Morgunblaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1982 Stór rafmagnsverk í innlendar hendur I»ann 22. desember árið 1922 negldi Kiríkur Ormsson upp svohljóðandi skilti á húsnæði sem hann hafði til umráða á Oðinsgötu 25: Rafvéla- og mælaviðgerðir Eiríkur Ormsson Þar með var stigið fyrsta sporið á langri vegferð fyrirtæk- isins Bræðurnir Ormsson, sem í dag heldur upp á 60 ára afmæli sitt. Fyrirtækinu var gefið nafn- ið Bræðurnir Ormsson árið 1923, þegar bróðir Eiríks, Jón Ormsson, gerðist meðeigandi þess. Eiríkur er á lífi í dag, 95 ára gamall og ern, en Jón lést fyrir nokkrum árum. Starfsemi fyrirtækisins hefur breyst nokkuð í tímans rás. Fyrir stríð var snarasti þáttur- inn í rekstri fyrirtækisins raf- væðing sveitanna ásamt við- haldi í skipum. í dag er starfs- emin margbreyttari. í veglegum húsakynnum fyrirtækisins að Lágmúla 9 í Reykjavík, sem fyrirtækið á 51% í, eru starf- ræktar tvær verslanir, heimilis- tækjaverslun og varahlutaversl- un. Þar eru einnig skrifstofur, vörulager og viðgerðaverkstæði. Fyrirtækið hefur fjölda um- boða, m.a. fyrir AEG-Telefunk- en, sem er eitt af tveimur stærstu fyrirtækjum í raf- magnsiðnaði í Þýskalandi, og það er einnig umboðshafi stór- fyrirtækisins Robert BOSCH, sem framleiðir einkum dísildæl- ur fyrir bíla og skip, ásamt rafmagnshlutum fyrir bifreiðar. Þá flytja Bræðurnir Ormsson h/f inn röntgentæki og vörur þeim tengdar, og vöru- og fólks- lyftur, ásamt því að annast upp- setningu og viðhald þeirra. Hjá Bræðrunum Ormsson h/f starfa nú 35 manns. Framkvæmdastjóri Bræðr- anna Ormsson h/f er sonur Eir- íks Ormssonar, Karl Eiríksson. Blaðamaður Mbl. rabbaði við Karl á dögunum um fyrirtækið að fornu og nýju, og fer það spjall hér á eftir: Hver var aðdragandinn að því, Karl, að fyrirtækið var stofnað á sínum tíma? „Það má rekja forsögu fýrir- tækisins aftur til ársins 1913. Þannig var að hinn mikli at- hafnamaður í rafmagnsmálum íslendinga, Vestur-Skaftfelling- urinn Halldór Guðmundsson, varð við þeirri málaleitan Helga Þórarinssonar, bónda í Þykkva- bæ í Landbroti, að raflýsa heim- ili hans. Þetta varð til þess að vekja nokkra áhugamenn í Vík- urkauptúni, og fengu þeir Hall- dór til að athuga Víkurá með raflýsingu kauptúnsins í huga. Og það er skemmst frá því að segja, að það endaði með því að Halldór raflýsti kauptúnið, utanhúss og innan, árið 1913. Á árunum um og eftir 1910 höfðu bræðurnir Jón og Eiríkur Ormssynir unnið í Vík og sveit- unum í kring, hvor við sína iðn, skósmíði og trésmíði. Höfðu þeir nýlokið sveinsprófi í þessum greinum þegar raflýsing Víkur- kauptúns var að hefjast. Ger- ðust þeir bræður aðstoðarmenn Halldórs Guðmundssonar við þetta verk og hófu þar með framtíðarstarf sitt. Og næstu Karl Eiríksson forstjóri árin unnu þeir svo hjá Halldóri sem verkstjórar við rafvæðingu húsa og kauptúna, ýmist í Reykjavík eða úti um land. Þeir bræður reistu saman hús við Baldursgötu 13 og Óðinsgötu 25 árið 1920. Höfðu þeir lítinn verkstæðiskrók Óðinsgötumegin í húsinu og unnu á kvöldin við að breyta gaslömpum og gas- ljósakrónum í rafmagnsljós- tæki. Jókst slík vinna mjög þeg- ar rafstöðin við Elliðaár tók til starfa árið 1921. En virkjun Elliðaánna vakti menn til meðvitundar um það að hérlendis vantaði alveg kunn- áttumenn í viðgerðum rafvéla og vindingu þeirra. Eiríkur Ormsson vakti þá máls á því við Bræðurnir Ormsson hf. 60 ára í dag Auk viðgerða og nýlagna í hús og