Morgunblaðið - 31.03.1984, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1984
_____________________fagEgjMmáD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 237. þáttur
Magnús Óskarsson í Reykja-
vík skrifar mér sem stundum
fyrr. Magnús er málnæmur og
málvándur. Hann má ekkert
aumt sjá í þeim efnum, síst þeg-
ar stofnana- og kerfismál, eða
lærdómsþembingur, skilur sig
frá mannamáli. Ég leyfi mér að
bæta því við, að Magnús er skáld
gott og yrkir limrur. Lætur um-
sjónarmaður að þessu búnu eina
af limrum hans gossa, þá sem oft
hefur verið rangfeðruð og rang-
færð:
Úr vinnunni hann fékk oft far með Hildi,
en fattaði þó aldrei hvað hún vildi,
uns kvöld eitt kát og rjóð
þau keyrðu fram á stóð,
og þá var eins og blessuð skepnan skildi.
Umsjónarmaður hliðrar sér
hjá að birta úr íslenskum dóma-
skrám llm eignarrétt að saur í
salernum, sem þó er hið
merkasta plagg. Hins vegar skal
hér endurprenta, að ábendingu
Magnúsar, kafla úr dómi Saka-
dóms, bls. 1237, sjá Hæstarétt-
ardóma 1980:
(Leturbreytingar eru frá
okkur Magnúsi):
„Þar hafi Gústaf stolið gítarn-
um, en kærði hefur viðurkennt
að hafa ráðstafað gítarnum á
þann hátt, að hann bað Margréti
Aðalsteinsdóttur að afhenda
fanga á Litla-Hrauni gítarinn til
geymslu eða sölu. Gítarinn komst
til skila.“
2. mál nr. 1362/80:
Þann 7. maí sl. kærði Valgeir
Magnússon, Ránargötu 10,
kærða fyrir að hafa stolið nokkr-
um dögum áður, gítar af gerðinni
Yamaha. Kærði hefur borið, að
hann hafi sett gítarinn í um-
boðssölu að beiðni vörslumanns
gítarsins. Gítarinn komst til skila.
Rannsókn þessa máls er ekki
lokið, þar sem sannprófun hefur
ekki farið fram. Gítarinn komst
til skila."
Segi menn svo, að listræn klif-
un geti ekki komið fyrir í dóma-
skrám.
Þá þykir okkur Magnúsi Ósk-
arssyni rétt að birta 3. grein úr
auglýsingu um lyfjastaðla á ís-
landi:
„Forskriftir (mónógrafíur)
norrænu lyfjaskrárinnar
danska lyfseðlasafnsins
danska apótekarafélagsins,
ásamt viðaukum, sem ekki hafa
veriö felldir úr gildi, sbr. ákvæði
reglugerðar nr. 334/1979, verði
áfram í gildi, uns annað verður
ákveðið."
•
Davíð Davíðsson í Reykjavík
sendi mér ljósrit af gamalli
deilugrein Vilmundar Jónssonar
landlæknis um íslenskt mál. Mér
þykir ómaksins vert að birta
hluta af þessari grein. Hvort
tveggja er, að hún geymir upp-
lýsingar um orðsmíð í máli
okkar og svo hitt, að hún sýnir
vel snerpu og fimi Vilmundar í
orðaskiptum. Tilefnið var það að
góður maður hafði talið óþarfa
tilgerð að búa til nýyrði fyrir vír-
us. Hann sagði í gamni eða al-
vöru að vírus færi vel í málinu
og beygðist eins og prímus. En
gefum nú Vilmundi heitnum
Jónssyni orðið:
„Fyrir rúmum hundrað árum,
svo að ekki sé litið lengra aftur í
tímann, baslaði Jónas Hall-
grímsson náttúrufræðingur og
skáld við að þýða stjörnufræði á
íslenzku. Hann felldi sig ein-
hvern veginn ekki rétt vel við, að
æter héti á íslenzku blátt áfram
eter, og nefndi ljósvaka, sem
virðist ekkert hafa fram yfir
orðið eter nema tilgerðina. Orðið
eter fer vel í málinu og beygist
eins og barómeter.
Æðilöngu síðar hugkvæmdist
Sigurði L. Jónassyni stjórnar-
ráðsritara að nefna terrítoríum
landhelgi, sem ekkert virðist
hafa fram yfir orðið terrítoríum
nema tilgerðina. Orðið terrítorí-
um fer vel í málinu og beygist
eins og sammensúrríum.
Um líkt leyti rak dr. Jón Þor-
kelsson rektor hornin í exemplar
og kallaði eintak, sem virðist
ekkert hafa fram yfir orðið ex-
emplar nema tilgerðina. Orðið
exemplar fer vel í málinu og
beygist eins og ektapar.
