Morgunblaðið - 27.04.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.04.1982, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1982 Hvernig á að bregðast við þeg- ar ekið er fram af bryggju? Eftir Kristján H. Kristjánsson Á síðastliðnum árum hafa orðið nokkur dauðaslys hér á landi, þeg- ar ekið hefur verið fram af bryggj- um, en stundum hefur þó mönnum tekist að bjarga sér út úr bifreið- um, sem lent hafa í sjónum. Þegar umrædd slys verða, vakna oft ýmsar spurningar, til dæmis hvernig best sé að bregðast við, ef maður skyldi sjálfur lenda í þess háttar slysi og hvort heppi- legt sé að nota öryggisbelti við þessar aðstæður. Sumir telja að reyna eigi að koma sér út úr bif- reið strax eftir að hún hefur lent í sjónum og áður en hún sekkur. Aðrir telja hins vegar að réttara sé að bíða þangað til hún hefur sokkið til botns og allt loft farið út úr henni. Þrátt fyrir ágreining um þessi atriði, eru menn þó yfirleitt sam- mála um mikilvægi þess, að sem réttust svör fáist við þessum spurningum. Frásagnir þeirra, sem tekist hefur að bjarga sér út „Óvíst er hvort allir les- endur eru sammála því, sem hér kemur fram, Þó tel ég aö allir geti verið sammála um, aö ef gæta skal varúðar í umferðinni, þá skuli gæta sérstakrar varúðar, þegar ekið er um bryggjur.“ úr þessum slysum, hafa takmark- að gildi, vegna þess að telja má líklegt að þeir hafi verið hræddir og illa á sig komnir vegna kuldans í sjónum, er þeir voru að bjarga sér. En hætta er á því, að menn misminni um ýmis atriöi varðandi atvik, sem þeir eiga að tjá sig um eftir á, ef þeir eru undir miklu andlegu og líkamlegu álagi, er at- vikið átti sér stað. Aftur á móti hafa leiðbeiningar, sem byggðar eru á niðurstöðum tilrauna, sem felast í því að aka eða draga bifreiðir fram af bryggjum, meira gildi. Tilraunir af þessu tagi hafa ver- ið framkvæmdar í ýmsum löndum, t.d. Þýskalandi, Svíþjóð og Banda- ríkjunum. Hollendingar hafa þó lagt mesta áherslu á þess háttar tilraunir, en þar í landi er mjög algengt að bifreiðir aki út af veg- um og lendi ofan í síkjum. Nánar tiltekið var áætlað árið 1973 að um níutíu dauðaslys verði þannig ár- lega, sem er um fjögur af hundraði af heildarfjölda umferðardauða- slysa þar í landi, sem er mun hærra hlutfall en í öðrum löndum. Á fjórða tug aldarinnar voru gerðar tilraunir í Hollandi, en árið 1967 vöknuðu efasemdir um helstu niðurstöður þeirra, meðal annars varðandi það hvort loft væri eftir í bifreið, sem sokkið hefði til botns. Árið 1973 gekkst SWOV, sem er rannsóknarstofnun í um- ferðarslysum, fyrir tilraunum sem verða til umfjöllunar hér á eftir. Um þessar tilraunir var gerð mjög góð kvikmynd, sem æskilegt væri að sjónvarpið tæki til sýningar. Framkvætnd Fjörutíu og fimm bifreiðir voru dregnar fram af bryggjum, með sérstökum dráttarútbúnaði og á mismunandi hraða. Annars vegar var fallhæðin 2—4 metrar og dýpi 7—10 metrar og hins vegar var fallhæðin minni en tveir metrar og dýpið 2—4 metrar. Bifreiðir voru stundum látnar skransa eða rekast í hindranir, áður en þær skullu í sjóinn. Einungis voru notaðar farþega- bifreiðir, en um sjötíu og fimm af hundraði allra bifreiða, sem