Morgunblaðið - 07.09.1974, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.09.1974, Blaðsíða 24
 n ÞEIR nilKR UIÐSKIPTin SEm nuGLvsn í LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1974 46% aukning á smjörsölu: 200 lestir til- engiim skortur FYRSTU átta mánuði þessa árs nam smjörsalan hjá Osta- og smjörsölunni f Reykjavfk 1.050 lestum. Kemur þetta fram f nýút- komnu hefti af Sambandsfréttum og er haft eftir Óskari H. Gunnarssyni framkvæmdastjöra. Söluaukningin er mikii frá þvf f fyrra, eða 46%. Smjörbirgðirnar eru núna 200 lestir, sem er allmiklu minna en á sama tfma s.l. ár, er þær voru 640 lestir. Ekki er þó talin hætta á smjörskorti, því mögulegt er að draga úr framleiðslu á ostum og auka smjörframleiðsluna eftir þvf sem þörfirt er hverju sinni. Ostasala hefur enn haldið áfram að aukast á þessu ári, og fyrstu átta mánuðina nam sala Osta- og smjörsölunnar 650 lest- um, sem er um 5% aukning frá sama tímabili s.l. árs. Bensínið í 48 kr. á mánudag Frá viðræðufundi ráðherranefndarinnar og nefndar ASl f gær. Vinstra megin við borðið sitja, talin frá vinstri: Snorri Jónsson, Guðrfður Elfasdðttir, Halldðr E. Sigurðsson og Jðn Sigurðsson, framkvæmda- stjðri Þjóðhagsstofnunar. Við enda borðsins situr Geir Hallgrfmsson, forsætisráðherra, en hægra megin við borðið eru frá vinstri: Jðn Sigurðsson, formaður Sjðmannasambands íslands, Björn Þðrhallsson, Gunnar Thoroddsen, Björn Bjarnason, Eðvarð Sigurðsson og Asmundur Stefánsson. — Ljósm.: Brynjðlfur. Viðræðufundur ASÍ og ríkisstjórnar; Olía til húsa í kr. 14,30 lítrinn VERÐ á olfuvörum hækkar mikið frá og með mánudeginum, en þá verður bensfnlítrinn seldur á 48 kr., en kostar nú kr. 36. Hráolfa til olíukyndingar húsa mun þá kosta 14.30 kr., en kostar nú 13.70 kr. Þessar verðákvarðanir voru teknar á fundi verðlagsnefndar siðari hluta dags í gær. Kristján Gíslason, verðlagsstjóri, sagði í kvöld, að mest væri hækkunin á bensíninu eða 12 krónur. Gasolfa til húshitunar hækkaði hins vegar minnst eða um 60 aura Iftrinn. Þrenns konar verð verður á gás- olíunni. Hver lítri af gasolíu, sem fer til annarra nota en húsahitun- ar, kostar frá og með mánudegin- um kr. 16.70, ef afgreitt er frá Tvær konur í árekstri ÞEGAR Mbl. hafði samband við Reykjavfkurlögregluna um kvöldmatarleytið f gær, höfðu orðið 16 árekstrar og slys frá því klukkan 6 um morguninn. Er þetta svipuð tala og undanfarna daga. Ekkert þessara óhappa var mjög alvarlegt. Harðasti árekstur- íinn varð við bensinstöð Shell að Laugavegi 180. Kona ætlaði að aka út á Laugaveginn eftir að hafa tekið bensín, en í sama mund bar þar að aðra konu á bíl, vænt- anlega í sömu erindagerðum. Ók hún beint framan á hina bifreið- ina, og varð áreksturinn mjög harður. Konan, sem var að fara út af stöðinni, fór með höfuðið í gegnum framrúðuna og hlaut töluvert mikið höfuðhögg. Báðir bílarnir voru óökufærir á eftir. leiðslu, ef afgreitt er frá bifreið kostar lítrinn kr. 16.75 og ef af- greitt er á bifreiðir frá dælu, kost- ar lítrinn 18.50 krónur. Þá snéri Morgunblaðið sér til Vilhjálms Jónssonar, forstjóra Olíufélagsins h.f. og spurði, hvort þessi hækkun nægði til að greiða niður skuldir oliufélaganna við innkaupajöfnunarsjóð. Vilhjálmur sagði, að þessi hækkun nægði ekki til þess að greiða niður skuldir olíufélag- anna við innkaupajöfnunarsjóð, hinsvegar mundu skuldaaukning stöðvast að mestu, þar af leiðandi Framhald á bls. 22. Skipzt var á skoðunum á fyrsta fundinum Næsti fundur boðaður á miðvikudag FYRSTI viðræðufundur rfkis- stjörnarinnar og sérstakrar nefndar Alþýðusambands tslands um úrbætur f cfnahagsmálum var haldinn f gær og stóð f tæpar tvær klukkustundir. Samkvæmt upp- lýsingum Geirs Hallgrfmssonar, forsætisráðherra, var skipzt á Hestur seldur á 1,2 millj. kr. NÝLEGA var seldur hestur norðan úr landi hingað til Reykjavfkur