Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR 253. tbl. 69. árg. FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982 _____________Rrentsmiðja Morgunblaösins Edward M. Kennedy Snekkja Kennedys týnd? Aþenu, II. nóvember. AP. KKKKKT talstoAvarsamhand hef- ur verið viA gríska lystisnekkju, sem bandaríski þingmaðurinn Kdward M. Kennedy hefur á leigu, síðan í gær, en hún er á ferð um grísku eyjarnar, samkvæmt heimildum grískra hafnaryfir- valda á eyjunni Santorini. Talsmaðurinn sagði, að ekk- ert hefði heyrst til snekkjunnar frá því hún lét úr höfn í Ios síðdegis í gær, en þar hafði hún leitað skjóls fyrir veðri og vind- um í u.þ.b. fimmtán klukku- stundir. Hins vegar taldi tals- maðurinn ekki ástæðu til að hafa áhyggjur að sambands- leysi þessu: „Ef eitthvað hefði verið að, vissum við það nú þeg- ar,“ sagði hann. Snekkjan mun hafa lagt upp frá eyjunni Ios í gær og hafi þá verið ráðgert að koma næst til hafnar á Santorini, sem er í um 33ja kílómetra fjarlægð frá Ios. Hafnaryfirvöld telja ástæðuna fyrir því að ekkert hafi til snekkjunnar spurst vera þá, að hún hafi lagst í var við óbyggðar eyjar í nánd við Ios til að bíða af sér veður og vinda. Kennedy mun hafa komið til Grikklands um síðustu helgi í leyfi og samkvæmt heimildum frá Milos, þar sem hann gekk á land fyrr í vikunni, voru með honum í för fimm manns, sem eyjarskeggjar báru ekki kennsl á. Talsmaður bandaríska sendi- ráðsins í Aþepu sagði í kvöld, að sér hefði verið ókunnugt um þessa ferð Kennedys og þekkti hann því ekkert til málsins. Valdabarátta sögð hafin eftir lát Brezhnevs; Ekki búist við stefiiu- breytingu fyrst í stað Moskvu, II. nóvember. Al*. LEONID I. Brezhnev forseti Sov- étríkjanna lést í gær eftir átján ár við völd. í yfirlýsingu sem birt var af stjórnmálaráði kommúnistaflokks- ins og leiðtogum ríkisstjórnarinnar segir að tryggt verði „að stefnunni, sem mótuð var af Leonid I. Brezhn- ev í málum innanlands og utan, verði framfylgt sem áður eftir lát hans“. Banamein hans var hjartaslag, samkvæmt skýrslu lækna. Þar kemur einnig fram að hann hefur þjáðst af hjartaveilu um nokkurn tíma og nokkrum sinnum áður fengið slag. Talið er að mikil valdabarátta geisi nú í Kreml, en miðstjórn Kommúnistaflokksins mun kjósa nýjan flokksformann og forsætis- nefnd Æðsta ráðsins velja nýjan forseta. Arftakar Brezhnevs gæta þess þó vandlega að sýna einhug á ytra borðinu. í Washington er tal- ið að ekki verði mikil stefnubreyt- ing í utanríkismálum eftir fráfall Brezhnevs og að arftakarnir muni fylgja gætinni utanríkisstefnu, a.m.k. fyrst í stað. Líklegustu eftirmenn Brezhnevs eru taldir Yuri V. Andropov, sem er 68 ára að aldri og fyrrverandi yfirmaður sovésku leyniþjónust- unnar KGB, og Konstantin U. Chernenko, 71 árs gamall og náinn vinur Brezhnevs í þrjá áratugi. Sumir fréttaskýrendur hafa einng nefnt Viktor V. Grishin, leiðtoga kommúnistaflokksins í Moskvu, sem hugsanlegan eftirmann ef um einhvers konar málamiðlun yrði að ræða. Þangað til eftirmaður Brezhn- evs hefur verið valinn, telja vest- rænir fréttaskýrendur að samvirk forysta sitji að völdum og verði skipuð einhverjum fulltrúum úr tólf manna stjórnmálaráði flokks- ins. Talið er að þar verði um að ræða Dmitri F. Ustinov varnar- málaráðherra, Nikolai A. Tikh- onov forsætisráðherra og utan- ríkisráðherrann, Andrei A. Grom- yko. Jarðneskum leifum Leonid I. Leonid I. Brezhnev á Kauða torginu síðastliðinn sunnudag. Brezhnevs mun verða komið fyrir á viðhafnarbörum á Rauða torg- inu á morgun og er ráðgert að út- för hans verði gerð næstkomandi mánudag við mikla viðhöfn. Einn- ig var fyrirskipuð í dag fjögurra daga þjóðarsorg í landinu. Rólegt er í Moskvu og á það lögð áhersla að sýna að allt sé með kyrrum kjörum. Það vakti mikla athygli vestrænna stjórnarerind- reka í dag hversu lítið var um viðbrögð Moskvubúa við andláts- fregninni, en dauði Brezhnevs hef- ur verið harmaður hvarvetna í Austantj aldslöndum. Sjá nánar um líklegasta eftirmann Brezhnevs og viðbrögð austan tjalds og vestan á bls. 14 og 15. Þetta er fyrsta opinbera myndin sem birt var af Leonid I. Brezhnev, eftir að tilkynnt var um andlát hans í dag. Sprenging í herbúðum ísraela í S-Líbanon Týrus, Líbanon, II. nóvember. ÁP. GIFURLEG sprenging lagði i rust byggingu ísraelsku herstjórnarinnar í suður-líbönsku borginni Týrus í morgun og grandaði a.m.k. fimmtán Aröbum og nokkrum ísraelskum hermönnum, samkvæmt heimildum ísraelsks yfirmanns í dag. ísraelska útvarpið birti fregnir þess eðlis, að 40 ísraelskir hermenn hefðu særst. ísraelar neituðu að gefa upplýs- ingar um hversu margir liðsmenn þeirra hefði látið lífið í sprenging- unni og báru fyrir sig að fyrst yrði að hafa upp á aðstandendum þeirra. Walesa látinn laus fljótlega \arsjá, 11. nóvember. AP. LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu sem hefur verið i stofufangelsi undanfarna ellefu mánuði að skipun herlagayfirvalda, mun verða látinn laus á næstu dögum, samkvæmt heimildum stjórnvalda í dag, en þessi ákvörðun var tekin eftir að Walesa bauðst til að „hjálpa til við að finna lausn“ á vandamálum Danuta W'alesa ásamt dótturinni Mögdu, þar sem þær virða fyrir sér mynd af Lech á heimili þeirra í Gdansk. I’óllands. Tilkynning stjórnvalda um að Walesa yrði innan skamms látinn laus, sem birt var í fréttum pólska útvarpsins síðdegis í dag, dugði ekki til að lægja þær reiðiöldur sem risið hafa í Varsjá og Krakow og víðar í landinu og lögregla dreifði í dag þúsundum manna sem hrópuðu „Walesa er frjáls". Þessi mótmæli voru ekki síður víðtæk en mótmælin í gær. Talsmaður stjórnvalda, Jerzy Urban, kallaði vestræna frétta- menn til fundar við sig í dag og tjáði þeim þessa ákvörðun stjórn- valda og sagði að Walesa hafi ritað Jaruzelski bréf þar sem hann býðst til að koma til móts við stjórnvöld og hafi hann þar lagt til að honum gæfist tækifæri til að ræða við stjórnvöld um vandamál Póllands í verkalýðsmálum. „Ég legg til að haldinn verði fundur þar sem þessi málefni verði rædd. Það liggur ljóst fyrir að hægt er að komast að niðurstöðu með góðum vilja beggja aðiia," sagði Walesa í bréfi sínu til stjórn- valda, sem Urban las upp úr í dag. Hann sagði að í framhaldi af þessu bréfi, sem ritað er 8. nóvember síð- astliðinn, hafi Czeslaw Kiszczak innanríkisráðherra komið að máli við Walesa og hafi hann síðan skip- að að Walesa yrði látinn laus úr einangruninni. Danutu Walesa var ókunnugt um að stjórnvöld hefðu skipað að mað- ur hennar yrði látinn laus úr stofu- fangelsinu, þegar haft var sam- band við hana á heimili þeirra hjóna í dag, og sagði hún einungis: „Éf það er satt, þá er ég ánægð.“ Þrír líbanskir björgunarmenn, sem komu í dag frá Sidon, norður af Týrus, sögðu að 60 manns hefðu látið lífið og hefði þeim virst sem flestir þeirra hefðu verið ísraelsk- ir hermenn. Gonen, talsmaður ísraelska hersins í Sidon, sagði: „Það létust nokkrir ísraelar, svo mikið er víst.“ ísraelar telja að sprenging þessi hafi átt upptök sín í nærstaddri bifreið er sprakk í loft upp, og síð- ar í dag var haft samband við frönsku fréttastofuna í Beirút og lýsti hópur sem kallar sig „Vopn- aðan baráttuhóp“ ábyrgð á hendur sér og varaði við því, að fleiri slik- ar sprengingar á búðir ísraela væru í bígerð. Tilgangur með sprengingum þessum væri að reyna að koma ísraelskum her- mönnum af líbönskum landsvæð- um. Ekki mun ljóst hvort ísraelski hermálastjórinn, Sharaf, var í byggingunni er sprengingin átti sér stað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.