Morgunblaðið - 06.08.1982, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR
169. tbl. 69. árg.
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ítalía:
Stjórnarkreppa
nú yfirvofandi
Róm, 5. ágúst. AP.
BETTINO Craxi, leiðtogi Sósíalista-
flokksins, sagði i dag að ráðherrar úr
flokknum væru „reiðubúnir að segja
af sér“, en það hefði í for með sér fall
41. stjórnar á Ítalíu frá stíðslokum.
(íennaro Acquaviva, ritari flokks-
ins, sagði að leiðtogar hans muni hitt-
ast í fyrramálið til að ræða hvað gera
skuli í stöðunni og er talið að þeir
muni eftir þann fund tilkynna afsagn-
ir sínar.
Þessar yfirlýsingar koma í kjöl-
far þess að þingið neitaði síðastlið-
inn föstudag að samþykkja hluta
aðhaldsaðgerða ríkisstjórnarinnar
sem fólst í endurskoðun laga um
skattlagningu á dreifingu olíuvarn-
ings.
Ghotbzadeh
Sósíalistar, sem hafa u.þ.b. 10
prósent atkvæða á bak við sig, hafa
sjö af 28 ráðherrastöðum í þessari
samsteypustjórn sem mynduð er af
fimm flokkum.
Giovanni Spadolini, forsætis-
ráðherra, mun ræða við forseta ít-
alíu, Sandro Pertini, um stjórn-
arkreppu þessa á morgun.
Strípling-
ur við Hvíta
húsið
Washington, 5. ágúst. AP.
MAÐUR nokkur ók bíl
sínum á hliðið við Hvíta
húsið aðfaranótt fimmtu-
dags og þegar öryggisverð-
ir þustu að, sté bílstjórinn
út og reyndist vera kvik-
nakinn og í hinu mesta
uppnámi.
Lögreglan telur að mað-
urinn hafi ekki ætlað að
reyna að komast inn um
hliðið og ekki var hann und-
ir áhrifum neinna vímu-
gjafa að því er bezt var séð.
Hins vegar er ekki ljóst af
hverju hann var úti að aka
alstrípaður um hánótt.
Réttarhöldum frest-
að yfir Ghotbzadeh
Hádegisverður undir berum himni
Frá hátiðahöldum Grænlendinga í Narssarssuaq. Hádegisverður undir berum himni. Gestirnir gæða sér á gómsætum
réttum, þ.á m. harðfiski. Frá vinstri: Sonja krónprinsessa, Margrét Danadrottning, Jóakim og Henrik Danaprinsar og
Vigdís Finnbogadóttir forseti. Sjá frásögn bls. 2.
Begin fær „skorinorð
skilaboð“ frá Reagan
Reiði í ísrael vegna afstöðu Bandaríkjanna í Oryggisráðinu
Beirút, Tel Aviv, Moskvu, Washinglon, 5. ágúst. AP.
ÍSRAGLSKA stjórnin kom saman til fundar í kvöld að
kanna boð sem Yitzak Shamir, utanrikisráðherra ís-
raels, bar frá Bandaríkjunum. Shamir sagðist flytja
stjórninni skilaboð Bandaríkjastjórnar, sem væru
„skorinorð og ótvíræð, en ekki ógnandi" eins og hann
komst að orði. Fjöldi manna safnaðist saman fyrir
utan húsið þar sem ríkisstjórnarfundurinn var hald-
inn. Fólk hélt á logandi kertum og bar spjöld sem á
var skráð m.a.: „Hvers vegna erum við í Líbanon" og
„Stöðvum drápin'*. Rithöfundurinn Amos Oz flutti
ávarp og sagði að ísraelar yrðu að horfast í augu við
vcruleikann; hvað sem liði Begin og Arafat væri land
Gyðinga og Palestínumanna beggja tveggja.
Fréttamönnum þótti þó sem Shamir væri nokkuð
brugðið eftir þær viðtökur sem hann hlaut í Bandaríkj-
unum og almenn gagnrýni á gjörðir ísraela virðist
hafa komið honum nokkuð á óvart. Shamir sagði þó að
aðilar hefðu orðið sammála um ýms atriði, m.a. að
ísraelar hyrfu með lið sitt frá Beirút, en hann sagði
ekki hvenær það yrði og í kvöld benti ekkert til að
neinir liðsflutningar væru í vændum.
í ísrael gætir mikillar undrunar og gremju með þá
ákvörðun Bandaríkjamanna að sitja hjá við atkvæða-
S’reiðslu í Öryggisráðinu í gærkvöldi, þar sem aðgerðir
sraela voru fordæmdar.
Nikosía, 5. ágúst. AP.
