Morgunblaðið - 28.03.1982, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.03.1982, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 JtttfrjjttnMafoifo SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982 Hreindýrin vel haldin eft- ir veturinn Hreindýr hafa sótt í stórum hópum niður í byggð á Austurlandi síðustu vikur, en dýrin eru af kunnugum sögð i góðum holdum miðað við árstíma og óvenju spok. í síðustu viku voru tveir 30—40 dýra hópar skammt ofan við Eskifjörð og á milli Keyðarfjarðar og Eskifjarðar, og vitað er um enn stærri hópa í nágrenninu. Myndina hér að ofan tók Fríða Proppé, blaðamaður Mbl., sl. þriðjudag rétt fyrir ofan Eskifjarðarbæ, en þar voru um 40 dýr í rólegheitum að krafsa eftir æti, og létu aðkomumenn lítið trufla sig i lífsbaráttunni. Suðurlandið tryggt á 12 milljónir kr. - nýtt skip keypt i staðinn FLUTNINGASKIPIÐ Suðurland, sem fórst norðan við Færeyjar á fimmtudag, var tryggt fyrir 1,2 milljónir dollara hjá Sjóvá, eða sem nemur rösklega 12 milljónum íslenzkra króna. Eigendur Suðurlands, Nesskip hf., hyggjast kaupa nýtt skip i stað Suður- lands og að sögn Guðmundar Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra, verður byrjað að svipast um eftir skipi í stað Suðurlands um helgina. Sjópróf fara fram í Reykjavík í byrjun vikunnar. Suðurland var elzta flutn- ingaskipið í íslenzka farskipa- flotanum, byggt í Finnlandi árið 1964. Nesskip gerir nú út eitt skip, Vesturland, en dótturfyrirtæki þess gerir út þrjú skip. Þau eru Isnes, Selnes og Akranes, en síð- astnefnda skipið er stærsta skipið í íslenzka flotanum, 7500 lestir að stærð. Það skip keypti ísskip fyrir tæpu ári. Akranes hefur verið í flutningum erlendis síðan og hef- ur ekki komið hingað til lands. Síðastliðin átta ár var Suður- land í saltfisk- og saltflutningum og þótti mjög gott og traust skip. Skipið var nýkomið frá Grikklandi og átti síðan að fara með saltfisk til Portúgal. Þar sem saltfisk- farmurinn var ekki tilbúinn til út- flutnings var ákveðið að nýta tím- ann til að ná í 1400 tonn af salti til Færeyja. Saltið átti að fara til átta hafna norðaustanlands, á Vestfjörðum og suðvestanlands. SÍF selur 270(Konn af saltfiski til Ítalíu SÖLUSAMBAND ísl. fiskframleiðenda hefur nýverið gengið frá sölu á 2.500—2.700 tonnum af saltfiski til Ítalíu, en undanfarið hefur gengið erfiðlega að selja saltfisk til Ítalíu og svo var einnig nú, að sögn framkvæmdastjóranna, Friðriks Páissonar og Valgarðs J. Ólafssonar. Starfsmenn fjölskyldudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkur: Hætta að ávísa greiðsl- um til „skjólstæðinga“ Allmikil breyting varð á kaup- endahópi SÍF nú, þar sem sumir kaupendur, sem verið hafa dyggir viðskiptamenn SIF undanfarin ár, treystu sér ekki til að taka þátt í kaupum að þessu sinni. Verðið sem fékkst á Italíu að þessu sinni er tæplega 4% lægra í Banda- ríkjadölum en sá samningur, sem gerður var við þá á síðasta ári. Afskipanir verða 800 tonn í apr- íl og maí næstkomandi og 1000 tonn í september og 900 tonn í nóvember. Að sögn þeirra Friðriks og Valgarðs, þá má ætla, að ítalski markaðurinn geti tekið við þessu magni auðveldlega og ef til vill bætt við síðar á árinu, en stöðug lækkun þeirra Evrópu-gjaldmiðla, sem skiptu okkur mestu, ylli okkur erfiðleikum í verðsamning- um. - verði fjárhagsvandinn ekki leystur fyrir 2. apríl nk. Skreiðarsamlagið vill sendi- herra með aðsetri í Nígeríu „NÉ IINA starfsmcnn þessu ástandi ekki lengur og hafa því ákveðið að verði ekki komin varanleg lausn á fjárhagsvanda FK (Félagsmálastofn- unar Keykjavíkurborgar) fyrir 2. apr- íl nk. hætti þeir að gera upp á milli viðurkenndra þarfa fólks og ávísa ekki greiðslum til skjólstæðinga." Þannig er komist að orði í yfirlýs- ingu, sem samþykkt var gegn 1 at- kvæði á fundi starfsmanna fjöl- skyldudeildar Félagsmálastofnunar Reyðarfjörður: Fasteign- ir hækka EkTIR að umræður byrjuðu fyrir al- vöru um byggingu kísilmálmverk- smiðju á Reyðarfirði, hefur fast- eignaverð þar farið hækkandi og þá sérstaklega nú eftir áramótin. Gréta Friðriksdóttir fréttaritari Morgunblaðsins á Reyðarfirði sagði í gær, að