Morgunblaðið - 24.04.1971, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.04.1971, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLABIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 19T1 Stef nan er opin íbáðaenda .. — sagði Kristján Benediktsson um tillögu flokksþingsins í kjördæmamálinu A FLOKKSÞINGI Fram- sóknarflokksins kom m.a. til verulegra skoðanaskipta um afstöðu flokksins í kjör dæmamálinu, deilt var um einstaka þætti í stjórn- málaályktun þingsins og ágreiningur varð um tillög- ur menntamálanefndar þingsins og tillögur Jóna- tans Þórmundssonar, próf- essors, um menntamála- ályktun. Tillögur Jónatans í þeim efnum voru sam- þykktar með 75 atkvæðum gegn 62, eftir endurtekna atkvæðagreiðslu. Pegar komið var nærri þing slitum á þriðjudag-skvöld vitn aði imgur framsóknarmaður, Hafliði Jósteinsson, í lok ræðu sinnar tii orða Ólafs B. Thors á framboðsfundi Sjálf- stæðisflokksins í Háskólabíói fyrir borgarstjórnarkosning- arnar sl. vor: „Við förum út úr þessu húsi ákveðin i að vinna sigur í þessum kosn- ingum.“ kjördæmamAlið Afstaðan til kjördæmamáls- ins kom strax til umræðu i al mennum stjórnmálaumræðum í upphafi þingsins sl. laugar- dag og aftur í umræðum um stjórnmálaályktunina, sem fram fóru á þriðjudag. 1 almennu stjórnmálaum- ræðunum vakti Jónatan Þór- mundsson athygli á stjórnar- skrármálinu og taldi gang þess hafa verið skrykkjóttan á liðnum árum. Jónatan lagði mikla áherzlu á einmennings kjördæmi og tveggja flokka kerfi. Hann taldi m.a., að við ræður SUF og SFV ásamt ein menningskjördæmum myndu stuðla að sameiningu allra „íhaldsandstæðinga.“ Egill Sigurgestsson lýsti sig hins vegar andvígan ein- menningskjördæmum; þeim yrði einungis komið á með aðstoð „ihaldsins" í andstöðu við vinstriflokkana. Tveggja flokka kerfið í Bretlandi væri auk þess ekki til fyrir- myndar. Hrafn Sveinbjamar- son taldi, að einmenningskjör dæmin myndu leggja Fram- sóknarflokkinn niður og lagði áherlzu á, að landið yrði eitt kjördæmi. f>að væri ein- tóm minnimáttarkennd að gaufa við hugsunina um ein- menningskjördæmi. Jón Kjartansson. Óiafur Jensson undraðist andstöðuna innan flokksins við einmenningskjördæmin. Þeir sem þannig hugsuðu bæru einungis hag flokksins fyrir brjósti; það væri hins vegar hagur þjóðarinnar að breyta. Tómas Ámason sagði, að núverandi kjördæmaskip- an ætti sinn þátt í að ýta und ir fjölgun flokka. Breytingin 1959 hefði verið óviturleg og einungis verið í þágu þeirra flokka, er að henni stóðu. OPIN í BÁÐA ENDA Stjórnmálanefnd þingsins lagði fram ályktunartillögu um stjórnarskrármál ásamt stjórnmálaályktuninni. 1 þessari tillögu nefndarinnar sagði m.a.: „Stuðlað verði að því, að kjósendur eigi sem hægast með að koma hugar- málum sínum á framfæri við þingmenn kjördæmisins. Með þetta fyrir augum telur flokk urinn, að skipta beri núver- andi kjördæmum, án þess þó að þingmannatala í heild hækki, og að alla þingmenn eigi að kjósa í kjördæmum." Kristján Benediktsson sagði, að þetta væri falleg yfirlýs- ing, en segði lítið. Hann fengi ekki séð annað en Fram- sóknarflokkurinn vildi taka upp einmenningskjördæmi, ef þessi ályktun yrði samþykkt. Það væri híns vegar hæpið fyrir Framsóknarflokkinn vegna þeirrar stöðu, sem hann nú væri