lenda ofan í síkjum árlega í Hollandi, eru af þeirri tegund. Af fjárhags- ástæðum voru ekki notaðar bif- reiðir af allra nýjustu árgerð, en samt urðu þær að uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur, t.d. máttu þær ekki vera gegnumryð- gaðar og það átti að vera hægt að opna alla hliðarglugga. Kafarar voru stundum fengnir til þess að vera í bifreiðunum, þeg- ar þær voru dregnar fram af bryggjunum. Af öryggisástæðum voru þeir látnir nota öryggisbelti og köfunartæki og dráttarhraðinn var ekki látinn vera meiri en 35 km/klst. Þeir voru látnir reyna ýmsar aðferðir til þess að komast út úr bifreið. Til þess að rannsaka hreyfingu mannslíkamans, þegar bifreið skellur í sjóinn, bæði með og án öryggisbelta, voru notaðar sér- stakar tilraunabrúður, sem eru oft notaðar við rannsóknir á umferð- arslysum. Kvikmyndatökuvél var fest aftan við þær, til þess að mynda hreyfingu þeirra. Auk þess að draga bifreiðir fram af bryggjum, voru þær einn- ig slakaðar niður á um þriggja og hálfs metra dýpi. Tilgangurinn var að rannsaka hve mikið loft héldist í þeim. Að lokum voru bifreiðir látnar renna niður skábraut í djúpa sundlaug til þess að festa á filmu ýmis mikilvæg atriði. Hvernig bifreið skellur í sjóinn Skemmdir þær sem urðu á bif- reiðunum voru sambærilegar og skemmdir sem verða við árekstur bifreiða og eftir því sem drátt- arhraðinn var meiri, því meiri skemmdir urðu og sérstaklega urðu skemmdirnar miklar þegar hraðinn var meiri en 50 km/klst. Staðsetning skemmda skiptir miklu máli, vegna þess að ef þær verða á hurðum eða þaki, þá getur verið ómögulegt að opna hurðir. Það kom einnig í ljós, að þegar bifreið skall í sjóinn, þá köstuðust Ef öryggisbelti eru ekki notuð minnka líkurnar á að sjálfsbjörgun takist. Þegar bifreið sekkur þrýstist loft út um ýmis op. Þórir S. Gröndal Sundkennsla Bréf frá henni Ameríku: með bambusstöng tökin með fótunum. Þegar ég var kominn hálfa leið, keyrði hann stöngina aftur á bak og sögu- mann ykkar á bólakaf. Eg hélt ekki að ég yrði eldri, en eftir að hafa sopið, hóstað og staðið á öndinni, tókst mér að busla að bakkanum. Þar sá ég upp undir stangarmanninn skellihlæjandi. Næstu árin skrönglaðist ég einhvern veginn gegnum tiltekin sundpróf og fékk ávallt lægstu einkunn. Aldrei tókst að kenna mér að anda tiihlýðilega á sund- inu því ég gætti þess eins og hægt var, að nasirnar færu ekki á kaf. Ég teygði hausinn eins vel upp úr og ég gat og synti svo eins og svanur! Sjálfum mér hét ég að koma aldrei nærri sundlaug á ævinni, eftir að ríkisvaldið hefði sleppt af mér hendinni og gefist upp við að reyna að kenna mér sund. um og réðust þeir óspart á okkur þessa fáu merkislausu. Útskúf- unin gekk svo langt, að stelpurn- ar hótuðu að hætta að tala við okkur nema við færum og synt- um fyrir landið. Loks fórum við, tveir af hinum merkislausu, á næstsíðasta degi út á Akranes til að gera skyldu okkar. Það var fátt í lauginni, enda komið kvöld og flestir Ak- urnesingar líklega búnir að synda. Ekki veit ég, hvernig mér tókst að komast 200 metrana á svanasundi mínu. Hvað eftir annað fataðist mér sundið og ég hóstaði og stóð á öndinni. Hélt