Morgunblaðið - 25.09.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.09.1979, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 209. tbl. 66. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979 PreniMniðja Morgunblaðsins. Til viðræðna í Moskvu — varautanríkisráðherra Sovétríkjanna Leonid Ilyichov veifar til '' sniyndara þar sem hann gengur með hinum kínverska kollega sínum, Wang Yuping. Símamynd AP. Sjá frétt um viðræðurnar í Moskvu bls. 38. Aminboðar náðun fanga Kabul. 24. aeptember. AP. Reuter. HINN nýi forseti Afganistans, Ilafizullah Amin. hauð náðun and- stæðinga stjórnarinnar og jafn- framt boðaði hann að Afganistan myndi reyna að bæta samkomulag- ið við nágrannarikin, fran og Pak- istan. Þetta sagði hann á fundi með fréttamönnum í Kahul. höfuðborg Afganistans. Jafnframt sagði hann að 60 fangar hefðu þegar verið látnir lausir og boðaði að fieirum yrði sleppt eða þeir leiddir fyrir rétt. Amin sagði að Taraki, fyrrum forseti landsins, væri „veikur" eins og hann orðaði það. Hann vildi ekki tjá sig frekar um það en orðrómur er uppi í Kabul um að Taraki hafi særst í átökum sem fylgdu valda- töku Amins 14. þessa mánaðar. Talið er að Taraki sé í haldi í fangelsi í Kabul. Amin var spurður um afdrif þriggja ráðherra, sem studdu Taraki í valdabaráttunni í landinu. Hann sagðist ekkert vita um afdrif þeirra en fréttir frá Islamabad segja, að þeir hafi að öllum líkindum komist yfir landamærin til Sovétríkjanna. Þykir margt benda til að Sovét- mönnum þyki nóg um harðlínu- stefnu Amins og þeir hafi því lagt að honum að forðast frekari átök í landinu. Loftbardagi yfir Líbanon Beirut. Tel Aviv, 24. scptember. AP. Reuter. Skærulidar fallast á þingstyrk hvítra Hvítir menn haldi fimmtungi þingsæta Lundúnum, 24. september. AP. Reuter. SKÆRULIÐAFYLKINGAR Joshua Nkomos og Robert Mugabes féllust í dag á til- lögu Breta um að hvíti minni- hlutinn í Ródesíu fengi að halda einum fimmta þingsæta sinna, að því er talsmaður fyikinganna skýrði frá í Lundúnum í dag. Hann sagði að þetta væri gert með trega og að það væri kynþáttamis- rétti að hvítir, sem aðeins væru 3% íbúa landsins, héldu 20% þingsæta. Þessi tilkynn- ing skæruliða kemur í kjölfar samþykktar sendinefndar Abels Muzorewas forsætis- ráðherra að hvíti minnihlut- inn missi neitunarvald sitt í stjórnlagabreytingum. Eddison Zvobogo, talsmaður skæruliða, sagði að þeir myndu berjast fyrir afnámi þessara for- réttinda hvítra en ein af megin- kröfum skæruliða var, að hvítir menn í landinu hefðu þingsæti i hlutfalli við fjölda þeirra. Þá sagði hann, að þessar tilslakanir væru því skilyrði bundnar að Muzorewa viki frá fyrir nýrri stjórn, sem myndi undirbúa nýjar kosningar og leggja drög að endurskipulagn- ingu hersins. Sir Ian Gilmour, sem nú stjórn- Skotbardagi Róm, 24. september. AP. Reuter. ÍTALSKA lögreglan náði Pros- pero Gallinari, einum helsta for- sprakka „Rauðu herdeildarinn- ar“ í Róm í kvöld. Til skothar- daga kom og var Gallinari flutt- ur á sjúkrahús, lífshættulega særður. Gallinari var stofnandi Rauðu hcrdeildarinnar og talinn forsprakkinn að baki ráni og morði Aldo Moro, fyrrum forsæt- isráðherra landsins. ar viðræðunum í Lundúnum í fjarveru Carringtons lávarðar, sem er í New York á fundi Allsherjarþings Sameinuðu þjóð- anna, sagði að þetta væri „stórt skref framávið". Bretar lögðu þó áherzlu á að enn væri langt í land til lausnar. „Okkur hefur þó miðað betur en nokkurn