í, að gefa slíka yfirlýsingu. Kjördæmabreyt ingin 1959 hefði bjargað Framsóknarflokknum; hún hefði opnað leið að fylgi flokksins í þéttbýlinu. Kristján taldi síðan óskynsam legt að álykta um þetta efni með tiivísun til þeirra raka, sem Egill Sigurgestsson bar fram. Sigurvin Einarsson sagðist ekki vilja sitja þegj- andi undir þvi, að Framsókn arflokkurinn lýsti yfir stuðn- ingi við einmenningskjör- dæmi. Einar Ágústsson taldi, að ekki væri verið að álykta um einmenningskjördæmi í þess- um tillögum. Einar flutti síð an breytingartillögu, þar sem hann lagði til að orðin „þing- mann kjördæmisins" féllu nið ur, en í stað þeirra kæmi orð ið „þingmenn". Þessi tillaga var samþykkt samhljóða. Jónatan Þórmundsson sagði að þetta yrði eini ásteytingar steinninn; stjórnarskrármálið væri eitt helzta feimnismál Framsóknarflokksins. Þó að ekki yrði gengið lengra en að hafa opnar dyr í báðar átt ir, væri það samt sem áður nokkurs virði, að Framsóknar flokkurinn hefði tekið frum- kvæði í málinu. Sigurvin Einarsson sagði, að andstæð- ingarnir gætu bent á, að Fram sóknarflokkurinn hefði loðna stefnu í þessu máli, ef hafa ætti opið í báðar áttir. Sigur vin sagðist treysta Morgun- blaðinu fullkomlega til þess að sýna fram á, að Framsókn arflokkurinn stefndi að ein- menningskjördæmum, ef ályktunin yrði samþykkt. Hann taldi einnig, að það vaeri ekki sigurvænlegt að lýsa því yfir, að leggja astti uppbótarsætin niður; rétt væri að bíða með það í eitt kjörtimabil til viðbótar. Böðvar Steinþórsson sagði það vera sína skoðun, að upp bótarþingsætin ættu að vera áfram, og hann væri andvig- ur einmenningskjördæmum. Hannes Pálsson taldi tillög ur nefndarinnar þaulhugsað- ar; stjórnarskrártillagan gæfi jafnvel í skyn, að Fram- sóknarflokkurinn viidi hugs anlega taka upp einmennings kjördæmi. Hannes taldi enn- fremur heppiiegt að fella nið- ur uppbótarsætin. Daníel Ágústínusson furðaði sig sér- staklega á því, að menn mæltu nú uppbótarsætunum bót. Kristján Benediktsson sagði, að með þessari álykt- un væri stefnan opin í báða enda. Síðan lagði hann til ásamt fleirum, að kaflinn um kjördæmamálið yrði felldur niður. Sú tillaga Kristjáns var feild með 120 atkvæðum gegn 36. „MÁI.FU 'T.N'INGl'RIN'N BER KEIM AF FÁFRÆÐI" 1 umræðum um stjórnmála- ályktunina urðu einníg all- verulegar orðahnippingar um stjórnsýsluna. Einkum olli þessi setnig ágreiningi: „Tíð ari mannaskipti verði í stöð- um á vegum hins opinbera, þar sem því verður við kom- ið.“ Jón Kjartansson sagði, að það myndi standa í sér, ef hann ætti að gefa skýringar á þessu. Menn ættu að fara úr stöðum sínum, ef þeir stæðu sig ekki. Þetta ákvæði ætti að fella út. Jónatan Þórmundsson sagði, að það væri orðið að slagorði að ræða um „tíðari mannaskipti“ Kjarni málsins væri fram kvæmdin; þetta væri lítið land og framkvæmdin yrði því erf ið. Halldór E. Sigurðsson sagði, að Jón Kjartansson þyrfti ekki að vera í vand- ræðum með að svara fyrir þessa ályktun. Hann undrað- ist að Jón teldi goðgá að breyta stjórnsýslukerfinu. Einar Ágústsson taldi það enga fjarstæðu að skipta um embættismenn. Hannes Páls- son sagðist engan veginn geta hneykslazt á þessu orðalagi. Hannes nefndi síðan dæmi um spillirxguna í stjómsýslunni. Hann sagði, að i