Morgunblaðið - 02.10.1962, Blaðsíða 1
24 síður
Alvariegustu innanríkisdeilur í Bandaríkjunum
í hundrað ár
Tveir menn léluist í óeirð-
um vegna inntóku blökku-
stúdents í Oxford-háskólann ;
í IUississippi
Oxford, Mississippi, 1. október. — (AP — NTB — Reuter) —
0 BORGIN Oxford í Mississippi í Bandaríkjunum var í
kvöld eínna líkust hertekinni borg. Hermenn sambands-
stjórnarinnar halda þar uppi reglu og hafa vopnaða verði
við helztu byggingar og helztu götur borgarinnar, — en
meðal íbúanna er mikil ólga yfir því, að blökkumanninum
James H. Meredith hefur verið veitt skólavist í ríkis-
háskólanum.
0 Blóðugar óeirðir voru í gærkveldi og nótt, í allt að
tíu klukkustundir, og féllu tveir menn fyrir kúlum óeirðar-
seggja. Tuttugu manns voru fluttir í sjúkrahús og 175 hafa
verið handteknir. — Aftur urðu óeirðir í borginni í
dag, en hermönnum sambandsstjórnarinnar hefur verið fyr-
irskipað að beita valdi, ef nauðsyn krefur, til þess að halda
lögum og reglu í borginni.
• Átök þessi eru hin alvarlegustu, sem orðið hafa í
Bandaríkjunum, vegna skólavistar blökkumanna, eftir að
hæstiréttur úrskurðaði árið 1954, að þeim bæri sami réttur
og hvítum til náms í ©pinberum skólum. Jafnframt eru þessi
átök hin mestu, sem orðið hafa milli fylkisstjórnar Missis-
sippi og Bandaríkjastjórnar og jafnframt alvarlegustu inn-
anríkisdeilur í Bandaríkjunum frá því í borgarastyrjöldinni,
fyrir hundrað árum.
Óeirðirnar í gærkveldi urðu
eftir að vopnaðir hermenn sam-
bandsstjórnarinnar höfðu fylgt
blökkumanninum til íbúðar einn-
ar á háskój as væðinu, en þar
gættu hans vopnaðir verðir í alla
nótt. Óeirðirnar náðu hámarki,
þegar Kennedy lýsti því yfir í
útvarpsávarpi, að Meredith væri
kominn inn 5 háskólann og yrði
innritaður til náms í dag. Hvatti
hann íbúa Oxford til að sýna
Stillingu.
Þá höfðu um eitt þúsund her-
menn sambandsstjórnarinnar ver
ið sendir til borgarinnar og stjórn
aði þeim Charles Billingslea,
hershöfðingi. Andstöðunni af
hálfu fylkisstjórnarinnar stjórn-
aði Edwin A. Walker hershöfð-
ingi, sem Ross Barnett fylkis-
stjóri kallaði til Oxford á laug-
ardag, eftir að Bandaríkjastjórn
hafði sett honum úrslitakosti.
Walker hafði skipulagt þúsund
manna lið til þess að hafa for-
ystu í óeirðunum. Hann var hand
tekinn í dag og segir Robert
Kennedy, dómsmálaráðherra,' að
hann verði leiddur fyrir rétt, sak
aður um að skipuleggja ofbeldis
andstöðu gegn löglegum stjórn-
arvöldum iandsins, fyrir að
hindra að fyikislögreglan í Missis
sippi gegndi skyldu sinni og fyrir
að standa fyrir öfbeldisárásúm
á lögregluna. Við fyrsta atriðinu
getur legið allt að 20 ára fangelsi
eða 20.000 dala sekt. Walker hers
höfðingi var fyrirliði sambands-
hermanna, sem sendir voru til
Little Rock í Arkansas, er kyn-
þáttaóeirðirnar urðu þar á sínum
tíma. Sagði hann við fréttamenn
í gær, að þá- hefði hann fyigt
þeim, er hefðu haft á röngu að
standa.
• Tveir létust af skotsárum
Áður en Kennedy forseti flutti
útvarpsávarpið þyrptust stúdent-
ar að hiás(kóla«væðinu og auik
þeirra fjöldi manna úr borginni
og nágrenni hennar — jafnvel
úr öðrum fylkjum. Fólkið hóf
grjóthríð að hermönnum sam-
bandsstjórnarinnar, kallaði til
þeirra ókvæðisorðum og grýtti
öllu er hendi var næst, grjóti,
múrsteinum, ávöxtum og flösk-
úm. Þegar hermenn beittu tára-
gassprengjum gegn mannfjöld-
anum var varpað handisprengj-
um. í hiálfa aðra klu'kku-
stund tókst múgnum að
halda hermónnunum, sem stóðu
vörð í hálfgerðri úlfakreppu, en
þeim hafði verið fyrirskipað að
verjast þess í lengstu lög að
grípa til vopna.
Loks kom svo, að skot kváðu
við úr hópi óeirðaseggjanna, og
Meðfylgjandi mynd var tekin í
Oxford í Mississippi í gær, þeg-
ar handtökur stóðu sem hæst.
