Morgunblaðið - 09.09.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.09.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975 3 66 ára maður drukknar í Hafnarfjarðarhöfn MAÐUR féll útbyrðis af hraðbáti f Hafnarfjarðarhöfn s.l. sunnu- dagsmorgun og drukknaði. Engir sjónarvottar voru að slysi þessu. Maðurinn hét Sverre Stengrim- Sverre Stengrimsen. sen 66 ára að aldri frá Keflavfk. Sverre var fæddur í Noregi en hefur búið hér á Iandi um ára- tuga skeið. Hann lætur eftir sig börn á Iffi. Lögreglan í Hafnarfirði fékk tilkynningu um að klukkan 11.35 á sunnudagsmorgun, að mannlaus hraðbátur væri á reki við nyrðri hafnargarðinn og væri vél hans í gangi. Var farið að kanna þetta mál og kom þá í ljós, að Sverre heitinn átti bátinn og hafði ætlað á honum frá Hafnar- firði til Reykjavíkur. Ætlaði hann að leggja af stað klukkan 11.15. Augljóst var að eitthvað hafði komið fyrir og var strax skipulögð leit. Fannst lík Sverre við nýju hafskipabryggjuna um klukkan 12.40. Við rannsókn á hraðbátnum kom í ljós, að vél hans var í gangi en frákúpluð, svo báturinn hefur ekki verið á ferð þegar slysið varð. Hleri frammi á hvalbaknum hafði sporðreistst og telur lögregl- an líklegast að Sverre heitinn hafi stigið ofan á hlerann, hann hafi sporðreistst og Sverre fallið í sjóinn. Sem fyrr segir voru engir sjónarvottar af þessu slysi. Sverre Stengrimsen var fæddur í Noregi 3. júli 1909 en hafði búið hér á landi um áratuga skeið. Hann rak vélsmiðju í Keflavfk og átti þar lögheimili. 310 stiga hiti mæld- ist í holu við Kröflu LOKIÐ var við að bora aðra bor- holu við Kröfluvirkjun á laugar- dag og við mælingu á hita f hol- unni reyndist hann 310 gráður, sem er mesti hiti, sem mælzt hef- ur f borholu hérlendis. Ekki er enn vitað hve öflug þessi hola er, sem er 2000 metra djúp, en það er ekki hægt að mæla fyrr en holan verður látin blása út, sem að Ifkindum verður f næstu viku. Karl Ragnars, verkfræðingur hjá Orkustofnun, _sagði í samtali Göngur hefjast í Mývatnssveit Björk 8. september GÖNGUR hefjast í Mývatnssveit næstu daga, í suðurafrétt verður lagt af stað á miðvikudag og rétt- að í Baldursheimsrétt laugardag- inn 13. september. Þann dag hefjast göngur í austurafrétt og verður réttað í Reykjahlíðarrétt þriðjudaginn 16. september. Kristján við Morgunblaðið, að f fyrra hefðu verið boraðar tvær holur á Kröflusvæðinu og í annarri þeirra hefði vatnið mælzt 298 gráðu heitt. Sú rannsókn hefði bent til þess, að þar væri gott jarðhita- svæði. Hitinn i holunni, sem nú er nýlokið við, hefði sfðan staðfest frumathugunina í fyrra, en heita vatnið í holunni kemur út á 1000—2000 metra dýpi. Sagði Karl, að nú væri ljóst, að Kröflusvæðið væri mjög vel hæft til virkjunar. Næsta verkefni við þessa nýju borholu er að fóðra hana, en það er nokkrum vandkvæðum bundið vegna hins gifurlega hita f hol- unni. Þarf m.a. að setja þunga leðju niður í hana til að halda þrýstingnuih niðri á meðan, en þessu á að vera lokið í næstu viku. Gert hefur verið ráð fyrir, að bora þurfi 14—15 holur við Kröflu, en þó getur verið, að þær verði ekki það margar ef hver hola gefur meira af sér en ráð var fyrir gert. Rangá, hið nýja skip Hafskips, f Re.vkjavfkurhöfn f gær að losa fullfermi. Ljósmynd Mbl. Sv. Þorm. Ný Rangá komin 6. skip Hafskips á tveimur árum NV RANGÁ Hafskips kom til Reykjavíkur í gær, en skipið er 6. skipið sem Hafskip kaupir á tæpum tveimur árum. Hefur skipafélagið þar með endurnýj- að öll skip sín frá fyrri árum og aukið við flotann. Heimahöfn nýja skipsins er Bolungarvík, en skipið lestar 1235 tonn, en er skráð 499 tonn brúttó. 11 manna áhöfn er á skipinu, en það var byggt 1966 og er nú nýuppgert. Skipið var kqypt af þýzku skipafélagi á 166 millj. kr. Lestarrými skips- ins er mjög gott miðað við brúttóstærð, eða um 112 þús. kúbikfet. Öll skip Hafskips eru um 100 þús. kúbikfet að lestar- rými eða frá 96 þús. — 120 þús. Forráðamenn Hafskips greindu frá því á blaðamanna- fundi um borð f nýja skipinu f gær, að tvö skipa félagsins væru bundin á rútu í sambandi við Kísilverksmiðjuna, en sú rúta er yfirleitt Reykjavfk, Akureyri, Húsavfk, Helsinki og Antwerpen. Þá eru skip bundin f Skandinavfusiglingum og örn Ingimundarson skip- stjóri hefur starfað hjá Hafskip sfðan 1960, en þá byrjaði hann sem háseti. Fastur skipstjóri hefur hann verið síðan í árs- byrjun s.l. ár. Um 