Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR-22. SEPTEMBER 1981 23 r/vjvi Þrír leikmenn náðu þeim árangri MORGUNBLAÐIÐ hefur í mörg undanfarin ár gefið leikmönnum 1. deildar einkunn fyrir leiki sína. Fyrir tveimur árum var sá háttur tekinn upp að gefa leikmönnum einkunn frá 0 ok upp i 10. Eins ok við mátti búast hefur einkunnagjöfin ávallt verið nokkuð umdeild. En þegar keppnistímabilinu er lokið eru flestir sammála um þá leikmenn sem hæstu einkunn hafa hlotið. Leikmenn þurfa að leika 15 leiki eða fleiri til þess að teljast gjaldsengir i keppninni um leikmann íslandsmótsins. Að þessu sinni varð Skagamaðurinn Sigurður Lárusson efstur. Hann lék alla leikina með liði sinu og hlaut 119 stig og fékk 6.61 í meðaleinkunn. Sigurður Lárusson er vel að titlinum kominn. Hann ávann sér fast sæti i landsliðinu i sumar og lék vel. Sigurður fékk tvivegis átta i einkunn i sumar og átta sinnum sjö. Það sýnir að hann var mjög jafn að getu. • Sigurður Lárusson, fyrir miðri mynd. fékk hæstu meðaleinkunnina hjá Morgunhlaðinu. Tvö mörk á síðustu stundu gerðu útslagið ÍSLENSKA kvennalandsliðið i handknattleik stoð í ströngu um helgina. en þá keppti liðið i þriggja liða móti í Vestur-Þýska- landi og skaut síðan inn i lands- leik gegn Englandi á heimleið- inni. Má með sanni segja að á ýmsu hafi gengið í leikjum þess- um. Fyrst ber að sjálfsögðu að geta eina sigurleiksins í ferðinni, síð- asta leiksins gegn Englandi. Sigr- aði ísland 35—15, enda eru Eng- lendingar algerir byrjendur. En landinn stóð sig kannski best í fyrsta leik 4-liða keppninnar, er Svíar voru mótherjarnir. Þar var jafnræði fram eftir öllum leik, en sænsku stúlkurnar tryggðu sér að lokum sigur, 21—17, á lokakaflan- um. Síðan mætti íslenska liðið A-liði Vestur-Þjóðverja. Voru ís- lensku stúlkurnar þar í hlutverki músarinnar og töpuðu 19—31. Naumara var tapið gegn B-liði Þjóðverja, 14—18. Stúlkurnar ýmist burstuðu eða voru burstaðar! íslenska kvennalandsliðið i knattspyrnu tapaði naumlega. en stóð sig samt vonum framar i fyrsta kvennalandsleiknum sem Ísland tekur þátt í. er liðið sótti Skotland heim. Leikurinn fór fram í Dumbarton og urðu loka- tolurnar 3—2. eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1—0 fyrir Skota. Skoska liðið var sterkara í fyrri hálfleiknum og verðskuldaði fylli- lega forystu sína. En í síðari hálfleik létu íslensku stúlkurnar meira til sín taka. Bryndís Einars- dóttir náði þá að jafna og ekki leið ir--------------------------- á löngu þar til að Asta B. Gunnlaugsdóttir náði forystunni fyrir ísland. Forystunni hélt ís- lenska liðið þar til að fáeinar mínútur voru til leiksloka, en þá opnuðust allar flóðgáttir og skosku stúlkurnar skoruðu tvö mörk sem hefði átt að vera hægt að koma í veg fyrir. Því tap í fyrsta landsleiknum, en mjög svo viðunandi frammistaða engu að síður. Hætt er við að 2—3 tap á útivelli hefði ekki þótt slæm útreið ef karlalið