og mun það hafa verið dýrasti hestur, sem seldur hefur verið hér á landi. Sam- kvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins mun kaupverð hestsins hafa verið 1,2 milljðnir krðna. Hesturinn, sem um er að ræða er Náttfari frá Ytra-Dalsgerði f Eyjafirði. Náttfari vakti mikla athygli, þegar hann var sýndur á Lands- móti hestamanna á Vindheima- melum fyrr f sumar. Varð folinn, sem er fjögurra vetra stóðhestur, efstur í sfnum flokki á stóðhesta- sýningu. Faðir Náttfara er Sörli, Sveins Guðmundssonar á Sauðár- króki, en hann var sýndur með afkvæmum og hlaut fyrstu verð- laun fyrir þau. Kaupandi Náttfara er Sigur- björn Eiríksson, veitingamaður, en fyrri eigandi Jakobína Sigur- vinsdóttir á Akureyri. skoðunum og ákveðið að afla nokkurra gagna, unz hitzt yrði aftur á miðvikudag klukkan 16. Er ráðgert að starfsmenn vinni áfram f málinu milli funda. Samkvæmt upplýsingum Snorra Jónssonar, framkvæmda- stjóra Alþýðusambandsins skýrði ráðherranefndin, sem f eiga sæti, auk Geirs Hallgrímssonar, þeir Gunnar Thoroddsen, félagsmála- ráðherra, og Halldór E. Sigurðs- son, landbúnaðarráðherra, ASÍ- Framhald á bls. 22. Mikið var boðið f Náttfara á Landsmótinu og mun t.d. hafa komið boð upp á 1,2 milljónir erlendis frá. Þá mun Hrossa- ræktarsamband Skagafjarðar hafa sýnt mikinn áhuga á að eignast folann og lýst sig reiðu- búið til að greiða háa upphæð fyrir hann. Lögðu Skagfirðingar mikla áherslu á að hesturinn héldist Norðanlands og eru því óánægðir með sölu hans. Réttarkrufning leiddi ekki í ljós ákveðna dánarorsök I GÆR lágu fyrir bráðabirgða- niðurstöður f réttarkrufningu, sem framkvæmd var á gamla manninum, sem fannst látinn I kjallara húss við Vesturgötu f Reykjavík s.I. miðvikudagskvöld. Þær gefa ekki til kynna neina ákveðna dánarorsök. Rannsðkn málsins verður haldið áfram, og á næstu dögum liggja væntanlega fyrir nánari niðurstöður krufningarinnar. 36 ára gamall maður hefur verið dæmdur í 30 daga gæzluvarðhald vegna þessa máls. Hann hefur áður komizt f kast við lögin. Eggert N. Bjarnason rannsóknarlögreglumaður hefur rannsókn málsins með höndum. Hann tjáði Mbl. í gær, að fyrr- nefndur maður hefði komið í heimsókn til hins látna milli klukkan 21 og 22 á miðvikudags- kvöldið. Þeir voru tveir einir í fbúð hins látna og voru báðir undir áhrifum áfengis. Gesturinn hefur viðurkennt, að til átaka hafi komið og hafi svo farið að lokum, að hann hafi bundið saman hendur gamla mannsins með hálsbindi. Að sögn gestsins var þá nokkuð af gamla mannin- um dregið. Gesturinn er einn til frásagnar um, hvað gerðist, en um klukkan 22,30 kom kona sem býr í öðrum enda kjallarans inn í ibúð- ina, og gerði hún lögreglunni við- vart. Gamli maðurinn, sem lézt, hét Daníel Simonarson, til heimilis að Vesturgötu 26a. Hann var 73 ára, fæddur2. nóv. 1900. Mynd þessi er tekin af Náttfara á Landsmðti hestamanna á Vind- heimamelum. Knapi er Jðhann Þorsteinsson. Ringulreið í stjórnarráðinu MIKIL ringlureið varð í stjörnarráðshúsinu rétt eftir miðnætti f fyrrinótt. Eld- varnarbjöllur byrjuðu að hringja af miklum ákafa, og hringdi næturvörður hússins þegar f lögregluna og tilkynnti eld. Lögreglan hafði strax sam- band við slökkviliðið og þar sem skilaboðin hljððuðu upp á hvorki meira né minna en „eld- ur í stjórnarráðinu“ var allur bílakostur stöðvarinnar sendur af stað. Var mikið sfrenuvæl f miðborginni þegar slökkviliðs- bflar og lögreglubflar mættust fyrir framan hústð. Enginn eldur fannst, þrátt fyrir mikla leit, og brátt kom í ljós hver var orsökin að öllu bramboltinu. Næturvörðurinn, sem var var óvanur starfinu, hafði kveikt sér í vindli og ekki gætt þess að hann var staddur beint undir reykskynjara. Fór reykmagnið úr vindli vakt- mannsins yfir hættumörkin, með fyrrgreindum eftirköstum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.