Morgunblaðið - 06.03.1964, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.03.1964, Blaðsíða 3
Föptudaffur 6. m'árz 1964 MORCU N BLAÐIÐ 3 ÍT' MJÖG dró til tíðinda í Hlá- skólaíbiói í fyrrakvöld. Efnt var til miðnæturhljómleika, þar sem 5 hljóonsveitir léku, 4 hljómsveitanna léku að mestu sömu lögin, hver á fæt ur annarri. Voru það tónsmíð- ar, sem hinir margumtöluðu „Beatles“ hafa ært ungt fólk með að undanförnu. Húsið var fullsetið unglingum, sem flest ir voru á aldrinum 14 til 18 ára. Þegar hávæx strengja- sláttur hljiómsveitanna og sker andi óp söngvaranna dundu við sem hæst, missti mikill hluti áheyrendanna stjóm á sér og klappaði af sefjun, æpti og stappaði niður fótun- um, sumir í gólfið, en aðrir dönsuðu á stólsetum eða jafn- vel stólbökum. Sumir drengj- anna drógu af sér jakkana og hentu þeim í loft upp í hita l>ansarinn mikli l'jariægour. Ungs manns gaman á Miðnæturhljdmleikum leiksins. Lítið bar á ölvun, en þó var piltur nokkur, sean tví vegis hafði dansað um. gang- ana og eitt sinn upp á sviðið, fjarlægðirr sakir ölæðis. Fimmta hljómsveitin, Sav- anna tríóið, átti í engu sam- leið með hinum öðrum atr. skemmtunar þessarar. Meðlim ir tríóins leika á gítara og syngja ýmis lög, flest íslenzik, sem þeir hafa sjálfur fært í búning og gefið sérkennilegan blæ. Hafa þeir hvarvetna vak- ið mikla athygli fyrir söng sinn og ekki sízt örugga fram- komu á sviði og óyfirdrifna kímni. Aheyrendur fögnuðu Savanna-tríóinu ekki siður en öðrum og ætluðu aldrei að sleppa því út af sviðinu, en hrifningin var látin í ljós með allt öðrum og siðmenntaðri ►rlr af „Hljómum". hætti en þegar hinir áttu í hlut. Eitt laganna, sem ' sumar hljómsveitanna léku, heitir „Roll over, Beethoven", sem er allur textinn, hrópaður öðru hverju. Stjómandi einn- ar hljómsveitarinnar þýddi nafnið: „Snúðu þér við í gröf inni, Beethoven". Ef gamli meistarinn hefur ekki gert það á þessari stundu, þá.er óhætt að fullyrða, að fátt muni á hann bíta. Savanna-tríóið gerði hins vegar enga tilraun til að raska ró framliðinna. Þegar piltarn- ir brugðu á leik, sungu þeir um Pálínu, Jósafat og sauma maskinuna. Einnig sungu þeir Bílvísur, er Bjarni Björnsson gerði frægar forðum daga, í eigin útsetningu. Völbtu gam- ansöngvar þessir feiknalega bátínu meðal áheyrenda. Mest sefjun greip um sig undir leik „Hljóma“ frá Kefla vík, sem léku bæði fyrir og eftir hlé. Er þeir hofðu lokið leiknum í fyrra skiptið, var klappið og orgið svo ærandi, að köll kynnisins, Jónasar Jónassonar, í hljóðnemann, þess efnis að „Hljómar" léku aftur eftir hléð, bárust ekiki til eyrna áheyrenda. Það var í síðara skiptið sem „Hljómar" léku, að leikurinn tók að ærast fyrir alvöru. Drukkinn piltur dansaði um allt húsið og fóru tveir menn á eftir honum og ýimist hand- sömuðu eða misstu hann aftur Svo kom þó, að honum rann nokkuð móðurinn, en þegar lögreglumenn komu sikömmu síðar að fjarlægja tónlistar- unnanda þennan, sfé hann enn nokkur spor. Stóðu þá flestir þeir, sem fyrir framan inn- gangana sátu, upp og sneru sér við, klappandi þó og æp- andi. Stóðu margir á stólum og slógu höndunum saman fyrir ofan hofuð sér. Um hríð heyrðist ekkert í „Hljómum", sem þó þykja hafa allhávær tæki í þjónustu sinni. Fyrir- myndir þeirra „The Beatles“ hafa látið hafa eftir sér, að þeir séu ekki ánægðir fyrr en hætt er að heyrast til þeirra fyrir ólátum í salnum, — þá fyrst hafi þeir náð takmaxki sínu. Mega „Hljómar“ þvi vel við una. Morgunblaðið hafði í gær samband við Pétur Guðjóns- son, rakara, sem er umboðs- maður þriggja af hljómsveitun um. Sagði hann að ákveðið væri að halda tvenna aðra hljómleika með sömu skemmti atriðum. Yrðu þeir í Austur- bæjarbíói. Kvaðst Pétur á- nægður með hljómleikana í fyrraikvöld. Aðspurður um álit á því, hvernig unglingarn ir létu í ljós hrifningu sína, sagði Pétur, að kraikkarnir hefðu bara tekið þátt í hljóm- listarstemmingimni. Um ólæt- in sagði Pétur, að unglingar væru alltaf með „galsa og gleðsikap“, þegar einíwer einn yrði sér til skammar