Morgunblaðið - 08.12.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.12.1963, Blaðsíða 1
I 56 siður (H og II) 50 árgangur 264. tbl. — Sunnudagur 8. desember 1963 Prentsmiðia Morgunblaðsins IVIinningars|óður um Kennedy á vegum SÞ Wasbington og Austin, 7. des. NTB-AP. 'fc Waggoner Carr, ríkis- saksóknari í Texas, skýrði frá því í nótt að ákveðið hafi verið að hætta undirbúningsrannsóknum vegna fyrirhugaðra réttar- halda út af morðinu á Ken- nedy forseta og Lee Oswald í Texas. Verður rannsóknin framvegis í höndum sérstakr- ar þingnefndar, en formaður nefndarinnar er Earl Warr- en, forseti hæstaréttar Banda ríkjanna. ■&- Tilkynnt var í Austin, Texas, að öflugur lög- regluvörður gætti nú bústað- ar Johns Connallys ríkis- stjóra, sem særðist illa í morðárásinni á Kennedy, og hætt er að sýna gestum bú- staðinn eins og tíðkast hef- ur. I»á skýrði U Thant, aðal framkvæmdastjóri S. Þ. frá því í dag, að stofnaður hafi verið minningarsjóður, sem ber nafn Kennedys. — Tekjur sjóðsins eiga að renna til alþjóða skóla samtakanna John Connally, ríkisstj óri í Texas, kom heim úr sjúkrahúsi á fimmtudag. Hann varð sem kunnugt er fyrir einu af þremur skotum, sem skotið var að bif- reið Kennedys, og særðist það illa 1 mjöðm og handlegg að um tíma var honum vart hugað líf. Nú hefur öflugur lögreglu- vörður tekið sér stöðu við ríkis- stjóiahöllina og á götum, er að Framh. á bls. 2. Övíst hvort múrinn verður opnaður Berlín, 7. des. AP. VESTUR þýzk blöð skýrðu frá því í dag að góðar horf- ur væru á því að íbúar Vest- ur Berlínar fengju vegabréf um jólin til að heimsækja ættingja sína í Austur Berlín. Willy Brandt, borgarstjóri Vestur Berlínar, bar þessar fregnir til baka í morgun. Seinna í dag birtist svo yfir- lýsing yfirvaldanna í Aust- ur Þýzkalandi, sem neita að ræða þetta mál við stjórn- um jólin arvöldin í Bonn, eða við nokkra fulltrúa vestur þýzku stjórnarinnar. Segir í yfirlýs- ingunni, sem austur þýzka fréttastofan ADN birti, að yfirvöldin séu enn reiðubú- in að ræða málið við full- trúa borgarþingsins í Vest- ur Berlín, en ekki megi blanda fulltrúum vestur þýzku stjórnarinnar í málið. Vestur Berlín, segir í yfirlýs- ingunni, „hefur aldrei tilheyrt Vestur þýzkalandi, tiliheyrir því ekki nú, og mun aldrei tilheyra því.“ Þá segja austur þýzku yfir- völdin að ef reynt verði að vísa málinu til stjórnarinnar í Borm, geti það aðeins leitt til þess að slitni upp úr samning- um. Talsmaður borgarþingsins í Vestur Berlín segir að ekkert sé unnt að gera frekar í málinu fyrr en þingið hefur athugað nánar yfirlýsingu austur þýzku yfirvaldanna. Áður hafði vest- ur þýzka stjórnin falið Kurt Leopold að kanna möguleika á sarnningum, en hann er forstjóri ríkisskrifstofu þeirrar, er fjall- ar um viðskipti Austur og Vest- ur þýzkalands. IDr. D. Jf. Bauer, veirusér- / fræðingur við Wellcome rann- » sóknarstöðina í Bretlandi, er einn þeirra sérfræðinga, sem undanfarið hafa starfað að rannsóknum á nýju lyfi við inflúenzu, kvefi, lömunar- veiki og fleiri veirusjúkdóm- um. Er vonast til að lyf þetta beri góðan árangur. Það er unnið úr koltjöru og nefnist Marboran eða 33-T-57. Lyfið verður fyrst reynt á Indlandi og fleiri stöðum þar sem bólu- sótt er enn mjög algeng far- sótt. Myndin hér að ofan er af dr. Bauer, sem fann upp lyfið í samvinnu með dr. P. W. Sadler, dr. D. W. Adamson, forstjóri rannsóknarstöðvar- innar, segir að hér sé um afar merka uppgötvun að ræða, sem vænta megi mikils af. B Leoni forseti Venezuela Róstur I höfuðborginni Þyzkar eldflaugar í New York. Carr ríkissaksóknari sagði að ékvörðunin um að hætta rann- sóknum á vegum lögreglunnar í Texas hafi verið tekin í fullu samráði við þingnofndina og formann hennar. Einnig hafi verið haft samband við dóms- málaráðuneytið um málið. Öll gögn, sem Texaslögreglan hefur um rannsóknir hingað til, verða afhent ríkislögreglunni (F.B.I.). Sagði Carr að gagnasöfnun og rannsókn færi fram í fleiri ríkj- um en Texas, og einnig erlendis, og væri því ekki unnt fyrir heimalögregluna að hafa forustu í málinu. Hins vegar sagði Carr