Morgunblaðið - 28.01.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.01.1964, Blaðsíða 1
0 24 síður „Alþjóð- leg lög- regla" á Kýpur Waslhingtoin, Londion, 27. jan. (AP). # BREZKA stjórnin hefur ó- formlega sett fram þá hugmynd, hvort ekki sé hugsanlegt, að fleiri aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins geti tekið þátt í lög- reglustarfi á Kýpur. Brezka stjórnin kveðst fyrir löngu hafa lýst því yfir, að henni sé um megi. að taka ein á sig þá ábyrgð að tryggja frið á Kýpur um lengri tíma. Þar eru nú bundnir 2.500 hermenn, sem kann að verða þörf annars staðar, hve- nær sem er. # Hugmynd þessi var lögð fyrir Roibert Kennedy, dómsmálaráð- Iherra Bandaríkjanna, áður en hann fór frá London og hefur Bandaríkjastjórn hana nú til at- hugunar. Sarnkvæmt hugmynd- inni er gert ráð fyrir því, að hin „alþjóðlega lögreglusveit“ eins og komizt er að orði, verði skip- uð hermönnum úr liði Atlants- hafsbandalagsins, þó þannig, að ekki sé um að rseða íhlutun NATO í rnálefni Kýpur, heldur aðstoð ýmissa ríkja bandalagsins við Kýpur. # I Aþenu kallaði forssetisráð- herra Grikkja, Johannes Para- skevopoulos bandaríska sendi- herrann á sinn fund og skýrði fyrir honuim sjónarmið grísku Framhald á bls. 23. m 66 ára kona vill berjast við Johnson Washington, 27. jan. AP Margaret Chase Smith, 6G ára öldungardeildarþingmað. ur úr flokki Republikana til- kynnti í dag, að hún væri reiðubúin að taka við útnefn- ingu flokks síns sem fraiK~ bjóðandi til forsetaembættis- ins við næstu kosningar. Er hún fjórði republikaninn sem lýsir sig fúsa nú til barátt- unnar. Hinir eru Nelson Rockefeller, ríkisstjóri i New York, • öldungardeildarþing. maðurinn Barry Goldwater, og Harold Stassen fyrrver- andi ríkisstjóri í Minnesota. Margaret Chase Smith lýsti yfir vilja sínum í þessum efn- um í ræðu, er hún hélt í félagi blaðakvenna í Washington. Hún kvaðst hafa tekið ákvörð un eftir miklar vangaveltur og að vel hugsuðu máli komizt að þeirri niðurstöðu, að allar konur, er ynnu að málefnum kynsystra sinna væntu þess, að hún gæfi kost á sér til framboðs. Margaret Chase Smith hefur til þessa aldrei tapað í kosningum. Frakkland og Kínverska Alþýðulýðveldið Skiptast á sendiherrum innan þriggja mánaBa AP — 27. janúar. ■Jr í MORGIÍN, nánar tiltekið kl. 10 árdegis (að íslenzk- um tíma), kunngjörði franska stjórnin, að hún hefði viðurkennt Kínverska alþýðulýðveldið og stjórn þess, og myndi skiþaður sendiherra Frakklands í Peking innan þriggja mánaða. Samtímis birtist opinber tilkynning Peking- stjórnarinnar sama efnis. Talið er, að atburður þessi eigi eftir að reynast af- drifaríkur og valda verulegum breytingum á sviði alþjóðamála, m.a. í Suðaustur-Asíu, innan Atlantshafsbanda- lagsins og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Er sú skoðun ríkjandi, að fleiri ríki muni fara að dæmi Frakfia og viðurkenna Pekingstjórnina áður en langt um líður og ekki muni langt þar til hún fái aðild að Sameinuðu þjóðunum. Velta fréttamenn því nú helzt fyrir sér með hverjum hætti það verði — hvort Pekingstjórnin taki sæti Kína í stað Formósustjórnarinnar, eða hvort báðar stjórn- irnar muni eiga þar fulltrúa — hvort Pekingstjórnin fái að- eins sæti á Allsherjarþinginu, eða hvort hún muni taka sæti Kína í Öryggisráðinu og fá í hendur neitunarvald. í tilkynningu frönsku stjórnar- samlega hagsmunum Formó'su, innar er þess ekki getið að nein- ar þreytingar verði gerðar af hennar hálfu á sambandinu við Formósu-stjórnina. — Hinsvegar hefur Formósu-stjórnin þegar for dæmt harðlega þessa ákvörðun Frakka og sagt hana mjög fjand- Metár ÁRIÐ 1963 varð metár í útflutn- ingsverzlun Bretlands. Jókst út- flutningur um 8% og innflutn- ingur um 7%. Heildarverðmæti útflutningsvarnings var 4.080 miljón sterlingspund