fjármálaráð- herratíð Eysteins Jónssonar hefðu þeir Eysteinn og Sig- tryggur Kiemenzsson unnið tveir sama verk og 9 gæðing- Kristján Benediktsson. ar stjórnarflokkanna leystu nú af hendi. Þorsteinn Ólafsson sagði, að sá málflutningur, sem hafð ur hefði verið uppi í garð stjórnsýslunnar, bæri keim af fáfræði. Skipulagshyggja í stjórn efnahagsmála væri stefna Framsóknarflokksins; þessi stefna krefðist verulegr ar útfærslu í stjórnsýslukerf- inu. Nú þegar væri viðleitni í þá átt að draga úr ríkis- útgjöldunum. Þorsteinn sagði ennfremur, að sá málflutning ur, sem Tíminn hefði I frammi um stjómsýsluna væri oft og tíðum ekki á rökum reistur. Jón Kjartansson lagði til að hin umdeilda setning um mannaskipti yrði felld niður; að öðrum kosti myindi hann greiða atkvæði gegn stjóm- málaályktuninni í heild. Til laga Jóns var samþykkt með 79 atkvæðum gegn 73. „GRAI TARI.EGAR TIELÖGUR" Jónatan Þórmundsson kom fram með mjög harða gagn- rýni á tillögur menntamála- nefndar. Hann taldi tillögur nefndarinnar allt of grautar- legar, framsetningin væri ðað gengileg, mikilsverð efnisat- riði vantaði, sumt væri óþarft og vafasamt og í heild væru drögin of almenns eðlis. Jón- atan lagði fram breytingar- tillögur við meginhluta til lagna nefndarinnar og lagði m.a. til að felld yrði niður til vísun til menntamálaálykt- unar 14. flokksþingsins, sem haldið var fyrir 4 árum. Ingvar Gíslason taldi, að ekki bæri eins mikið á milli í tillögum nefndarinnar og ti! lögum Jónatans eins og Jón- atan vildi sjálfur halda fram. Baldur Óskarsson lýsti yfir stuðningi við tillögur Jónat- ans, en Erlingur Jónsson taldi nýmælin í þeim ekki Framh. á bis, 25 — Loftslags- sveiflur Framh. af bls. 11 en nú er. En þá var einmitt byggð á Suður-Grænlandi. Á 15. öld ríktu lang- vinnir kuldar. Það gæti verið ástæða þess að norrænir menn hurfu frá Suður-Grænlandi. Grasið greri ekki, og ekki voru lífskilyrði fyrir kvikfé. 16. öld- in var nokkru hlýrri, en svo komu 130 mjög köld ár. Sögulegar heimildir frá íslandi segja frá geyisilegum ís árið 1690. Landið var umkringt rek- ís, sem náði alla leið til Fær- eyja. Um 1730 varð nokkru hlýrra, en síðan kom nýtt kulda- skeið frá 1810 til 1820. Eftir það fór veðurfar hægt batnandi, þar til 1930. En síðan hefur kóln að. Grænlenzkar fiskiveiðar hafa greinilega orðið fyrir barðinu á þessu versnandi veðurfari. Und- anfarin 5 ár hefur bátum og tog- urum fjölgað um helming, en jafnframt er aflinn orðinn 2var- 3var sínnum minni. Og nú síð- iustu árin hefur grænlenzki rek- Istnn lagzt allt í kringum Hvarf og náð langt upp eftir vestur- ströndinni. Rekísinn bráðnar og kælir sjóinn, sem verður of kaidur fyrir fiskinn. Á Norður-íslandi leggjast bæir í eyði vegna sþrettuleysis, segir Bent Henius í greininni. H.H. Lamb hefur bent á, að sprettubími plantna og grasa hafi stytzt um þrjár vikur. Jafn framt hefir fjölgað um helming þeim dögum, sem jörðin sé þak- in snjó, og að tala vestlægra vinda hafi vaxið um 20% á und- anförnum 20 árum, sem bendi til þess að heimsikautasvæðið sé að færast suður yfir. OFURLÍTIL HVATNING Loftslagið hefur sem sagt breytzt mörgum sinnum undan- farnar aldir, án þess að komið hafi ný ísöld. En margir vis- indamenn óttast að þessum veð- ursveiflum