Morgunblaðið

Date
  • previous monthAugust 1967next month
    MoTuWeThFrSaSu
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031123
    45678910

Morgunblaðið - 17.08.1967, Page 5

Morgunblaðið - 17.08.1967, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1967 5 „Bind þessa tvo fugfa í hreiðri ástar þinnar“ Bohoi ■ brúðhoup í Árbæjorkirkju „Megið þið verða tveir sætt syngjandi fuglar á hæstu grein í lífsins tré ... Sálir ykkar verði að dög- unarstað fyrir sól raun- veruleikans ... Gangið í eilífum rósagarði ástarinn- ar ... Lát þetta hjónaband færa fram kóralla og perl- ur . . . Bind þessa tvo fugla í hreiðri ástar þinnar . . . Verið sem tvær dúfur í sama hreiðri . .. Börn ykk- ar verði sem blóm í garði, næturgalar í tré, ávextir á tré lífs ykkar .. . Lof sé guði, drottni veraldarinn- ar“. Þessi orð hljómuðu í kristnum helgidómi í gær, þau voru höfð yfir fyrir fram an gráturnar í Árbæjarkirkju. Þar fór fram alleinstæð hjóna- bandsatihöfn, en maður og kona úr trúflokki Bahai- manna voru gefin saman í hjónaband að þeirrar trúar sið. Blaðamenn voru kallaðir til að vera viðstaddir athöfnina og bar okkur að laust fyrir klukkan tvö. Brúðhjónin, Svava Magnúsdóttir og Fabio Tagliavia, voru þá stödd í skrúðhúsi, en utan kirkju hitt um við að máli forstöðumann Bahai-trúflokksins hér á landi, Ásgeir Einarsson. Við spurðum hann lítillega um trúarbrögðin, sem hann sagði Vera alveg sjálfstæð og óháð öllum öðrum trúarbrögðum. En hann sagði að spámaður Bahaitrúarbragðanna byggði á kenningum annarra mikilla spámanna eins og t. d. Krists og Múhameðs, án þess þó að vera þeim háður að nokkru leyti. Þá spurðum við Ásgeir um réttarstöðu þessara trúar- bragða hér á landi og þá sér- staklega gagnvart þjóðkirkj- unni, en okkur þótti það með nokkrum ólíkindum, að þessi trúarbrögð skyldu hafa fengið inni í íslenzkri kirkju með helgiathafnir sínar. Ásgeir sagði, að biskupinn yfir ís- landi 'hefði sýnt þessum trúar brögðum mikinn skilning og væri íslenzka kirkjan þeim hliðhollari en þjóðkirkjur ann arra landa. Þegar leitað hefði verið löggildingar þessa trú- félags hjá dóms- og kirkju- málaráðuneyti hefði þurft til umsögn biskups og hefði hún verið mjög „hagstæð og sympatisk“. Ásgeir sagði að nú væru 18 manns í Bahai- trúflokknum á íslandi. Nú leið að því að athöfnin skyldi hefjast. Leiddi forstöðu maður safnaðarins brúðguma úr skrúðhúsi í kirkju, en litlu síðar var hringt klu'kkunum í öldnu klukkuhúsi Árbæjar- kirkju og undir hljómi þeirrar hringingar var brúður leidd1 inn kirkjugólf. Um 40 manns voru í kirkju. Kirkjuathöfnin var mjög einföld. Þrír til- kvaddir menn, tveir karlar og ein kona, lásu úr spámanns- ritum Bahai, valda texta, en vígslumaður, forstöðumaður safnaðarins, flutti bæn. Þá fluttu brúðhjónin vitnisburð, ibrúður á íslenzku, en brúð- Igumi á ítölsku. Fyrir vígsl- unni lásu þau síðan heitorð og settu upp hringa, en vígslu maður las yfir þeim ræðu all- langa, sem nokkrar tilvitnan- ir voru teknar úr hér í upp- Ihafi. Eins og þær tilvitnanir bera með sér var ræðan á skrúðmiklu og íbornu máli, sem stakk mjög í stúf við ein faldleik athafnarinnar að öðru leyti.Bað vígslumaður brúð- hjónin að vera trú guði sínum, Bahai spámanni og hvort öðru. Brátt var þessu lokið og brúðhjónin íeiddust út, bros- andi og hamingjusöm eins og ibrúðhjónum bera að vera. Utan kirkju hittum við minjavörð borgarinnar, Lárus Sigurbjörnsson, að máli. Hann sagði að sér hefði sem kirkju- Verði verið sýnd öll tilskilin vottorð til þess að þessi at- höfn mætti fara fram í Ár- bæjarkirkju. Lárus kvaðst hinsvegar hafa ætlað að ræða þetta mál við biskup, en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir ekki hafa náð tali af honurn eða neinum á biskupsskrifstofu Sóknarprestur Árbæjarkirkju hafði fyrir sitt leyti gefið leyfi til að athöfn þessi færi fram í kirkjunni. j.h.a. Brúðhjónin, Svava Magnúsdóttir og Fabio Tagliavia, skrifstofustjóri frá Palermo á Italíu. Myndin er tekin er þau ganga úr Árbæjarkirkju í gær að lokinni vígsluathöfn. (Ljósm. Sv. Þorm.) A MÖRGUM sviðum þjóðlífs- ins koma saman hinn gamli og nýi tími. Smátt og smátt sigrar nútímatæknin hinar aldagömlu hindranir okkar stórbrotna og víða hrikalega lands. Fallvötnin okkar hafa lengi verið Þrándur í götu ferðamannsins, en þar hefir lengst og dyggast þjónað okk- ur þarfasti þjónninn, íslenzki hesturinn, sem ekki á sinn líka í víðri veröid fyrir þolni, þrautscigju og óviðjafnan- lega ganglipurð. Eitt hinna stórbrotnustu jök ulvatna landsins, Jökulsá á Breiðamerkursandi verður nú brátt eins auðveld yfirferðar og Aðalstræti. Verið er þar að byggja mikið brúarmannvirki, sem hér má sjá á einni mynd- inni. Undir brúna má sjá millistig farartækninnar, þar sem jeppinn, arftaki hestsins á torfærum vegum, er fluttur á dragferju yfir ána. Og síð- ast, en ekki sízt, getur að líta fákinn okkar frækna, þar sem hestahópurinn grípur sundið í hinu jökulkalda fall- vatni. Þeir skáskióta sér í strauminn, og teyg ia f ram frísandi nasirnar, en helkald- ur jökulstraumurinn skellur á brjóstum þeirra og síðu. Myndirnar tók Snorri Snorrason jr., en hann er aðeins 13 ára.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue: 183. tölublað (17.08.1967)
https://timarit.is/issue/113565

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

183. tölublað (17.08.1967)

Actions: