Morgunblaðið - 28.08.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.08.1962, Blaðsíða 1
24 síður itnblnðkUi 49 árgangur 195. tbl. — Þriðjudagur 28. ágúst 1962 Prentsmiðja Mo' ganblaðsins Verða Rússar móti takmörkuðu banni? Meiri hluti rikja á afvopnunarráðstefnurmi eru nú fylgjandi slikum samningum Genf, 27. ágúst — NTB-AP. BANDARÍKJAMENN og Bretar lögðu í dag fram tvær nýjar til- logur á afvopnunarráðstefnunni í Genf. Gerir önnur ráð fyrir tak- mörkuðu banni, þ. e. tekið verði fyrir allar tilraunir, nema tilraunir neðanjarðar. Fylgir þeirri tillögu, að ekki verði komið á fót nein- um eftirlitsstöðvum innan ríkja kjarnorkuveldanna. Hin tillagan gerir ráð fyrir allsherjarbanni, og því, að á stofn yerði settar eftirlitsstöðvar. Aðalfulltrúi Rússa á afvopnunarráðstefnunni, Vassily Kuznet- sov, lýsti því yfir í ræðu í dag; að hann teldi ekkert nýtt felast í þessum tillögum Bandaríkjamanna og Breta. Sagði hann tillöguna um takmarkað bann aðeins tryggja það, að hægt yrði að halda áfram tilraunum neðanjarðar. Þeir Macmillan, forsætisráð- herra Breta, og Kennedy, Banda- ríkjaforseti, gáfu í dag út sam- eiginlega yfirlýsingu, þar sem segir, að þótt þeir kysu heldur, að samningar yrðu gerðir um allsherjartilraunabann, þá teldu þeir þó rétt að styðja hugmynd- ina um takmarkað bann, þar eð það myndi forða mannkyni frá þeim hættu, sem stafar af geislavirku úrfalli. Þá teldu þeir, að síðar mætti semja um bann við tilraunum neðanjarðar, og leita lausnar á Venus- flaugin vék af braut Cape Canaveral, 27. ágúst. — NTB-AP — VENUSFLAUG Bandaríkja- manna, er skotið var á loft í, morgun, hefur vikið nokkuð* af fyrirhugaðri braut. Er, kennt um galla í 1. þrepi eld- flaugarinnar. Tvö síðari þrep- in munu þó hafa starfað að óskum. Skekkjan er talin munu valda því, að geimhylkið „Mariner 2“ muni fara í um 600.000 milna fjarlægð frá' Venus, en ekki 10.000 mílna, eins og áætlað hafði verið. Nokkrar vonir eru þó sagð- ar til, að bót verði ráðin á þessu, og mun reynt að breyta stefnu hylkisins með útvarpssendingum. Þetta er önnur tilraun Bandaríkjamanna, sú fyrsta mistókst í sl. mánuði. — Rúss- ar sendu flaug til Venusar í fyrra, en senditæki hennar biluðu og engar upplýsingar fengust Wl 1*1 því vandamáli, sem erfiðast hef- ur verið, þ. e. eftirlitsstöðvarnar. Alls hafa þá 11 ríki af þeim 16, sem fulltrúa eiga á afvopn- unarráðstefnunni, lýst sig fylgj- andi tillögu um takmarkað bann. Það eru hlutlausu ríkin, sem fyrst og fremst hafa beitt sér fyrir því. Nýlega bættist svo ítalía í hóp þeirra, og nú hafa bæði Bandaríkin og Bretland tekið sömu stefnu. Afstaða Rússa, eins og hún kom fram í dag af ummælum Kuznetsov, lofar ekki góðu. Þó sagði hann, að taka mætti tillög- una til athugunar. Afstaða annarra kommúnista- ríkja er ekki kunn, en þau hafa fram til þessa stutt málflutning rússnesku fulltrúanna á ráð- stefnunni. Fulltrúi Indverja hefur hins vegar lýst því yfir, að hann telji tillöguna spor í rétta átt. Það er því ljóst, að meiri hluti þeirra ríkja, er ráðstefnuna sitja, eru fylgjandi takmörkuðu banni, til að byrja með, í þeirri von, að Framhald á bls. 23. Sameiginleg lausn vandamála æskileg segir Emil Jónsson við fréttamann Morgunblaðsins i Kaupmannahöfn Kaupmannahöfa, 25. ágúst — EMIL Jónsson, sjávarútvegsmála ráðherra, dvelst nú í Kaupmanna höfn, að lokinnl ráðstefnu Norður landa um fiskimál. Ráðherrann sagði í viðtali við fréttamann Morgunblaðsins, að mörg mikilsverð mál hefðu ver- ið til umræðu. Þar hefði m.a. verið rætt um framtíðarverkun »íldar, en þar yrði hlutverk niðurlagningar mikið. Til þess þyrfti aftur á móti dýr tæki og kælikerfi, þannig að takast mætti að k**na síldinni á réttan hátt til neytenda. Annað mál, sem