Morgunblaðið - 20.11.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.11.1984, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1984 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1984 41 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ftitstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 300 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö. Nýr formaður í Alþýðuflokknum Athyglisvert er að íhuga hve mismunandi hefðir hafa skapast í stjórnmálaflokkum hér á landi við að velja þeim formann. Að þessu leyti hefur Alþýðuflokkurinn sérstöðu en er þó skyldur Framsóknar- flokknum. Þar hefur formönn- um oft verið velt úr sessi sem þekkist tæpast í öðrum flokk- um hér á landi. Enginn vafi er á því að formannsátök af því tagi sem urðu á þingi Alþýðu- flokksins nú um helgina skilja eftir sig sár sem lengi eru að gróa, en flokksmenn leggja sig fram um að hylja út á við. Það liðu ekki nema fá misseri frá því að Kjartan Jóhannsson ýtti Benedikt Gröndal, þáverandi formanni Alþýðuflokksins, til hliðar fyrir rúmum fjórum ár- um, þar til Benedikt sagði skil- ið við stjórnmálin og tók skip- un í embætti sendiherra. Kjartani Jóhannssyni tókst ekki að styrkja stöðu Alþýðu- flokksins, og flokkurinn klofn- aði í formannstíð hans. Óánægja hefur magnast jafnt og þétt innan flokksins. Jón Baldvin Hannibalsson er stjórnmálamaður þeirrar gerð- ar að hann grípur tækifærið þegar það gefst. Hann mat stöðuna rétt þegar hann til- kynnti formlega 11. nóvember siðastliðinn að hann byði sig fram til formennsku. Hvorki Kjartan Jóhannsson né aðrir toppkratar töldu þá líklegt að Jón Baldvin næði kjöri. Þegar fulltrúar á flokksþinginu tóku að bera saman bækur sínar og hlýða á ræður manna óx fylgi Jóns Baldvins jafnt og þétt og hann vann góðan sigur, fékk 142 atkvæði gegn 92. Bræðraflokkar Alþýðu- flokksins í nágrannalöndunum hafa verið að færast til vinstri á síðustu misserum. Ekki er unnt að segja að nein svipuð þróun hafi vakið eftirtekt hjá krötum hér á landi, enda hafa þeir ekki vakið neina eftirtekt yfirleitt. Á síðasta þingi Sam- bands ungra jafnaðarmanna var samþykkt ályktun um utanríkismál sem bendir ein- dregið til þess að í röðum þeirra eigi þau sjónarmið upp á pallborðið sem ráðið hafa miklu hjá vinstri krötum í út- löndum og ekki er unnt að túlka nema sem daður við þá er telja vestrænt varnarsamstarf hættulegra heimsfriðnum en vígbúnað Sovétríkjanna. Jón Baldvin Hannibalsson leggur áherslu á að slíkt daður sé ekki að sínu skapi, að því leyti fylgir hann stefnu franskra krata í öryggis- og varnarmálum. Á hinn bóginn vill hann, þessa stundina að minnsta kosti, vera róttækur til vinstri í inn- anlandsmálum. Hann er fyrsti flutningsmaður tillögu til þing- sályktunar um að samið verði frumvarp til laga um stig- hækkandi eignarskatt. Með því á að stöðva „látlausa tekjutil- færslu frá launþegum til fá- mennrar, nýríkrar stéttar stór- eignamanna". í þessu efni stendur Jón Baldvin nærri ríkisforsjár-krötum í Bretlandi og á Norðurlöndunum. Ekki er vafi á því að með vinstri stefnu og samstarfs- vilja við Bandalag jafnaðar- manna á vörunum ætlar Jón Baldvin Hannibalsson að sigla inn á atkvæðamið Sjálfstæðis- flokksins og leggja að nýju net fyrir kjósendamassann sem jafnan þokast á milli flokka á þessum miðum. Hvort sem krötum líkar betur eða verr eru þessi mið lengra til hægri en áður svo að hinn nýi formaður þarf að sýna mikla breidd í stefnumótun ef hann ætlar í senn að leggja net sín á þeim og einnig huga að því að ná atkvæðum frá Alþýðubanda- laginu. Sé litið á stjórnmál með annað en atkvæðaveiðar í gruggugu vatni í huga er eng- inn vafi á því að heppilegasta afleiðing þess að Jón Baldvin Hannibalsson er orðinn for- maður Alþýðuflokksins væri að á vinstra kanti stjórnmálanna haslaði kreddulaus forystu- maður sér völl sem