skip, var farið út í minni háttar iðnað, svo sem fram- leiðslu á skipalömpum og ljós- kösturum. Þeir bræður skiptu þannig með sér verkum, í stór- um dráttum, að Jón sá um ný- lagnir og viðgerðir í bænum, en Eiríkur um verkstæðisvinnuna. Eitt af fyrstu húsunum sem Jón lagði rafmagn í var Dómkirkjan í Reykjavík. Hins vegar var á þessum ár- um almennur rekstrarfjárskort- ur meðal manna, bæði til sjávar og sveita. En það þýddi fyrir þjónustufyrirtæki eins og Bræð- urna Ormsson, að oft þurfti að ljúka verkum áður en innheimta gat farið fram. Vildu því safnast fyrir útistandandi skuldir. Fyrirtækið keypti allar vélar og ýmislegt efni í rafstöðvar frá Þýskalandi, og skuldaði þýskum fyrirtækjum oft talsverðar upp- hæðir vegna vanskila viðskipta- manna innanlands. Svo þegar það gerist á árunum 1931—32 að þýska markið hækkar um 50% gagnvart íslensku krónunni, var það augljóslega mikið áfall fyrir fyrirtækið. Þeir tóku því þá ákvörðun að draga reksturinn saman eftir því sem við yrði komið, og árið 1932 selur Jón Eiríki sinn hlut í fyrirtækinu og hefur sjálfstæðan atvinnurekst- ur.“ Fyrirtækið skiptir um húsnæði árið 1936, er það ekki? „Jú, þá fluttist starfsemin frá Óðinsgötunni í Vesturgötu 3, sem var ólíkt betri staður í bæn- um. Það má kannski segja að kaupin á Vesturgötu 3 hafi verið síðasta tilraun til að rétta við hag fyrirtækisins. En hagur þess var mjög bágborinn þegar þarna var komið sögu, bæði vegna kreppunnar og eins vegna ráðstafana ríkisvaldsins, sem leiddu til þess að greiðslur bænda og útgerðarmanna féllu niður að mestu leyti. Það tókst nú einhvern veginn að greiða fyrstu útborgun á til- skildum tíma, og fór upp úr því heldur að lifna yfir rekstrinum. Eftirspurnin eftir efni og vinnu glæddist stöðugt og gaf tilefni til að auka nokkuð við starfslið- ið, enda jókst velta á árinu 1937 um full 60% miðað við árið áður. Var nú stefnt að því að endur- vekja og auka nokkuð við iðnað- inn, þar á meðal við smíði ljósa- véla (rafla) fyrir bátaflotann. Og fyrir landsbyggðina var farið að smíða litlar ljósavélar, svonefnda „dverga", sem gengu ýmist fyrir vind- eða vatnsafli." En svo skellur heimsstyrjöldin á. Hvernig gekk rekstur fyrirtæk- isins á stríðsárunum? Um það leyti sem síðari heimsstyrjöldin braust út, má segja, að fyrirtækið væri komið á nokkuð traustan grundvöll, og innflutningur var þá orðinn drjúgur þáttur í rekstrinum. En í stríðinu lokuðust öll sambönd út á við, sem voru nær eingöngu bundin við Þýskaland, eins og alltaf hafði verið. Var því um sinn ekki á annað að treysta en vinnuna, aðallega á verkstæði. Það veitti fyrirtækinu nokk- urn stuðning að vegna margvís1 legra truflana sem styrjöldin olli, voru margir hlutir oft sein- fengnir eða alveg ófáanlegir er- lendis frá, og ýtti það undir að reyna að bjarga málunum hér Halldór Guðmundsson hvort fyrirtæki hans hefði ekki áhuga á að setja upp viðgerðaverk- stæði. Halldór vildi ekki skuldbinda sig til þess, en bauðst hins vegar til að lána Eiríki fé til að fara til Danmerkur og læra vélavind- ingar, svo hann mætti sjálfur setja upp eigið verkstæði. Og eftir ýmsar sviptingar, sem of langt mál yrði að rekja, tókst Eiríki að setja á fót fyrirtækið árið 1922.“ Þeir hafa haft nóg að gera, bræðurnir, á þessum fyrstu árum fyrirtækisins? Já, þeir fengu verkefni úr ýmsum áttum. Og starfsemin varð fljótlega nokkuð fjölbreytt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.