Morgunblaðið - 14.01.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.01.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1982 25 Charm í Straumsvík CHARM í STRAUMSVÍKURHÖFN — Eins og skýrt hefur verið frá í Mbl., hefur SkipafélagiÖ Víkur fest kaup á danska skipinu Charm, sem á sl. ári sigldi Berglindi, skip Eimskipafélgsins, niður undan Ameríkuströndum. Skipafélagið Víkur fær skipið afhent í aprílmánuði nk., en hins vegar var skipið á ferð hér í vikunni, því Eimskipafélag íslands tók það á leigu úr Mexíkóflóa til Straumsvíkur, eina ferð. Ljósmynd Mbl. Kristján. Borgarstjórnarkosningar: Meirihlutaflokkarn- ir undirbúa prófkjör STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR eru nú að hefja undirbúning framboða vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Víðast hvar er um að ræða prófkjör eða forval og verða síðan endanlegir framboðslistar byggðir á niðurstöðum úr þeim. Nú er aðeins lokið prófkjöri sjálfstæðismanna ( Reykjavík og framsóknarmanna í Bolungarvík, en endanlegir framboðslistar liggja ekki enn frammi. í Reykjavík er nú í undirbúningi forval Alþýðubandalagsins og prófkjör Framsóknarflokks og Alþýðuflokks. Fyrri umferð forvals Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík fer fram um næstu helgi. Þátttaka er að- eins heimil þeim, sem flokks- bundnir eru á þeim tíma, sem kos- ið verður. Skulu kjósendur rita 5 nöfn á atkvæðaseðil, nöfn borgar- fulltrúa undanskilin. Seinni um- ferðin verður svo dagana 29. og 30. þessa mánaðar og fá kjósendur þá atkvæðaseðil með 21 til 26 nöfn- um, þar með töldum þeim borgar- fulltrúum, sem kost gefa á sér, og Þrettán fyrirtæki greiddu meir en 10 milljónir gkróna í meðallaun 1980: Fiskiðjan með hæst meðal- laun - 16 milljónir gkróna Víkur hf. og Saltsalan hf. greiddu 15,5 milljónir gkróna í meðallaun ÞRETTÁN fyrirtæki greiddu hærri meðallaun en 10 milljónir gkróna á árinu 1980, samkvæmt samantekt Frjálsrar verzlunar yfir 100 stærstu fyrirtækin á íslandi 1980. Hæstu meðallaun íslenzkra fyrirtækja greiddi Fiskiðjan hf. í Keflavík eða 16 milljónir gkróna, en starfsmenn fyrirtækisins voru að meðaltali 71 á árinu 1980. í öðru sæti er Víkur hf. — Salt- salan hf., sem greiddi 15,5 milljón- „Hjúkrunarfræðingar eru almennt mjög óánægðir með kjör sín“ lljúkrunarfræðingar felldu nýgerð- an aðalkjarasamning við Keykjavík- urborg með miklum mun í atkvæða- greiðslu, sem lauk í gærmorgun. 245 hjúkrunarfræðingar við Borgarspítal- ann voru á kjörskrá, 138 greiddu at- kvæði, 118 sögðu nei, 18 sögðu já, tveir seðlar voru auðir. Næstkomandi mánudag er fundur í stjórn Hjúkrun- arfélags íslands og verður þar m.a. fjallað um hvert verður næsta skref hjúkrunarfræðinga. Meðai annars hef- ur verið rætt um verkfallsboðun, en í könnun, sem nýlega fór fram meðal hjúkrunarfræðinga kom í Ijós, að um 90% þeirra eru tilbúnir að segja upp störfum til að knýja á um betri kjör. Á miðvikudag hefur verið boðað til fé- lagsfundar í hjúkrunarfélagi íslands. Skrifstofustjóri Hjúkrunarfélags Islands sagði í gær, að ef borgin byði vildarkjör gæti verið að samn- ingar tækjust, en hjúkrunarfræð- ingar almennt væru mjög óánægðir með sín kjör. Benti hún á mikið vinnuálag í þessu starfi, vaktavinnu, mikla ábyrgð og kröfur, sem gerðar væru til hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfélag íslands er aðili að Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og greiddu hjúkrunarfræð- ingar, sem starfa hjá ríki og sjálfs- eignarstofnunum atkvæði um aðal- kjarasamning BSRB og fjármála- ráðherra skömmu fyrir jól. Fyrir Borgarspítalann er sérstaklega