sömu þjóða hefðu reynt með sér. Oskar sigraói ÓSKAR Sæmundsson sigraði i ísal-keppninni í golfi sem fram fór á Grafarholtsvelli um helg- ina. >Það var meira vegna þess að hinir keppendurnir voru svo fjarri sinu besta heldur en að ég hafi leikið vel,“ sagði óskar, en hvað um það, hann hreppti fyrstu verðlaunin. Óskar tryggði sé reyndar sigur á fyrri deginum þó að hann eða aðrir keppendur hafi kannski ekki ■ r Þegar einkunnagjöfin er skoðuð niður í kjölinn má sjá að meðal- mennska hefur ráðið ríkjum í leikjum deildarinnar í sumar. Fáir leikmenn hafa náð að skara fram úr nema leik og leik. Þrír leik- menn, Árni Sveinsson ÍA, Guð- mundur Baldursson Fram og Lár- us Guðmundsson Víkingi, náðu þeim góða árangrl að ná 9 í einkunn í einum leik. Árni fékk sína einkunn er IA sigraði lið Víkings með sex mörkum gegn tveimur, Guðmundur fékk sína einkunn þegar Fram og ÍA gerðu jafntefli, 1—1, og Lárus sína er Víkingur vann Val 3—2, en þessir leikmenn sýndu þá framúrskar- andi góðan leik. All margir leik- menn hlutu átta í einkunn fyrir leiki í sumar en oft. vildi það brenna við að leikmenn liðanna sýndu mjög misjafna getu í leikj- um sínum. Hér á eftir fer listi yfir þá leikmenn í 1. deild sem hlutu sex eða meira í meðaleinkunn i mótinu í sumar. N«ín — fél. st. I. m.eink. Sitsurftur Lárusson lA 119 1$ 6.61 Lárus Guðm.son Vik. 118 18 6.55 sumar Jón Alfrefason ÍA íii 17 6.52 ólafur Bjórnsson UBK 104 16 6.50 SÍKurlás Þorl.son ÍBV 116 18 6.44 Árni Sveinsson í A 109 17 6.41 Stefán Jóhannsson KR 115 18 6.38 Hflvri Bentsson UBK 115 18 6.38 Heljn Heljfason \ íkinjfi 108 17 6.35 Valdimar Vaidim.UBK 111 18 6.33 Guóm. Baldurss. Fram 114 18 6.33 Bjarni Sixurósson ÍA 113 18 6.27 Eirikur Eiriksson Þór 113 18 6.27 ómar Torfason Vikinffi 100 16 6.25 l>órdur llallKr.son ÍBV 106 17 6.23 Sævar Jónsson Val 106 17 6.23 Páll Pálmason ÍBV 112 18 6.22 MaKnús borv.son Vik. 112 18 6.22 Heimir Karlsson Vik. 105 17 6.17 SÍKurdur Halld.son ÍA 111 18 6.16 Þórður Marelsson Vik. 111 18 6.16 Jóh. Grótarsson UBK 98 16 6.12 Kári Þorleifsson ÍBV 109 18 6.05 Gudm. ÁsKeirsson UBK 108 18 6.0 Viiniir Baldursson UBK 102 17 6.0 Viðar Halldórsson FH 102 17 6.0 Mart. Geirsson Fram 90 16 6.0 Þegar þessi listi 27 leikmanna er skoðaður kemur í ljós að Víkingar eiga sex leikmenn á listanum, Breiðablik á einnig sex leikmenn og IA á fimm leikmenn. Hér að neðan má sjá fyrir hvað tölurnar í einkunnagjöfinni standa. ÞR • ólafur Björnsson hafnaði í fjórða sætinu. 10. Heimsmælikvarði 9. Framúrskarandi 8. Mjög góður 7. Góður 6. Frambærilegur 5. bokkaletíur 4. Lítt áberandi 3. Slakur 2. Mjög slakur 1. Fyrir neðan allar hellur. Víkingar hristu af sér baráttuglaða KR-inga VÍKINGUR sigraði KR nokkuð örugglega 22—17 i úrslitakcppni Reykjavíkurmótsins í hand- knattleik á sunnudagskvöldið. Staðan í hálflcik var 13—9 fyrir Víking. Víkingarnir settu allt á fulla ferð strax í byrjun og náðu yfirburðaforystu