en verð- nxrti innflutningsvarnings 3.820 miljón sterlingspund. Útflutning ur til Vestur-Evrópuríkjanna minnkaði nokkuð á siðasta árs- fjórðungi, en jókst að sama skapi við EFTA-ríkin. sem og alls hins frjálsa heims. Segir í mótmælaorðsendingu stjórnarinnar, að ákvörðun Frakka muni raska mjög jafn- væ'gi heimsmálanna, Pekingstjórn inni í hag, hún muni ýta undir út- þenslustefnu kínverskra komm- únista og stefna heimsfriðnum í hættu. „Frakkar verða sjálfir að bera ábyrgð á því, sem þeir hafa nú gert“, segir þar. Talsmaður stjórnar Filippseyja hefur sagt í dag, að stjórnin hafi fyrir fimm dögum beint þeim til- mælum til de Gaulle, Frakklands- forseta, að hann viðurkenndl ekki Pekingstjórnina nú — og rökstutt tilmæli sín með því að það yrði mikið áfall fyrir frjáls- ar þjóðir Asíu, og sízt sæti á Frökkum að svíkja þær með þeim hætti. í fréttum frá Seoul í S-Kóreu segir, að komið hafi fram sú skoð un, bæði af hálfu stjórnarirínar og stjórnarandstæðinga, að við- urkenning Frakka á Peking- stjórninni muni hafa í för með sér aukin átök og vandræði í Asíu. Sérstaklega hafi þessir að- ilar talið, að viðurkenningin muni hafa áhrif á samband S-Kóreu og Japans. •k Viðbrögðin á Vesturlöndum Viðbrögð stjórnanna á Vest- urlöndum urðu þegar kunn fyrir nokkrum dögum — eða eftir að de Gaulle skýrði Bandaríkja- stjórn frá því að hann hygðist viðurkenna Pekingstjórnina. Af hálfu bandaríska utanríkisráðu- neytisins var í dag birt mótmæla orðsending þar sem segir, að Bandaríkjastjórn muni áfram styðja stjórn Formósu, enda sé hún enn þeirrar skoðunar, að við urkenning Pekingstjórnarinnar muni hafa í för með sér aukna erfiðleika í málefnum Suðaustur- Kristján Guðmundsson AR 15 slitnaði fyrir viku frá legu færum, þar sem hann lá skammt frá hátnum, sem sést framan við hafnargarðinn. Rak bátinn fyrir mestu mildi óskemmdan upp í fjöru. En ti.l að koma honum aftur á sjó þarf að setja hann upp á' fjóra flutningapalla, sem fjórir kraftmiklir bílar draga með hjálp fleiri ökutækja. í gær var- lagt af stað með bát inn eftir fjörunni og þá var þessi mynd tekin. (Ljósm.: Sv. Þorm. ). (Sjá frásögn og myndir á bls. 13). Asíu. Dean Rusk, utanríkisráð- herra, hefur látið svo um mælt, að ákvörðun frönsku stjórnarinn- ar sé „óviturleg“ og muni í hví- vetna brjóta í bága við hagsmuni Vesturveldanna. Hann er nú staddur í Tókíó og mun m.a. ræða við ráðamenn þar um það hvernig og hvort unnt sé að sporna við því að fleiri ríki við- urkenni Pekingstjórnina. Johnson,' forseti, sagði á skýndi fundi með fréttámönnum sl. laug- ardag, að ákvörðun Frakka hefði vissulega valdið miklum úlfaþyt og mörgum þungum áhyggjum, „en Frakkar verða sjálfir að á- kveða utanríkisstefnu sína“, sagði hann. Robert Kennedy, dómsmála- Framhald á hls. 23. Rahman og hittast 9, Kuala Lumpur, 27. jan. AP-NTB Tilkynnt hefur verið, að for- sætisráðherra Malaysia-sam- bandsríkisins, Tungu Abdul Rahman, oc forseti Filipsseyja, Diosdago Micapagal, hittist að máli í Pnom Penh í Kambodía 9. febrúar næstkomandi, — til að ræða samband Malaysiu og ná.grannaríkjanna. Si'hanouk, prins í Kamho'diu hafði lagt til við fyrineinaa stjórnarleiðto.ga og Sukarno, forseta Indónesíu, að fundur þessi yrði haldinn. En Súkarno helur tekið þá afstöðu, að utan- j aysiu. Macapagal . febrúar rikisráðherrar landanna þriggja, sam koma saman til fundar í Bangkoik innan tíðar eigi að á- kveða hvar þeir þrír hittist að máli í fregnum frá Kairo segir, að Nasser, forseti Egyptalands oig Lee Kuan Yew, forsætisráðherra Singapore, (sem er hluti Mala ysiu) — hafi gefið út sameigin- lega tilkynningu, þar sem segi, að Egyptar muni gera allt, sem í þeirra valdi stendur til þess að miðla málum i deilunni um Mal l

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.