Morgunblaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 1
24 siður
ísland og 56 ríki önnur
vilja samtök gegn kjarn-
Ólafur Thors á heimili sínu í gær.
orkuvopnum
New York, SO. nóv. (NTB-AP)
STJÓBNMALANEFND Alls-
herjarþings SÞ samþykkti í
dag tillögu um að rannsaka
möguleika á því að koma á
samtökum þeirra þjóða sem
vilja banna kjarnorkuvopn á
landsvæðum sínum. Tillagan
var samþykkt með 57 atkv.
gegn 12, en fulltrúar 32 ríkja
sátu hjá við atkvæðagreiðsl-
una. Norðurlöndin greiddu
öll atkvæði með tillögunni,
sem flutt var af Svíþjóð og
sjö löndum öðrum. Fulltrú-
ar Bretlands, Bandaríkjanna,
Frakklands og flestra ann-
Olafur Thors kominn heim
ara landa Atlantshafsbanda-
lagsins greiddu atkvæði gegn
tillögunni, en fulltrúar komm
únistaríkjanna með. Kanada
greiddi einnig atkvæði með
tillögunni.
í tillögunni er farið þess á
leit að aðalr.itari Sameinuðu
þjóðanna láti fara fram rann-
sókn á því meðal ríkja, sem enn
ekki hafa kjarnorkuvopn, hvort
þau eru fús til að lýsa því yfir
að þau muni ekki hefja fram-
leiðslu slíkra vopna, þau muni
ekki reyna að útvega sér þau á
annan hátt og ekki leyfa öðr-
um ríkjum geymslu kjarnorku-
vopna á landsvæðum sínum.
Eru stórveldin beðin að taka til-
lit til ákvarðana samþykktar-
innar.
I umræðum um tillöguna
sagði Mendelvits fulltrúi Sovét-
ríkjanna að hún væri Lofsverð
tilraun til að koma í veg fyrir
kjarnorkustyrjöld, þótt taka
mætti sterkar til orða í henni.
Hann sagði að ýmislegt benti
til þess að Vestur-Þjóðverjar
væru að undirbúa smíði kjarn-
orkuvopna, þrátt fyrir yfirlýs-
ingar Adenauers um hið gagn-
stæða. — í>að er vitað mál,
sagði hann, að kjarnorkuvopn
eru geymd í Vestur-Þýzka-
landi.
Fulltrúi Bandaríkjanna sagði
að tillagan drægi í efa rétt þjóð
anna til samvinnu um sameig-
inlegar varnir, en brezki full-
trúinn, Dundee lávarður, taldi
að afvopnunarnefnd Allsherj-
arþingsins bæri að ræða efni
tillögunnar.
Eins og að framan er sagt
greiddu Island, Danmörk, Nor-
egur, Finnland, Svíþjóð og
Kanada tillögunni atkvæði, en
öll önnur NATO-lönd voru á
mótL
Lange í Moskvu
MOSKVU, 30. nóv. <NTB>: —
Halvard Lange utanrí'kisráðherra
Noregs fór í kvöld frá Leningrad
til Moskvu, en þar ræðir hann
við Krúsjeff forsætisráðherra sið
degis á föstudag. Lange mun fara
flugleiðis heim til Noregs á laug
ardagsmorgun með viðkomu í
Stokkhólmi.
Tekur við störfum um áramót
E I N S og lesendum Morg-
unblaðsins er kunnugt, hafa
Ólafur Thors og frú Ingi-
björg, kona hans, dvalizt í
Ameríku undanfarnar vik-
ur á heimili Þorsteins Gísla-
sonar, verkfræðings, tengda-
sonar þeirra, og Ingibjargar
dóttur þeirra.
★
Fréttaritari Morgunblaðsins
leit út um gluggann í gær og
þóttist þá ekki mann á velli
kenna, sæi hann ekki fyrir sér
á hraðri göngu í Austurstræti
Ólaf Thors. Skömmu síðar
hringdi hann heim til Ólafs og
þekkti þá rödd hans.
Hreinsun í
Búlgaríu
SOFIA, Búlgaríu, 30. nóv. —
(NTB). — Skýrt var frá því í
Sofiu í kvöld að framkvæmda
stjóri búlgarska kommúnista-
flokksins, Sjervenkov, hafi
verið rekinn úr flokksstjórn-
inni. Sjervenkov er þekktur
i taismaður Stalinismans innan
búlgarska kommúnistaflokks-
ins.
Miðstjórn flokksins tók
ákvörðun um brottreksturinn
á fundi í dag þar sem Todor
Zhivkov aðalritari gaf skýrslu
um 22. flokksþingið í Moskvu.
Astæðan fyri rbrottrekstrin
um er sú að Sjervenkov hefur
ekki dregið réttar ályktanir
varðandi afnám persónudýrk-
unar í Búlgaríu og barðist
gegn kröfu flokksstjórnarinn-
ar um að henni yrði hætt.
— Sælir og blessaðir og vel-
komnir heim. Hvernig er heils-
an? Hvað er að frétta?
— Bezt er að tala ekki af sér
um heilsuna, sagði Ólafur Thors
og hló, því þá verð ég kannski
kvaddur til starfa. En það vil
ég ekki. Mér hefur verið veitt
frí til áramóta. Ég held mig að
því rneð góðri samvizku, veit
vel að allt er í traustum og
góðum höndum. Mér er víst
óhætt að játa þakklátum huga
að heilsan er eins og ég fæ
bezt á kosið. Ég viðurkenni að
hvíldin hefur sannað mér, að
ég var hvíldar þurfi. Það er
meiri munur en ég hafði gert
mér grein fyrir á erilsömu
ábyrgðarstarfi frá morgni til
kvölds nær alla daga allan árs-
ins hring annars vegar og hins
vegar algjörri hvíld á indælu
heimili, þar sem mér leið eins
og heima hjá mér að því und-
anskildu að nú spurði enginn
eftir mér og síminn lét mig í
friði.
