Morgunblaðið - 10.11.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.11.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 258. tbl. 70. árg. Hollenzka bjórfram- leiðandan- um Heineken rænt í gær Amsterdam, 9. nóvember. AP. ALFREÐ Heineken, forstjóra hinna risavöxnu bjórverksmiðja í Hollandi, var rænt í kvöld fyrir utan skrifstofu hans í Amsterdam. Skýrði lögreglan frá því, að þrír menn hefðu ráðizt á Heineken, þar sem hann stóð á gangstéttinni, hrintu honum inn í bif- reið sína og óku síðan með leiftur- hraða á brott. Lögreglan í Amsterdam lét þegar í stað setja upp vegarhindranir víða um borgina og viðbótarlögreglulið var jafnframt kallað út, þar á með- al leynilögregluemnn., Þremur klukkustundum eftir mannránið höfðu ræningarnir ekkert látið frá sér heyra og engin krafa um lausn- argjald verið borin fram. Það var leigubílstjóri, sem til- kynnti mannránið til lögreglunnar. Varð hann vitni að því, er mann- ræningjarnir gripu bæði Heineken og bílstjóra hans, Doderer að nafni, sem er 57 ára að aldri. Ræningjarn- ir börðu þann síðarnefnda illa, en hirtu ekki um að taka hann með sér. Að beiðni lögreglunnar reyndi leigubílstjórinn að fylgja mann- ræningjunum eftir og tókst það nokkra leið, en missti þá síðan úr augsýn. Nokkru síðar tilkynnti lögreglu- maður, sem ekki var á vakt, að hann hefði séð hóp manna skipta um bifreið og fara yfir í bifreið af Citroen-gerð, sem síðan var ekið brott á ógnarhraða. Ný reiki- stjarna? Washington, 9. nóvember. AP. Stjörnufræðingar hafa uppgötvað nýjan hlut — annað hvort reikistjörnu eða halastjörnu — sem fer nær sólu á braut sinni en nokkrar aðrar stjörnur í sólkerfinu, sem vitað var um áður. Skýrðu vísindamenn í Washing- ton frá þessu í dag. „Við höfum uppgötvað nýja aðferð til þess að rannsaka alheiminn", sagði James M. Beggs, sem stjórnað hefur þess- um rannsóknum. Uppgötvanir sínar hafa stjarn- fræðingarnir gert með atbeina stjörnukíkis, sem komið var fyrir í geimfari, er skotið var á loft fyrr á þessu ári. FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983 PrentsmiAja MorgunblaAsins Bandarískir sérfræðingar með hljóðmælingatæki tóku þátt í leitinni að TF-Rán á Jökulfjörðum í gærkvöldi. Myndin var tekin þegar ieit var að Ijúka seint í gærkvöldi og sýnir bát bandarísku sérfræðinganna hífðan um borð í varðskipið Oðin. MorgunblaðiA-sfmamynd/RAX. Leitin að TF-Rán enn árangurslaus: Dýptarmælar sýna þúst á 70— 80 metra dýpi við Kvíar á milli Veiðileysufjarð- ar og Lónafjarðar. Var þyrlan þá að fara í æfingaflug. Nokkrum andartökum síðar heyrðu varð- skipsmenn ókennilegt hljóð í gegnum talstöðina og nær sam- stundis sást ljósleiftur, eins og frá lendingarljósum þyrlunnar. „Síð- an heyrðist ekkert rneira," sagði Höskuldur Skarphéðinsson, skipherra á Óðni, í samtali við blm. Morgunblaðsins. Leit hófst þegar í stað og um klukkan eitt um nóttina fannst brak úr þyrl- unni, þ.á m. brot úr hjólahlíf og óuppblásin björgunarvesti. Síðan hefur ekkert fundist. Gunnar Bergsteinsson sagði í gærkvöldi, að menn væru jafnnær um orsak- ir slyssins; ekkert það hefði komið fram umfram það, sem fyrst hefði verið vitað, sem gæfi vísbend- ingar. Sjá nánar á bls. 2, 3 og miðopnu. — leitað til bandaríska flotans um hugsanlega aðstoð við björgun flaksins af hafsbotni LEIT AÐ mönnunum fjórum, sem voru um borð í Landhelgisgæsluþyrlunni TF-Rán þegar hún fórst út af Kvíum í Jökulfiörðum í fyrrakvöld, hefur ekki borið árangur. Skipstjórar á rækjubátum frá Isafirði, sem tóku þátt í leitinni í fyrrinótt og í gær, telja dýptarmæla bátanna sýna þúst á um 70—80 metra dýpi 0,7—0,8 mflur suðaustur af Kvíum. Öll áhersla veröur nú lögð á að komast að flaki þyrlunnar og hefur af hálfu Landhelgisgæslunnar verið kannað hjá bandaríska flotanum hvort mögulegt væri að fá aðstoð þaðan ef með þyrfti, að sögn Jóns Magnússonar, lögmanns