Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
151. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Walesa
hótað
brott-
rekstri
Varsjá, 6. júlí. AP.
LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, sam-
taka hinna frjálsu verkalvðsfélaga í
Póllandi virti í dag að vettugi boð yfir-
manna sinna, er hann sneri ekki aftur
til vinnu innan tilskilins tíma úr
sumarleyfi þvi, sem hann á að hafa
tekið sér án lcyfis. Lýsti Walesa þv(
yfir, að hann myndi halda áfram orlofí
sínu, nema því aðeins að hann yrði
„fíuttur til baka með valdi“. Talsmað-
ur vinnuveitanda Walesa sagði hins
vegar, að svo gæti farið, að hann yrði
rekinn úr starfi.
„Walesa á á hættu að verða rekinn
fyrir agabrot," sagði talsmaðurinn,
Danuta Oczki, sem er starfsmanna-
stjóri við skipasmíðastöðina í
Gdansk, þar sem Walesa hefur unnið
sem rafvirki. „Fjarvera hans frá
vinnu er alvarlegt brot á starfsregl-
um verkamanna."
Sjálfur sagði Walesa í viðtali við
vestrænan fréttamann í dag, að
hann hefði verið viðbúinn einhverj-
um hefndaraðgerðum af hálfu ráða-
manna við skipasmíðastöðina. „Þeir
báðu nokkra menn úr minni deild,
sem áttu að fara í sumarleyfi í ágúst,
að taka orlof sitt i júlí,“ sagði Wal-
esa. „Allir þessir menn höfnuðu því
og héldu fast við þá ákvörðun sína að
fara heldur í ágúst. Þetta sýnir, að
fjarvera mín er aðeins notuð sem yf-
irvarp, þegar hótað er að reka mig
Sýrland:
Koma Shultz
árangurslaus
Segir enga lausn í Líbanon í sjónmáli
Jerúsalem, 6. júlí. AP.
GEORGE P. Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tókst ekki að fá
sýrlenzk stjórnvöld til að kanna möguleikana á að flytja her sinn frá Líban-
on. Var frá því skýrt í Damaskus í dag, að fyrri afstaða sýrlenzkra stjórn-
valda í þessu efni stæði óbreytt og væri óhagganleg. Þar sem Shultz tókst
ekki ætlunarverk sitt í Sýrlandi, er nú talin mikil hætta á, að ekkert verði úr
framkvæmd á samkomulagi því, sem áður haföi náðst milli Líbanons og
ísraels um brottflutning ísraelshers frá Líbanon.
Lyfta bjálka
Hermenn úr friðargæzlusveitum Frakka í Líbanon lyfta bjálka úr
fjögurra hæða byggingu, sem hrundi til grunna í Beirút í gær. Ekki
er vitað um fjölda þeirra, sem misstu lífið eða slösuðust, en útvarp-
ið í Libanon sagði, að fimm líbanskir verkamenn og tveir franskir
hermenn hefðu beðið bana.
Sjá frétt á bls 22.
Shultz átti fimm klukkustunda
fund með Hafez Assad Sýrlands-
forseta, þar sem hann reyndi að fá
þann síðarnefnda til þess að fall-
ast á áætlun Bandaríkjastjórnar
um brottflutning allra erlendra
herja frá Líbanon. Þá hélt Shultz
einnig margra klukkustunda fund
með Abdul-Halim Khaddam,
utanríkisráðherra Sýrlands, í
sama skyni. Þreyttur og vonsvik-
inn viðurkenndi Shultz að lokum,
að enginn árangur hefði náðst.
„Við ræddum um öll grundvallar-
atriði málsins," sagði hann, „en
náðum alls engu samkomulagi um
þetta samkomulag". Skírskotaði
hann þar til samkomulags þess,
sem áður hefur verið gert milli
ísraels og Líbanons.
Shultz tók það fram í viðtali við
fréttamenn að viðræðunum lokn-
um, að einskis illvilja hefði gætt í
þeim. „Skoðanir okkar stönguðust
einfaldlega með öllu á,“ sagði
hann. Helzta mótbára sýrlenzku
stjórnarinnar við tillögum Banda-
ríkjamanna væri sú, að þær fælu í
sér hættu gagnvart fullveldi Líb-
anons. „Við aftur á móti teljum,
að með tillögum okkar sé óskert
fullveldi Líbanons tryggt," sagði
Shultz og bætti við: „Að svo
komnu tel ég engar líkur á því, að
útlendir herir verði á brott frá
Líbanon á næstunni."
