Morgunblaðið - 04.12.1977, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.12.1977, Blaðsíða 28
28 t Faðir okkar, ÞORKELL BLANDON lögfræðingur sem lézt 29 nóv sl verður jarðsettur frá Fossvoqskirkju, þriðjudaqmn 6 des kl 10 30 Alúðar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði Kleppsspítalans, fyrr og siðar. fyrir sérlega góða umönnun Guð blessi ykkur öll, Jórunn Ragna Blandon, Þorsteinn Blandon. t Alúða þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar tengdamóður. ömmu og langömmu INGIBJARGAR GISSURARDÓTTUR frá Gljúfurholti Gissur Símonarson, Bryndis Guðmundsdóttir, Ingunn Simonardóttir, Jóhann Björnsson. Margrét Símonardóttir Kjærnested Guðmundur Kjærnested, Kristin Simonardóttir. Gisli Kristjánsson, Símon Þ. Simonarson, Elísabet Olafia Sigurðardóttir barnaborn og barnabarnaböm. t Eiginkona min, móðir, dóttir og systir VILBORG OKTAVÍA NORÐFJÖRÐ, fædd Grónvold. lézt 2 1 2 á Landakotsspítala Hilmar Norðfjörð, Steinunn Norðfjörð. Margrét Magnúsdóttir. Karl Grönvold t Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför móður okkar. tengdamóður. ömmu og langömmu SIGRÍÐAR GUÐMUNDÍNU INGVADÓTTUR, Hverfisgötu 121 frá Snæfoksstöðum, Grímsnesi. Fyrir hönd dætra, tengdasona. barnabarna og barnabarnabarna Ingibjörg og Þórdís Gestsdætur. Móðir okkar 5 KRISTÍN ÓLAFÍA EINARSDÓTTIR sem lézt föstudaginn 25 nóv á Elliheimilinu Grund, verður jarðsett þriðjudaginn 6 des kl 1 30 frá Dómkirkjunni Gústaf Ófeigsson Dagbjört Guðbrandsdóttir Einar Guðbrandsson Margrét Guðbrandsdóttir Sigrún Guðbrandsdóttir t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar SVERRIR FINARSSON Langholti 1 1, Keflavík verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 6 desember kl 13 30 Þeir sem vildu minnast hans eru beðnir að láta nýstofnaðan liknarsjóð Keflavíkurkirkju njóta þess, minningargjöfum verður veitt móttaka i Kirkjulundiá útfarardaginn Auður Jónsdóttir og synir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLEIF ÓLAFSDÓTTIR, andaðist að Hrafnistu föstudaginn 2 desember Þóra Jónsdóttir. Bragi Ólafsson, Kristin Jónsdóttir, Helgi Eysteinsson, Helga Jónsdóttir. Þórður Magnússon, Páll Jónsson, Maria Ásqeirsdóttir. Sigurður Jónsson, Rakel Viggósdóttir. Jón Björnsson, og barnaborn Hrefna Indriðadóttir t Inmlegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð við andlát og jarðarför SIGURÐAR SIGMUNDSSONAR, fulltrúa, Miðbraut 1, Seltjarnarnesi. Rakel Sigríður Glsladóttir, Sigmundur Sigmundsson, Sigurður F Sigurðsson, Eygló Egilsdóttir Jón Sigurðsson, Sigurðína Þorgrímsdóttir Magnea S. Sigurðardóttir, Ólafur Eiríksson, Guðrún Alda Sigmundsdóttir. Gallerí Sólon / Islandus ársgam- alt í dag - og var í þvi tilefni opnud Nokkrir aðsfandendur (íallerísins, er ársafmælisins var minnzt á föstudag. þar samsýning 25 listamanna 1 DAG er nákvæmlega eitt ár lirtið frá stofnun Gallerís Sólon Island- us, sem er til húsa við Aðalstræti 8 í Reykjavík. Að því tilefni var í gær opnuð samsýning allra að- standenda Gallerísins og nokk- urra fleiri, sem