Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 1
96 SIÐUR 273. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Pólland: Hafna hafrétt- arsáttmála SÞ London, 4. desember. Al*. MALCOLM Kifkind. aðstoöarutanrík- isráðherra Bretlands, hefur skýrt svo frá, að brezka stjórnin muni ekki und- irrita hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Aður hafa Bandaríkjamenn hafnað sáttmálanum, sem lokið var við hjá Sameinuðu þjóðunum fyrir 8 mán- uðum. Rifkind skýrði frá ákvörðun brezku stjórnarinnar í umræðum í neðri deild brezka þingsins fyrir fá- einum dögum. Sagði hann þar m.a., að Bretar gætu ekki samþykkt haf- réttarsáttmálann í núverandi mynd, því að skilmálar hans væru byggðir á óæskilegum reglum og gætu skap- að óheppileg fordæmi. Mörg vina- og bandalagsríki Breta væru einnig sama sinnis. Hafréttarsáttmálann á að stað- festa í Kingstown á Jamaica 10. des- ember nk. Líðan gervi- hjartaþeg- ans fram- ar vonum Jaruzelski bodar að slakað verði á klónni Varsjá, 4. desember. Al\ JARUZELSKI hershöfðingi og leið- togi hcrstjórnarinnar í Póllandi sagði í ræðu í gær, að hann hefði Líbanon: Enn barist í miðhálendinu Beirút, 4. desember. Al\ KKISTNIR hægrimenn og vinstrisinn- aðir Drúsar börðust áfram í fjalllend- inu sem Israelar hafa á valdi sínu suð- austur af Beirút i dag, samkvæmt upp- lýsingum ríkis- og einkarekinna út- varpsstöðva. hvatt þingið til að leggja drög að því að aflétta herlögum. Hann réðst jafnframt mjög harkalega á Banda- ríkjastjórn og hótaði því að tak- marka verulega öll samskipti milli þjóðanna. Jaruzelski lét þessi orð falla í ræðu, sem hann flutti á hátíðis- degi námaverkamanna í Suður- Póllandi, en hann hefur ekki setið fundi pólska þingsins, sem kom saman sl. föstudag. A því er verið að ræða efnahag landsins, sem er í rúst, og annan samkomudag þingsins, 13. desember nk., en embættismenn hafa margir gefið í skyn, að þá verði nokkuð slakað á herlögunum. Þessi mynd var tekin við messu í Gdansk sl. sunnudag og er Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, fyrir miðri myndinni. Kirkjan er sameiningartákn þjóðarinn- ar og á meiri itök í hjörtum Pólverja en aðrar þjóðfélagsstofnanir. Banatilræðið við páfa: Salt Lake City, l'tah, 4. desember. Al\ HEILSA gervihjartaþegans er nú betri en nokkur þorði að vona, hann er far- inn að sitja uppi og spjalla við eigin- konu sína og svo virðist sem honum fari stöðugt fram, að því er haft er eftir læknum hans í dag. Sjúklingurinn, Barney Clark, sem er 61 árs að aldri, er fyrstur manna til að þiggja gervihjarta úr áli, en læknar sáu ekki aðra lausn á kvilla hans. Líðan hans mun vera eftir at- vikum góð og læknir hans sagði í dag: „bað eru engin ákveðin einkenni sem við erum að bíða eftir núna, við óskum honum einungis vaxandi styrkleika." Igræðsla gervihjartans fór fram aðfaranótt fimmtudags og tók hún sjö klukkustundir. Hann er fyrstur manna til að þiggja gervihjarta til frambúðar, en áður hafa gervihjörtu af svipaðri gerð og þetta verið grædd í menn meðan þeir hafa beðið eftir hjartaflutningi. Læknir hans sagði í dag, að hjart- að gengi „sérlega vel“ og var hjart- sláttur Clarks um 85 slög á mínútu. ísraelar munu hafa stöðvað alla umferð til héraðanna, en ekki var ljóst hvort um manntjón var að ræða. Sex manns létu lífið í bardög- um á sömu slóðum á föstudag. Meira en 90 manns hafa nú látið lífið í bardögum Drúsa og kristinna hægrimanna á síðastliðftum fimm vikum. Þessir síðustu bardagar brutust út í kjölfar beiðni líbanskra stjórn- valda um aukinn erlendan liðsstyrk í friðargæslusveitirnar til að bardag- ar á miðhálendinu verði stöðvaðir og til að aðstoða stjórnvöld við brott- flutning ísraelskra, sýrlenskra og palestínskra hermanna úr landinu. Eiie Salem utanríkisráðherra Líb- anon bað í gær sendiherra Brasilíu, Portúgal og Columbíu að senda tvö þúsund manna liðsauka í friðar- gæslusveitirnar, en stjórnvöld höfðu þegar farið fram á það við stjórnir Frakklands, Bandaríkjanna og Ítalíu að þær sendu aukinn liðsstyrk. „Fyrirhugað er stórt en um leið varkárt skref í átt til eðlilegs ástands," sagði Jaruzelski og eru þau orð hans túlkuð þannig, að herlögum verði aflétt „til bráða- birgða" á pólskum vinnustöðum en verkamenn hafa verið undir her- aga í heilt ár til að koma í veg fyrir verkföll. Haft er eftir heim- ildum í pólska þinginu, að 13. des- ember verði tilkynnt, að herlögin gangi úr gildi um áramót. Mál- gögn kommúnistaflokksins hafa hins vegar varað við því, að slakað verði á klónni og segja, að eins víst sé þá, að herlögum verði að koma á aftur. í ræðu sinni hellti Jaruzelski sér yfir Bandaríkjastjórn vegna af- stöðu hennar til herstjórnarinnar, sakaði hana um „ofbeldisfullar ofsóknir" og efnahagslegar refsi- aðgerðir, sem gerðu pólskum ráða- mönnum lífið leitt. Italskir lögreglumenn leita annars Búlgara Kóm, 4. desrmber. AP. ÍTALSKA lögreglan hefur gefið út handtökutilskipun á fyrrverandi starfsmann búlgarska sendiráðsins í Róm vegna banatilræðisins við Pál páfa í maí í fyrra. Það var ítalska fréttastofan Ansa, sem greindi frá þessu, og í gær, föstudag, staðfesti talsmaður lögreglunnar fréttina. Hér er um að ræða annan Búlgarann, sem ítalska lögregl- an grunar um þátttöku í morð- tilræðinu við páfa, en í fyrri viku handtók hún stöðvarstjóra búlg- arska ríkisflugfélagsins á flug- vellinum í Róm, Sergei Ivanov Antonov að nafni. Að sögn lög- reglunnar átti hann mikinn þátt í skipulagningu árásarinnar á páfa. Ansa-fréttastofan hefur það eftir ónafngreindum embættis- mönnum, að Búlgarinn, sem nú er sóst eftir, heiti Vassiliev Juel- io Kolev og hafi hann starfað í búlgarska sendiráðinu fyrir misseri. Ekki var þess getið hvaða stöðu hann gegndi. Fréttir eru um, að hann sé nú kominn til Búlgaríu. Italska lögreglan hefur nú sakað sjö menn um að hafa verið í vitorði með Ali Agca, Tyrkjan- um, sem skaut á páfa, en hann heldur því fram, að hann hafi verið einn að verki. Fimm þess- ara manna eru Tyrkir. Búlgarska sendiráðið í Róm mótmælti í fyrri viku handtöku Antonovs en hefur ekkert látið frá sér fara að þessu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.