Morgunblaðið - 19.04.1972, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍíL 1972
Þau þef a þá týndu uppi
Um sporhundahald hjálparsveita
skáta í Hafnarfirði og Reykjavík
Sporhundar Hjálparsveita skáta í Hafnarfirði og Reykjavík;
Comet t.v. og herrann Korri hægra megin.
SPORHUNDUB Hjálparsveita
skáta í Hafnarfirði og Reykja-
vik vann á dögunum það af-
rek að rekja 55 tima gamia
slóð og finna eiganda hennar
og hafði þó snjóað í millitíð-
inni, frá þvi maðurinn hvarf
og þar til hundiniun var beitt
á slóð hans. Þetta var í f jórða
sinn, sem sporhundur leitar
manns á þessu ári og hefur
i ÖU skiptin hafzt upp á þeim
týndu — i tvö skiptin var um
sólarhringsgamla slóð að
ræða. I fyrra var þrisvar sinn-
imi farið með sporhund til
leitar og í öll skiptin fann
hann viðkomandi.
Nú eru tiu ár liðin frá því
Hjálparsveit skáta í Hafnar-
firði eignaðist sinn fyrsta
sporhund. Aðalhvatamaður
þess var Jón Guðjónsson, sem
þjálfaði og stjómaði spor-
hundi, sem Flugbjörgunar-
sveitin í Reykjavík átti, en
þegar Flugbjörgunarsveitin
sýndi ekki áhuga á frekara
sporhundahaldi, beitti Jón sér
fyrir því, að skátamir í Hafn-
arfirði tækju upp þráðinn
með kaupum á sporhundi frá
Bandaríkjunum.
Þessi fyrsti hundur sveitar-
innar kom til landsins 1962 og
hlaút nafnið Nonni. En heldur
betur reyndist vera maðkur í
mysunni með Nonna. Hjálpar-
sveitarmenn höfðu keypt
þriggja ára fullþjálfaðan blóð-
hund, en Nonni reyndist vera
átta ára, þegar til íslands
kom. — Sporhimdar endast
yfirleitt ekki nema í 8—10 ár.
Nonni hafði auðsjáanlega ver-
ið góður sporhundur, þegar
hann var upp á sitt bezta, en
aldurs síns vegna varð hann
Islendingum að litlu gagni.
Þegar hér var komið sögu,
v£ir Hjálparsveit skáta í Hafn-
arfirði gefinn hundur frá
Keflavík. Var ætlunin að þessi
hundur, sem hlaut nafnið
Bangsi, yrði Nonna til félags
og ánægju. Þrátt fyrir það, að
Bangsi væri af blönduðu kyni,
hvað ekki þykir vænlegt til
sporhunds, var brugðið á það
ráð að hefja þjálfun hans,
þegar Nonni hrökk upp af.
Varð árangurinn vonum fram-
ar og sýndi Bangsi á ýmsan
máta góðan árangur nokkrum
sinnum. Bangsi fannst svo
dauður í girðingu sinni einn
morguninn og kom þá í ljós,
að hann hafði drepizt af eitri,
þó aldreí fengist á hreint,
hvemig hann hefði komizt i
það eitur.
Að Bangsa dauðum fékk
Hjálparsveit skáta í Hafnar-
firði tvo shaffer-hvolpa hjá
norsku lögreglunni og komu
þeir til landsins 1964 og ’65.
Þessir hundar hétu Týra og
Spori. Þau sýndu töluverðan
árangur; m.a. bjargaði Týra
eitt sinn móður og bami frá
Skyldi hann nú gefa í leit
í dag?
dauða á viðavangi, en i heild-
ina varð reynslan af sháffer-
kyninu ekki nógu góð, enda
sannað, að þótt scháfferinn sé
ágætur lögregluhundur, er 6—
7 tíma gömul slóð það mesta,
sem hann rekur.
Eftir þessa reynslu í spor-
hundahaldinu sáu Hafnar-
f jarðarskátar að til framhalds
þyrfti mjög vel að vanda, ef
nokkurt ætti að verða. Blóð-
hundakynið var nú það, sem
áhuginn beindist að og sum-
arið 1970 fóru tveir menn,
Ólafur Proppé, sveitarforingi,
og Snorri Magnússon, hunda-
þjálfari, til Danmerkur að
kynna sér sem rækilegast
þjálfun og rekstur sporhunda.
