Morgunblaðið - 29.03.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.03.1980, Blaðsíða 1
75. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Litlar líkur á að fleiri finnist á lífi í pallinum Borpallurinn Edda í forgrunni, en fjær sér á súlurnar fjórar, sem mara í hálfu kafi. Alexander Kielland var íbúðapallur, þar sem viðgerðarmenn og þjónustufólk úr ýmsum starfsgreinum dvaldi meðan það vann sín störf á Ekofisk-svæðinu. AP-simamynd Stavanger og Osló 28. marz frá NTB-fréttastofunni og Jan-Erik Lauré fréttaritara Morgunblaðsins. NÆR ENGAR likur eru taldar á þvi lengur, að lifsmark finnist i flaki ibúðapallsins Alexander Kielland, sem hvolfdi mjög skyndilega á Ekofisk-oliusvæðinu i Norðursjónum um klukkan 19.30 i fyrrakvöld. Kafarar bönkuðu pallinn að utan i gær, en fengu ckkert svar innan frá, sjónvarpsvélar voru sendar niður, en allt kom fyrir ekki. Leitin næstu daga mun þvi að mestu snúast um hafsvæðið i kring i von um að einhverjir hafi komist um borð i bát eða á annað flot og ekki fundizt i dag, föstudag, þrátt fyrir leit um 2000 manna frá Noregi, Danmörku, Bretlandi og V-Þýzkalandi á skipum, þyrlum og flugvélum. Björgunaraðgerðirnar eru taldar þær umfangsmestu. sem um getur á friðartimum. Kafarar, sem fóru niður að flak- inu, sögðu frá því, að næstum allar rúður væru brotnar í íbúðarbygging- unni á dekki pallsins og því væru litlar líkur á að menn væru enn á lífi í vistarverum og að þar hafi ein: hvers staðar myndast loftrúm. I ibúðunum voru ekki vatnsþéttar dyr. Enn hefur engin skýring fengizt á því hvers vegna ein súlan af fimm, sem bar pallinn uppi brotnaði svo skyndilega á fimmtudaginn, en á innan við 10 mínútum snerist pallur- inn þannig að í gær möruðu aðeins endar súlanna fjögurra, sem eftir eru, í sjávarborðinu. Helzt er talið að málmþreyta ásamt vondu veðri hafi orsakað slysið mikla, sem Oddvar Nordli forsætisráðherra Noregs lýsti í gær, sem mesta harmleik norsku þjóðarinnar á frið- artímum. Björgunaraðilar og fyrirtæki þau, sem höfðu með íbúðarpallinn að gera voru ekki sammála um það í kvöld hversu margra væri enn saknað. Fyrirtækin sögðu þá vera 101, en björgunaraðilar 99. 38 lík höfðu fundizt í kvöld og 89 hefur verið bjargað. Súlan, sem brotnaði frá pallinum var í dag tekin í tog og er dráttarbátur væntanlegur með hana til Stavanger á mánudag. Talið er að rannsóknir á súlunni geti gefið upplýsingar um orsakir slyssins og einnig verður reynt að fá íbúðarpall- inn „á réttan kjöl“ að nýju. Það er þó talið erfiðleikum háð vegna bor- turnsins, sem er á Kielland, en turninn sem er 200 tonna þungur, er einnig talinn hafa valdið því hve snögglega pallurinn snerist. Alexander Kieland er af svokall- aðri „Pentagon-gerð“ og eru 10 aðrir slíkir pallar í notkun í Noregi. Ekki er vitað hvaða afleiðingar þetta slys hefur á notkun á þeim í framtíðinni eða olíuvinnslu almennt. I Noregi var strax í morgun skipuð rann- sóknanefnd á skyndifundi ríkis- stjórnarinnar og í Bretlandi var þetta mál til umræðu í brezka þinginu. Þrír dráttarbátar halda Alexand- er Kielland á sínum upprunalega stað og reyna að koma í veg fyrir að pallinn reki af stað. Ef slíkt gerist er óttast að borturninn kunni að eyði- leggja olíuleiðslur á hafsbotninum. Rætt hefur verið um að sprengja eða skera-turninn frá pallinum, en ef slíkt verður gert er óttast að pallur- inn kunni að sökkva til botns. Sjá nánar bls. 22, 23 og baksiðu Björgunarþyrla kemur með 16 þá fyrstu, sem björguðust er Alexander Kielland hvolfdi I fyrrakvöld. Myndin er tekin á flugvellinum I Stavanger snemma I gærmorgun. (APsímamynd) Herbert Hansen Einn íslendingur meðal hinna týndu MEÐAL þeirra, sem saknað er af ibúðarpallinum Alexander Kiel- land, sem hvolfdi i Norðursjónum í fyrrakvöld, er íslendingurinn Herbert Hansen frá Akureyri. Hann er 33 ára og þriggja barna faðir. Herbert starfar sem suðu- maður hjá fyrirtækinu Stavanger Drilling, sem átti þennan íbúð- arpall. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær átti Herbert að vera í leyfi þessa viku fram til föstudags, en þá að fara á ný til starfa úti á olíusvæðinu. Að beiðni fyrirtækisins ákvað hann þó að vinna þá viku sem er að líða, þar sem nauðsynlega vantaði suðumenn. Undanfarin ár hefur töluverður hópur íslendinga starfað á olíu- svæðunum og munu vera á milli 10 pg 20 um þessar mundir. Aðrir íslendingar en Herbert Hansen munu ekki hafa verið um borð í Alexander Kielland er slysið varð, en fréttir þar að lútandi voru mjög óljósar fram eftir öllum gærdegin- „Ægileg skelfing greip um sig og allir reyndu að komast út“ Ósló 28. marz AP og NTB. ÞEIR fyrstu sextán sem bjargað var af íbúðar- pallinum „Alexander Kielland“ komu til Staf- angurs árla föstudags og skýrðu lítillega frá því hvernig atburðarásin var. Olav Forseheim, 35 ára gamall norskur verkamaður, sagði: „Ég sat inni í kvikmyndahúsi ásamt 25—30 manns og vorum við að bíða eftir að venjuieg kvöldsýn- ing hæfist. Þá heyrðum við sprengingu og pallurinn snögg- hallaðist og á 15 sekúndum hallaðist hann um 30—40 gráður. Við köstuðumst að veggnum og ljósin slokknuðu í salnum, svo að við sátum í niðamyrkri. Geysileg skelfing greip um sig meðal viðstaddra og reyndu allir að þjóta í átt að dyrunum. Ég hugsa að þó nokkr- ir hafi ekki komizt út vegna þess hvernig atgangurinn var — svo að það varð alger teppa við dyrnar. Sjálfum tókst mér að komast upp á efra þilfar sem þegar var hálffullt af vatni. Ég þreif ein- hvern hlífðarfatnað, galla og björgunarbelti og mér skildist að eini lífsmöguleiki minn væri að stökkva fyrir borð og freista þess að synda að pallinum Edda, sem var í um það bil 40 metra fjarlægð. Það hljómar ekki sem að slíkt ætti að vera neinum ofviða, en ég get fullvissað ykkur um að þetta var voðaleg raun. Sjórinn ískaldur, ofsarok og ölduhæðin og þyngslin voru slík að ég fann mjög fljótlega að ég var að gefast upp. Þá var ég aðeins liðlega hálfnaður yfir að Edda-pallinum. Þá var björgun- arþyrla komin á vettvang og renndi til mín körfu og ég var hífður um borð.“ Hann sagði að hann hefði síðan litið í áttina að íbúðarpall- inum og séð að hann var alveg á hvolfi. „Þetta tók ekki meira en fimmtán mínútur. Þá sást ekki neitt af pallinum nema vottaði fyrir hluta undirstöðunnar. Við óttuðumst að pallurinn myndi rekast á framleiðslupallinn, svo að þaðan voru allir fljótlega fluttir í burt,“ sagði Forsehim. Theis Salvesen tókst að kom- ast um borð í lífbát, en í nokkrar mínútur börðust bátsverjar við að losa bátinn úr davíðunum. Það tókst að lokum, en þá var báturinn brotinn bæði að fram- an og aftan, enda hafði hann lamist utan í pallinn. Um 25 manns komust upp í bátinn, segir Salvesen. Hvað eftir annað hélt ég að min síðasta stund væri upp runnin á leiðinni yfir í borpallinn Eddu, en ölduhæðin var örugglega ekki minni en 6—7 metrar, segir Salvesen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.