Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 32
Sími á ritstjórn og skrifstotu: 10100 Síminn á afgreiöslunni er 83033 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 Tíu af ellefu manna áhöfn bjargað, þegar Suðurland sökk: „ÞEIR voru blautir og kaldir og líkamshiti þeirra á niður- leið þegar við fundum þá, en ég geri ráð fyrir að þeir hressist fljótt eftir volkið. I»að er erfitt að segja fyrir um hversu lengi þeir hefðu þolað vistina í björgunar- bátnum, þar sem þeir voru léttklæddir og kaldir, en tæp- ast hefði það orðið langur tími,“ sagði Roger Whitfield, björgunarmaður á þyrlu brezka flughersins, sem bjargaði átta mönnum af áhöfn Suðurlands í gær, í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Flutningaskipid Sudurland, sem fórst við Færeyjar í gær. Skipið var í eigu skipafélagsins Nesskips hf., 1750 tonn. Ljósm.: Snorri Snorrason Tæpast hefðu þeir lifað lang- an tíma til viðbótar field björgunarmaður FOKÁTTl'BKIM var þegar nutningaskipið Suð- urland fórst um 35 mílur norður af Færeyjum um miðjan dag í gær, en 10 af II manna áhöfn skipsins var bjargað um borð í þyrlur við erfiðar aðstæður, en ölduhæðin var ámóta og þriggja ha“ða hús. l»að voru brezkir, færeyskir og dansk- ir björgunarsveitarmenn sem björguðu tíu mönnum af áhöfn Suðurlands, en einn féll út- byrðis, þegar skipverjar voru að fást við sjósetn- ingu fyrri gúmmíbjörgunarbátsins. Þyrla af danska varðskipinu Hvitabirninum bjargaði tveimur skipverjum úr gúmmíbáti, en vegna vél- arbilunar gat hún ekki náð i fleiri. Þremur klukkustundum síðar bjargaði Sea King-þyrla frá Bretlandi þeim átta sem eftir voru í björgun- arbátnum. Suðurlandið hafði fengið mikinn brotsjó á sig þannig að saltfarmurinn kastaðist til og mikil slagsiða kom á skipið. Síðustu skip- verjar frá borði urðu að synda þó nokkurn spöl að björgunarbátnum, þeim eina sem eftir var. Skipverjarnir tiu sem björguðust eru nú við góða heilsu í Þórshöfn og væntanlegir heim i dag. Færeyska skipið Tjaldrið, Hvítabjörninn og brezk Nimrod-þota héldu áfram leit til klukkan 22 í gærkvöldi að skipverjanum sem féll fyrir borð, en án árangurs. Sjá viðtöl og frásagnir í miðopnu. Vorum sjóveikir í rifnum gúmmíbáti og haugasjó segir Halldór Almarsson skipstjóri sem synti frá sökkvandi skipi sínu SKIPVERJARNIR tíu, sem björguðust af áhöfn Suðurlands við Færeyjar í gær, misstu báða gúmmibjörgunarbáta skipsins frá borði i brimsköflunum sem voru allt að sjö metra háir og við illan leik náðu þeir öðrum álbjörgun- arbáti skipsins á flot, fullum af sjó, dælduðum og skökkum eftir barning við skipshlið. Tveir siðustu skipverjanna frá borði urðu að synda í öldurótinu að björgunarbátnum og var skipið þá komið á hliðina, en síðan náðu skip- brotsmenn að róa álbátnum að gúmmíbjörgunarbáti á reki. Þar velktust þeir í liðlega þrjár klukkustundir, flestir við vosbúð og sjóveiki, i rifnum gúmmí- björgunarbáti sem skoppaði eins og korktappi í sjólagi eins og það gerist verst á Atlantshafínu. Við náðum sambandi í gærkvöldi við Halldór Alm- arsson, skipstjóra á Suðurlandinu, þar sem hann var i sjúkrahúsinu í Þórshöfn i Færeyjum og