óraði fyrir," sagði Nicholas Fenn, talsmaður brezku stjórnarinnar, við frétta- menn. Utanríkisráðherra stjórn- arinnar í Salisbury, David Mu- kome, sagði að ákvörðun skæru- liða hefði verið „fyrirsjáanleg". Hann bætti við: „Okkur hefur miðað vel áfram að því takmarki, sem við settum okkur áður en við komum til Lundúna: að Bretar aflétti viðskiptabanni á Zimbabwe Ródesíu." Stríðið í Zimbabwe Ródesíu heldur áfram. He-itjórnin í Salis- bury tilkynnti í dag, að 79 manns hefðu beðið bana síðan á föstudag og að 377 hefðu beðið bana frá því viðræðurnar hófust í Lundúnum fyrir 15 dögum. TIL loftbardaga kom milli sýr- lenskra og ísraelskra orustu- þotna y'ir Libanon í dag. Fjórar sýrlenskó.f þotur voru skotnar niður en að sögn ísraelskra yfir- valda sneru allar ísraelsku þot- urnar heilu og höldnu til baka. Sýrlenska útvarpið skýrði þó svo frá, að tvær ísraelskar þotur hefðu orðið fyrir flugskeytum. Þessi brýna er önnur viðureign sýrlenskra og ísraelskra orustu- þotna á 5 árum. Að sögn sjónar- votta réðust sýrlensku þoturnar að hinum ísraelsku. I Beirut sögðu heimildir, að með þessum árásum vildi Hafez Assad. forseti Sýrlands, beina sjónum manna frá vandræðum heirta fj r neð því að sýna fram á að ht.j’T teti staðið uppi í hárinu á ísraels- mönnum. Sovéskir listdansarar biðja um hæli í Sviss H jónin Oleg Protopopov og Ludmila Belousova tvöfaldir Olympíumeistar- ar og fjórf aldir heimsmeistarar í listdansi á skautum báðu um hæli í Sviss Bern, 24. september. Reuter. AP. HIÐ ÞEKKTA sovéska skautapar, Ludmila Belousova og Oleg Protopopov, báðu í siðustu viku um hæli í S'dss sem pólitískir flóttamenn að því er svissnesk yfirvöld skýrðu frá í dag. Þau voru að ijúka sýningaferð um Sviss og V-Þýskaland. Ludmila og Oleg hafa tvívegis orðið ólympiumeistarar í listdansi og fjórum sinnum hrepptu þau hcimsmeistaratitilinn saman. Hjónin haía verið skærustu stjörnur sovéskra listdansara um margra ára skeið og flótti þeirra kemur sovéskum yfirvöldum illa, því að hjónin höfðu verið heiðruð fyrir afrek sín á isnum, hlotið æðstu viðurkenningu, sem sovésk yfirvöld veita iþróttafólki sínu. í alfræðibókinni sovésku er þeirra getið að verðleikum, sagt að þau séu þekkt fyrir „glæsileik, nákvæmni i list sinni og ljóðræna tjáningu“. Nokkuð var farið að halla undan fæti hjá þeim, þar sem þau eru bæði á fimmtugsaldrin- um. Þau komu fyrst fram á sjónarsviðið á Olympíuleikunum í Innsbruck 1964 er þau unnu gull. Þau endurtóku sigurinn í Grenoble 1968. Fjórum sinnum urðu þau heimsmeistarar, síðast í Colorado Springs 1969. Árið eftir gerðust þau atvinnumenn, með flokki frá Leningrad og fóru víða á sýningaferðum. Hjónin fylgja í kjölfar þekktra sovéskra borgara er flúið hafa vestur yfir járntjald. Skærasta stjarna sovéskra dansara, Alex- ander Gudunov, flýði til Banda- ríkjanna þegar hann var á ferð með Bolshoi-ballettinum í Bandaríkjunum. Kuzlov-hjónin fylgdu í kjölfar hans. Þá flýði sovéskur stórmeistari í skák, Lev Alburt. Skömmu eftir að tilkynnt var að Oleg og Ludmila hefðu beðið um hæli í Sviss var skýrt frá því að sovéska stórmeistaranum í skák, Victor Korshnoi, hafði verið veittur svissneskur ríkis- borgararéttur. Símamynd AP. Oleg Protropopov og Ludmila Belousova í síðustu sýningu sinni áður en þau báðu um hæli i Sviss. „Fágun, tæknileg fullkomnun og listræn túlkun,“ segir i alfræðibók Sovétmanna um þau.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.