Morgunblaðið - 25.08.1979, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 1979
Landsliösmennirnir í frjálsíþróttum. sem eru á þessari mynd,
verða allir í eldlínunni og mikilvægir félögum sfnum í
Bikarkeppni FRÍ um helgina. en þeir cru (f.v.) Guðmundur R.
Guðmundsson FH, Sigurður P. Sigmundsson FH, Jón Diðriksson
UMSB, Steindór Tryggvason KA, Stefán Friðleifsson UÍA og
Gunnar P. Jóakimsson, Ljósm. Ágúst Ásgeirsson.
Leiknum
verður Ivst!
ÚRSLITALEIKNUM í bikarkeppninni, milli Vals og
Fram verður þá lýst í útvarpinu eftir allt saman. Svo
virðist sem að viðkomandi aðilar hafi dregið saman og
samið í snarhasti um lýsingu og geta því þeir sem ekki
eiga kost á að fara á völlinn tekið gleði sína á ný.
Hjá Ríkisútvarpinu fékk Mbl. þær upplýsingar að
lýsing hæfist klukkan 14.55 og stæði til klukkan 16.00.
Þátturinn „Ég man þá tíð“ flyttist þess í stað aftur fyrir
veðurfréttir og þættirnir Eyja í íshafinu og í öryggi féllu
niður um óákveðinn tíma. Utvarpið mætir því til leiks í
síðari hálfleik. —íStS-
Nýr getraunaseðill
GETRAUNASTARFSEMIN fer
nú enn á stúfanna og þeir leikir
ensku knattspyrnunnar sem
verða á fyrsta getraunaseðlinum,
verða leiknir á laugardeginum
25. ágúst.
Verð seðla að þessu sinni er
öbreytt frá því í fyrra og er það
varla langt frá því að vera eins-
dæmi í verðbólgunni utur hækki
ekki í verði. Þó hefur ein breyting
átt sér stað, en hún er í því fólgin,
að ekki verður lengur hægt að
kaupa sér 4-raða seðil, þess í stað
hefur nýr 36-raða kerfisseðill
haldið innreið sína. Verð seðlanna
er 50 krónur á röðina.
Vinnur IR bik-
arinn í 8. sinn?
BIKARKEPPNI FRÍ verður háð
um helgina á þremur stöðum á
landinu. Fer keppni 1. deildar
fram í Reykjavík, 2. deildar-
keppnin verður háð á Akureyri
og þkeirrar þriðju á Breiðabliki
á Snæfellsnesi. Eins og undan-
farin ár beinist athyglin mest að
1. deildinni, og eins og oftast
áður sýnist sitt hverjum hverjar
lyktir keppninnar verði, en hún
fer nú fram í 13. sinn.
ÍR-ingar hafa farið með sigur
af hólmi sjö ár í röð, og venjulega
sigrað með yfirburðum. Tefla
IR-ingar fram sínu sterkasta liði,
en félagið eignaðist flesta ein-
staklingssigurvegara á íslands-
meistaramótinu í frjálsíþróttum í
sumar og ekkert félag hefur fleiri
landsliðsmönnum á að skipa.
En Ármenningar hafa sótt í sig
veðrið á allra síðustu árum og
reyna þeir eflaust að velgja ÍR-
ingum undir uggum. Einkum eru
Ármenningar með sterkt kvenna-
lið. Þá hefur KR vaxið fiskur um
hrygg og ætti að verða fróðlegt að
fylgjast með baráttu KR-inga og
UBK-manna um þriðja sætið í
keppninni. FH-ingar tefla ekki
fram systrunum knáu, Rut og
Ragnheiði Ólafsdætrum og verða
því tæpast með í slagnum um
þriðja sætið. Það mun svo að
öllum líkindum verða hlutskipti
Suður-Þingeyinga að verða í
sjötta og neðsta sæti og falla þar
með í aðra deild.
Ekki kæmi það á óvart þótt
íþróttafólk úr KA sigraði í 2.
deildinni á sínum heimavelli, en
félagið hefur á að skipa mörgu
dugmiklu íþróttaFólki og á fjar-
vera Odds Sigurðssonar jafnvel
ekki að veikja liðið í keppninni.
