Morgunblaðið - 26.06.1962, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.06.1962, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 26. júní 1962 MOFCTINRT 4 ÐIÐ 23 ☆ Á 1.ACGARDAG var opnuS í RáShúsinu í Kaupinannahöfn óvenjuleg málverkasýning. — Þar eru sýnd um 40 málverk eftir jafn marga málara, sem allir eru landsþekktir menn í Danmörku, en enginn þeirra þó fyrir mállaralist. Til sýningarinnar var stofn að með það fyrir augum að safna fé til vanþróaðra landa og á Lions klúbburinn á Am- ager frumkvæðið að henni. Póru forsvarsmenn klúbbsins Sveitasfjórnakosn- ingar um helgina Viggo Kampmann forsætisráðherra nefndir þessa mynd sína ■ aSeins „Komposition“ og hefur ekki látiS uppi hvaS hún á aS tákna. Ovenjuleg málverkasýning fyrst á fund Viggos Kamp- manns forsætisráðherra og báðu hann að mála mynd til sýningar. Hann tók tilmælun um heldur dauflega í fyrstu kvaðst aldrei hafa málað mynd og aldrei hugsað sér að gera það. En ráðherran lét loks til leiðast og hófst þá leit að fleiri þekktum mönnum, sem væru fúsir að leggja þetta á sig í góðum tilgangi. „Klovn“ eftir Preben Ugle bjerg er talin ein bezta myndin á sýningunni. — Bráðabirgðalög manna skipar einn meðdóm- anda og Sjómannasamband ís- lands, Farmanna- og fiski- mannasamband íslands og Al- þýðusamband íslands skipa sameiginlega einn meðdómanda. Nefni deiluaðilar, sem um getur í 1. mgr. þessarar grein- ar, ekki mann í dóminn af sinni hálfu innan þess tíma, sem dómsformaður tiltekur, skal hæstiréttur nefna í dóm- inn í þeirra stað. 4. gr. Dómsformaður kveður dóm- inn saman og annast um að störfum hans sé hraðað svo sem verða má. Skyldir eru deiluaðilar að láta dóminum í té skýrslur og upplýsingar, sem dómurinn kann að sækja og aðilar geta í té látið. Ráðningarkjör þau, sem dóm- urinn úrskurðar að gilda skuli milii deiluaðila, skulu vera bindandi fyrir aðila sumarið 1962 á sama hátt og þau hefðu verið ákveðin með samningi þeirr* á milli. Kjörin skulu einnig vera bindandi fyrir þau útgerðarfyrirtæki og útgerðar- menn, sem ekki eru félagar í Landssambandi íslenzkra út- vegsmanna. 5. gr. Allur gerðardómskostnaður greiðist úr ríkissjóðL 6. gr. Brot gegn lögum þessum varðar sektum, enda liggi ekki þyngri refsing við, samkvæmt öðrum lögum. Aðallega var leitað til þekktra stjórnmálamanna, leikara og íþróttamanna. Frá leikurum sýna þarna t.d. Poul Reumert, Preben Uglebjerg, Frits Helmuth og kona hans Jeanne Darville, Ebbe Rode, Diroh Passer o.fl. Af íþrótta- mönnum má nefna Gunnar Nu Hansen og Leo Fredriksen. — Þá sýna þarna borgarstjórar, þingmenn og ráðherrar. Efnilegir málarar. Gagnrýnendur dönsku blað anna láta mikið yfir þessari sýningu og segja að sumir „listmálaranna" gætu jafnvel gert þetta að atvinnu sinni, ef allt annað bregzt, því víða sjá ist talsverðir hæfileikar. — Einna mest lof hlýtur leikar- inn Preben Uglebjerg fyrir myndina „Klovn“. Eitt blað anna segir um þá mynd að hún sé máluð í „heitum og köldum rauðum litum“ og sé „koloristisik perla, sem minn- ir bæði á Toulouse-Lautrec og Börge Biilmann Petersen". 