Ekki varð af því, að innflutn-
ingur á blóðhundshvolpi frá
Danmörku fengist leyfður, en
frá Englandi var svo keyptur
hreinræktaður blóðhunds-
hvolpur, sem til íslands kom-
inn hlaut nafnið Korri. Nú
gerðist það, að Hjálparsveit
skáta í Reykjavik gekk í lið
með Hafnfirðingum við spor-
hundsreksturinn og í janúar
1971 kom annar blóðihunds-
hvolpur frá Englandi; tíkin
Comet.
Korri og Comet eru bæði af
smnáluðum sporhundaættum
og þykja til þessa hafa vel
sannað ágæti sitt hér á landi.
Það er von eigendanna, að
þessir hundar geti orðið stofn-
inn að þeirra eigin sporhunda
kyni. Að sögn Snorra Magn-
ússonar tekur það um hálft ár
að þjálfa sporhund og er bezt
að hefja þjálfun við 18 mán-
aða aldurinn.
En það er dýrt að reka góð-
an sporhund. Ólafur Proppé
segir rekstur Korra og Comet
kostá um 400 þús. kr. á ári og
er þar um algjöra lágmarks-
upphæð að ræða. En hvernig
á að meta sporhunda til fjár?
Þeir geta bjargað mannslífum
og oft á tíðum koma þeir í
veg fyrir langar og mann-
margar leitir. Þess má og
geta, að spörhundana má auð-
vitað nota víða um land, því
með litlum fyrirvara má
fljúga með þá hvert sem er.
Með þetta I huga hafa skát-
amir leitað til 61 sveitarfélags
um stuðning við sporhunda-
haldið og hafa 13 þeirra brugð
izt vel við þeim óskum, auk
þess sem Alþingi hefur lagt
fram 150 þús. kr. til sporhund-
anna i ár. Fyrirtækjum og ein
staklingum, sem vilja styrkja
þessa starfsemi, skal bent á,
að skátamir hafa gefið út sér-
stöik gjafabréf til hennar.
En hvað skal gera, ef menn
vilja leita á náðir sporhunds?
Snorri Magnússon segir, að
yfirleitt leiti fólk of seint eft-
ir aðstoð hundanna. En hann
vill brýna fyrir fólki, að það
haldi til haga fötum af þeim
týnda; helzt fötum, sem hann
bar næst sér, snerti ekki of
mikið á þessu en setji það í
hreinan plastpoka og geymi
handa sporhundinum. Það er
lögreglan í Hafnarfirði, sem
hefur milligöngu um að út-
vega sporhundana til leitar.
Það er allt annað en blóð-
þorsti, sem skín úr svip
Comet á þessari niynd.
Eitthvað lízt Korra ekki alveg Vel á ástúð þá, sem Comet sýnir
Snorra Magnússyni, hundaþjáifara. (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)
Reykur
komst í
kjötfarm
Keflavik, 17. april —
í DAG er verið að skipa upp hér
í Keflavík um 260 tonnum af ís
lenzku kjöti úr norska skipinu
Utstraium. Og átti að ljúka því
um mdðnætti.
Kjöt þetta var búið að fara til
Noregs. Hafði skipið tekið það
um borð á Norðausturlandshöfn
um og var komið með það til
Osló. En einhver tæki höfðu bil
að, líklega kviknað í blásana, svo
reykur hafði borizt inn í frysti
lestar skipsins.
Var skipinu því snúið við með
kjötið til íslands. Því er nú skip-
að upp í Keflavík og sett í
geymslu í frystigeymslu Sam-
bandsins í Njarðvíkum — hsj.
DflGLECn
Flugstjóri
hjá Loftleiðum óskar eftir að kaupa 2ja til
3ja herbergja nýlega íbúð miðsvæðis í borg-
inni. — Hugsanlegir seljendur hafi samband
við starfsmannastjóra Loftleiða. Sími 20-200.
Reykjavíkuideid
Rauða kross íslonds
Kvennadeild
Kvöldverðarfundur fyrir féiagskonur verður haldinn mánudag-
inn 24. apríl nk. í Átthagasal Hótel Sögu kl. 7.30.
Guðjón Petersen flytur erindi um almannavarnir
og síðan er von á góðum gestum.
Vinsamlegast tiikyrmið þátttöku í skrifstofu Rauða kross Is-
lands — sími 14658. —
Félagskonur, fjölmennið og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
Ung hjón
(hjúkrunarkona og prentari), bamlaus, óska eftir 2ja—3ja herb.
íbúð. — Upptýsingar í síma 82504 fyrir hádegi og eftir kl. 6
á kvöldin.
Réttingatjakkar
hjólatjakkar
fyrirliggjandi. — Hagstætt verð.
G. ÞORSTEINSSON OG JOHNSON,
Grjótagötu 7 og Ármúla 1,
Reykjavík. — Sími 24250.