Morgunblaðið - 22.03.1979, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1979
+
Eiginkona mín,
HELGA SIGUROARDOTTIR,
fré Stóru-Ásgeirsé, Víóidal,
til heimilia aó Barmahlíö 46,
andaöist í Landspítalanum þann 20. marz sl.
Guómundur Benediktsson
+
Móöir mín og systir okkar,
ELÍNBORG BRYNJÓLFSDÓTTIR,
fyrrv. Þvottahúsráðskona,
andaðist 19. marz.
Jón Thoódór Jónsaon
og systkini hinnar látnu.
+
Elskulegur eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
BJARNI J. FANNBERG,
Hagamel 43,
er látinn.
Jaröarförin hefur veriö fram.
Kristjana Fannberg
Eypór Fannberg
og aórir vandamenn.
+
Útför
ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR
fyrrv. Ijósmóóur
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 23. marz kl. 1.30. Blóm eru vinsamlega
afþökkuö. Sarnkvæmt ósk hinnar látnj er þeim, sem vildu minnast hennar,
bent á Hjálparstofnun Kirkjunnar.
Vandamonn.
+
Útför bróöur okkar,
ASGEIRS GUÐMUNDSSONAR,
frá Gerói, Noröfirði,
fer fram ( Félagsheimili Fíladelfíusafnaöarins, Hátúni 2, föstudaginn 23 marz
kl. 13.30.
Systkini hins látna.
+ Eiginkona mín og stjúpmóöir okkar,
KRISTÍN LÁRUSDÓTTIR,
MÁVAHLÍD 38,
sem lést þann 16. mars s.l. verður jarösungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn
23. mars kl. 13.30.
Helgi Jónsson, Elín Helgadóttir,
Jón Björn Helgason, Hilmar Þ. Helgason.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu vió andlát og útför,
KARTRÍNAR VIGFÚSDÓTTUR.
Kristín B. Andersen, Óskar Andersen,
Ásta V. Jónsdóttir, Viggó Björgúlfsson,
Rannveig Vigfúsdóttir, Hildur Vigfúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum veitta samúö viö andlát og jarðarför eiginmanns míns, fööur.
tengdafööur og afa,
JÓHANNS S. LARUSSONAR,
frá Skaröi,
Eskihlíð 26.
Katrín Jónsdóttir,
Guðrún S. Jóhannsdóttir, Ragnar H. Guðmundsson,
Jóhann H. Ragnarsson, Ingvar H. Ragnarsson.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
A ðalsteinn Sveins-
son - Minningarorð
Fæddur 2. nóvember 1902.
Dáinn 14. marz 1979.
Góður drengur er genginn.
Aðalsteinn var fæddur í Breiðu-
vík í Rauðasandshreppi, elstur
fjögurra barna þeirra hjónanna
Sveins Benónýssonar og Ingibjarg-
ar Bjarnadóttur, tvö þeirra létust
á bezta aldri.
Aðalsteinn ólst upp við hin
algengustu störf þar vestra, sem
eru búskapur ásamt sjósókn á
opnum bátum, fyrst árabátum
síðan vélbátum, og því til viðbótar
voru bjargferðir til eggja- og
fuglatöku á vori og sumri og á
vetrum gengið til tófuveiða.
Aðalsteinn kvæntist Sigríði
Steinunni Traustadóttir. Hófu þau
búskap í Breiðuvík og bjuggu þar,
alit þar til þau fluttust til Patreks-
fjarðar 1947, þaðan hélt hann svo
áfram sjósókn sinni á sumrum, en
stundaði algenga verkamanna-
vinnu á vetrum.
Þau hjón eignuðust 4 syrii, Har-
ald vélvirkjameistara sem kvænt-
ur er Arnbjörgu Guðlaugsdóttur,
Trausta, afgreiðslumann, kvæntan
Laufeyju Böðvarsdóttur, Benóný
vélstjóra, kvæntan Brynhildi Her-
mannsdóttur, Sigurgeir Árna raf-
virkjameistara kvæntan Rósu H.
Bachmann. Ennfremur ólu þau
upp 2 stúlkur, Egilínu Guðmunds-
dóttur, sem gift er Þórarni Krist-
jánssyni, verkstjóra og Hrönn
Helgadóttur, gifta David Bartosh,
hermanni, U.S.A. Einnig var Svan-
hildur Trauastadóttir hjá þeim um
árabil. Ótalin eru þau önnur börn
sem hjá þeim dvöldu á sumrum, en
minningin um dvölina er þeim
öllum kær.
Aðalsteinn var frábær bjarg-
maður og sjómaður. Var hann einn
björgunarmanna er b.v. Dhoon
strandaði undir Látrabjargi.
Heyrði ég sagt að framámenn við
þá björgun hefðu óskað þess að
Aðalsteinn væri þar kominn, en
hann var þá fluttur til Patreks-
fjarðar, og var því ekki viðstaddur
er björgun hófst.
Aðalsteinn var glaðlyndur,
traustur og góður félagi. Hispurs-
laus í framkomu, sagði meiningu
sína afdráttarlaust, umtalsgóður
með afbrigðum.
Eg undirritaður og börn mín
kveðjum góðan dreng og þökkum
honum allt. Sérstaklega þakkar
dóttir mín Svanhildur allt hans
ástríki gagnvart sér og sínum.
Sjúkri eiginkonu hans, systur
minni, og börnum hans, tengda-
börnum, barnabörnum og bróður
vottum við öll hina dýpstu samúð
og minnum þau á, að minningin
um góðan dreng lifir.