verður opin út desembermánuð. A sýningunni er m.a.: teikningar, málverk. grafík, höggmyndir, tauþrykk, vefnaður, keramik o.fl. og eru öll verkin til sölu. Sá háttur verður á hafður að þegar mynd selzt, er hún tekin niður og kaupandi fer með hana með sér og ný sett upp í staðinn, en venjan er sú að kaup- endur fá sínar myndir afhentar að sýningu lokinni. ast fá inni með sýningar sínar, en í Galleríinu geta allir listamenn óskað eftir aðstöðu til sýninga. Sú sýning sem nú stendur yfir, er opin daglega frá 13.00—18.00 nama þegar verzlanir hafa opið lengur fylgir opnunartíminn þeim og er aðgangur öllum heim- ill og ókeypis. Loðnuflot- inn að veið- um innan um ísinn LOÐNUFLOTINN var í gærmorg- un að veiðum innan um ísinn djúpt úti af Kópanesi, og um há- degisbil hafði eitt skip tilkynnt um afla, Albert GK, sem fór með 570 lestir til Siglufjarðar. Loðnu- skipin köstuðu ekkert í fyrrinótt, þótt veður væri sæmilegt og loðnutorfur ofarlega í sjónum. Ástæðan fyrir því, var að skip- stjórar skipanna þorðu ekki að kasta í myrkrinu þar sem íshrafl var um allt. Leiðtogi danska kommúnista- flokksins látinn Kaupmannahöfn, 3. descmber. AP KNUD Jespersen, sá sem endur- reisti danska kommúnistaflokk- inn á sínum tíma og hefur verið formaður hans sl. tuttugu ár, lézt sl. föstudag 51 árs að aldri. Dánarorsökin var ekki tilkynnt, en hann var fluttur á sjúkrahús fyrir nokkrum vikum'vegna háls- meins, en hann náði sér aldrei eftir pyntingar nazista í heims- styrjöldinni síðari en hann var félagi í andspyrnuhreyfin'gunni. Líklegasti eftirmaður Knud Jespersens sem leiðtogi danska kommúnistaflokksins er Ib Nör- lund, aðalhugmyndafræðingur flokksins. Gulleyjan og Robinsonfjölskyldan í bókaflokknum Sígildar sögur BÓKAÚTGAFAN Örn og Örlygur hefur gefið út tvær nýjar bækur í bókaflokknum Sígildar sögur. Bækurnar eru Gulleyjan, eftir Robert Louis Stevenson og Robin- sonfjölskyldan eftir Johann Wyss. Þýðandi er Andrés Krist- jánsson. Hinar fyrri af listamönn- unum John Worsley og Gordon King. Bækurnar eru filmusettar í Prentstofu G. Benediktssonar og prentaðar í Júgóslaviu. Á þessu fyrsta ári Gallerisins hafa verið haidnar þar 15 sýning- ar og hafa þær að sögn aðstand- enda þess verið mjög vel sóttar, þó eru alltaf frekar rólegir tímar yfir hásumarið og í desember. Þeir sem að Galleríinu standa eru Ásrún Kristjánsdóttir, Kol- brún Björgólfsdóttir, Magnús Kjartansson, Sigurður Örlygsson, Steinunn Bergsteinsdóttir, Stein- grímur E. Kristmundsson, Þor- björg Þórðardóttir og Örn Þorsteinsson, en framkvæmda- stjóri Gallerísins er Móeiður Gunnlaugsdóttir og er hún með fastan viðtalstima á fimmtudög- um fyrir þá listamenn sem hyggj- Lýst eft- ir4ra tonna fíl 3. desembor. Keuter KIJREKAR á hestbaki og lög- reglumenn í jeppum eyddu heilum degi í árangurslausa leit að fjögurra tonna fíl að nafni Colonel , sem strauk úr fjölleikahúsi fyrr í vikunni. Fíllinn strauk sl. þriðjudag ásamt tveimur félögum sínum, en þeir fundust litlu síðar á gangi í skógi. Colonel aftur á móti virðist hafa