— Er síðast fréttist höfðu 175
manns verið handteknir, þar af
þriðjungur stúdentar.
varð af mikil ringulreið. Tveir
menn létust af skotsárum. Var
annar franskur, Paul Guihard,
fréttamaður „London Daily
Sketch“ og „Agence France
Presse“ — (AFP). Hann fékk
kúlu í bakið og lézt á leið í sjúkra
hús. Hinn var 23 ára Bandaríkja-
maður, George Gunter að nafni,
sem var hæfður tveim kúlum,
annarri í höfuðið. Hann lézt á
leið í sjúkrahús. Tuttugu menn
voru fluttir í sjúkrahús, þar af
tveir henmenn, einn bandariskur
Framhaldi á bls. 2.
kostar kr. 65.00 á mánuði
innanlands — í lausasölu
kr. 4.00.
Auglýsingaverð kr. 36.00
pr. eindálka cm.
Eiturefni í síldarmjöli
veldur lifrarsjúkdómi i húsdýrum
Osló, 1. október — NTB.
SÍÐUSTU mánuðina hafa vís-
indameun við dýraiækningahá
skólann í Noregi unnið að
rannsóknum á nýjum og áður
óþekktum lifrarsjúkdómi í hús
dýrum. Htfur komið í ljós, að
sjúkdómurinn á rætur að
rekja til eiturefnis í sildar-
mjöli, er notað hefur verið til
fóðurs.
Eiturefni þetta hefur mynd-
azt. við það, að nitrit er sett
í síldina til þess að verja hana
skemmdum á þeim tíma, er
líður frá því hún er veidd og
þar til hún kemst í vinnslu.
Fyrsta tilfelli þessa sjúk-
dóms fannst vorið 1961, en
síðan hafa að því bezt er vitað,
fallið af hans völdum 50 stór-
gripir, 125 svín og 6 geitur.
Prófessor Rolf Svenkerud
forstöðumaður sjúkdóma-
fræðideildar háskólans, sem
rannsókmrnar annaðist, segir,
að með því að nota þetta efni,
nitrit, af mikilli varkárni, sé
sennilega unnt að komast hjá
myndun sjúkdómsins.
Segir hann síldarmjölið svo
mikilvægt til fóðurs, að nauð-
syn beri til að flýta rannsókn
á þessu fyrirbæri.
Erlendar fréttir
/ stuttu máli
New York, Algeirs-
borg, 1. okt. AP-NTB.
• í DAG var lögð fyrir fram
kvæmdastjórn Sameinuðu
Þjóðanna beiðni Alsir um upp
töku í samtök Samein/uðu
Þjóðanna, undirrituð af Ben>
Bella. N
Bella er væntanlegur til
New York innan skamms, til
þess að vera viðstaddur, er
beiðni Alsír verður afgreidd
af Allsherjarþinginu. Hann
mun hafa látið það í ljós við
fréttamenn í Algeirsborg, að
hann sé því hlynntur, að Pek-
ingstjórnin fái sæti Kína hjá
S.Þ. —
Prag, 1. október. —
AP—NTB.
TÉKKNESKA fréttastofan
Ceteka skýrir frá því í dag,
að nýlokið sé umfangsmiklum
heræfingum rússneskra, tékk-
neskra og austur-þýzkra her-
sveita í Tékkóslóvakíu. Ekki
skýrir fréttastofan frá hví hve
margir hermenn hafi tekið
þátt í æfiujgunum, hvar eða
hve lengi þær hafi staðið —
en segir, að þær hafi verið til
þess gerðar að auka samstarfs
hæfni þeirra og efla vináttu
og samvinnu hermannanna í
mögulegum hernaði.
Lagos, 1. okt. AP-NTB
Forsætisráðherra Nigeríu,
Tafawa Balewa, skýrði frá þvi
í dag, að lögreglan hafi nýlega
komið upp um samsæri um að
steypa stjórn landsins frá völd
um og ræna allmörgum ráð-
herrum hennar.
Brússel 1. okt. NTB.
• Skýrt var frá því í Brúss-
el í dag, að viðræðurnar
um væntanlega aðild Norð-
manna að Efnahagsbandalagi
Evrópu hefjist í lok október
eða byrjun nóvember.
Talið er, að viðræðurnar
um aðild Noregs muni standa
allt fram á næsta sumar, áður
en endanlega verði gengið til
samninga.
Nýju Dehli, 1. okt. — (AP)
• Nehru, forsætisráðherra
Indlands, er kominn heim-úr
ferðalaginu, sem hófst með
forsætisráðherrafundi brezku
samveldislandanna og lauk
með opinberri heimsókn í
Kairó. Hann heimsótti einn-
ig Frakkland, Nígeríu og
ítalíu. .
50 hafa tarizt
i skriðuföllum
Nýju Delhi, 1. október
— AP — NTB.
TALIÐ er, að fimmtíu manns
hafi farizt I snjó — og aurskrið-
um, er lokuðu inni 2.500 manns
í dal einum í Iiimalaya fjöllum.
Hefur fólkið verið lokað inni
í heila viku, en í dag tókst loks
að koma þangað mat með þyrlum
frá indverska flughernum. EkW
gátu þyrlurnar lent, heldur varð
að fleygja matvælunum niður
með fallhlifum.
Flestir þeirra, sem lokuðust
inni eru vegavinnumenn, er unnu
að mikilvægri vegalagningu
skammt frá landamærum Ind-
lands og Tíbet.