-
arinnar að vera miðpunkturinn
í sérhverjum átökum þjóðfélags-
stéttanna um skiptingu arðsins.
Með tilliti til frumvarps þess,
sem kommúnistar flytja, virðist
því verða að skilja þessa rit-
stjórnargrein sem stuðning við
allsherjargerðardóm í vinnu-
deilum.
Athyglisvert er það einnig, að
í Þjóðviljagreininni er tvívegis
vikið að verkfallinu í Eyjum en
Karl Guðjónsson, flutningsmaður
frumvarpsins um gerðardóm, er
Enn óeirðir í Rómaborg
RÓM. 4. febr. (Reuter) —
morgun urðu hér óeirðir þriðja
daginn í röð vegna umræðna í
þinginu um deilu ítala og Austur
ríkismanha um Suður Týról.
Hafa þjóðernissinnaðir háskóla-
stúdentar staðið fyrir mótmæla
göngum og hópfundum, farið
hrópandi og syngjandi um götur
og tafið samgöngur. Tilraunum
lögreglu til að halda reglu hafa
þeir mætt með grjótkasti.
Nýfasistablaðið II Secolo lof
ar mjög og styður aðgerðir stúd
enta í dag og gagnrýnir lögregl
una f r rir afskipti hennar af
málinu. Hinsvegar andmælir blað
kristilega demokrataílokksins
mótmælaaðgerðum stúdenta og
segir að ungir menn innan nýfas
istahreyfingarinnar hafi enn einu
sinni sýnt berlega hinn heimsku
lega hroka sinn
Ráðist á fangelsi
í Angola
4. febrúar (Reuter).
VOPNAÐIR menn réðust á tvö
fangelsi og lögregluvarðstöð í
portúgölsku nýlendunni Angola
í nótt, að því er tilkynnt var af
hálfu opinberra aðila í Lissabon
í dag. Þrír hópar vopnaðra
manna gerðu, hver í sínu lagi,
árásir á fangelsi, lögregluvarð-
stöð og herfangelsi í Luanda í
Angola óg féllu nokkrir menn,
bæði úr hópi árásarmanna, fanga
varða og fanga, sem ætlunin var
að leysa úr haldi. Upplýsinga-
málaráðuneytið í Lissabon neit-
ar að segja hversu margir hafi
fallið. segir aðeins — að þeir hafa
ekki verið of margir. Jafnframt
segir ráðuneytið að árásarmenn-
irnir er eftir lifðu hefðu verið
handteknir.
einmitt sá mað-
ur, sem stendur
fyrir því verk-
falli. Líklega er
Þjóðviljinn að
benda Karli á að
krefjast þess, að
gerðardómur
verði látinn
fjalla um vinnu
deiluna í Vest-
mannaeyjum. Virðist ekki úr
vegi taka það mál til athugunar,
ef kommúnistar eru allt í einu
farnir að leggja megináherzlu á
að gerðardómur leysi kjara-
deilur.
Ekkj var honum vanþörf ái
að fá dálitla hressingu eftir
geimferðina Sjimpansanum I
þeim arna. Enda getur sá er |
gaf honum eplið varla vænzt j
þess að fá innilegra og þakk-r
látara bros en hér gefur að I
líta.
Rifin
klœði
KARACHI, Pakistan, 3. febr.
(Reuter) — Stórt tjald féll í
dag í Karaehi, yfir fjölda
gesta, er hugðust taka á móti
Elisaibetu Englandsdrottningu
og manni hennar, sem væntan
leg voru á hverri stundu. Fólk
ið hafðf leitað skjóls undir
tjaldinu, er steypiregn skall
á. Sóltjaldið þoldi ekki þunga
regnsins og féll yfir gestina,
sem máttu sér litla björg
veita. Karlmenn drógu upp
vasahnífa sína og skáru göt
á tjaldið og gátu þannig
losað um fólkið. Engin
slys munu hafa orðið á
mönnum, en skemmdir rniklar
á klæðnaði. Komu konur und
an sóltjaldinu skólausar og
með rfina kjóla.
Barnmargar
konur óánægðar
með eigin-
mennina
LONDON, 2. febr. (Reuter) —
Brezka blaðið Daily Sketch
birti í dag niðurstöður skoðana-
könnunar, sem það hefur gert
í hópi lesenda sinna, um hjóna-
bandshamingjuna —. eða hið
gagnstæða. — Megin-niðurstöð-
urnar eru þær, að 4 af hverjum
10 konum, sem svöruðu spurn-
ingum blaðsins, vildu gjarna
losna við eiginmenn sína — og
3 af hverjum 10 karlmönnum
segjast ekki mundu kjósa að
kvænast konum sínum á ný, ef
þeir ættu þess kost að velja
sér eiginkonu öðru sinni. —
Þúsundir lesenda tóku þátt í
þessari skoðanakönnun.
— ★ —
Þá kemur það m. a. fram, að
eftir því sem hjón eiga fleiri
börn, er það almennara, að kon-
an sé óánægð með eiginmann-
inn. — Daily Sketch hóf athug-
un sína á þessu máli, þegar 33
ára gömul kona, fimm barna
móðir, uppgötvaði það eftir 1?
ára „hjónaband", að gifting
hennar hafði verið ólögleg. —
Aðspurð kvaðst hún ekki hafa
hug á að giftast manni sínum
á ný.
— ★ —
Síðan skoðanakönnun blaðsins
hófst hefur þessi kona þó skipt
um skoðun. Hún er nú nýtrúlof
uð „eiginmanni“ sínum.
Sýnir að Portúgalir
standa saman
LISSABON, Portúgal, 4. febr. —
(Reuter). — Óháða dagblaðið O
Seculo segir í dag, að „Santa Mar
ia“ málið hafi sýnt heiminum að
Portúgalir standi saman. Kem,ur
fram í blaðinu nokkur gagnrýni
á Bandaríkin, Bretland og Braz-
ilíu fyrir að hafa ekki brugðið
skjótar við en raun var á, þegar
Galvao tók ráð á „Santa Maria“.
Nú hverfur „Santa Maria“ og
Galvao af forsíðum heimsblað-
anna segir O Secula, en málið he^,
ur orðið til þess að sýna fram á
að Portúgalir standa saman í með
læti jafnt sem mótlæti