Til moldar oss vígði hið mikla vald,
hvert mannslíf, sem jörðin elur.
Sem hafsjór, er rís með fald við fald,
þau falla, en Guð þau telur.
l>ví heiðloftið sjálft er huliðstjald,
sem hæðanna dýrð oss íelur.
E.B,
Eyjólfur Guðmundsson skrifar frá Noregi:
Vaxandi fylgi Hægriflokksins
Hægri flokkurinn virðist nú
eiga auknu fylgi að fagna, jafn-
framt því sem stjórn Verka-
mannaflokksins nýtur minni
vinsælda.
Samkvæmt skoðanakönnun-
um, sem fara fram mánaðar-
lega, er gert ráð fyrir þvi að
Hægri fiokkurinn bætti við sig
6—10% atkvæða og ynni allt að
16J)ingsæti.
I kosningunum haustið 1977
fékk Verkamannaflokkurinn 76
þingsæti, Hægri flokkurinn 42,
Miðflokkurinn 12, Kristilegi
þjóðarflokkurinn 22, Vinstri-
menn 2, Vinstri sósíalistar 1.
(Samk. uppl. frá blaðinu Ukens
Nytt 14.9. ’77).
Það virðist mjög áberandi, að
hinir yngri kjósendur aðhyllist
Hægriflokkinn, jafnframt því
sem óánægja þeirra með Verka-
mannaflokkinn er mikil. Séu
þeir spurðir um þessi mál verða
svörin oft á þessa leið: „Verka-
mannaflokkurinn er Rússadekr-
arar, sem hafa staðið sig illa í
samningaviðræðunum við
Sovétmenn, varðandi Svalbarða
og markalínuna á Barentshaf-
inu. Þeir vilja aukin fjárútlát til
þróunarlandanna, t.d. Víetnams,
sem notar svo þessa fjármuni
beint og óbeint til styrjaldar-
reksturs gagnvart nágranna-
ríkjunum. Þetta á sér stað á
meðan fjármunir fást ekki til
nauðsynlegra hluta, svo sem til
byggingar sjúkrahúsa, vega-
lagna, og til atvinnurekstrar,
sem skortir lánsfé.“
En hvers vegna styður ungt
fólk Hægriflokkinn? Svörin
verða misjöfn, en þeir sem
fylgst hafa með þjóðmálum og
hafa myndað sér skoðun út frá
því svara eitthvað á þessa leið:
„Hægriflokkurinn vill harðari
og ákveðnari stefnu gagnvart
Sovétríkjunum, stórauknar
landvarnir og harða refsingu
gagnvart þeim sem gera sig seka
um að ljóstra upp um hernaðar-
leyndarmál. Þeir berjast gegn
óþarfa fjárútlátum til þróunar-
landanna, og eru mótfallnir því
að erlent vinnuafl komi til
landsins, meðan atvinnuleysi
ríkir. Þeir vilja efla einstakl-
ingsframtakið, draga úr ríkis-
rekstri og koma í veg fyrir
áframhaldandi gjaldþrot fyrir-
tækja og stofnana."
Með sömu þróun má gera ráð
fyrir stórfelldum sigri Hægri-
flokksins í kosningunum árið
1981. Vitanlega er erfitt að spá
svo langt fram í tímann, en
margt bendir til þess, að
straumar í norskum stjórnmál-
um liggi ’ nú til hægri. Ekki
aðeins vegna þess að hin vinstri-
sinnuðu öfl reka misheppnaða
og óvinsæla efnahagsstefnu,
heldur einnig vegna þess, að
skoðanir ungu kynslóðarinnar
samræmast meginstefnu
Hægriflokksins.
E.G.
+
Systir okkar,
GRÓA JÓNSDÓTTIR,
frá Stóra-Núpi,
andaöist 20. marz á Elliheimilinu
Grund.
Sigurjón Jónsson,
Rannvsig Jónsdóttir.
+
Minningarathöfn um eiginmann minn,
BIRGI BERNÓDUSSON,
stýrimann,
Áshamri 75, Vestmannaeyjum,
sem fórst meö vb. Ver 1. mars s.l. verður í Landakirkju laugardaginn 24. mars.
Theódóra Þórarinsdóttir.
+
Móðir mín, tengdamóöir og amma,
INGIBJÖRG GUDMUNDSDÓTTIR,
Lindarhvammi 14, Hafnarfiröi,
veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi, föstudaginn 23. marz kl. 2.
Hilmar Þór Björntson, Sigurveig Magnúsdóttir,
og synir.
+
Innilegar þakkir tyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför,
MÁLFRÍÐAR TULINIUS,
Framnesvegi 30.
Rafn Ragnarsson,
Hrefna Hektorsdóttir,
Guórún Arnalds,
Hrafn Tulinius.
+
Hjartans þakkir fyrir auösýnda vináttu og samúö við andlát og jaröarför okkar
ástkæra eiginmanns, fööur, tengdafööur og afa.
KRISTINS INGÓLFS JÓNSSONAR,
rafvirfcja,
Heióargeröi 42.
Fjóla Pálsdóttir,
Snvar Kristinsson, Hslldór Kristinsson,
Gunnar S. Kristinsron Kristín Hannesdóttir,
Pálmar S. Kristinsson, Hallfríóur Frimannsdóttír,
Höróur Pálmarsson, Kristinn A. Gunnarsson.