Morgunblaðið - 22.07.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.07.1965, Blaðsíða 1
24 sífilur Sendinefnd Ghana á leið til N.-Vietnam Fékk ekki fhigferð frá Moskvu og fer því frá París Eins of kunnugt er, hefst í dag í Reykjavík Norræna skólamótið, fjölmennasta þing, sem haldið hefur verið með erlendum fulltrúum hér á landi. Hér sjást hinir fyrstu af mótsgestunum 370, sem komu með leiguskipinu Fritz Heekert í gærmorgun, ganga í land. (Sjá fleiri myndir og frásögn á bls. 10). Amsterdam, 21. júlí (AP) SENDIFULLTRÚI Ghana í London, Kwesi Armah, kom í dag til Amsterdam ásamt fylgdarliði frá Moskvu, og er hann á leið til Hanoi, höfuð- borgar Norður-Vietnam. — Mikil óvissa ríkti í allan dag um ferðir sendifulltrúans, því tilkynnt hafði verið að hann færi í gærkvöldi frá Moskvu til Manoi. En frameftir degi í dag var enga staðfestingu að fá í Moskvu um það hvers- vegna ferðaáætluninni var I breytt. I Við komuna til Amsterdam Miklar óeirðir i Aþenu Um 100 manns særðust er stúdentar sagði Armah að hann væri bjart- sýnn á árangur af för sinni til Hanoi, en þangað fer hann á veg- um Nkrumah, forseta Ghana, til að athuga hvað unnt sé að gera til að koma á friði í Vietnam. „Allir vilja binda enda á styrj- öldina í Vietnam", sagði sendi- fuiltrúinn, „og allt bendir til að Rússar vilji það einnig“. Armah sagði að förin til Moskvu hafi aðeins verið kurteis isheimsókn, en þangað kom hann á þriðjudag frá London. Og að- spurður um hversvegna ferða- áætluninni hafi verið breytt, en ekki haldið áfram frá Moskvu til Hanoi, sagði hann að komið hafi í ljós að flugvélin frá Moskvu til Irkutsk hafi verið fullsetin, og hann hafi ekki viljað beita áhrif- um sinum til að fá far með henni. Armah og fylgdarlið hans halda til Parísar í kvöld og það- an á morgun til Hanoi flugleiðis með viðkomu á Indlandi og i Shanghai. Sagði hann að eftir viðræður við Ho Ghi Minh, for- seta Norður-Vietnam mundi hann halda heim til Ghana og gefa Nkrumah forseta skýrslu um árangurinn. Harrinian ánægð- ur með Moskvu- förina Moskvu, 21. júlí (AP) AVERELL Harriman, sérstakur eendifulltrúi Johnsons Banda- rík jaforseta, hefur dvaliff um 'vikutíma í Moskvu og rætt þar við ýmsa ráðamenn. Átti hann í dag nærri tveggja stunda fund meff Alexei .Kosygin, forsætis- ráðherra, en þeir ræddust einnig viff fyrir helgina. Dvöl Harri- mans í Sovétríkjunum er nú að Hjjúka, og heldur hann flugleiðis til Brússel á morgun. En um helgina er hann væntanlegur til Bonn. Að viðræðunum ioknum í dag eagði Harriman að hann hefði góðar fréttir að færa, en ekki etrax. Fyrst yrði hann að hafa eamband við Johnson forseta og bandarisku stjórnina. Viðstaddir viðræðurnar í dag voru m.a. Foy D. Kohler, sendi- herra Bandaríkjanna í Moskvu, ©g Mikhail N. Smirnovsky, yfir- maður Bandarikjadeildar sov- ézka utanrikisráðuneytisins. réðust að þinghúsinu Aþenu, 21. júlí (AP) STÚDENTAR efndu til úti- fundar í Aþenu í kvöld til stuðnings Georges Papan- dreou, fyrrum forsætisráð- herra. Til fundarins var boð- að með samþykki lögreglunn- ar. Nokkur þúsund stúdentar mættu á fundinum, og báru sumir þeirra spjöld með áletr unum gegn hinni nýju stjórn Georges Athanasiades Novas, forsætisráðherra. Ekkert varð um óeirðir fyrst í stað, en seinna, þegar stúdentarnir ætluðu í mót- mælagöngu til þinghússins, mættu þeir þar fyrir öflugum lögregluverði, sem fyrirskip- aði að mótmælagangan yrði leyst upp. 1 stað þess að verða við kröfum lögreglunnar, brutust stúdentarnir gegnum fylking- . 