að honum hafi verið boðið að taka þátt í starfi þingnefndar- jnnar. Caracas, Venezuela, 7. des. (AP). LOKIÐ er við að telja um 2,3 milljónir af þremur milljónum atkvæða í forseta og þingkosn- ingunum i Venezuela um síðustu helgi. Ljóst er að Raul Leoni, frambjóðandi flokks Betan- courts fráfarandi forseta, hefur náð kosningu. Hann hefur hlotið 761.600 atkvæði, eða 33%, en næstiir er Rafael Caldera, fram- bjóðandi kristilegra sósíalista, með 505 þúsund atkvæði, eða 21,5%. Allmiklar róstur hafa verið í höfuðborginni í sambandi við kosningarnar, allt fram á þenn- an dag. í morgun kveiktu tveir kommúnistar í tónlistarvöru- verzlun í Caracas, sem innflytj- andi frá Trindad átti. Eyðilögð- ust þar um 15 þúsund hljóm- plötur. Er talið fullvíst að íkveikja þessi sé gerð í hefndar- skyni vegna þess að yfirvöldin á Trinidad framseldu í síðustu víku sex æsingamenn, sem her- tóku farþegaflugvél í Venezuela og flugu henni til Trinidad. Bonn, 7. des. (NTB). VESTUR þýzka stjórnin til- kynnti í gærkvöldi að hún hefði ekki veitt verksmiðjunni „Waff- en und Luftrustung" heimild til að gera tilraunir með eldflaug- ar í nánd við Cuxhaven s.l. fimmtudag. Fulltrúar verksmiðjunnar skutu á loft einni tveggja þrepa eldflaug og þremur eins þreps flaugum í viðurvist vestur þýzkra og erlendra sérfræðinga og blaðamanna. Var skýrt frá því að verksmiðjan hyggðist smiða eldflaugar til útflutnings. í tilkynningu sinni bendir stjórnin á að samkvæmt Parísar samningunum hafi hún afsalað sér rétti til að smíða eldflaugar til hernaðarnota, og hafi stjórn- iin því hvorki veitt heimild tú að smíða né flytja út eldflaug^p. Ein fréttastofa segir að stjórn- in hafi fyrirskipað nánari rann- sókn á máli þessu, og eins að kanna betur ástæður verksmiðj- unnar fyrir tilraununum. Hefur talsmaður verksmiðjunnar sagt tilganginn vera að sanna vís- indalegt gildi flauganna, en við- urkennt jafnframt að tilraunir með hernaðarflaugar verði gerð- ar eftir einn mánu. Skaut fimm skotum framhjá Philadeiphia, 7. des. (AP) JOSEPH Blumhenthal heitir kráreigandi einn í borginni Philadelphia í Bandaríkjun- um. Tviisvar sinnum á undan förnum fimm árum hefur hann verið rændur, og var því við öllu búinn í morgun þegar maður kom inn í krána hans og sagði: Ef þú hreyfir þig, drep ég þig. Að sögn lögreglunnar dró Blumenthal upp skammbyssu og skaut fimm skotum að manninum á þriggja metra færi. Maðurinn skauzt und- an, og hæfði ekkert skotanna hann. Þegar byssa Blumen- thals var tóm, ýtti maðurinn Blumenthal til hliðar, tók 60 dollara (kr. 2.500,—) úr pen- ingakassanum og hljóp út. Jarðskjálftar Grenoble, Frakklandi, 7. des. (AP). TVEIR jarðskjálftakippir gengu yfir borgina Grenoble í frönsku Ölpunum í dag. Ekki varð manntjón, svo vit- að sé, og eignatjón ekki mik- ið. Nýr gerfihnöttur BANDARÍKJAMENN skutu i gær á braut nýjum gerfi- hnetti frá Vandenberg flug- stöðinni í Kaliforníu. Gengur hnötturinn fyrir kjarnorku á braut sinni umhverfis jörðu og er annar hnötturinn þess- arar gerðar. ínönu falin stjórnarmyndun Ankara, Tyrklandi, 7. des. (NTB). CEMAL Gursel, forseti Tyrk lands, hefur falið Ismet Inönu að mynda nýja ríkis- stjórn í Tyrklandi. Inönú sagði af sér embætti forsætis ráðherra og baðst lausnar fyr ir ríkisstjórn sína um síðustu helgi eftir að tveir fyrri sam starfsflokkar hans hættu stjórnarsamvinnu. Aukið atvinnufrelsi Aukið atvinnuleysi VERKAMÁLARÁÐUNEYT- IÐ í Bandaríkjunum skýrði frá því í gærkvöldi að at- vinnuleysingjum þar _í landi hafi fjölgað um hálfa milljón í nóvember. Er tala þeirra nú 3,9 milljónir. Wilson hótað lifláti LÖGREGLU V ÖRÐUR hefur verið settur við heimili Har- olds Wilsons, leiðtoga brezka Verkamannaflokksins í Lon- don. Ástæðan er sú að bæði Scotland Yard og dagblaðl einu í Manchester bárust bréf þar sem tilkynnt var að Wil- son yrði drepinn einhvern tíma á tímabilinu frá aðfara- nótt fimmtudags til kl. 21 í kvöld. Wilson hefur sagt að hótanir breyti engu um fyrir ætlanir hans. Hann flytur ávarp á fund-i stúdenta í Sussex í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.