samið við Reykjavíkurborg á grundvelli þess samkomulags og var sá samningur felldur eins og áður sagði. Hjúkrunarfræðingar við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hafa enn ekki samið við Akureyr- arbæ um aðalkjarasamning. Jóhannes Pálmason, skrifstofu- stjóri Borgarspítalans, sagði í gær, að nú þyrfti að taka upp þráðinn að nýju, en samningar væru lausir frá 1. janúar. „Úrslitin í atkvæða- greiðslunni um samningana við borgina endurspegla meira og minna óánægju hjúkrunarfræðinga með kjör sín almennt. Það er mikil ólga meðal hjúkrunarfræðinga og ef miðað er við launaþróun í þjóðfélag- inu hafa þeir eflaust nokkuð til síns máls,“ sagði Jóhannes Pálmason. ir gkróna í meðallaun, en starfs- menn fyrirtækisins voru að með- altali 38. Hraunvirki kemur í þriðja sæti, en fyrirtækið greiddi að meðaltali 13,9 milljónir gkróna í árslaun, en meðalstarfsmannafjöldi var 84. Fossvirki sf. kemur númer fjög- ur í röðinni, en fyrirtækið greiddi að meðaltali 12,4 milljónir gkróna í árslaun, en meðalstarfsmanna- fjöldi var 151. Hvalur hf. er í fimmta sæti, en fyrirtækið greiddi 12,3 milljónir gkróna í meðalárslaun. Meðal- starfsmannafjöldi fyrirtækisins var 127. Þá kemur Islenzka járnblendifé- lagið með 12,1 milljón gkróna og meðalstarfsmannafjölda 132, Hraðfrystistöðin í Vestmannaeyj- um og Reykjavík með 11,3 milljón- ir gkróna og meðalstarfsmanna- fjölda 239, ÍSAL með 10,8 milljón- ir gkróna og meðalstarfsmanna- fjölda 731, Keflavík hf., með 10,7 milljónir gkróna og meðal- starfsmannafjölda 139 og loks í tí- unda sæti Frosti hf. — Álftfirð- ingur hf. með 10,6 milljónir gkróna og meðalstarfsmanna- fjölda 105. Þá má nefna ísbjörninn í Reykjavík með 10,5 milljónir gkróna og meðalstarfsmanna- fjölda 266, Harald Böðvarsson og Co. á Akranesi með 10,3 milljónir gkróna og meðalstarfsmanna- fjölda 206 og loks Þormóð Ramma Siglufirði með 10,3 milljónir gkróna og fjölda 131. meðalstarfsmanna- skulu nöfn þeirra númeruð. Á grundvelli niðurstöðu síðari um- ferðar verður síðan endanlegur framboðslisti ákveðinn. Prófkjör Alþýðuflokksins mun fara fram 13. og 14 febrúar næst- komandi og verður þar kosið um skipan 6 efstu sæta á framboðs- lista flokksins til borgarstjórnar- kosninganna. Þátttökurétt hafa allir þeir, sem náð hafa 18 ára aldri, eiga lögheimili í Reykjavík og eru ekki flokksbundnir í öðrum flokkum. Kjörgengi hafa þeir, sem hafa meðmæli minnst 50 manna, sem flokksbundnir eru í Alþýðu- flokksfélögum í Reykjavík og upp- fylla lagaskilyrði um kjörgengi til Alþingis. Framboðsfrestur er til miðnættis 20. janúar næstkom- andi. Prófkjör Framsóknarflokksins fer fram 23. og 24. janúar og hafa 15 einstaklingar gefið kost á sér; Áslaug Brynjólfsdóttir, Auður Þórhallsdóttir, Björk Jónsdóttir, Elísabet Hauksdóttir, Gerður Steinþórsdóttir, Gunnar Bald- vinsson, Jónas Guðmundsson, Jósteinn Kristjánsson, Kristján Benediktsson, Páll R. Magnússon, Pétur Sturluson, Sigrún Magnús- dóttir, Sveinn G. Jónsson, Valdi- mar Kr. Jónsson og Þorlákur Einarsson. Þátttökurétt í prófkjörinu eiga allir félagar í framsóknarfélögun- um í Reykjavík og eru orðnir 16 ára. Ennfremur þeir Reykvík- ingar, sem lagt hafa fram inn- tökubeiðni í framsóknarfélag áður en kjörfundi lýkur. Skulu þátttak- endur númera þá 6 frambjóðend- ur, sem þeir kjósa í 6 efstu sætin. Niðurstaða prófkjörsins er bind- andi fyrir þá, sem fá 50% atkvæða eða meira í viðkomandi sæti, en síðan ákveður kjörnefnd um frek- ari niðurröðun og getur bætt mönnum inn á endanlegan fram- boðslista. Frjáls verzlun birtir lista yfir 100 stærstu fyrirtæki landsins 1980: SÍS