1 ar hennar. En þá birtist önnur j I sveit lögreglumanna, búin gas : grímum ©g kylfum, og tvístr- aði hópgöngunni. Fyrr í dag hafði nýi for- sætisráðherrann hrundið meirihluta Papandreous á þingi með því að fullskipa ríkisstjórn fulltrúum, sem áð- ur fylgdu Papandreou. í ríkis- stjórninni eru 20 ráðherrar, og allir úr flokki Papandreous, Miðflokknum. Vika er nú liðin síðan Konstan tín konungur vék Papandreou úr embætti forsætisráðherra, og hefur daglega komið til ein- hverra árekstra í Grikklandi milli stuðningsmanna hins fallna leiðtoga og lögreglunnar, aðal- lega í Aþenu og Saloniki. Þó var óvenju kyrrt í Aþenu í gær og engir alvarlegir árekstrar þar. En um helgina særðust að minnsta kosti 135 manns í þess- um tveimur borgum. Þegar stúdentum var svo leyft að halda útifund í kvöld, var kallað út fjölmennt varalið lög- reglu og hermanna til að tryggja að unnt væri að hafa hemil á stúdentunum. Kom í ljós að ekki var vanþörf á þessum ráð- stöfunum, og meiddust a.m.k. 100 manns í óeirðunum. í Saloniki var einnig haldinn mótmælafundur, og mættu um 20 þúsund manns á íþróttaleik- vangi borgarinnar til að votta Papandreou stuðning. En sá fund ur fór á allan hátt mjög frið- samlega fram, og kom ekki til neinna óeirða. Nýi forsætisráðherrann, Athana siades Novas, hefur lýst því yfir að hann muni fara fram á trausts yfirlýsingu þingsins hinn 30. Framhald á bls. 23. IVIcNamara kominn heim Washington, 21. júlí (AP) ROBERX S. McNamara, varn armálaráffherra, er kominn heim til Washington eftir för sina til Suffur Vietnam. — Ræddi ráðherrann í dag viff Lyndon B. Johnson, forseta, og ýmsa ráðgjafa hans og gaf þeim skýrslu um ferðina. Taliff er fullvíst aff ráffherr- ann hafi lagt til að fjölgað yrffi í herliði Bandarikjanna í Suffur Vietnam, en engin opin ber tilkynning hefur verið gefin út um málið enn sem komið er. Flóð eftir lang- varandi þurrka Tugir þúsunda heimilislausir á Indlandi Nýju Delhi, Indlandi, 21. júlí — AP — EFTIR langvarandi þurrka, «em valdið hafa gífurlegu upp skerutjóni á Indlandi, er nú tekið að rigna þar. En úrkom- an er meiri en góðu hófi gegn- ir og haía tugir þúsunda íbúa í nágrenni Bombay orðið að yfirgefa heimili sín. í Bom- bay mældist úrkoman síðasta sólarhring rúmlega 30 sentí- metrar, og enn heldur áfram að rigna. Fljótið Braniaputra hefur Framhald á bls. 23. Verðbréfarán í New York Verðmæti bréfanna áætlað um 120 millj. kr. New York, 21. júlí (AP) XVEIR menn stöðvuðu sendil frá verðbréfaverzlun einni í Wall Street í hádeginu í gær og stálu frá honum verff- og hlutabréfum, sem metin eru á 2,8 milljónir dollara (um 120 milljónir króna). Segja eig- endur bréfanna aff erfitt muni reynast fyrir þjófana aff losna viff þau, en ekki sé þaff óger- legt. Séu bréfin reiknuð á nafnverffi er hér um aff ræffa eitt mesta rán, sem framiff hefur veriff í Bandaríkjunum. I ránsfengnum voru m.a. nærri 35 þúsund hlutabréf í ýmsum þekktari stórfyrir- tækjum Bandaríkjanna eins og Ford, Edison og Pepsi Cola. Bréfin átti félagið Goodbody & Company í New York, og var félagið að senda þau í banka við Wall Street sem trýggingu fyrir láni. Fékk fé- lagið sérstakan sendiboða frá verðbréfaverzlun til að flytja bréfin. Sendiboðinn, Gerald Mul- cahy, er átján ára. Segir hann svo frá að klukkan 1,15 síð- degis að staðartíma hafi hann verið kominn að vegamótum Exchange Place og New Street. Þar hefðu mennirnir tveir gengið að honum, og var hvorugur þeirra grímubúinn. Að sögn voru ræningjarnir um hálf þritugir að aldri, ann- ar gildvaxinn og með skalla, búinn dökkum buxum og hvítri skyrtu, hinn klæddur dökkum fötum og með sól- gleraugu. Annar þeirra hélt einhverjum hörðum hlut að baki hans og sagði honum að hafa hljótt um sig. Síðan, sagði sendiboðinn, var honum skipað að fara inn í húsasund, og þar tóku þjóf- arnir af honum umslag sem bréfin voru í. Hlupu ræn- ingjarnir svo hvor í sína átt- ina. Mulcahv flýtti sér eftir rán- ið til vinnuveitenda sinna, sem hringdu þegar til lögreglunn-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.