fasteignamat hefði hækkað þar um 50% á siðastliðnu ári, en tekið væri eftir því nú, að verð á íbúðum og húsum hefði hækkað töluvert meira en sem nemur þessu á síðustu mánuðum og alveg sérstaklega eftir að farið var að ræða um byggingu kísil- málmverksmiðjunnar í firðinum. Reykjavíkurborgar mánudaginn 22. mars sl. Tilefni yfirlýsingarinnar er það, að undanfarna mánuði hefur ekki verið hægt að greiða út þá fjár- hagsaðstoð, „sem samþykkt hefur verið skjólstæðingum stofnunarinnar til handa“, eins og starfsmennirnir orða það. Yfirlýsingin var send félags- málaráði Reykjavíkurborgar, sem hefur hana nú til meðferðar, en Sveinn H. Ragnarsson, forstöðu- maður Félagsmálastofnunar, hef- ur samið greinargerð um fjár- hagsstöðu stofnunarinnar, sem lögð var fram í félagsmálaráði fimmtudaginn 25. mars. Þar kem- ur fram, að hækkun á fjárveiting- um til Félagsmálastofnunar milli áranna 1981 og 1982 sé 68,7% mið- að við fjárhagsáætlun en 45,5% sé miðað við raunveruleg útgjöld. Á árinu 1981 voru þeir, sem fengu framfærslufé frá Félags- málastofnun á tímabilinu 6. janú- ar til 17. mars alls 170 en á sama tíma í ár hafa 206 fengið þaðan framfærslufé. Er talið, að fjölgun- ina megi að nokkru rekja til róðra- stöðvunar og uppsagna í frystihús- um. Á þessu tímabili hefur þeim hlutfallslega fækkað, sem hljóta lán hjá stofnuninni, en hins vegar er lánsupphæö mun hærri nú en í fyrra — hafa einstök lán hækkað að meðaltali um 111%. Ræður þar mestu, að hámarksupphæð til fyrirframgreiðslu húsaleigu var á tímabilinu hækkuð úr 8000 krón- um í 18000 krónur. „Þessari þróun hefur ráðið þröngur húsnæðis- markaður fyrir leiguhúsnæði," segir í greinargerð félagsmála- stjóra. Eins og fyrr sagði er þetta mál nú til meðferðar hjá félagsmála- ráði og ekki vitað, hvaða ákvarðan- ir verða þar teknar. Hitt er ljóst, að frá og með föstudeginum 2. apr- íl munu starfsmenn fjölskyldu- deildar Félagsmálastofnunar hætta að ávísa „greiðslum til skjólstæðinga" verði ekki komin „varanleg lausn“ á fjárhagsvanda Félagsmálastofnunar, eins og segir í yfirlýsingu starfsmannanna. Á AÐALFUNDI Iönaóarbanka íslands hf. í gær var frá því skýrt, aö Valur Valsson framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra iðnrekenda hafi verið ráðinn bankastjóri við Iðnaðarbankann í stað l’éturs Sæmundsen, sem lést i febrúar sl. í frétt frá Iðnaðarbankanum segir að hann taki við starfi í septembermán- uði nk. og jafnframt var frá því greint að Kagnari Ötiundarsyni aðstoðar- bankastjóra hafi verið falið að gegna starfi bankastjóra til sama tíma, en hann hefur gegnt bankastjórastörfum um skeið, ásamt Braga Hannessyni bankastjóra. Valur Valsson er fæddur í Reykja- vík 11. febrúar 1944, sonur hjónanna Á AÐALFUNDI Samlags skreiðar- framleiðenda, sem haldinn var fyrr í þessum mánuði, var samþykkt álykt- un þar sem skorað er á ríkisstjórnina að koma á nánara stjórnmálasam- bandi við Nígeríu með þvi að skipa sérstakan sendiherra íslands gagn- vart Afríkurikjum með aðsetri í Nig- eríu. Á síðasta ári var Nígería þriðja í röðinni yfir kaupendur afurða frá Laufeyjar Árnadóttur og Vals Gísla- sonar leikara. Valur lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1964 og kandi- datsprófi frá viðskiptadeild Háskóla íslands í janúar'1970. Hann hóf störf hjá Iðnaðarbankanum í maí 1970. Var verkefni hans þar í fyrstu stofn- un hagdeildar í bankanum, en for- stöðumaður hennar var Valur í 5 ár. Hann var ráðinn aðstoðarbanka- stjóri á árinu 1975. Gegndi hann því starfi til ársins 1979, er hann lét af störfum hjá Iðnaðarbankanum til að taka við starfi framkvæmdastjóra Félags ístenskra iðnrekenda." Eigin- kona Vals er Guðrún Sigurjónsdóttir og eiga þau einn son. íslandi, á eftir Bandaríkjunum og Bretlandi. Varðandi innflutning hingað til lands frá Nígeríu hefur nánast ekki verið um neitt slíkt að ræða. Áður en fréttir bárust frá Nígeríu um að stjórnvöld hefðu ákveðið að taka fyrir innflutning, var áætlað, að fjórðungur þorsk- afla íslendinga færi í skreiðarverk- un. Valur ValsHon Valur Valsson banka- stjóri Iðnaðarbankans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.