um miðjan hálf- leikinn, 11—4. Hver sóknarlotan af annarri rann þá út í sandinn hjá KR og Víkingarnir refsuðu hverju sinni me? hraðaupphlaup- um sínum. En undir lok hálfleiks- ins fóru KR-ingarnir að rétta úr kútnum og söxuðu á forskotið. í seinni hálfleik héldu KR-ingarnir uppteknum hætti og tókst að lokum að jafna metin, 16—16. En þá tóku Víkingarnir það til ráðs að láta mann elta Alfreð Gíslason hvert fótmál, en Alfreð hafði verið geysilega drjúgur. Þetta heppnað- ist. Víkingur seig fram úr á nýjan leik og sigraði örugglega. Tveir menn voru öðrum fremur áber- andi á vellinum, Þorbergur Aðal- steinsson hjá Víkingi og Alfreð Gíslason hjá KR. Fyrr um kvöldið áttust við Valur og ÍR. Sigraði Valur 19—14, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 10—8 fyrir Val. Sigur liðsins var sanngjarn, en ekkert sérlega sannfærandi og leikurinn var í heildina séð slakur, a.m.k. síðari hálfleikurinn. — gg. Urslitaleikur HK og Stjörnunnar STJARNAN úr Garðabæ og IIK úr Kópavogi leika hreinan úr- slitaleik í Varmárkeppninni i handknattleik. sem hófst um helgina. en lýkur annað kvöld. Á laugardaginn sigraði IIK lið UMFA 21 —20 og UBK og Stjarn- an skiidu jöfn. 29 — 29. \ sunnu- daginn léku síðan IIK og UBK og sigraði IIK 20—17. Síðan áttust við Stjarnan og UMFA og sigraði Garðabæjarliðið 31 —27. Annað kvöld klukkan 19.10 heíst síðan að Varmá leikur IIK og Stjórnunnar. en síðan eigast við UBK og UMFA. IIK hefur I stig. Stjarnan 3 stig. UBK 1 stig og IIMFA ekkert stig. • Alfreð Gíslason KR og Þorbergur Aðalsteinsson voru atkvæðamikl- ir í liðum sínum. Hér sést Þorbergur freista þess að stöðva Alfreð, sem reynir skot. gert sér grein fyrir því á því stigi mótsins. Óskar lék þá best, á 75 höggum, en næstu menn, Hannes Eyvindsson og Sigurður Péturs- son, léku á 78 og 79 höggum. Síðari daginn „lékum við allir jafn illa, eða á 80 höggum," eins og óskar orðaði það og því sigraði hann á samtals 155 höggum. Hannes lék á 158 og Siggi Pé á 159 höggum. — gg. T.B. Tvur Ourar boltafélag óskar eftir þjálfara, sem jafnframt gæti spilaö stööu framlínumanns. Þarf aö geta byrjað 1.3. 1982. Nánari upplýsingar hjá undirrituöum Tvur Ourar, Birgar Niglasen, sími 71264, 3380 Tvur Ouri, Færeyjum. Fram sigraði KR FYRSTU leikirnir i Reykjavík- urmótinu í korfuknattleik fóru fram í íþróttahúsi Hagaskólans um helgina. Tveir leikir fóru fram á laugardaginn og aðrir tveir á sunnudaginn. Þrír voru hins vegar á dagskrá hvorn daginn. en þcir leikir þar sem Ármann átti hlut að máli fóru aldrci fram. Á laugardaginn sigraði ÍA lið Vals 71—68. en síðan sigraði Fram KR 83—80 í mun skemmti- legri lcik. ,\ sunnudaginn náði KR sér betur á strik og fleytti fyrsta sigrinum í höfn. 95—71 gegn ÍS. Þá lék IR áinn fyrsta leik. en ekki lofaði hann góðu, útkoman var 60—67 tap í leik þar sem hittni lcikmanna var ekki í ha'sta ga'ðaflokki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.