Morgunblaðið - 05.08.1961, Blaðsíða 1
20 slður
48. árgangur 174. tbl. — Laugardagur 5. ágúst 1961 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ekkert nýtt
í svari Rússa
segir talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins
I^ondön og Moskva, 4. ágúst —
(Reuter).
1 DAG var birt opinberlega svar
Sovétstjórnarinnar við orðsend-
ingu Vesturveldanna um Berlinar
málið frá 17. júlí sl. í svari sinu
leggja Rússar áherzlu á að gera
verði friðarsamninga við allt
pýzkaland — ef Vesturveldin
gangi ekki til móts við Rússa
i þeim efnum, muni Rússar gera
eérsamninga við Austur Þjófú-
verja. Hinsvegar segjast Rússar
reiðubúnir til samningaviðræðna
um Berlín og Þýzkalandsmálið.
Svar Sovétstjórnarinnar til
Bandaríkjamanna, Breta og
Frakka er fimmtán vélritaðar
síður og að sögn talsmanna
árásir séu. Hinsvegar er svarið
þeirra fremur hóflega orðað, þótt
til Vestur Þýzkalands öllu hvass-
ara.
MIG-17 lenti
óvænt
Vínarborg, 4. ágúst. —
(Reuter).
í DAG varð sá viðburður í
Austurríki, að tékknesk
tveggja hreyfla orrustuþota af
gerðinni MIG-17 lenti óvænt á
Aspern flugvelli, sem er um 20
km frá Vínarborg. Þotan flaug
fyrst yfir aðalflugvelli borg-
arinnar en sneri þaðan aftur,
sennilegast vegna hirínar
miklu umferðar um völlinn og
hélt síðan til Aspern.
Þegar er Ijóst var hverrar
þjóðar þotan var, var lögregl-
unni gert aðvart. Síðar var
tilkynnt opinberlega að loft-
siglingatæki þotunnar hefðu
bilað. Flugmaðurinn neitaði
með öllu að hafa tekið ljós-
myndir yfir austurrísku landi
og vildi að öðru leyti ekkert
um ferðalag sitt segja, en bað
um að tékkneska sendiráðinu
yrði gert aðvart.
Talsmaður lögreglunnar
sagði síðdegis í dag, að senni-
lega fengi flugmaðurinn að
fljúga þotunni strax aftur til
Tékkóslóvakíu.
Ríkisstjórnir Vesturveldanna
hafa svarið enn til ítarlegrar at-
hugunar og hafa lítt viljað segja
Framh. á bls. 19
Helgi Flóventsson ÞH 77
(Ljósm.: Snorri Snorrason),
Baturinn a hliðina á4mínútum,
— segir skipstjórinn á Helga Flóvents-
syni, sem sökk út af Langanesi í gær
„EKKI liðu nema 4—5 mínútur frá því við urðum
fyrst varir við, að báturinn var farinn að hallast þar
til hann var kominn alveg á hliðina og möstrin
námu við sjó“, sagði Hreiðar Bjarnason skipstjóri á
Helga Flóventssyni ÞH 77, í símtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi.
Eins og kunnugt er sökk Helgi Flóventsson um 4Vz
sjómílu norðaustur af Langanesi kl. rúmlega 4,30
í gærdag. Áhöfnin, 11 manns, bjargaðist öll í gúmmí-
bát skipsins og síðan yfir í vélbátinn Stíganda frá
Ólafsfirði, sem flutti mennina til Raufarhafnar, en
þangað komu þeir um kl. 9 í gærkvöldi.
Samtal við skipstjórann
— Hvað haldið þið, að komið
hafi fyrir? spurði blaðamaður-
inn skipstjórann.
— Þetta bar allt svo skjótt að,
að maður gat naumast gert sér
grein fyrir, hvað var að gerast.
Hið eina, sem við getum ímynd-
að okkur, að gerzt hafi, er, að
skilrúmið fram í lúkarinn hafi
sprungið. Annars er maður eig-
inlega ekki búinn að átta sig á
þessu.
— Þú sagðir, að þetta hafi allt
igerzt í mjög skjótri svipan. Á
hve löngum tíma heldurðu?
— Það liðu ekki nema 4—5
mínútur frá því við urðuim fyrst
varir við, að báturinn var farinn
að hallast, þar til hann var kom-
inn alveg á hliðina og möstrin
námu við sjó. Honum hvolfdi
alveg nokkru eftir að við vorum
komnir yfir í björgunarbátinn.
Og sokkinn var hann eftir 15—20
mínútur, en þá vorum við komn-
ir yfir í Stíganda.
ífc------:---------------------
í gúmmíbátinn til okkar hinna.
— Líður ekki öllum vel?
— Jú, þakka þór fyrir.
— Hvernig var veðrið?
— Það var hálfslæmt, norðaust
an 6.
