Morgunblaðið - 20.08.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.08.1976, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR 182. tbl. 63. árg. FÖSTUDAGUR 20. ÁGUST 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Robert Dole varafor- setaefni Gerald Fords — sem sigraði Reagan í fyrstu atrennu Kansas-borg — 19. ágúst — Reuter. AP. ÞAÐ kom á óvart þegar Gerald Ford kunngerði ( dag, að hann hefði valið Robert Dole, öidungadeild- arþingmann frá Kansas, sem varaforsetaefni sitt f forsetakosningunum. „Öldungadeildarþingmað- urinn er ötull baráttumað- ur, og hann mun stuðla að einingu innan flokksins,“ sagði forsetinn þegar hann tilkynnti fréttamönnum um ákvörðun sína. Hann bætti þvf~við, að Dole væri góður liðsmaður og hug- sjónir hans væru á flestum sviðum nákvæmlega þær sömu og sínar. Robert Dole er kunnur fyrir þróttmikla frammistööu í kosn- ingabaráttu, en ákvöröun forset- ans kemur einkum á övart vegna þess, að Dole var dyggur stuðn- ingsmaður Richards Nixon þar til yfir lauk, enda þótt ljóst væri að sjálfur væri hann á engan hátt flæktur í Watergate-málið. Þá hafði verið búizt við því, að varaforsetaefnið yrði frá Suður- ríkjunum, en frambjóðendurnir eru báðir frá Miðríkjunum. í morgunsárið hitti Ford Ron- ald Reagan að máli, og sagði hon- um frá ákvörðun sinni um vara- forsetaefni, en Reagan hefur nú lýst því yfir, að hann muni styðja framboð forsetans eftir megni þar sem „hinn valkosturinn er óhugs- Framhald á bls. 20 Síldveiðibann við austurströnd Bretlands Japan: Enn magnast and- staðan gegn Miki Tokyo — 19. ágúst — Reuter, AP. HERFERÐIN innan Frjálslynda lýðræóisflokksins gegn Takeo Miki, forsætisráðherra Japans, færðist enn í aukana f dag þegar andstæðingar hans boðuðu til allsherjarfundar þingmanna flokksins. 262 þingmenn af 393, eða tveir þriðju hlutar þingstyrks flokks- ins, greiddu tillögiTum að boða til fundarins atkvæði sitt, en það er einmitt sama hlutfall og nauðsyn- Takeo Miki. legt er til að koma Miki frá völd- um. Þó er engan veginn víst, að allir þeir þingmenn, sem studdu fund- arboðið, séu fylgjandi því að Miki segi af sér, en andstæðingar hans halda því fram að hann sé ekki til þess fallinn að veita flokknum forystu í kosningabaráttunni, sem í hönd fer, en þingkosningar verða í Japan i desember n.k., auk þess sem hann geti ekki varpað af Framhald á bls. 20 Jr J Amin hótar blóðhefnd Jerúsalem — 19. ágúsl — Reuter. 11)1 Amin Dada, forseti Úganda, sendi tsraelsstjórn í dag orðsendingu þar sem hann krefst bóta fyrir tjón það á mönnum og mannvikjum, sem varð þegar tsraelsmenn gerðu árás á Entebbe-flugvöll 4. júlí s.l., að því er stjórnvöld í tsra- el skýrðu frá f dag. t orðsendingunni segir, að Framhald á bls. 20 Danmörk: Meirihluti við efnahagsráð- stafanir stjórnarinnar Kaupmannahöfn — 18. ágúst — frá Lars Olsen, fréttaritara Mbl. Efnahagsmálaráðstafanir dönsku stjórnarinnar náðu fram að ganga með eins litlum at- kvæðamun sem hugsazt gat. 90 þingmenn styðja tillögurnar, en alls eiga 169 þingmenn sæti á danska Þjóðþinginu. Áður en þessar málalyktir urðu kunnar, hafði thaldsflokkurinn samþykkt að Ijá tillögunum fylgi sitt, enda þótt formaður flokksins, Poul Schliitter. hefði áður sagt, að litl- ar Ifkur væru á samkomulagi við stjórn jafnaðarmanna, þar sem stjórnin vildi ekki koma til móts við óskir hinna 9 þingmanna 1- haldsflokksins. Sfðar kom f ljós, að þessi yfirlýsing Schliitters var aðeins liður f taugastrfðinu, sem verið hefur á þingi meðan um- ræður um frumvarpið hafa farið fram. Ástæða íhaldsflokksins til að forðast nýjar kosningar er tví- þætt: í fyrsta lagi benda niður- stöður margra Gallup-kannana til þess, að fylgi flokksins nái ekki 4 Framhald á bls. 20 Lundúnum — 19. ágúst — Reuter. BRETAR hafa bannað sfld- veiðar innan 12 mflna norðaustur af strönd Jór- víkurskíris. Bannið tekur gildi á morgun og stendur til loka september. Svipaðar veiðitakmarkanir voru settar á síðasta ári. æn hér er um að ræða aðgerðir stjórnvalda til að vernda síldveiðistofninn á miðunum við Bretland. Fyrir nokkrum dögum lýstu Bretar því yfir, að þeir sættu sig ekki við síldveiðikvóta sinn í Norðursjó fyrir þetta ár, en hann nemur 9.700 tonnum. Þá lýstu Norðmenn því yfir í júlímánuði, að þeir miðuðu síldveiðar sínar við 27.600 tonn í ár i stað þeirra 23.900 tonna, sem Norðausturat- lantshafsfiskveiðinefndin úthlut- aði þeim. Nefndin hefur leitazt við að stemma stigu við ofveiði Norðursjávarsíldarinnar undan- farin ár. Sovézkar eldflaugar með margföldum kjarnaoddum í Evrópu fyrir árslok — segir Alexander Haig Casteau, Belgiu — 19. ágúst — Reuter ALEXANDER Haig, yfirmaður herafla Átlantshafsbandalags- ins ( Evrópu, sagði f dag, að ráðamenn bandalagsins væru sannfærðir um, að Sovétrfkin mundu koma fyrir nýjum eld- flaugum, sem hver um sig væri með mörgum kjarnaoddum, f Evrópu fyrir árslok. Hann sagði, að eldflaugar þessar væru f meðallagi' langdrægar, af gerðinni SS—X—20, og þannig útbúnar, að auðvelt væri að flytja þær úr stað, þannig að erfitt yrði að henda reiður á hvar þær væru á hverj- um tíma, svo að hægt væri að eyðileggja þær. Þetta kom fram á fundi, sem hershöfðinginn hélt ásamt fréttamönnum í dag, en þar lét hann svo um mælt, að Sovétrfk- in væru um þessar mundir að birgja sig upp af kjarnorku- vopnum, sem beint vaferi að rfkj- um Vestur-Evrópu. Þessi aðvör- un Haigs kemur heim og saman Álexander Haig við skýrslu stofnunar þeirrar í Washington, sem eftirlit hefur með vopnabirgðum og afvopn- un, en skýrslan var birt í sið- asta mánuði. Þar kom m.a. fram, að Sovétrikin væru i þann mund að búa hinar 600 kjarnorkueldflaugar, sem beint væri að V-Evrópu, margföldum kjarnaoddum. Alexander Haig sagði enn- fremur, að Rússar hefðu nú komið sér upp nýrri stórskota- byssu, sem skotið gæti kjarn- Framhaid á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.