RETTARHÖLDUM hefur verið
frcstað í TeiærSiT yfir Sadegh
Ghotbzadeh fyrrverandi utanríkis-
ráðherra írans, en hann hefur verið
ákærður fyrir að hafa verið viðriðinn
samsæri um að myrða Khomeini
erkiklerk. Teheran-útvarpið skýrði
frá þessu í kvöld, fimmtudag, og
sagði að nauðsynlegt væri aö rann-
saka fleiri gögn um málið og huga að
„fjármálahlið þess svo og hinni sið-
ferðilegu" en ekki var það útskýrt
nánar.
Réttarhöldin höfðu verið
fyrirhuguð í byrjun júli, en var þá
frestað um nokkrar vikur og hefur
nú enn ný frestun verið ákveðin eins
og áður segir.
Útvarpið hafði eftir saksóknara
Irans, Musavi Tabrizi, að Ghot-
bzadeh myndi vissulega verða
leiddur fyrir rétt og dæmdur eftir
gerðum sínum. Tabrizi sagði að úr
skæruliðasamtökunum Mujahe-
deen Khalq væri nú allur vindur,
enda hefðu byltingarverðir hand-
tekið þá unnvörpum upp á síðkast-
ið. Hefðu fundizt i fórum þeirra
skjöl sem sýndu að þeir hefðu set-
ið á svikráðum við islamska lýð-
veldið og þeim hefði verið refsað
— þ.e. líflátnir — í samræmi við
það. Mujahedeen Khalq hafa haft
sig mjög í frammi og hafa komið
fyrir kattarnef um eitt þúsund
klerkum og stjórnmálamönnum,
síðan Khomeini komst til valda.
Ekki hefur það bætt ástandið að
háttsettir embættismenn í tsrael,
með Ariel Sharon, varnarmála-
ráðherra í fararbroddi, hafa sakað
Philip Habib, sáttasemjara
Bandaríkjamanna, um að halla
réttu máli í skýrslum um fram-
vindu stríðsins. Og í kvöld krafðist
Reagan Bandaríkjaforseti þess að
ísraelar færu umsvifalaust á brott
frá vesturhluta Beirút. Þótti
mörgum það benda til að þolin-
mæði Bandaríkjamanna væri
þrotin, þar sem slík krafa hafði og
verið sett fram á fundunum með
Shamir eins og fyrr sagði. Tiltölu-
lega kyrrt var í Beirút í dag miðað
við síðustu daga og Habib ræddi
m.a. við líbanska forystumenn.
Hann mun m.a. hafa rætt það boð
Palestínumanna að þeir skyldu
fara frá Beirút á næstu þremur
vikum, yrði þeim tryggt frítt leiði
til Sýrlands.
Talsmaður PLO, Abu Sharif,
ítrekaði við fréttamenn, að PLO
myndi standa við heit sín en hins
vegar hefðu ísraelar svikið öll sín
heit og heldur hert umsátrið.
Leonid Brezhnev forseti Sovét-
ríkjanna sendi Arafat, formanni
PLO-skeyti, þar sem hann lýsir yf-
ir eindregnum stuðningi við Pal-
estínumenn. í skeytinu fer
Brezhnev mörgum orðum um
hugrekki Palestínumanna á erfið-
um tímum og sakar ísraela um
þjóðarmorð. TASS-fréttastofan
sagði að Brezhnev hefði einnig
sent Reagan Bandaríkjaforseta
skeyti, þar sem hann ásakaði hann
um að vera ekki nógu afdráttar-
laus í þeirri kröfu að ísraelar
linntu umsátrinu um Beirút.
Sjá ennfremur bls. 15, „Andúð
vaxandi í garð ísraela".
Fallhlífar-
stökk í fjár-
öflunarskyni
Aldershot, Knglandi, 5. áffúst AP.
EKKJA brezks hermanns sem
féll á Falklandseyjum stökk i
dag 610 m hátt fallhlifarstökk í
þeim tilgangi að safna fé handa
fjölskyldum sem misstu heimil-
isfeðurna í striðinu um Falk-
landseyjar.
Kona þessi, Shirley Sullivan,
hefur aðeins einu sinni stokkið
fallhlífarstökk áður og þótti
sjónarvottum henni takast vel
upp. Hún sagðist vonast til að
safna sem svaraði um þúsund
sterlingspundum með þessu
eina stökki, því að hún hefði
fengið loforð frá fjölmörgum
þess efnis, og þótt margir
hefðu efast um að henni lánað-
ist stökkið eða léti verða af því,
myndu þeir án efa greiða um-
samið fé.
4
Tveir ísraelskir hermenn i bardaga við bermenn PLO akanunt frá þvi svæði
sem skiptir Beirút í austur- og vesturhluta. Hermaðurinn til vinstri á
myndinni hefur orðið fyrir skoti og er að hníga til jarðar. Myndin var tekin i
gær.