ræddum við hann um sjóslysið: „Það var rétt um kl. 1 að skipið fékk á sig sjó og lagðist þá allmikið á stjórnborða," sagði Halldór. „Ég lét þá þegar kalla í alla strákana, vekja suma, og láta þá koma upp með björgunarvesti. Við settum annan gúmmíbjörgunarbátinn á flot og ætluðum síðan að reyna að ná honum aftur upp á skipið, því við ætluðum ekki að yfirgefa það fyrr en brýn nauðsyn bæri til. En þar sem skipverjar voru að berjast í þessu við erfiðar kringumstæður, féll einn skipverja í sjóinn. Var þá þegar skorið á taug gúmmíbjörg- unarbátsins ef ske kynni að skip- verjinn gæti náð bátnum, en það gekk ekki og ekki var viðlit að snúa skipinu með þessum halla. Ég hafði reynt að rétta skipið af með því að sigla því upp, en það var ekki mögulegt og hallinn jókst sí- fellt, fyrst varð hann 45 gráður og fljótlega 60 gráður, en þetta gekk fljótt fyrir sig. Við blésum strax upp hinn gúmmíbjörgunarbátinn, en hann slitnaði frá skipinu í lát- unum og var skipið þá komið lang- leiðina á hliðina. Þá var aðeins um álbátana tvo að ræða. Sá með vél- ina var úr leik, því hann var bak- borðsmegin og ekki viðlit að sjó- setja hann og það leit ekki björgu- lega út gúmmíbjörgunarbátslausir og með hinn árabátinn stjórn- borðsmegin, því hann var hálffast- ur undir davíðunum og erfitt að fást við hann. Þar slóst hann harkalega utan í skipið og dældað- ist og lagðist saman að hluta, en það eru flot í honum svo að hann átti ekki að geta sokkið. Hann fylltist strax af sjó áður en við gát- um komið honum frá skipinu. Atta menn komust um síðir í álbátinn, þar sem hann hékk í davíðunum og ég sá um að slaka honum í sjó á meðan fyrsti stýrimaður fór upp í brú að ná í fleiri skiparakettur sem voru þar. Við syntum síðar tveir að björgunarbátnum og hófum þá að róa að síðari gúmmíbjörgunar- bátnum, sem hafði slitnað frá, en hann var með rekankeri og rak því lítið. Við náðum honum eftir tæp- lega hálfa klukkustund og ákváð- um þá að fara allir yfir í gúmmí- björgunarbátinn, þótt hann væri talsvert rifinn að ofan, bundum ál- bátinn við gúmmíbjörgunarbátinn með taug, en létum hann flakka fljótlega, því jafnvægi gúmmí- björgunarbátsins raskaðist svo við togið og var hamagangurinn þó ærið nógur fyrir. Stuttu seinna kom danska þyrl- an af Hvítabirninum og bjargaði tveimur mönnum. Jafnframt gáfu þyrlumenn bendingu um að skip væri á leiðinni, en skyggni fór þá hríðversnandi og þótt við heyrðum lengi í Nimrod-þotunni, sáum við hana ekki vegna þoku og sjóroks, unz hún kom í aðeins um það bil 100 metra hæð yfir okkur og kast- aði þá út merkjabaujum og síðan uppblásnum gúmmíbáti. Það var ótrúleg nákvæmni í þessum að- gerðum hjá þessari stóru þotu, því gúmmíbjörgunarbáturinn lenti að- eins um 20 metra frá okkur og löng taug frá honum lagðist þannig í sjóinn að okkur rak að henni og þannig náðum við bátnum, sem hafði reyndar lent á hvolfi í sjón- um. Við fórum ekki í þann bát. Þegar þetta stóð yfir, var þarna suðvestan átt, 6—7 vindstig og gekk á með rokum, en það var mik- ill sjór og þegar við vorum að lesta í Færeyjum í fyrrinótt var bál- hvasst." — Kom slagsíðan skyndilega á skipið? „Já, við