haldið lengra inn á víðáttumikið verndar- svæði sem þarna er og fjöldi lögreglumanna, dýratemjara, kúreka og gæzlumanna hafði ekki árangur sem erfiði í leit- inni, enda þótt þeir fínkembdu stórt svæði. Fíiaveiðar eru annars afar fágætar í Flórída en eftir ein- um forsvarsmanni leitarinnar var haft: „Vandamálið er að það eru ekki til neinar viðtekn- ar venjur í tilfellum sem þess- um." Leitarmenn eru heldur ekki sérlega bjartsýnir á að þeir muni finna dýrið í bráð þó að mikil verðmæti séu í veði, því að Colonel er metinn á röskar 7 milljónir króna. Dýra- temjari í fjölleikahúsinu tjáði t.d. fréttamönnum, að það væri alls ekki eins auðvelt að koma auga á fila og ætla mætti: ,,Það má ganga rétt fram hjá fil og hann mun standa grafkyrr og maður verður einskis var.“ Finnska þing- ið vill slíta stjórnmála- sambandi við S-Afríku Helsinki, 3. desember. Reuter. FINNSKA þingið hefur staðfest álitsgerð stjórnarinnar um að Finnland eigi erfitt með að halda áfram stjórnmálasamskiptum við S-Afríku. í álitsgerð varðandi utanríkis- stefnu stjórnarinnar er hvatt til að þlökkumenn verði studdir í frelsisbaráttu sinni og að stofnuð verði norræn nefnd sem tæki að sér að athuga á hvern hátt mætti þrýsta á stjórnina í Pretoríu með efnahagslegum þvingunum. Tals- maður utanríkisráðuneytisins neitaði því þó í dag, að þingið hefði krafizt stjórnmálaslita við S-Afriku eða aðgerða í þá átt. í októberlok lét Kaveli Sorsa forsætisráðherra landsins þá skoðun sína í ljós í ræðu að Finn- land ætti að kalla sendiherra sinn í S-Afríku heim og hugleiða alvar- lega að slíta stjórnmálasambandi við landið. Fyrir helgi fór fram atkvæða- greiðsla í þinginu og greiddu 103 þingmenn tillögunni atkvæði en 2 voru á móti. Atkvæðagreiðslan sýnir aðeins fram á vilja þingsins en stjórninni er ekki skylt að framfylgja henni. — Ostaðbund- in saga Framhald af bls. 3. víðs vegar i borginni. Við not- uðum hinn svo kallaða O.B. bíl sjónvarpsins, því einmitt á þessum tíma stóð lifvæðing sjónvarpsins yfir. Kvikmyndun leikritsins tók svo hálfan mán- uð. Það var gaman að vinna að þessu þvi góður andi ríkti með- al okkar. — Hefðir þú ekki kosið að taka leikritið upp í lit? — Ég hefði frekar viljað það og óneitanlega hefði það verið miklu skemmtilegra, en þegar leikritið var tekið upp var það ekki hægt. Sjónvarpið kaus að kvikmynda leikritið í svart- hvítu og höfundur ræður þar engu um. — Heldurðu að fólk beri leikritið saman við „Undir sama þaki“? — Það held ég ekki. Þetta er leikrit en „Undir sama þaki“ var skemmtiþáttur, og leikrit og skemmtiþátt er ekki hægt að bera saman. Þar væri frekar að fólk bæri það saman við önnur íslenzk leikrit. t Móðir okkar-6g tengdamóðir JÓNFRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, er lézt að Hrafnistu 27 nóv s.l . verður jarðsungin þriðjudaginn 6 desember kl 3 frá Fossvogskirk|u Jóna Cunningham, Róbert Cunningham. Guðmundur Jónsson, Sólborg Jónsdóttir. Ólafur S. Jónsson, Margrét S. Jónsson, Júliana Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.