næði fylgi af Alþýðubandalaginu og skyldi aðeins eftir á þeim stað þá sem enn játa heimskomm- únismanum ást sína. Hvernig svo sem menn skip- uðust í fylkingar á þingi Al- þýðuflokksins um helgina er Ijóst að völdin í flokknum eru nú alfarið í höndum fulltrúa Reykvíkinga, bæði Jón Baldvin og Jóhanna Sigurðardóttir, ný- orðinn varaformaður, eru þing- menn úr Reykjavík. Meirihluti hins fámenna þingflokks krata studdi hins vegar Kjartan Jó- hannsson, fulltrúa gamla krataveldisins í Hafnarfirði. Stjórnmálabaráttan hefur verið margslungin undanfarna áratugi. Þó er söguþráðurinn einfaldari og spunninn af færri en virðist við fyrstu sýn. Fyrir þremur áratugum var Hanni- bal Valdimarssyni velt úr sessi eftir tveggja ára formennsku í Alþýðuflokknum. Nú hefur sonur hans náð merkinu aftur, einnig að þessu leyti er skyld- leiki milli Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins. 42. flokksþing Alþýðuflokksins: Hlakka tíl að herja á andstæðingana - sagði Jón Baldvin Hannibalsson m.a., er hann hafði sigrað Kjartan Jóhannsson í formannskjörinu JÓN Baldvin Hannibalsson þingmaður Reykjavíkur felldi Kjartan Jóhannss- on í kosningum um formann Alþýðuflokks á 42. flokksþingi flokksins um helgina. 241 greiddi atkvæði. Af þeim hlaut Jón Baldvin 142 atkvæði, Kjart- an Jóhannsson 92, Sighvatur Björgvinsson 1, auðir seðlar voru 6. Jóhanna Sigurðardóttir var kjörin varaformaður með 226 atkvæðum af 233, en fjrr- verandi varaformaður, Magnús H. Magnússon, gaf ekki kost á sér. Arni Gunnarsson var kjörinn ritari flokksins, Geir Gunnlaugsson gjaldkeri, en þeir gáfu einir kost á sér í þau störf. Við kjör formanns framkvæmdastjórnar stóð valið á milli Guðmundar Oddssonar og Kristínar Guðmundsdóttur. Guðmundur sigraði f þeim kosningum með 129 atkvæðum gegn 90 atkvæð- um sem Kristín hlaut. Kjartan og Jón Baldvin eftir að úrslitin voru tilkynnL Utanríkis- og varn- armálin gleymdust UTANRÍKIS- og varnarmál íslands voru nokkuð rædd á flokksþingi Alþýðu- flokksins. I umræðum um drög að stjórnmálaályktun var m.a. bent á, að ekki var þar minnst einu orði á þann málaflokk og komu fram tillögur um að þeirra yrði þar getið. Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðis- málastofnunar ríkisins, bar m.a. fram tillögu um, að sérstaklega yrði getið um hættuna samfara síauknum vígbúnaði Sovétríkjanna á Kólaskaga og nauðsyn aukinna varna á Norðurlöndum þess vegna. Niðurstaða þingsins varð sú, að inni í stjórnmálaályktunina var sett málsgrein, þar sem í almenn- um orðum er lögð áhersla á að áfram verði fylgt óbreyttri stefnu í varnarm- áhim. Stjórnmálaályktimin í meðförum þingsins: Adeila á Alþýðubanda- lagið var felld niður Formannskjörið og aðrar kosn- ingar á þinginu settu afgerandi svip á þinghaldið og þurfti forseti þingsins, Finnur Torfi Stefánsson, til dæmis að gera hlé á þingstörf- um vegna fámennis, en þá var fundaö í tiltækum hliðarsölum og herbergjum um framboðsmál. Eftir hádegið á laugardag störf- uðu starfsnefndir þingsins fram að því að formannskjörið fór fram kl. 17. Áhugi manna á nefnda- störfum var takmarkaður og fá- menni víðast á nefndafundum, enda kosningabaráttan þá i há- marki. Eftir setningarathöfnina á föstudag í Gamla bíói hófust þing- störfin í Kristalsal Hótels Loft- leiða. Kosnir voru embættismenn þingsins. Síðan fluttu formenn Sambands Alþýðuflokkskvenna og Sambands ungra jafnaðarmanna ávörp. Þá voru fluttar skýrslur kjörbréfanefndar, framkvæmda- stjórnar og gjaldkera. Nokkrar umræður urðu um skýrslurnar. Á laugardagsmorgun hófust þingstörf kl. 9 með framsöguræð- um og kynningu á framlögðum þingmálum. Þá voru almennar umræður. I þeim kom fram hörð ádeila á störf Alþýðuflokksins frá síðasta flokksþingi, en menn voru flestir á að ekki væri unnt að skella skuldinni á neinn einstakan forustumann. Nokkrir ræðu- manna vöruðu