Enn var það ekki fjarri þess-
um tíma, að Arnljótur Ólafsson
síðar prestur samdi Auðfræði
sína og smíðaði fjölda nýyrða.
Ekki bar hann beskyn á að kalla
begreb einfaldlega begrip, held-
ur kaus hann nýyrðið hugtak,
sem virðist ekkert hafa fram yf-
ir orðið begrip nema tilgerðina.
Orðið begrip fer vel í málinu og
beygist eins og beskyn og bevís.
Um og eftir síðustu aldamót
seldu allir skókaupmenn hér á
landi og auglýstu ákaft galossí-
ur. Þorsteinn Erlingsson skáld
fann upp á því, einhvern tíma
þegar honum gekk illa að kom-
ast í galossíurnar, að kalla
þenna nýja fótabúnað skóhlífar,
sem ekkert virðist hafa fram yf-
ir orðið galossíur nema tilgerð-
ina. Orðið galossía fer vel í mál-
inu og beygist eins og drossía.
Á sama tíma voru centrífúgur
auglýstar því nær í hverju ís-
lenzku blaði, unz Jón ólafsson
ritstjóri og skáld, nema það hafi
verið einhver annar, gat ekki
setið á sér og stakk upp á að
kalla þetta þarfa áhald bænda
skilvindu, sem virðist ekkert
hafa frartl yfir orðið centrífúga
nema tilgerðina. Orðið centrí-
fúga fer vel í málinu og beygist
eins og Good-Templarastúka.
Ekki reyni ég að rýna eftir því,
hvenær sá sundurgerðarmaður
var uppi með íslenzkri þjóð, sem
gerði móðurmáli sínu það til
óþurftar að þykjast þýða patríót
á íslenzku og kalla föðurlands-
vin, sem virðist ekkert hafa fram
yfir orðið patríót nema tilgerð-
ina. Orðið patríót fer vel í mál-
inu og beygist eins og idiót.
Þannig má rekja þessa fá-
fengilegu tilgerðarrollu aftur og
fram um gervalla ævi tungunn-
ar, og má vera átakanlegt fyrir
þá, sem smekkinn hafa fyrir til-
gerðarleysinu, enda skal hér
brotið í blað.“
Hér í þættinum hafa oft verið
tekin dæmi um það sem á ensku
er kallað Spoonerism eftir presti
þar í landi, Rev. Spooner, sem
oft mismælti sig með sérstökum
hætti, sbr. síðasta gamanþátt
Dave Allens, þann er birtist í ís-
lenska sjónvarpinu.
Á íslensku hefur heitið Krist-
mennska einna helst verið haft
um Spoonerism, kennt við Krist-
mann í íshúsinu (ísmann í
Kristhúsinu) í Eyjum.
Hér er nýtt og blásaklaust
dæmi um Kristmennsku: Maður-
inn gekk áfram að halda um
gólf.
Svo geta menn, sbr. Dave All-
en, spreytt sig í að kristmenna
eftirfarandi setningar, sem ekki
eru eftir umsjónarmann:
Við erum stakir reglumenn,
reykjum að vísu að staðaldri og
lítum ekki í bók.
MNGIIOLT
Faslwngaula — Bankjwtrati
Sími 29455 — 4 línur
Opið frá ki. 1—4
Stærri eignir
Gamli vesturbær
Lrtiö sérbýli nálaBgt Landakoti ca. 80 fm.
SEndurnýjaö og í góöu standi. Eldhús, eitt
svefnherb og tvær fallega innr. stofur. Verö
^ 1650 þús.
Hlíðavegur
Ca. 130 fm góö sérhæö ásamt 40 fm bílskúr.
3—4 herb. og stofur. Fallegar innr. á eldhúsi
og baöi Þvottahús og búr innaf eldh. Suö-
vestursv. Ákv. sala Verö 2,7—2,8 millj.
Dunhagi
Ca. 160 fm góö sérhæö ásamt 30 fm innb.
^ bílskur og góöu herb. i kj. meö aög. aö
m snyrtingu. Hæöin er 2 góöar stofur og í
2 svefnálmu 4 herb. og baö Tvennar svalir.
Allt sér. Akv. sala eöa möguleiki aö skipta á
™ 4ra herb. meö bílskúr í vesturbæ.
2 Fossvogur
^ Ca 230 fm vandaö raöhús ásamt bilskur.
^ Byggt á 3 pöllum + stór og góöur kjallari.
M Ve9,eQar stofur. Fallegur garöur. Kjallari
^ sem nota má sem tómstundasal. Akv. sala.