1 I ■■ Poul Reumert sýnir teikn- ingu af sjálfum sér í gervi Levins í leikritinu „Inden- for Murene“. Sýningunni lýkur fimmtu- daginn 28. júní með því að öll málverkin verða boðin upp og seld hæstbjóðanda. UM helgina fóru fram sveita- stjórnarkosningar um allt land- ið og hafa fréttaritarar blaðsins simað úrslit í fáeinum hrepp- um. Mosfellshreppur. Úrslit urðu þau, að af H-lista var kjörinn Guðmundur Magnússon, af J- lista þeir Jón Guðmundsson, Ólafur Pétursson og Höskuldur Ágústsson. Kosningaþátttaka var 91%. Seljatungu, 25. júní. — í sveitanstjómarkosningum þeim, sem fram fóru í Gaulverjabæjar hreppi í gær, hlutu þessir mern kosningu í hreppsnefnd: ívar Jasonarson, Voipsabæjarlhóli 80 atkv., Tómas Tómasson, Fljóts- hólum 65, Jón Sigurðsson, Syðri Gegnishólum 70, Stefán Hannes son, Arabæ 70, Guðmundur Jóns son, Syðri-Vellj 46. í sýslunefnd var kjörinn Gunnar Sigurðs- son í Seljatungu, hlaut 56 at- kvæði. Á kjörskrá voru 126, af þeim kusu 97. Formaður kjör- stjórnar var Vigfús Einarsson. — Gunnar. Grundarfirði. Hér fóru fram hreppsnefndarkosningar í gær. Á kjörskrá voru 280. 270 kusu, eða 95,5%. Komið höfðu fram tveir listar. D-listi, borinn frarn af Sjálfstæðismönnum og hlaut hann 144 atkv. og 3 menn kjörna og A-listi, borinn fram 7. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Gjört að Bessastöðum, 24. júní 1962. Ásgeir Ásgeirsson Emil Jónsson — Oran Svart: Svein Johannessen, ósló ABCDEFGH ABCDEFGH Hvítt: Ingi R. Jóhannsson. 32. .... Kf8-g7 33. Rh6-g4 Re5xRg4 34. DdlxRg4 .... YFIRLÝSING AÐ GEFNU tilefni, í sambandi við hina alvarlegu bilun á spenni (transformator) í Áburð arverksmiðjunni h.f. í Gufunesi, viljum við umboðsmenn Brown Boveri & Co., Ltd., ( Baden í Sviss taka það fram, að þessi spennir er ekki framleididur af framangreindum verksmiðjum. Fyrir hönd G. Marteinsson h.f. Baldur Jónsson. Framh. af bls. 24. úr borginni fyrir þjóðarat- kvæðagreiðsluna hinn 1. júlí. Um leið gaf hann þá yfirlýs- ingu, að skemmdarverk OAS- manna mundu verða ennþá stórfelldari en fyrr. Á sunnudaginn urðu spreng- ingar í mörgum skólahúsum og opinberum byggingum í Oran. Og snemma á mánudag var í annað sinn kveikt í ráðhúsi borgarinnar, sem nú má heita gjöreyðilagt. — Þetta hefur OAS-mönnum tekizt, þrátt fyr- ir það að hermenn stæðu á verði um allar opinberar bygg- ingar og skólahús borgarinnar. Miklir brottflutningar Heimildir í Oran, sem að jafnaði eru taldar áreiðanleg- ar, hafa láti ðuppi þá skoðun, að aðgerðir þessar séu enn ein tiuraunin af hálfu OAS- manna, til þess að knýja Serki til undansláttar í samningum. Ógna OAS-menn með brott- flutningi allra evrópskra manna og 'algjörri eyðileggingu borg- arinnar. — Þykir sumu fólki af evrópskum uppruna, að nú keyri um þverbak í aðgerðum OAS-hreyfingarinnar. Samkvæmt opinberum upp- lýsingum yfirgáfu Oran um helgina 8233 manns. Miklir erfiðleikar eru á að flytja á brott nema 5—6000 manns á dag. — I DAG er til moldar borin frú Ingibjörg Tómasdóttir Strand- götu 71 Hafnarfírði. Hún var fædd í Reykjavík 31. október 1905, dóttir Tómasar Tómassonar hiúsasmíðam. og konu hans Sigur laugar Grímsdóttur. — Norðurlandamet Framh. af bls. 22. Guðmundsd. ÍR 1.06.6. 2. Mar- grét Óskarsd. Vestra 1.10.1. 200 m bringusund karla Hörður B. Finnsson ÍR 2.36.5 Norður- landamet. 2. Guðm. Þ. Harðar son Æ 2.56.0. 50 m bringus. telpna Margrét Óskard. 42.8. 2. Kolbrún Guð- mundsd. ÍR 43.3. 3. Sigrún Sigvalded. KR 44.2. 50 m skriðsund drengja 1. Guðm Harðarson Æ 28.5. 2. Davíð Valgarðsson ÍBK 28.6. 3. Jó- hann Héðinsson Æ 32.1. 100 m bringus. kvenna Hrafnh. Guðmundsd. ÍR 1.27.6. 2. Kol- brún Guðmundsd. ÍR 1.39.5. 