fjölgi, svo að ekki þurfi kannski nema að ýtt sé smávegis á til að ný ísöld gangi í garð. Hvers vegna verður kaldara? Um það eru vísindamenn ekki sammála. Sumir telja að það standi I sambandi við geislun frá sólinni, þannig að ísöld fari af stað fyrir áhrif af vaxamdi geislun frá sólinni, svo undar- legt sem það virðist. Það sem þá gerizt, er að hit- inn verður mestur við miðbaug, með þeim afleíðingum að hring- rás loftsins eykst. Heitt, rakt hitabeltisloft þrýstist út til heiimskautasvæðanna, og þar fellur milkiill snjór. Mikil aukning á raka loftsins verður til þess að mynda fleiri ský. Þannig verður jörðin skid- in frá sólarhitanum og kólnar víð það. Þar sem snjórinn á heimskautasvæðunum breytist í is, verður minni snjókoma, af því að uppgufun hættir frá haf- inu á þessum stöðum, um leið og hafið kólnar vegna issins. Aðra kenningu hafa Maurice Ewing prófessor og dr. William L. Donn frá jarðfræði- deild Lamont-rannsóknarstöðv- arinnar. Þeir kenna miklu frem- ur hafinu en sólinni um að valda ísöid. Kennlng þeirra byggist á þvi, að jörðin hafi lengst af verið islaus 1 allri sinni sögu. Það sem hafi ruglað kerfinu síðustu milljón árin sé það, að löndin hafi verið á reki. Þessir tveir visinda.menn styðja kenn- tnguna, sem oft heíur verið skrrfað um, þ.e. að jörðin hafi einhvern tíma verið stórt megin- land. Meginlöndin eru á stöðugri hreyfingu. Og það ráðum við jafn Mtið við eins og geislun sól- arinnar. Aftur á móti hefur mannkynið möguleika á að hafa álhrif á hita jarðarinnar með þeim efnum, sem send eru út í geiiminn. Síðustu árin hefur ver- ið brennt óhugnanlega miklu af kolum og olíu og hætt er við að koldíoxíðjafnvægið raskist í loft inu og höfunum. Ef rykið í loftinu fer mjög vaxandi, verður heitara á jörð- inni, en ef koldioxíð-innihaldið vex, þá verður kaldara. Verði það 5-10 stigum hlýrra, bráðn- ar heimsskautaísinn á Suður- skautinu og á Grænlandi, og við það haskkar sjávarborð um nókkur hundruð metra og flæð- ir yfír gróðursælustu og þétt- býlustu svæði jarðar. Eyðiilegg- ing af völdum ísaldar er Líka þeíkkt fyrirtmgði. ÁHÆTTAN Dr. Jim LoveVjok hefur rann- sakað andrúmsloftið og telur að ekki sé fyrst um sinn hætta á að kokUoxiiðið fari upp fyrir hættumöricm. Hafið verður til þess að draga úr áhrifum hiita og koMíoxíðs, sem þetta 1250 milljón kúbikkílómetra yfirtxirð getur gleypt óheimju mikið af. Fræðilega séð, ætti að vera hægt að þékja heimskautasvæð- in með plastlagi eða ösku og hafa þannig áhrif á hitajafn- vægi jarðarinnar. Nær eng- in hætta er á að svo geti orðíð af slysni. Þó stórt tank- skip miissti niður alla sína olíti á norðvesturleiðinni, þá næðí hún aðeins að þeikja 50 kvaðr- atkílömetra. En Grænland eitt er tvær midljónir kvaðratikílö- metra. En bvemirg er þá veðurútlit- ið í framtíðinni? Prófessor við H.C. Örsted stofnunina í Kaup- mannahöfn, Willy Dansgaard, sem er að rannsaka loftslags- breytingar á Grænlandi með þvií að bora upp djúpkjarna úr isn- um, telur að kólna muni næstti 10-15 árin. Eftir það komi hlý- indaskeið, sem nái hánnarki á fynsta eða öðrum tug næstu ald- ar. En þá er auðvitað reiknað með að við breytum ekki laginu með aúkinni menguti í ioftiinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.