100 manna starfslið er hjá Hafskip og sagði örn skipstjóri að samband og samvinna milli starfsfólksins væri einstaklega góð og taldi hann leitun að öðru eins hjá landfólki og sjómönnum sama fyrirtækis. Fjölmargir af starfsmönnum Hafskips eru hluthafar í skipa- félaginu. Þeir Magnús Magnússon for- stjóri Hafskips og Þórir Kon- ráðsson framkvæmdastjóri sögðu á blaðamannafundinum að nokkur lægð væri um þessar mundir í flutningum milli landa, en þeir sögðu að floti 6 skipa væri það fyrirkomulag sem Hafskip byggði á og því myndu þeir miða við það í bili að minnsta kosti. Næsta verk- efni Hafskips er að koma upp framtíðaraðstöðu fyrir félagið í landi við Sundahöfn. Á brúarvæng Rangár: Magnús Magnússon forstjóri Hafskips, örn Ingimundarson skipstjóri og Þórir Konráðsson fram- kvæmdastjóri. einnig til PóIIands og Finn- lands. Skipstjóri á Rangá er örn Ingimundarson, 1. vélstjóri er örn Steingrímsson og 1. stýri- maður Guðmundur H. Eyjólfs- son. Eggjámum laumað í vatnsrúmið ALÞJÓÐLEGU vörusýning- unni f LaugardalshÖll lauk á sunnudaginn. Alls komu lið- lega 72 þúsund gestir á sýning- una og er það nýtt aðsóknarmet á sýningu sem þessa, en fyrra metið var 64 þúsund gestir. A sunnudaginn komu 8.800 manns á sýninguna og er það metdagur á svona sýningu. Strax og sýningunni lauk klukkan 23 á sunnudagskvöld var byrjað að taka sýningar- gripi niður og var það starf langt komið f gær. Á sunnudaginn var dregið um nokkra veglega ferðavinn- inga á sýningunni. Vikuferð til Lundúna á vegum Otsýnar kom á miða nr. 72015, ferð til Luxemburgar með Flugleiðum og þaðan til Bahamaeyja og aftur til Luxemburgar kom á miða nr. 58433 og aðal- vinningurinn, tveggja vikna ferð til Bangkok fyrir tvo með ÍJtsýn kom á miða nr. 60421. (Vinningsnúmer birt án ábyrgðar). HLUTIRNIR — Þetta eru hlutirnir sem gestir vörusýningarinnar laumuðu f vatnsrúmið fræga. Ngtt aðsóknarmet á vöru- sgningu - 72 þúsund gestír Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Vörusýningunni: Það virðast engin takmörk fyrir því sem fólk lætur sér detta í hug ef viljinn er fyrir hendi. Þvi miður notast þessi hugmyndaauðgi jafnt til ills og góðs eftir hugsunarhætti hvers og eins. Þessir 2 hlutir, gaffall- inn og egghvassa járnið, fund- ust í vatnsrúminu fræga á Alþjóðlegu vörusýningunni í Laugardal. Greinilega hefur verið ætlazt til þess að hlutirnir styngjust í gegnum dýnuna og ef svo hefði farið, er liklegt að Framhald á bls. 28 Getum veitt þúsund- ir lesta af kúfiski — en verð erlendis alltof lágt LJÓST er nú, að hægt er að veiða mjög mikið af kúfiski vfða kringum landið. Kom þetta fram f nýafstöðnum leiðangri rannsóknaskipsins Drafnar. 1 Faxaflóa, fengust 270 kg. eftir 15 mfn tog, og vfða umhverfis landið fengust 160—270 kg eftir nokkurra mfnútna tog, sem má enn auka með fullkomnari veiðarfæraútbúnaði. Hins yegar mun vera mjög erfitt að selja kúfiskinn unninn úr landi, þar sem það verð, sem f boði er, er langt frá því að standa uhdir veiðum og vinnslu. Morgunblaðinu barst f gær eft- irfarandi fréttatilkynning: „Nýlega lauk 4ra vikna kúfisk- leiðangri á rannsóknaskipinu Dröfn. Voru rannsökuð allmörg svæði vestan-, norðan- og austan- lands sem forkönnun fyrir nánari athuganir á magni og útbreiðslu síðar. Þá var hluti af Faxaflóa kannaður til fulls. Allvíða var markverður kúfiskafli, t.d. fengust upp i 160 kg á 10 min. á Vaðlavik, 170 kg. á 5 mín. á Patreksfirði og 270 kg á 15 mín í Faxaflóa. Við veiðar mætti margfalda þennan afla með því að draga fleiri en einn plóg i einu. Lauslegar magnmælingar á kúfiski á Bollasviði og Sviðsbrún í Faxaflóa benda til þess, að á þessu afmarkaða svæði einu séu að minnsta kosti 10—15 þúsund tonn af veiðanlegum kúfiski, sem svarar til þéttleika upp á 14—% kg á fermetra. Árangur þessa leiðangurs rennir stoðum undir það, að kúfiskveiðar gætu orðið mikil- vægur þáttur í sjávarútvegi vfða um land og virðist full ástæða til að kanna hugsanlega markaði sem fyrst. Leiðangursstjórar í þessum leiðangri voru fiski- fræðingarnir Hrafnkell Eiríksson og Sólmundur Einarsson. Rannsóknaskipið Dröfn er nú við rækjuathuganir á Vest- fjörðum, en í leiðangrinum er einnig fyrirhugað að kanna kalk- þörungamið í Arnarfirði, en nýting þeirra á e.t.v. eftir að skapa nýjan atvinnuveg í islenzk- Framhald á bls. 28

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.