Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 1
5*4 síiiur 49. árgangur 237. tbl. — Miðvikudagur 24. október 1962 Prentsmiðja Morgunblaðsins Blómlegur fjárhagur ríkisins GreiðsEuafgangur s.l. árs um 57 millj. kr. Fyrsta umræða um fjárlaga frumv^rp ársins 1963 fór fram á Alþingi í gærkvöldi og var henni útvarpað. Gunn ar Thoroddsen fjármálaráð- herra fylgdi frumvarpinu úr hlaði, gerði grein fyrir af- komu ríkissjóðs á árinu 1961, skýrði frá afkomuhorfunum í ár og rakti og skýrði ein- staka liði hins nýja fjárlaga- frumvarps. M.a. kom fram í ræðu ráð- herrans, að greiðsluafgangur hafði orðið á árinu 1961, er nam 57 millj. kr. Þá eru einnig horf- ur á greiðsluafgangi á yfirstand- <mdi ári. Ríkisreikningur 1961 Gunnar Thoroddsen, fjármála- ráffherra flytur fjárlagaræðu sína á Alþingi í gærkvöldi hefur nú verið lagður fram til samþykktar á Aíþingi og mun það vera í fyrsta skipti, sem fullgerður reikningur fyrir næst liðið ár er lagður fyrir, áður en fyrsta umræða fjárlaga fer fram Ekki er gert ráð fyrir hækkun skatta, tolla eða annarra álaga í frumvarpinu. Lausaskuldir voru engar hjá ríkissjóði í árslok 1961, en námu í ársbyrjun 42,8 millj. kr. Þá er það nýmæli í skuldamálum ríkis sjóðs, að tekjuafgangi ársins var fyrst og fremst varið til að greiða lausaskuldir ríkissjóðs. Þá gat ráðherrann um margvís legar sparnaðarráðstafanir, er ýmist væru í undirbúningi eða þegar væru komnar til fram- kvæmda, og skipta þær milljón um króna. Hér á eftir verður getið nokk urra atriða úr ræðu fjármála- ráöherra, en hún verður síðar birt í heild í Morgublaðinu. Afkoma ríkissjóðs í upphafi ræðu sinnar gerði fjármálaráðherra grein fyrir af komu ríkissjóðs á sl. ári. „Tekjur ríkissjóðs 1961 voru áætlaðar á fjárlögum 1589 millj. kr., en urðu 1672 millj. kr. og fóru þannig 83 millj. fram úr áætlun. Liggja til þess tvær ástæður. Tekju- og eignaskattur fór verulega fram úr áætlun, en það stafar einkum af réttari fram tölum, sem eiga rót sína að rekja til umibóta á skatta og útsvars- lögum. Og tekjur rikissjóðs af innflu'tningi, sem miðast við hundraðstölu af verðmæti inn- fluttra vara, urðu meiri en fjár lög gerðu ráð fyrir. Á hinn bóg inn urðu tekjur af rekstri ríkis- stofnana, en þar er Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins stærsti liðurinn, um 19 millj. minni en fjárlög áætluðu." „Útgjöld ríkisins eru í fjár- lögum greind sundur í rekstrar útgjöld og x eignahreyfingar. Rekstrarútgjöldin, sem voru á- ætluð 1476,4 millj. kr., reyndust 1509,8 millj. eða 33,4 millj. um Framhald á bls 8 Síldar- samnlng- arnlr BLAÐIÐ hafði í gær sambandi við Jón Sigurðsson formann, Sjómannasambands Islands og spurðist fyrir um hvernig samnimgsgerð gengi út af kjörum sjómanna á síldveið- unum í vetur. Ekki hefir enn verið boðað- ur samningafundur og því ekkert nýtt í sambandi við ' þetta mál. Hins vegar munu margir vænta sér mikils af sáttatil- lögum Torfa Hjartarsonar sáttasemjara, sem fram ættu að koma innan skamms. 1 Þetta er fyrsta myndin frá verskras" flugvélar, sem i 1 átökunum á landamærum varpar niður vistum til her I Indlands og Kína, og sýnir manna á norðaustur víg- ! hún kínverska hermenn stöðvunum. fylgjast meff ferffum ind- 1 Öryggisráðiö ræöir Kúbumálið Stevenson ræðst harðlega á Sovétríkin Sameinuðu þjóðirnar, — New York, 23. okt. (AP) — Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til aukafundar í dag til að ræða kröfu Bandaríkjanna um að árásarstöðvar á Kúbu verði lagðar niður óg árásarvopn verði flutt þaðan burt, og kröfu Sovétrikjanna og Kúbu um um- ræður um aðgerðir Bandaríkj- anna í sambandi við aðflutnings bann á vopn til Kúbu. Skoraði aðalfulltrúi Bandaríkj anna, Adlai E. Stevenson, á ör yggisráðið að grípa til nauðsyn legra aðgerða nú til að binda endi á árásarfyrirætlanir Sovét ríkjanna í sambandi við Kúbu og fleiri ríki heim.s. Sagði hann að flutningur Sovétríkjanna á Rússar mótmæla aðgerðum en ekki að eldflaugar séu á Kúbu Moskvu, 23. október (AP) STJÓRN Sovétríkjanna gaf í dag út yfirlýsingu varðandi ráðstaf- anir, sem Xenniedy Bandaríkja- forseti tilkynnti í gær að gerðar