2 Verö 4.3—4,5 millj.
j Kópavogur
^ Ca. 180 fm gott einbýli á 2 hæöum ásamt
^ bílskur I húsinu eru tvær sjálfstæöar ibúöir
n meö sérinng. Ákv. sala eöa skipti á minna
J einbýli eöa raöhusi í Kópavogi.
^ Ásgarður
a Ca. 140 fm raöhús kjallari og tvær hæöir
Eldhús og stofa á 1. hæö 3 svefnherb. og
^ baö uppi Verö 2,2—2,3 millj. eöa skipti á
nýlegri 3ja herb. íbúö miösvæöis.
Langholtsvegur
Ca. 125 fm sérhæö og ris í tvíbýli ásamt
bilskúr. Hægt aö nota sem tvær ibuöir Nýtt
gler. Góö lóö. Verö 3250 þús.
Unufell
Gott ca. 125 fm fullbúiö endaraöhús á einní
hæö ásamt bílsk. Þvottah. innaf eldh. Stórt
flisal. baóherb. Góöur garöur. Ákv. sala.
4ra—5 herb. íbúðir
Hjallabraut Hf.
Ca. 130 fm íbúö á 1. hæö. Þvottahús og búr
innaf eldhúsi. Stórt baöherb. og 3 svefn-
herb. á sérgangi. Veró 1950 þús. Eóa skipti
möguleg á 3ja herb. ibúó i Noröurbæ.
Flúðasel
Ca 115 fm ibúö á 3. hæö meö bilskyli. Goo-
ar stofur. 4 svefnherb. og baö á sérgangi
Góö íbúö. Verö 2.1 millj.
Stórageröi
Ca. 110 fm íbúö á 4. hæö. Akv. sala Verö
1950—2000 þús.
Orrahólar
Mjög góö ca 110 fm ibúö á 3. hæö ásamt
góöum innb. bilskur Góöar innr. Þvottahús
innaf eldhúsi. Afh. 15.7. Verö 2,1 millj.
Við Sundin
Ca. 113 fm góö íb. á 6. hæö. Nýleg teppi á
stofu, parket á holi og eldh. Verö
1850—1900 þús.
Engjasel
Ca. 100 fm íb. á 2. hæö meö fullb. bílskýli
Ákv. sala. Verö 1800—1900 þús.
Leifsgata
Ca 100 fm 10 ára gömul góö ibúö á 3. hæö
í fjórbýti. Arinstofa Þvottahús i ibúóinni.
Nýtt gler. Sérhiti. Ófullgeróur 30 fm
geymsluskúr fylgir. Verö 2,0 millj.
Engihjalli
Ca. 110 fm góö íbúö á 1. hæö Góöar innr.
Þvottahús á hæöinni. Verö 1850- 1900 þús.
3ja herb. íbúðir
Maríubakki
Ca 95 fm mjög endaibuö á 1. hæö Stórt
þvottahús — búr innaf eldhúsi. Ný uppgeró
íbúö meö góöum innr. Verö 1650 þús.
Skerjafjörður
Ca. 60 fm risibúö. Tvö herb. og stofa, furukl.
baóherb. Veró 1300 þús.
Ugluhólar
Ca. 83 fm góö íbúö á 2. hæö. Nýleg teppi.
Laus 1. júli. Veró 1600 þús.
Lindasel
Ca. 90 fm ný ibúó á jaröhæö Sérinng.
Rúmg. ib. en ekki fullbúin. Veró 1600 þús.
2ja herb. íbúðir
Miðstræti
Ný uppgeró ca. 40 fm risibúö meö góöu
útsýni. Ákv. sala. Verö 1000 þús.
Austurberg
Ca 60—65 fm góö ibúö á 3. hæö. Ákv. sala
Verö 1350—1400 þús.
Víðimelur
Ca. 40 fm risíbúö Stofa, herb., eldhus og
baö. Laus strax. Veró 900 þús.
Orrahólar
Ca. 65 fm góö ibúö i lyftublokk. Þvottahús á
hæöinni Björt íbúö. Verö 1350 þús.
Furugrund
Ca 45 fm ibúð á 1. haeö Suöursvalir Verö
1150 þús
Friðrik Slefánsson
viöskiptafræöingur.
Ægir Breiðfjörð sólustj.
Sverrir Hermannason,
sími 14632.
HRAUNHAMAR
FASTEIGNASALA 54511
HAFNARFIRÐI
Opið í dag kl. 1—3
3ja HERB. ÍBÚÐIR
Tjarnarbraut — Hafnarfiröi
Ca. 78 fm góð jarðhæð í þríbýlishúsi. Sérinng.
Verð 800—900 þús.