— Þið voruð með talsverðan
afla?
—Já, við vorum með 7—800
mál, þar af 2—300 mál á dekki.
Skýrsla skipstjóran* á Stíganda
Einar Jónsson, hreppstjóri á
Raufarhöfn, yfirneyrði skipstjór
ann á Stíganda, þegar báturinn
kom þangað í gærkvöldi. Hafði
Stígandi verið á leið frá Ólafs-
firði austur fyrir land. En þeg-
ar hann var staddur 4—5 sjó-
mílur norðaustur af Langanesi
um kl. 4.30 mætti hann Helga
Flóventssyni. Sáu skipverjar á
Stíganda, að hann hallaðist ó-
eðlilega mikið á stjórnborða, en
var að beygja upp á bakborða
til þess að reyna að rétta sig
af. Örskömmu siðar féll Helgi
alveg á síðuna, en þá var Stíg-
andi kominn að honum.
Þegar hér var komið, setti
skipshöfnin á Helga Flóvents-
syni út gúmmíbjörgunarbát sinn
og gátu allir skipverjar stokkið
niður í hann, nema einn, sem
lenti f sjónum, en náðist þó
fljótlega upp í bátinn, sem fyrr
segir. Stígandi fór svo nærri
Helga sem hann taldi ráðlegt,
en ekki vildi skipstjórinn leggja
alveg upp að honum af ótta við
að nótin, sem var á floti, lenii
í skrúfu Stíganda. Gekk síðan
Framhald á bls. 19.
Hreiðar Bjarnason, skipstjóri
— Fór nokkur í sjóinn?
— Já, 1 maður fór í sjóinn, en
honurn var fljótlega bjargað upp
Hlerkur
leiðslu
árangur í fram-
penicillinlyfja
1 SÍÐASTA hefti bandaríska
vikuritsins Time, er skýrt
frá hinu nýja penicillin-lyfi,
„Penbritin“, sem fundið hef-
ur verið upp í Bretlandi og
skýrt var frá hér í blaðinu
fyrir skömmu. Time telur
asta árangur, sem náðst hef-
ur í framleiðslu fúkalyfja
(antibiotica) síðan árið 1959,
að tókst að einangra 6-amina
penicillin-sýru.
Penbritin-afbrigðið hefur við
tilraunir reynzt virkara gegn
uppfinningu lyfsins merk- mun fleirj sýklum
en onnur
penicillín-lyf til þessa. Verði
árangur af notkun þess í fram-
tíðinni svo góður, sem útlit er
fyrir nú, verður það fyrsta
virka lyfið gegn ýmiss konar
matareitrun, vissum tegundum
sjúkdóma í öndunarfærum og
ef til vill einnig gegn tauga-
veiki.
Framhald á bls. 19.
A-Þýzka stjórnin
heröir enn ólina
A - Þjóðverjar, sem vinna í v-Berlín,
greiði húsaleigu ljós, vatn og gas
með v - Þýzkum mörkum
Berlín, 4. ágúst. (Reuter/NTB)
YFIRVÖLD Austur-Þýzka-
alnds hafa ákveðið, að allir
A-Þjóðverjar, sem stunda
vinnu í Vestur-Berlín skuli
framvegis greiða húsaleigu,
ljós-, vatns- og gasreikninga
með v-þýzkum mörkum. Á
frjálsum markaði er nú unnt
að fá fimm a-þýzk mörk fyr-
ir eitt v-þýzkt, en samkvæmt
skráðu gengi eru mörkin
jöfn, svo að ákvörðun þessi
hefur í för með sér allveru-
lega kjararýrnun fyrir fólk-
ið. —
Algengt e», að 40% af laun-
um þeirra er vinna í V-Berlín
séu greidd í v-þýzkum mörkum,
en afgangurinn í a-þýzkum. —
Hefur þetta gert mörgum fjöl-
skyldum fært að búa í viðun-
andi íbúðum og lifa sæmilega
góðu lífi. Ráðstöfun stjórnarinn-
ar gildir jafnt þótt aðeins einn
af meðlimum fjölskyldu vinni í
V-Berlín, hvort það er annað-
hvort foreldra, sonur eða dótt-
ir. Þung viðurlög liggja v*8
brotum á þessari tilskipan, —
annaðhvort geta menn átt á
hættu þungar sektir eða fang-
elsisdóma.
Gömul lög endurvakin
Jafnframt hefur verið til-
kynnt, að allir þeir, sem vinna
í V-Berlín verði að láta skrá-
Framhald á bls. 19.
Túnis, 4. ágúst — (NTB).
SOVÉTRÍKIN hafa lánað Túnis
25 millj. rúblna, að því er til-
kynnt var í Túnis í dag. Upphæð
inni verður vnrið til tæknifram-
kvæmda.