fengum á okkur brotsjó og það skipti engum togum. Ég var nýkominn niður þegar þetta gerð- ist og við náðum ekki að rétta skip- ið við. Jú, þetta stóð tæpt þegar við vorum að reyna að sjósetja björg- unarbátana og þetta slys er aðeins enn eitt dæmið um nauðsyn þess að setja lokaða björgunarbáta á þessi skip. Það var slæm vist í gúmmíbjörgunarbátnum. Við vor- um fyrst 10 í 10 manna báti. Hann var rifinn að ofan og gaf inn í hann, en við náðum að halda hon- um þannig saman með handafli að Halldór Almarsson skipstjóri. hann þéttist að mestu. Flestir fóru fijótlega í álpoka og það bætti líð- an manna. Allir voru að sjálfsögðu gegnblautir og kaldir, því við höfð- um orðið að byrja á því að ausa árabátinn." — Þú varðst að synda út í ára- bátinn frá sökkvandi skipinu? „Stýrimaðurinn og ég lentum í því. Hann synti fyrst, en ég fór þá upp í brú til þess að láta Horna- fjarðarradíó vita, að við værum að fara frá borði. Jú, það var býsna mikill sjór, allt á kafi, þokuruðn- ingur, versnandi skyggni og vind var að auka þegar við fórum frá borði. Þá var sjór kominn á báta- pall og þegar ég fór úr brúnni, eftir að hafa kallað siðasta kall í tal- stöðina, varð ég að ganga á hlið- inni á kortaborðunum og klifra upp um dyrnar og út. Ég náði síðan að fikra mig niður á bátapall eftir handriði og þaðan synti ég ein- hverja tugi metra að björgunar- bátnum, þar sem strákarnir drógu mig um borð. Ég hélt satt að segja, að það yrði erfiðara að synda þessa leið, en Guðjón Armann Eyjólfsson er góður kennari og þarna skilaði sér kennslan hjá honum og undir- búningurinn í gömlu sundlauginni í Vestmannaeyjum. Jú, við skutum upp talsverðu af flugeldum, áður en Nimrod-þotan kom í ljós, en hún mun hafa miðað okkur út. Skömmu síðar kom þyrl- an og Hvítabjörninn, en það liðu upp undir þrjár klukkustundir, áð- ur en seinni lotan í björgun úr gúmmíbátnum hófst. Strákarnir voru hins vegar sallarólegir þótt kalt væri og mikið volk. Flestir urðu strax sjóveikir í þessum lát- um og var það nú ekki til að bæta ástandið, en þegar við náðum að þurrka botn bátsins að nokkru, fá okkur vatnssopa, blása upp botn bátsins og fara í álpokana, þá leið mannskapnum heldur betur. Það gekk síðan mjög vel að hífa okkur átta upp í brezku þyrluna, tók lík- lega aðeins um 20 mínútur. Á henni voru tveir flugmenn, einn björgunarmaður kom niður til okkar í blautgalla og var mest í sjónum við gúmmíbjörgunarbát- inn, þar sem hann stjórnaði hífing- um tveggja manna í einu, en um borð í þyrlunni var annar sem stjórnaði hífingu þar. Síðan var farið með okkur inn til Þórshafnar, þar sem við njótum hinnar beztu aðhlynningar og kunnum öllum björgunarmönnum, færeyskum, brezkum og dönskum, beztu þakkir fyrir. Hjúkrunarfólkið hér hefur borið okkur á höndum sér og reyndar er það eins og að vera heima hjá sér að vera í Færeyjum. Jú, það var ill tilfinning að standa gagnvart því að hafa engan björgunarbát til þess að bjarga líf- inu, eins og leit út á tímabili, en verst var að missa mann og miðað við það var þessi ógn að öðru leyti lítið atriði." - á.j.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.