Grænakinn — Hafnarfirði
Góð 95 fm sérh. í þríb. Nýtt gler. Sérinng. Einka-
sala. Verð 1,7 millj.
Hellisgata — Hafnarfirði
Ca. 70 fm nýendurb. neöri hæö í tvíb. Nýjar innr.,
nýtt gler. Verö 1,4 millj.
Móabarð — Hafnarfiröi
Góð 90 fm neðri hæð í tvíbýlishúsi. Bílskúrsréttur.
Verð 1,5 millj.
Birkihvammur — Hafnarfirði
Ca. 67 fm neöri hæð í tvíbýlishúsi. Verö 1,1 millj.
4ra—5 herb.
Herjólfsgata — Hafnarfiröi
Ca. 100 fm efri hæö í tvíbýlishúsi ásamt 25 fm
bílskúr. Verð 2,3 millj
Reykjavíkurvegur — Hafnarfirði
Ca 96 fm kjallaraíbúð í þríbýlishúsi. Sérinnq.
Verö 1650 þús.
Kelduhvammur — Hafnarfirði
137 fm hæð í þríbýli. Bílskúr. Sérinnq. Verð 2,3
millj.
VW ERUMÁ REYKJAVtKURVEGI 72, HAFNARFIRÐI,
Bergur Á HÆÐINNIFYRIR OFAN KOSTAKAUP
Oliversson
hdl.
Magnús S.
Fjeldsted.
Hs. 74807.
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALOIMARS
LOGM JOH Þ0RÐARS0N HOL
Til sýnis og sölu auk annarra eigna:
Velbyggt steinhús inni í „Endum“
Húsiö er með 2 íbúðum. Á hæö er 5 herb. glæslleg séríbúö meö stórum
bílskúr. f kjallara er óvenjustór og góð samþykkt íbúö. Teikning. á
akrifatofunni.
Einbýlishús viö Sogaveg
Steinhús í ágætu standi. Kjallari. hæö og ris, alls um 180 fm, auk
bílskúrs um 40 fm. Teikning á skrifst.
Skammt frá Sundlaug Vesturbæjar
í suðurenda á 3. hæó. 5 herb. íbúö um 115 fm. Vel með farin. Suöur-
svalir, útsýni. Eignin er skuldlaus.
Ennþá óseldar við Ofanleiti
í smíðum ein 3ja herb. íbúö, ein 4ra herb. íbúö og tvær 2ja herb. íbúöir.
Byggjandi Húni sf. Öll sameign frágengin. Eitt besta verð á markaðn-
um í dag.
Skammt frá Sjómannaskólanum
Neðri hæð um 130 fm, 5 herb. Stór bílskúr fylgir. (búðinni má skipta: í
3ja herb. íbúð og tvö sárherb. meö snyrtingu og sérinng. Stórar suður-
svalir.
2ja herb. íbúðir við:
Hjallaveg. Kópavogsbraut, Lindargötu, Drápuhlíö, Fífusel, Kríuhóla, Álf-
hólsveg, Ásbraut, Hamrahlíö, Kársnesbraut.
Kynnið ykkur nánar söluskrána.
3ja herb. íbúöir við:
Jöklasel, Samtún, Kjarrhólma, Grettisgötu, Barmahliö, Sörlaskjól,
Laugaveg.
Kynnið ykkur nánar söluskrána.
4ra herb. íbúðir við:
Njálsgötu, Vesturberg, Holtsgötu, Alfhólsveg, Leirubakka, Barónsstig,
Engjasel
Kynnið ykkur nánar söluskrána.
Glæsilegar eignir í smíöum:
i suðurhlíðum, fokhelt tvíbýlihús meö 6 herb. íbúö á 2 hæðum ásamt
bílskúr og 4ra herb. séríb. á 1. hæð. Útsýnisstaöur.
Raðhús I Hafnarfirði, á vinsælum staö í Hvömmunum, er aö veröa
fokhelt, húsiö er meö 5—6 herb. íbúö á 2. hæðum, innb. bílsk. Teikn-
ingar á skrifst.
Fjöldi fjársterkra kaupenda á skrá
aö íbúöum 2ja—5 herb., sérhæöum, raöhúsum og einbýlishúsum. Þar á
meðal óskast 4ra—5 herb. íbúö viö Háaleitisbraut eða í nágrenni. Kr. 1
millj. strax við kaupsamning.
Orðsending til viöskiptamanna okkar:
Seljiö ekki ef útborgun er lítll og/eða mikið skipt nema samtímis séu
fest kaup á ööru húsnæöi.
Opiö í dag laugardag frá kl. 1
til kl. 5. Lokað á morgun
sunnudag.
AtMENNA
FASTEIGHASAIAN
LAUGAVEG118 SIMAR 21150-21370