Ég viðurkenni líka, að ég
þykist skilja, ’ að eftir að öll
þreyta er horfin, fer bezt á að
hvíldin verði ekki of löng, því
ella breytist hún í ófullnægða
athafnaþrá. Allir þurfa að vinna,
— já, helzt að standa í stríði,
meðan heilsa og kraftar ekki
bila.
— Heimsóttuð þér bandaríska
valdamenn í förinni?
— Nei, alls ekki. Ég var al-
gjörlega í einkaerindum í Banda
ríkjunum.
— Hvað segið þér um íslenzk
stjórnmál?
— Sem fæst. Ég er í fríi og
fer þá vel á að aðrir séu í friði
fyrir mér. Ég get þó ekki stillt
mig um að geta þess, að af
þeim tíðindum að heiman, sem
mér bárust vestur og glöddu
mig hvað mest, voru fregnirnar
af hinum volduga landsfundi
Sjálfstæðisflokksins, jafnt álykt-
unum fundarins og framtíðar-
Framboð gegn Kekkonen
stefnunni, sem hann markaði,
sem þeirri einingu og samhug
sem þar ríkti, ekki sízt um val
formanns og varaformanns
flokksins.
—- En hvað um heimsmálin?
— Eg ætla ekki að fara að
leika óskeikulan páfa um heims
málin, þótt ég dveldist í nokkr-
ar vikur fjarri fósturjarðar
ströndum. Einna mesta athygli
mína vakti hinn mikli skuggi
óttanns við nýja heimsstyrjöld,
sem mér virtist grúfu yfir al-
menningi þar í landi. En ógn-
þrungnustu atburðirnir voru
sprengjur og helryk Rússanna.
Enginn veit hvort eða hvenær
harmleikurinn kann að hefjast
að nýju, né til hvers hann þá
kann að leiða. Víst er, en enda
þótt enn á ný tækist að afstýra
heimsstyrjöld, þá eru því tak-
mörk sett, hversu oft og lengi
má leika sér að þeim voðaeldi,
Framh. á bls. 2.
New York, 30. nóv. (NTB-AP)
RÚSSAR beittu í dag neit-
unarvaldi sínu í Öryggisráði
SÞ til að hindra inntöku
Kuwait í Sameinuðu þjóð-
irnar. Er þetta í 98. sinn sem
Rússar beita neitunarvaldi
í Öryggisráðinu.
Fyrr í dag hafði Valerian
Zorin, núverandi forseti Oryggis-
ráðsins, lagt til að afgreiðslu
málsins yrði frestað. En fulltrúi
Arabiska sambandslýðveldisins,
sem flytur tillöguna um inntöku
Kuwait, krafðist þess að málið j
yrði tekið fyrir.
HELSINGFORS. 30. nóv. (NTB-
AP). — Tilkynnt var í Helsing-
fors í dag að finnski jafnaffar-
mannaflokkurinn hefði ákveðið
að bjóða fram mann gegn
Kekkonen við forsetakosningarn-
ar, sem fram eiga að fara í jan-
n. k. Fyrir valinu varð Rafael
Paasio. Hann er 58 ára og hefur
átt sæti í stjórn Jafnaðarmanna-
flokksins um langt skeið.
A fundi flokksstjórnar jafnað-
armanna sagði formaður flokks-
ins, V. Tanner, að eftir að Olavi
Honka dró framboð sitt til baka
hafi flokkurinn átt þriggja kosta
völ. Hann hefði getað neitað að
bjóða fram. Hann hefði getað
skorað á kjósendur að taka þátt
í kosningunum án þess að lýsa
stuðningi við nokkurn frambjóð
anda. Þessir báðir kostir væru
Þegar allir hinir fulltrúarnir í
Oryggisráðinu höfðu greitt
atkvæði með því að Kuwait fengi
inntöku í SÞ greip Zorin til neit-
unarvalds síns.
Zorin hélt því fram í umræð-
unum um inntökubeiðnina að
Kuwait væri ekki sjálfstætt ríki
heldur háð Bretum. Þetta leiddi
til þess að Bretar gætu hvenær
sem er sent herlið til Kuwait og
með því ógnað Arabaríkjunum.
Ef Kuwait yrði veitt aðild að
SÞ gæti það skapað erfiðleika
meðal Arabaríkjanna, og bæri
því að fresta afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Iraks sat lundinn, þótt
Irak eigi ekki sæti í Oryggisráð-
inu. Tók hann undir orð Zorins.
óaðgengilegir miðað við núver-
andi ástand. Þess vegna bæri
flokknum að bjóða fram eigin
fulltrúa við forsetakosningarnar.
TILKYNNT var í Bandaríkj-
unum í gær að ákveðið hafi
verið hver yrði fyrsti Banda-
ríkjamaðurinn, sem skotið
verður á braut umhverfis
jörðu. Hinn ú valdi er John H.
Glen ofursti, sém hér sést við
æfingu í Mercurv-eeimskiDÍ.
IMjet i 98. sirni
Rússar hindra inntoku Kuwaít í SÞ