En reikna má með að Borgfirð-
ingar veiti KA-mönnum harða
keppni þar sem vaxandi íþrótta-
fólk er í röðum UMSB, og Jón
Diðriksson mun einnig leggja
sínum félögum lið. Auk þessara
félaga keppa HSK, UMSE, UMSS
og UNÞ á Akureyri.
Á Breiðabliki má búast við að
Austfirðingar láti verulega að sér
kveða, en auk þeirra keppa þar lið
HVÍ, HSH, UDN, USAH og
USVH.
Brian Greenhoff
for til Leeds...
BRIAN Greenhofí, hinn
kunni leikmaður
Manchester Utd., var loks
seldur í fyrrakvöld til
Leeds Utd. fyrir 350.000
sterlingspund. Greenhoff
er leikmaður sem getur
leikið víðast hvar á vellin-
um, stóð meira að segja í
markinu hjá United í 70
minútur einn leik, eftir að
markvörður liðsins hafði
meiðst. Hélt Greenhoff
hreinu og MU vann 2—0.
Eftir að MU keypti til sín Ray
Wilkins, kom órói í Greenhoff,
þar sem hann taldi möguleika
sína á föstu sæti i liðinu þar með
orðna harla litla. West Ham vildi
kaupa hann, en kappinn leit ekki
við því félagi. Tommy Docherty
hjá QPR vildi einnig fá hann, en
Reynir vann upp 2
marka forskot UBK!
þá birtist Leeds með sitt góða boð
og Greenhoff vildi fremur leika
áfram í 1. deild. Leeds gerði
þarna vafalítið góð kaup.
UMFK 50 ára
UNGMENNAFÉLAG Keflavíkur á
50 ára afmæli þessa dagana. í því
tilefni verða margir knattspyrnu-
leikir á gras- og malarvellinum í
dag. Hefst hátíðin klukkan 13.30 og
verður keppt í öllum aldursflokkum.
869 áhorfendur
í BLAÐINU í gær féll niður stutta
málið úr leik ÍA og Fram. Það
hitastæðasta sem þar stóð var að
áhorfendur á Skaganum voru 869.
Þá er vert að geta þess, að í frétt
um Pétur Pétursson, einnig í Mbl. í
gaer, er talað um að stjóri þýska
liðsins Schalke hafi lýst sig reiðu-
búinn að greiða sem svaraði 26
milljónum íslenskra króna á borðið
fyrir Pétur, væri hann falur. Þarna
átti að standa 260 milljónir, enda er
fyrri talan lítil þegar um verð á
knattspyrnumönnum er annars veg-
ar.
BREIÐABLIK tapaði óvænt stigi
til eins af botnliðunum í 2. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu í
gærkvöldi. Leiknum lauk með jafn-
tefli 2—2, eftir að heimaliö UBK
hafði haft 2—0 yfir í hálfleik. Úr
þessu má telja næsta víst, að 2.
deildar titillinn hafni hjá FH.
Blikarnir voru áberandi sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik og höfðu þá
verðskuldaða forystu. Ingólfur Ing-
ólfsson skoraði fyrra mark UBK
með skoti af stuttu færi eftir
hornspyrnu Sigurðar Grétarssonar
á 12. mínútu og Vignir Baldursson,
besti maður UBK, skoraði síðara
markið með glæsilegu þrumuskoti
á 29. mínútu.
Það voru færi á báða bóga
framan af síðari hálfleik, en Blik-
arnir voru þó mjög áberandi dauf-
ari og Reynismenn sóttu í sig
veðrið. Þeir minnkuðu muninn loks
á 75. mínútu er Ari Haukur Arason
skallaði með tilþrifum í netið eftir
snjallan undirbúning Péturs
Sveinssonar og Pétur tryggði Reyni
síðan annað stigið með þrumuskoti
af 20 metra færi 5 mínútum síðar,
sem hafnaði efst í markhorninu
hjá Sveini markverði. — gg
2. deildin á
fleygiferð
FJÓRIR leikir fara fram í 2.
deild íslandsmótsins f knatt-
spyrnu í dag.
IBÍ og Þróttur leika á ísafirði
klukkan 14.00, Magni og Fylkir
leika á Grenivík klukkan 16.00,
Selfoss mætir Þór á Selfossi
klukkan 16.00 og Austri fær
markamaskínur FH í heimsókn á
Eskifjörðinn klukkan 16.00.