Útilokar ekki toppfund
Reagans og Andropovs
Kohl kanslari vonbetri um sam-
komulag í Genfarviðræðunum
Moskvu, 6. júlí. AP.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-Þýzkalands, sagði í dag, að „mjög yfír-
gripsmiklar viðræður" sínar við Yuri Andropov, forseta Sovétríkjanna,
hefðu gert sig vonbetri um, að samkomulag ætti eftir að nást eigi síðar en
um næstu áramót um takmarkanir á kjarnorkuvopnum í Evrópu. „Ég
lagði á það áherzlu við leiðtoga Svoétríkjanna, að við í stiórn Sambands-
lýðveldisins værum þeirrar skoðunar, að á þeim tíme, sem eftir er til
áramóta, ætti að gefast tækifæri til þess að ná raunhæfum árangri í
Genfarviðræðunum um takmarkanir á meðaldrægum eldflaugum,“ sagði
Kohl á fundi með fréttamönnum í Moskvu í dag og bætti síðan við:
„Sovézki leiðtoginn útilokaði það alls ekki, að árangur gæti náðst á þessu
sviði á þessu ári.“
Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýzkalands, á fundi með fréttamönnum í
Moskvu í gær, þar sem hann skýrði frá viðræðum sínum við Yuri Andropov,
forseta Sovétríkjanna, daginn áður.
Á heima-
tilbúinni
rellu yfir
N-pól
Pboenix, Arizona, 6. júlí. AP.
SEXTÍU og fjögurra ára gamall
fyrrum flugmaður úr bandaríska
fíughernum, maður sem flaug
margar herferðir á P-40 stríðs-
fíugvélum Bandaríkjamanna,
ætlar að verða fyrstur manna tií
að fíjúga yfír Norðurpólinn á
heimatilbúinni flugvél.
Don Taylor, en svo heitir
maðurinn, mun fljúga eins
hreyfils Thorp T-18-flugvél
sem hann hefur dundað við að
setja saman í bílskúrnum
heima hjá sér. Þetta er 5,5
metra löng vél og árið 1976
flaug hann henni í kring um
hnöttinn. 1980 flaug hann
henni frá Bandaríkjunum til
Ástralíu og Nýja Sjálands og
svo til baka.
„Þetta verður eflaust mjög
erfitt, það eru engin skilti
þarna upp frá sem stendur á að
maður sé komin til Norður-
pólsins og áttavitinn er gagns-
laus vegna segulmagnsins. Það
eru allar áttir í suður þegar
maður er á Norðurpólnum. Sól-
in sést ekki á þessum slóðum á
þessum árstíma, en það mun
ekki koma að haldi, ísinn og
vatnið býður ekki upp á kenni-
leiti," sagði Taylor við frétta-
menn og fleiri forvitna í gær.
Framlög til varnar-
mála hækka um 13%
London, 6. júlí. AP.
Kohl lagði áherzlu á, að báðir
aðilar yrðu að sýna vilja sinn í
verki, til þess að árangur gæti
náðst. Hann gaf þó ekki í skyn,
að afstaða Sovétstjórnarinnar í
eldflaugamálinu hefði breytzt.
Sjálfur lýsti Kohl för sinni til
Sovétríkjanna nú sem „vinnu-
ferðalagi", sem hefði ekki sízt
gildi sökum þess, að með því gæf-
ist sér tækifæri til þess að kynn-
ast Andropov og ræða við hann.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í Vestur-Þýzkalandi
nú, að eftir viðræður þeirra
Kohls og Andropovs í gær hafi
þeirri skoðun vaxið mjög fiskur
um hrygg, að nú geti aðeins
toppfundur milli Reagans
Bandaríkjaforseta og Andropovs
blásið nýju lífi í afvopnunarvið-
ræðurnar í Genf. Kohl var spurð-
ur um hvort og hvenær slíkur
fundur þeirra Reagans og Andro-
povs gæti átt sér stað og neitaði
hann því ekki, að slíkur fundur
gæti komið til greina, en sagði:
„Það hefur ekki verið rætt um
neinn ákveðinn tíma til slíks
fundar. Hugmyndin um slíkan
fund á því aðeins rétt á sér, að
fundurinn yrði rækilega undir-
búinn og að hann yrði ekki bara
áróðursæfing."
BREZKA stjómin birti i gær nýja áætl-
un í varnarmálum, þar sem fram kem-
ur, að hún hyggst verja 15,97 milljörö-
um sterlingspunda til varnarmála á
næsta fjárhagsári og er þad um 13,4%
aukning frá herútgjöldum yfírstand-
andi árs. Af þessari fjárhæð verður 624
millj. pundum varið til þess að standa
straum af kostnaði við 4.000 manna
herlið Breta á Falklandseyjum, sem
Bretar náðu aftur á sitt vald í júní í
fyrra eftir 10 vikna styrjöld við Argent-
(nu.
í sérstakri yfirlýsingu, sem fylgir
skýrslunni, ítrekar Michael Hasel-
tine varnarmálaráðherra einlægan
og afdráttarlausan stuðning Bret-
lands við Atlantshafsbandalagið:
„Viðbrögð Breta á síðasta ári í Falk-
landseyjastríðinu voru einhver ör-
uggasta sönnunin fyrir veru okkar
og stuðningi við NATO, sem hægt er
að hugsa sér,“ sagði Haseltine enn-
fremur á fundi með fréttamönnum í
dag. „Sérhver, sem vill staðreyna
eðli og getu hins vestræna varnar-
bandalags og vilja þess til þess að
verja sig, getur ekki virt að vettugi
hinar sálrænu afleiðingar Falk-
landseyjastríðsins."