ráðherrann taldi mikilsvert, var samræmdar aðgerðir Norðmanna í fisk- sölumálum. Þá sagði ráðherrann, að þótt mismunandi afstaða ríkti til Efnahagsbandalagsins, þá væri það þess virði að reyna að leysa sam.ininleg vandamál sameigin lega. Benti hann á stofnun nefndar þeirrar, er fylgjast á með þróun mála, vegna bandalagsins. Sæti eiga í henni fjórir frá hverju lam.anna, tveir eru fulltrúar stjórnarinnar en tveir sitja fyrir Ihönd stofnana útvegsins. Fyrsti fundur nefndarinnar mun verða í Kaupmannahöfn í haust. Rytgaard 'Vv. m Þessa mynd lét kanadiska ríkisstjórnin taka nýlega af Vilhjálmi heitnum Stefánssyni og konu hans fyrir utan hús þeirra hjóna í Hanover. Húsið heitir IGLUVUK, sem er grænlenzka og þýð- ir: Tvær manneskjur, eitt hús. — Sjá viðtal, sem Jón E. Ragn- arsson átti við Vilhjálm fyrir Morgunblaðið í lok júnímán- aðar síðastliðins. Ljósm.: National Film Board of Canada. Birtingarréttur Mbl. „Hann var Mansens ocj Vilhjálmur Stefánsson landkö'nnuður látinn A SUNNUDAGINN lézt í New Hampshire í Bandaríkjun- um hinn heimskunni landkönnuður og rithöfundur, Vil- hjálmur Stefánsson, 82 ára að aldri. Hann var sem kunnugt er fæddur af íslenzku foreldri, en bjó sjálfur vestra ævi- langt. Honum var hins vegar alla tíð mjög hlýtt til íslands og kom hingað 4 sinnum. — Fráfalls Vilhjálms Stefánssonar var í gær getið í blöðum víða um heim og stórblöð vestra minntust hans sérstaklega, þ. á. m. „New York Times“, sem í ritstjórnargrein fór mjög lofsamlegum orðum um afrek hans á sviði heimsskautarannsókna. í samtali við frétta- mann Mbl. í Lundúnum lét framkvæmdastjóri Hins konung- lega brezka landfræðifélags m. a. svo ummælt, að Vilhjálm- ur Stefánsson hefði verið jafnoki Nansens og Pearys. jafnoki Peary“ Einkaskeyti til Morgunblaðs- ins, New York, 27. ágúst - AP Fráfall heimskautakönnuð- arins Vilhjálms Stefánssonar „minnir á þær miklu breyt- ingar, sem orðið hafa á einni mannsævi", sagði New York Times á mánudag. Andláts Vilhjálms Stefáns- sonar var minnzt í löngum greinum í f jórum helztu morg unblöðum í New York í dag. Auk fréttatilkynningar á for síðu New York Times, þá var að finna þessa ritstjóm- argrein: „Þotur flugfélaganna fljúga nú eftir reglubundinni áætlun Pólflug milli V-Evrópu og Vesturstrandarinnar. í síð- „Aöeins ómerkiiegur verkamaður" BERLÍN, 27. ágúst — NTB-AP. Vesturveldin sendu i dag mót- mælaorðsendingu, enn eina, til rússneskra yfirvalda vegna hryðjuverka þeirra, sem framin hafa verið við Berlínarmúrinn að undanförnu. Er þess þar kraf ht, að Rússar hef ji viðræður við Vesturveldin um það, á hvern hát megi draga úr spennu þeirri, sem nú ríkir. Þá fór í dag fram jarðarför A- Þjóðverjans unga, Peter Fechter, er skotinn var á mörkum borgar- hlutanna fyrir nokkrum dögum, er hann reyndi að flýja. Fechter var látinn liggja í blóði sínu rúmi þrjá stundarfjórðunga áður en hann var fluttur í læknishendur. Þrír ibrezkir og tveir banda- rískir fréttamenn, þeirra á með- al fréttamenni brezka útvarpsins, Associated Press og Lundúna- blaðsins Daily Mail, er viðstaddir voru útförina, voru handteknir, og þeim sagt, að þeir ættu þar ekkert erindi, „það væri aðeins verið að grafa ómerkilegan verka mann“. Jarðarför Feohters var án allra kristilegra athafna. Þvi var lýst, Framhald á bls. 23. ustu viku gat Kennedy, for- seti, um hið sögulega stefnu- mót tveggja bandarískra kaf- báta á Norður-pólnum. Við slíkar aðstæður er auðvelt að gleyma því, að fyrir ekki mjög löngu var hundsleð- inn hið venjulega farar- tæki þeirra könnuða, er héldu inn á þessar auðnir. Fráfall Vilhjálms Stefánsson- ar minnir okkur á þær miklu breytingar, sem orðið hafa á einni mannsævi. Þegar Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.