ég um tíma, að ég myndi verða fyrsti maðurinn til að drukkna fyrir föðurlandið í þessari mik- ilvægu sundkeppni. En ég fékk merkið og var ánægður með það. Stelpurnar héldu áfram að tala við mig! Ég hefi alltaf haldið fram, að ef almættið hefði ætlast til þess að mannskepnan athafnaði sig í vatni, myndi það hafa útbúið hana með fit milli fingra og táa. Vegna þessarar skoðunar setti að mér allmikinn kvíða, þegar ég nálgaðist 10 ára aldurinn og það fréttist, að nú ætlaði skólakerfið að byrja að kenna okkur sund, svo við gætum bjargað okkur ef við dyttum í Tjörnina. Það var ekki nóg með það, að fréttirnar um yfirvofandi sund- nám væru voveiflegar, heldur bættist við, að kennslan átti að fara fram í sundlaug Austurbæj- arskólans. Það var niðurlægj- andi fyrir Vesturbæing að þurfa að þvælast alla leið austur í bæ til að læra sund, en við hverju var svo sem að búast; ekkert gott gat komið úr Austurbænum. Kennarinn var í tréklossum, hvítum léreftsfötum og með strangan svip. Hann byrjaði á því að koma inn í búningsklef- ann og heimta að allir berhátt- uðu. Síðan var hinum allsberu, niðurlútu og ósyndu Vestur- bæingum skipað að ganga í ein- faldri röð og væta fæturna í grunnri, ískaldri laug, áður en þeim var leyft að hylja nekt sína. Þessi athöfn var endurtekin á hverjum sundkennsludegi, ogget ég enn í dag ekki látið mér detta í hug, hver tilgangurinn var. Enginn virtist hafa gagn eða gaman af nema kannski kennar- inn. Námið hófst með fótaæfingum á gólfinu, en svq voru menn spenntir kútum og fengu úthlut- aðan korkbút til að halda í. í alla staði leist mér illa á blikuna. Húsakynnin ilmuðu áf lýsóli og klóri, vatnið í lauginni var skít- kalt og svo bættist við, að kenn- arinn tók sér í hönd bambus- stöng eina allmikla og tók til við að dangla í hausana á okkur. Fyrsta ídýfan var eftirminnileg og ég passaði mjög vel að sleppa ekki bakkanum. Ég var hinn mesti tossi við sundnámið. Sumir félaga minna lærðu strax á lífið í vatninu og voru farnir að kafa eins og selir eftir nokkra tíma. Þeir voru sí- fellt að hrekkja okkur skussana með því að ráðast á okkur undir „sjólínu". Ég reyndi að kíkja á hendurnar á þessum köppum til að sjá, hvort ekki væri vísir að sundfitum milli fingranna. Handhafi bambusstangar- valdsins skipaði mér eitt sinn að halda í stangarendann og ætlaði hann að draga mig yfir þvera laugina, en ég átti að gera sund- Svo liðu nokkur ár og ég var í sumarvinnu uppi í sveit. Þá tók ríkið upp á því að hrella mig enn með hótunum um sundpíningu. Landið tók sem sé þátt í fyrstu norrænu 200 metra sundkeppn- inni. Áróðurinn og þrýstingur- inn var feikilegur, sérstaklega þegar dró að lokum keppninnar. Þeir, sem lokið höfðu sundinu, fengu merki til að bera í barmin- Svo átti það eftir að liggja fyrir mér að flytjast alla leið til sólarfylkisins Flórída, vestur í henni Ameríku. Og haldið þið ekki, að ég hafi eignast þar sundlaug! Hvílík kaldhæðni ör- laganna! En ég hefi reynt að sætta mig við mitt hlutskipti. Mér hefir gengið það vel, að nú syndi ég á hverjum degi, með svanaaðferðinni auðvitað. DR6 06 KILJRN"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.