á al- mannafærL Savanna tríóið. Golfklúbbur 60 manna stofnaður á Suðurnesjum Byggir völl þegar í sumar SÍÐASTL. þriðjudag var stofn- aður Golfklúbbur Suðurnesja á fjölmennum fundi sem haldinn var í lögreglustöðinni á Kefla- víkurvelli. Stofnendur voru um 60, frá Keflavík, Njarðvíkum og mt vellinum. Formaður var kjörinn Ásgrím- ur Ragnars, Keflavíkurflugvelli, en meðstjórnendur þeir Bjarni Albertsson og Þorbjörn Kjærbo frá Keflavík. Helgi Sigvaldason og Ingvar Jóhannesson frá Njarð víkum og Einar Árnason og Kristján Pétursson frá Keflavik- urflugvelli. Formaður Golfsambands ís- lands, Sveinn Snorrason, mætti og aðstoðaði við stofnun klúbbs- ins. Hinn nýi klúbbur hefur þegar tryggt sér land undir golfvöll. Er það tún í landi jarðarinnar Stóri-Hólmur í Leiru og telja fé- lagsmenn að þar megi koma upp 9 holu velli og megi taka hana í notkun þegar í vor. Mikill áhugi er meðal félagsmanna og mun Hjórnin hafa í hyggju að útvega kennara strax í sumar, enda eru flestir félagsmenn byrjendur í íþróttinni. Kopavogur Spilakvöld Sjálfstæðisflokksins hefst kl. 8,30 í kvöld i Siálf- stæöishúsinu, Kópavogi. STAKSTEIHAB Yfirboð stjórnarandstöðunnar „SUÐURLÁND“ blað Sjáifstæðis ir.mna á Suðurlandi, birtir ný- lega forystugrein undir fyrir- sögninni „Stjómarandstaðan alltaf með yfirboð“. Er þar meðal annars komizt að orði á þessa leið: „Allur almenningur hefur tekið eftir því, að stjórnarand- staðan er með yfirboð í hverju máli. Kappið á milii Fram- sóknar og kommúnista um að sýnast og yfirbjóða er dæim- laust. Báðir þykjast þessir flokk- ar vilja vera gegn dýrtíð og tala um að hún sé bölvaldur. Á sama tíma kynda þeir undir allar kröfur sem upp koma og teija að hver sem kröfur ber fram, eigi skilyrðislaust að fá þeim fullnægt. Stjórnarandstaðan segir við hændur að þeir eigi að fá hækkað afurðaverð og er það rétt að vissu irarki. Á sama tíma heldur stjórnarandstaðan því fram í bæjunum að landbúnaðar vörar séu ‘allt of dýrar og sé það vottur um þá miklu dýrtíð sem orðin er“. Hliðin sem snýr að launþegum Suðurland heldur áfram: „Stjórnarandstaðan segir við launþega að þeir þurfi að fá stórum hækkað kaup. Ekki er að efa, að æskilegt er að laun- þegar hafi særr.'Iegar tekjur, en afleiðing kauphækkananna hlýt- ur ávallt að vera hækkað vöru- verð, sem stjórnarandstaðan er daglega að tala um að sé óheyri- lega há.tt. Stjórnarandstaðan tel- ur, að kaup verzlunarmanna eigi að hækka, og víst er það að margt fólk sem vinnur við verzlun hefur ekki verið vel launað. En afleiðingin af launa- hækkunum til verzlunarfólks verður hækkuð álagning á vör- um að einhverju marki, sem leið- ir til hækkaðs vöruverðs. Víst er, að annar armur stjórnarand- stöðunnar, Framsóknarmenn, krefjast þess, að álagning verði stórhækkuð. f sömu andrá ©g fárazt er yfir hækkun verðlags- ins“. Afstaðan til útvegsins Enn segir í forystugrein „Suð- urlands“: „Stjóraarandstaðan segir við útgerðarmenn, að þeim beri að fá hækkað fiskverð, án tillits til þess hvort útflutningsverð á fiskinum hefur hækkað. Þegar frystihúsin leggja fram reikn- inga sem sýna, að þau geta ekki haldið rekstrinum áfram ef fisk- verðið hækkar jafnhiiða kaup- hækkunun\ sem orðið hafa, telur stjórnarandstaðan sjálf- sagt, að ríkissjóður greiði það sem á vantar. Þegar ríkisstjórn- in gerði tillögu um tekjuöflun, til að standast straum af því sem greiða verður útveginum, vegna aukins kostnaðar, sem hann fær ekki staðið undir, neitar stjórnarandstaðan að vera með í að afla nokkurra tekna. Þannig kemur stjórnarandstað- an fram í flestum málum af full- komnu ábyrgðarleysi“. Héldu bændum í úlfakreppu Loks segir í forystugrein „Suð- urlands“: „Framsóknarmenn þykjast stundum vera sérstakir mál- svarar bænda. Er stundum á þeim að skilja, að bændur hafi lifað sældarlifi áður en núver- andi ríkistjórn kom til valda. Vitað er þó að Framsókn hélt bændastéttinnj í úlfakreppu um langa tíð með því aft meina bændum að fá aukinn styrk..“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.