langstærst með tæplega 164 milljarða gkróna veltu Flugleiðir hf. féllu úr 3. sæti í 8. sæti milli ára í NÝJASTA hefti Frjálsrar verzlunar er birtur listi yfir 100 stærstu fyrirtæki á íslandi árið 1980. Stærsta fyrirtæki lands- ins er Samband íslenzkra samvinnufélaga, SÍS, en heildar velta þess var 163.978 milljónir gkróna. Meðalfjöldi starfs- manna var 1250 og meðalárslaun starfsmanna voru 7,1 millj- ón gkróna. Sambandið var einnig stærsta fyrirtæki landsins árið 1979, samkvæmt lista blaðsins. í öðru sæti er Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, SH, en heild- arvelta var á árinu 1980 109.000 milljónir gkróna. Meðalfjöldi starfsmanna var 79 og meðalárs- laun þeirra 7,4 milljónir gkróna. Sölumiðstöðin var einnig í öðru sæti listans árið 1979. Landsbanki íslands er í þriðja sæti árið 1980, en var í því fjórða árið 1979. Heildarvelta bankans var 71.301 milljón gkróna, en ekki liggja fyrir upplýsingar um starfsmannafjölda og meðallaun þeirra. íslenzka álfélagið hf., ÍSAL, er í fjórða sæti listans, en var í því fimmta á listanum yfir árið 1979. Heildarvelta fyrirtækisins var 62.309 milljónir gkróna og meðal- fjöldi starfsmanna var 731. Meðal- laun þeirra voru 10,8 milljónir gkróna. Fimmta í röðinni er Sölusam- band íslenzkra fiskframleiðenda, SÍF, en heildarvelta sambandsins var 62.150 milljónir gkróna. Með- alfjöldi starfsmanna var 48 og meðallaun þeirra 7,0 milljónir gkróna. Sölusambandið var í átt- unda sæti listans frá 1979. í sjötta sæti er nú Oiíufélagið hf., en það var í fimmta sæti list- ans frá 1979. Heildarvelta félags- ins var 61.970 milljónir gkróna og meðalfjöldi starfsmanna var 287. Meðailaun þeirra voru á árinu 1980 7,6 milljónir gkróna. Kaupfélag Eyfirðinga er í sjöunda sæti listans og var í sama sæti árið 1979. Heildarvelta kaup- félagsins var 50.880 milljónir gkróna og meðalfjöldi starfs- manna var 1057. Meðallaun þeirra voru 6,5 milljónir gkróna. Flugleiðir hf. eru i áttunda sæti listans frá 1980, en voru í þriðja sæti árið 1979. Heildarvelta fyrir- tækisins árið 1980 var 48.896 milljónir gkróna og meðalfjöldi starfsmanna 1124. Meðallaun þeirra voru 9,3 milljónir gkróna. I níunda sæti er Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins, ÁTVR, en hún var einnig í níunda sæti árið 1979. Heildarvelta fyrirtækisins var á árinu 1980 48.000 milljónir gkróna, en ekki liggja fyrir upp- lýsingar um meðalstarfsmanna- fjölda og laun þeirra. í tíunda sæti er Olíufélagið Skeljungur hf., en félagið var einnig í tíunda sæti á listanum frá 1979. Heildarvelta fyrirtækisins var 47.000 milljónir gkróna og meðalfjöldi starfsmanna var 266. Meðallaun þeirra voru 6,9 milljón- ir gkróna. Þá má geta þess, að Mjólkur- samsalan í Reykjavík er í 11. sæti, Olíuverzlun íslands, OLÍS, í 12. sæti, Eimskipafélag íslands, Bif- röst og íslenzk kaupskip í 13. sæti, Póstur & sími í 14. sæti og Slátur- félag Suðurlands í 15. sæti. Varðandi veltutölur fyrirtækja var tekin ákvörðun um að telja veltu fyrirtækja brúttótekjur þeirra, heildartekjurnar áður en nokkur kostnaður eða umboðslaun eru dregin frá. Varðandi venjuleg verzlunar- og iðnfyrirtæki þarf ekki að fara fleiri orðum um og kaupfélög fylla sama flokk. Út- gerðarfyrirtæki og fyrirtæki, sem stunda fiskvinnslu eru oft í blönd- uðum rekstri. í þeim tilfellum hef- ur aflaverðmæti skipanna verið lagt við framleiðsluverðmæti í vinnslu sjávarfangsins. Velta sparisjóða og banka er talin brúttóvaxtatekjur auk verðbóta þeirra. Tryggingarfélög eru reikn- uð eftir bókfærðum iðngjöldum ársins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.