yrðu varðandi Kúbu. Segir Sovét stjórnin að aðflutningsbanm Bandaríkjanna á vopn til Kúbu sé ruddalegt, hræsnisfullt og hættulegt, og senidir hún stjórn Bandaríkjanna „alvarlega aðvör- im“ um að aðgerðir þessar séu 6 cref í áttina til kjarnorkustyrj- a idar. Yfirlýsingu Sovétstjórnarinnar var útvarpað í Moskvu í dag 14 klukkustundum eftir að Kennedy f mtti ræðu sína og lýsti því yfir eð bandarísk herskip mundu stöðva öll skip, hverrar þjóðar •em þau væru, er grunuð væru um að flytja voprn til Kúbu, og snúa burt ef grunurinn reyndist réttur. Fer stjórn Sovétríkjanna nú fram á að Öryggisráð SÞ verði kvatt til aukafundar til að ræða það sem hún nefnir brot Bandaríkjanna á stofnskrá SÞ og ögrun við friðinn. Aldrei til árása í y|írlýsingunni neitar Sovét- stjórnin hvergi að hafa sent eld- flaugar til Kúbu, sem unnt væri að skjóta á Bandaríkin og lönd- in j Mið-Ameríku. Hinsvegar seg- ir í orðsendingunni: „. .Hin stór- virku hernaðartæki, þar á meðal eldflaugar búnar kjarnorku- sprengjum, sem Sovétríkin eiga, eru, eins og allar þjóðir heims vita úrslitavald til að hindra ár- ásaröfl heimsvaldasinna í því að koma af stað gjöreyðingarstyrj- öld. . . .Kjarnorkuvopn, sem Sov- étþjóðin hefur smíðað og sem eru í höndum Sovétþjóðarinnar verða aldrei notuð til árása.“ Sjórán Sovétstjórnin segir að ákvörð- un Bandaríkjanna um að stöðva erlend skip á reginhafi og gera leit í þeim að vopnum sé sjórán. „En hver veitti Bandaríkjumum heimild til að taka að sér hlut- verk þess er ræður örlögum ann- arra ríkja og þjóða“, segir í yfir- lýsingunni. „Samkvæmt stofn- skrá Sameinuðu þjóðanna hafa öll ríki, stór og smá, heimild til að lifa eins og þeim bezt hentar, að gera þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar þykja til að tryggjá öryggi landsins, að snúast gegn Framh. á bls. 2 eldflaugum, sprengjuþotum og öffrum árásarvopnum til Kúbu væri alvarleg ógnun viff Vesfur álfu og viff friðinn í heiminum. Ellefu þjóðir eiga fulltrúa í ör yggisráðinu, og var Valerian A. Zorin, fulltrúi Sovétríkjanna í for sæti á fundinum í dag. Tilkynnti hann fyrst að fyrir lægju óskir frá Bandaríkjunum, Sovétríkjun um og Kúbu um að boðað væri til þessa aukafundar, og væru óskir þessar ástæða fundarboðs- ins og eini dagskrárliðurinn. Zorin sagði að ástæða Banda- ríkjanna væri algjörlega úr lausu lofti gripin og aðeins tilraun til að breiða yfir árásaraðgerðir sem Bandarikin hafa gripið til Sagði hann að til umræðu væri brot Bandaríkjanna á stofnskrá SÞ og ógnun þeirra við friðinn í heiminum. Minntist hann ekki einu orði á ákærur Bandaríkj- anna á hendur Sovétríkjunum og Kúbu. Það var ekki fyrr en eftir að samþykkt hafði verið að heim ila fulltrúa Kúbu, sem ekki á sæti í Oryggisráðinu, að sitja þennan fund ráðsins, án atkvæð isréttar, að Zorin minntist á kröf ur Bandaríkjanna. Gaf hann síð an Adlai Stevenson orðið. Afvopnun Bandaríkjanna Stevenson hóf mál sitt með til vitnunum í ræðu þó, er Kennedy forseti flutti í gær varðandi eld flaugastöðvar á Kúbu, sem ógn- uðu þjóðum í Vesturálfu. Las hann upp þá kafla ræðunnar, þar sem skýrt er frá langdrægni eldflauganna og ráðstðfunum þeim, er Bandaríkin hafa gripið til. Benti hann á að í lok síðari heimstyrjaldarinnar hafi Banda- ríkin getað orðið að voldugu herveldi, en þess í stað afvopn- azt og boðizt til að láta af hendi kjarnorkuleyndarmál sín. Auk þess hafi Bandaríkin gefið þús- Framh. á bls 23. Portúgulor skjtttn ú skip Indónesíu Jakarta 23. okt (NTB) FRÉTTASTOFAN Antara til kynnti í dag, aff Portúgalar hefðu skotiff á indónesísk skip frá eyjunni Timor. Einnig sagffi fréttastofan, aff komiff hefffi til óeirffa á landamærum eyjarinnar, en henni er skipt milli Indónesíu og Portúgals. Stjórn Indónesíu hefur ekki staðfest fregnina. Þaff hefur lengi veriff venja aff skip frá Indónesiu sigldu nálægt hinum portúgalska hluta Timor ,til aff forffast hættulega straunr.a. Frétta- stofan skýrffi frá þessu í fregn sinni og auk þess frá því, aff Portúgalar hefffu lengi smygl aff vini og öðrum varningi inn í indónesíska hlutann af Ti-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.