400 m einstaklingsfjórs. Guðm. Gíslason ÍR 5.18.5. — Heimsóknin Frarnh. af bls. 22. er þótt ungur sé þegar kom- inn undir smásjá dönsku lands- liðsnefndarinnar. Freddy Aaboe, Lyngby. Hef- ur leikið 4 úrvalsleiki. Mjög leikinn og fljótur leikmaður, en hættir til að einleika um of. Jens Olsen, Roskilde. Ungur og efnilegur útherji, sem leik- ið hefur einn leik í úrvalsliði af Framsóknarmönnum og kiommúnistum. Fékk hann 122 atkv. og 2 menn kjörna. 4 seðlar voru auðir og ógildir. Þá eru I hreppsnefnd af D-lisba Halldór Finnsson, oddviti, Hörður Páls- son, bóndi, Aðalsteinn Friðfinns son, skipstjóri. Af A-lista Njáll Gunnarsson, bóndi og Sigurður Lárusson, sjómaður. — E. 1 Vik í Mýrdal komu fram tveir listar, D-listi, borinn fram.. af Sjálfstæðismönnum og H-listi, borinn fram af samvinnumönn- um. D-listi hlaut 131 atkv. og þrjá menn kjörna, þá Gísla Skaftason, Pál Tómasson og Jón- as Gíslason. Af H-lista voru kjörnir Guðlaugur Jónsson og Guðmundur Jóhannesson. í sýslunefnd var kjörinn Sveinn Einarsson af H-lista Hlaut hann 128 atkvæði., en D-listi hlaut 124 atlcv. Kosningaþátttaka var tæp 93%. Hofsósi, 25. júní. Við hrepps- nefndarkosningar i Hofáhreppi voru 144 á kjörskrá. 111 kusu. B-listi Framsóknarmanna fékk 74 atkv., og 4 menn, en D-listi Sjálfstæðismanna fékk 36 at- kvæðj og 1 mann. Við síðustu kosningar hlutu Framsóknar- menn 4 menn og Sjálfstæðis- menn 1 mann. f Lýtingsstaffahreppi í Skaga> firði voru tveir listar í kjöri, B- listi, borinn fram af Framsókn- armönnum og D-listi, borinn fram af Sjálfstæðismönnum. B-listi fékk 93 (106) atkv. og 3 menn kjörna, en D-listi fékk 62 (56) atkv. og 2 menn kjörna. Af D-lista voru kjörnir þeir Sr. Bjartmar Kstjánsson, Mælifelli og Páll Ólafsson, Starrastöðum. í sýslunefnd var kjörinn af B- lista, Sigurjón Helgason. — Samskonar Framh. af bls. 1. frá Svíþjóff, þar eð fyrstu til- fellanna hér varð vart í maí sl. í Kópavogi, en í júnibyrjun í Svíþjóff. Skeytið frá fréttaritara Mbl. í Svíþjóð er á þessa leið: Það var í byrjun júní, sem taugaveikibróðurfaraldur brauzt út í Baggeryd um 40 km fyrir sunnan Jönköping. Eftir viku- tíma höfðu hundruð fólks, einkum börn, tekið veikina. — Heilbrigðisyfirvöldin sendu sýklafræðing til að grafast fyr- ir um orsakir smitunarinnar. Fékkst staðreynt, að hér væri um að ræða taugaveikibróður- ■inn „nurium“ — sem berst með nagdýrum. Þetta er þó ekki venjulegur taugaveikibróðir, sem sérfræðingar kalla svo, en hann (þ.e. paratypus B) orsak- ar að öllum jafnaði þyngri sjúkdóm. Flest tilfellin eru væg. Um 3000 manns, sem umgengust þá, er sjúkdóminn tóku, urðu að senda sýnishorn til rann- sóknar. Alls 35 sjúklingar voru fluttir í farsóttasjúkrahúsin í Jönköping og Várnamo. Gripið var til róttækra ráðstafana, með það fyrir augum að stöðva útbreiðslu sjúkdómsins. 183 smitberar voru einangraðir í bráðabirgðasjúkrahúsi, sem kom ið var á fót. Þeir, sem grunur lék á, að tekið hefðu veikina, voru sóttir á vinnustaði eða heimili og fluttir í sjúkrahús til einangrunar. óttast var að sóttin breiddist út með mjólk og var þegar tekið fyrir alla mjólkurdreifingu frá mjólkur- búinu á staðnum. Tveim fyrir- tækjum að auki var lokað með öllu. í bráðabirgðasjúkrahúsinu voru flest 287 sjúklingar ein- angraðir. Hinn 15. þ. m. var slakað nokkuð á einangruninni og fimm dögum síðar var sjúkrahúsið lagt niður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.