Sjötti úrslitaleikur
Reykjavflcurliðanna
BIKARLEIKUR Fram og Vals
á Laugardalsveliinum á morg-
un klukkan 14 er að sjálfsögðu
toppui;inn í knattspyrnunni
um heígina og reyndar er lítið
annað um að vera.
Valsmenn eru búnir að vera í
úrslitum bikarkeppninnar þrjú
undanfarin ár. Valsmenn unnu
Akranes 3:0 1976 og Framara
2:1 ári síðar. Hins vegar töpuðu
Valsmenn fyrir Skagamönnum í
úrslitunum í fyrra, 0:1, og var
það fyrsti bikarsigur Skaga-
manna í níundu tilraun. Valur
vann Akranes einnig 1965, 5:3,
og 1974 unnu Valsmenn Skag-
ann eina ferðina enn, nú 4:1.
Valsmenn hafa því 5 sinnum
verið í úrslitum og fjórum
sinnum unnið. Sjötta skiptið er
á morgun.
Hjá Fram er leikurinn á
morgun einnig sjötta tilraun til
að hreppa bikarinn eftirsótta,
en Framarar hafa tvívegis unn-
ið.
Það var gegn ÍBV 1970: unnu
2:1, og Keflvíkinga með sömu
markatölu 1973. Fram tapaði
fyrir KR, 1960 og 1962, en KR
hafði einokun á bikarnum fimm
fyrstu árin. 1977 tapaði Fram
fyrir Val, 1:2, eins og áður sagði.
Úrslitaleik bikarkeppninnar
verða ekki mikil skil gerð hér í
þessum dálkum, prentsvertunni
verður sjálfsagt ríflega fórnað
annars staðar á íþróttasíðunni.
Þó er ekki hægt annað en að
velta aðeins fyrir sér möguleik-
um liðanna. Valsmenn keppa að
því að vinna tvöfalt í ár, en við
það erfiða verkefni hafa þeir
glímt þrjú síðustu ár og tókst
með glæsibrag 1976. Upp á
síðkastið hafa Valsmenn aðeins
misst taktinn í keppninni í 1.
deild og misst þrjú stig í
tveimur síðustu leikjum. Margt
bendir til að þeir séu eitthvað
að dala, en öruggt er að í eins
mikilvægum leik og bikarúrslit-
um verður barist af grimmd og
leikmenn gefa allt sem þeir eiga
til að öðlast sigur.
Valsmenn sýndu mikið þrek
er þeir rifu sig tvívegis upp í
leiknum gegn Víkingi og náðu
að jafna eftir að hafa tvívegis
verið undir. Það leika ekki allir
eftir. Undirritaður hefur þá trú,
að vinni Valur Fram á morgun
vinni liðið einnig deildina, en ef
leikurinn tapast þá verður erfitt
að ná sigri í deildinni.
Framarar eru hins vegar í
allt öðru hlutverki en Valsmenn
og eftir hrikalegan kafla um
AGUST
iNGI
JONSSON:
A EFTIR
B0LTANUM
nokkurra vikna skeið hafa þeir
nú rifið sig upp og áttu stórleik
gegn ÍBK. Framliðinu gekk þó
illa að tryggja sér sæti í úrslit-
unum, lenti í hinum mestu
brösum með Þróttara.
Upp á síðkastið hafa Framar-
ar aðeins sýnt einn góðan leik,
gegn ÍBK, en stóðu þó vel fyrir
sínu gegn Skagamönnum á mið-
vikudag. Undirritaður þorir
ekki að spá Fram sigri, en liðið
hefur allt að vinna í þessum
leik, engu að tapa, og af mörg-
um er Fram talið lélegra liðið.
Þessi atriði er alltaf þægilegt að
hafa með sér og gætu dugað
langt gegn sterku Valsliði, sem
endalaust eru gerðar auknar
kröfur til.
Miðsvæðið virðist
vandamál landsliðsins
Framundan eru tveir lands-
leikir hérlendis, gegn Hollandi
og A-Þýzkalandi á Laugardals-
vellinum miðvikudagana 5. og
12. september. Fastlega má
reikna með að talsverðar breyt-
ingar verði gerðar á íslenzka