Landhelgisgæslunnar. Mennirnir fjórir, sem saknað er, heita Björn Jónsson, flugstjóri, Þórhallur Karlsson, flugstjóri, Bjarni Jóhannesson, flugvélstjóri, og Sigurjón Ingi Sigurjónsson, stýrimaður. Alls leituðu nærri tuttugu skip og bátar á slysstaðn- um í gær, auk þyrlu af danska varðskipinu Vædderen og félaga í björgunar- og hjálparsveitum. Halda átti leitinni áfram í birt- ingu í morgun. Síðdegis í gær kom Gæsluflug- vélin TF-Sýn til ísafjarðar með 10 menn frá Landhelgisgæslunni, rannsóknarnefnd flugslysa og varnarliðinu. Höfðu þeir með sér tæki til að nema hljóðmerki frá flakinu. „Þetta hlustunartæki er ekki langdrægt, þannig að það gæti tekið talsverðan tíma að greina merkin," sagði Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Land- helgisgæslunnar, í samtali við blm. Morgunblaðsins í gærkvöld. „Það þarf væntanlega að fara oft yfir svæðið áður en tekst að greina merki frá þyrlunni, en í henni er svokallaður „sonar ping- er“, eða hljóðgjafi til að staðsetja flak neðansjávar." ísfirskir skipstjórar sögðu blaðamanni Mbl. á Isafirði í gær, að þeir hefðu um hádegið orðið varir við þúst á um 70— 80 metra dýpi á slysstaðnum en dýptar- mælar þeirra gátu ekki leitt óyggjandi í ljós að þar væri flakið af TF-Rán. Skúli Jón Sigurðarson í Loftferðaeftirlitinu og Þorsteinn Þorsteinsson frá Landhelgisgæsl- unni sögðu meginverkefni hóps- ins, er kom til fsafjarðar, vera að staðsetja flakið nákvæmlega og undirbúa björgunaraðgerðir. Bjuggust þeir við að björgunin gæti orðið tímafrek og erfið væri flakið á jafn miklu dýpi og skip- stjórarnir teldu. Það var kl. 22.53 í fyrrakvöld, sem TF-Rán tók sig á loft frá varðskipinu óðni skammt utan Arafat hvetur menn sína: „Berjumst unz yfir Triiwili Q nnvpmher AI* Tripoli, 9. nóvember. AP. „ENGINN árangur hefur enn náðst nokkurs staðar," sagði Yasser Arafat, leiðtogi Frelsisfylkingar Palestínumanna (PLO), í dag um viðræður þær, sem nú fara fram á mörgum stöðum í von um vopnahlé milli stuðningsmanna hans og uppreisnarmanna innan PLO. Héldu þeir síðarnefndu uppi viðstöðulausri skothríð á stuðningsmenn Arafats í Badawi-flóttamannabúðunum fyrir utan borgina Tripoli með flugskeytum og fallbyssum og nutu þar aðstoðar stórskotaliðs Sýrlendinga á nærliggjandi hæðum. „Það er engin von um grið. Við munum berjast, unz yfir lýkur,“ sagði Arafat við liðsmenn sína í dag, er þeir bjuggu sig undir úr- slitaorrustuna. Héldu þeir uppi harðri skothríð á andstæðinga sína með flugskeytum og úr fallþyssum frá byggingum inni í borginni. í allan dag loguðu miklir eldar í olíu- hreisnunarstöð í útjaðri Tripoli, án þess að slökkvilið kæmist þar nokkurs staðar nærri vegna bar- daganna og stigu eldtungur og mik- ill reykjarmökkur þar hátt til him- ins. Þá höfðu eldar einnig kviknað á fleiri stöðum í borginni, þar sem flugskeyti höfðu komið niður og sprungið. Hefur mikil skelfing gripið um sig á meðal ibúa borgar- innar, sem eru um hálf milljón. Þrátt fyrir litlar horfur á sam- komulagi var haldið uppi 'örvænt- ingarfullum tilraunum af hálfu margra Arabaþjóða í kvöld til þess að freista þess að fá Sýrlendinga og uppreisnarmenn innan PLO til þess að fallast á vopnahlé á síðustu stundu. Var sá orðrómur á kreiki, að uppreisnarmenn gerðu það að ófrávíkjanlegu skilyrði fyrir vopnahléi, að Arafat færi frá lýkur“ Tripoli og gæfi loforð um að snúa aldrei þangað aftur. ísraelsstjórn lét í dag kalla út varalið hersins til þess að kanna viðbragðsgetu þess, ef til stríðs kæmi. Samtímis var tekið fram, að engin sérstök ástæða lægi að baki útkallinu, heldur væri það gert í æfingaskyni með sama hætti líkt og gert hefði verið mörg undanfar- in ár. í viðtali í ísrelska sjónvarp- inu í kvöld sagði Yitzhak Shamir forsætisráðherra: „Það er álit mitt, að það sé engin yfirvofandi hætta á styrjöld við Sýrland." Yasser Arafat.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.