við því, að formað- ur flokksins yrði felldur í for- mannskjöri. Þeirra á meðal var Sighvatur Björgvinsson fyrrver- andi alþingismaður. Hann sagði allar samkomur flokksins vera að breytast í blóðvöll og spurning væri á hverjum fundi, hverjum ætti að slátra. Hann rifjaði upp orð Vilmundar Gylfasonar í sín eyru frá síðasta flokksþingi: „Nú fær maður ekki lengur sem for- ustumaður Alþýðuflokksins að hætta með reisn“. Karl Steinar Guðnason alþingismaður sagðist m.a. harma að uppi skyldu vera „galdrabrennur", eins og hann orðaði það. Þá gerði hann að um- talsefni sinnuleysi Alþýðuflokks- ins í verkalýðsmálum, þar sem íhald og kommar réðu meira og minna ríkjum. Hann lýsti yfir sér- stökum stuðningi við Kjartan Jó- hannsson og sagði hann byggðan á stuðningi hans við verkalýðs- hreyfinguna. Fleiri ræðumenn lýstu yfir stuðningi við Kjartan, bæði beint og óbeint, til að mynda Hörður Sophaníasson og Haukur Helgason, aðrir gerðu að umtals- efni hræðslu manna við að kjósa og töldu ekkert eðlilegra en kosið væri um formann í lýðræðislegum flokki. Síðustu ræðumenn í almennum umræðum voru Jón Baldvin Hannibalsson og Kjartan Jó- hannsson og fluttu þeir þar fram- boðsræður, sem þingheimur hafði beðið eftir. Undirtektir við ræð- urnar voru góðar, en menn höfðu á orði, að Jón Baldvin hefði haft betur í þeirri viðureign. 1 lok um- ræðnanna hófust störf í þing- nefndum, en menn virtust upp- teknir við annað og stærstur hluti þingfulltrúa gekk um ganga og ræddi málin. Það var fyrst á þess- um tímapunkti sem menn fóru al- mennt að spá Jóni Baldvin sigri. Þingfulltrúar voru yfirleitt mjög tregir til að gefa uppi hvorn þeir ætluðu að kjósa, en samkvæmt könnunum á fundum fulltrúa ein- stakra kjördæma virtist stefna í sigur Jóns. Til dæmis kom fram, að á fundi með fulltrúum í Suður- landskjördæmi hafði hlutfallið verið 80% með Jóni. Reykjavíkur- fulltrúar stóðu að stærstum hluta með Jóni, það voru helst eldri þingfulltrúar úr Reykjavík, sem sögðust kjósa formanninn, og þá af flokkstryggð. Úrslitanna var beðið með mik- illi eftirvæntingu. Jón Baldvin sagði, er blaðamaður spurði hann, rétt áður en úrslitin voru lesin upp, hverju hann vildi spá. „Ég tapa þessu með tíu atkvæðum." Mikil fagnaðarlæti urðu í þing- salnum, er úrslitin voru tilkynnt, og eftir að Kjartan og Jón Baldvin höfðu tekist í hendur bað Kjartan um orðið. Hann óskaði Jón Bald- vin til hamingju og óskaði honum góðs gengis og hafði á orði að þetta væru ótvíræð úrslit. Þing- heimur hyllti Kjartan með lang- vinnu lófataki. Jón Baldvin tók síðan til máls, þakkaði traust það sem sér hefði verið sýnt. Þá þakk- aði hann Kjartani góða samvinnu og drengilega kosningabaráttu og sagðist spá því að Alþýðuflokkur- inn ætti eftir að leita aftur til hans, þegar hann þyrfti að trúa góðum manni fyrir vandasömum verkefnum. Jón sagðist hafa grun um að flokkurinn ætlaðist til þess að hann herjaði á andstæðingun- um og velgdi þeim svolítið undir uggum, eins og hann komst að orði, og hann kvaðst hlakka til þess. Á sunnudagsmorguninn voru kosnir sex fulltrúar í fram- kvæmdastjórn. Það vakti athygli við þær kosningar, að yfirlýst stuðningslið Jóns Baldvins lét ekki sjá sig á staðnum. Samkvæmt við- tölum við stuðningsmenn hans síðar um daginn var þetta gert af ráðnum hug til að stuðla að sam- einingu. Kosningu hlutu enda dyggir stuðningsmenn Kjartans og aðspurður sagðist hann mjög ánægður með þá kosningu. Síðdeg- is voru umræður um nefndaálit og stjórnmálaályktun. Að tillögu nefndar sem fjallaði um nýja stefnuskrá var ákveðið að afgreiða ekki breytingar á stefnuskránni á þessu þingi, heldur verði boðað til aukaþings á næsta ári til af- greiðslu stefnuskrár. Þá var kosið í flokksstjórn og verkalýðsmála- nefnd. Þinginu var slitið á sunnu- dagskvöldið. Tillaga frá ungum alþýðuflokks- mönnum kom einnig til umræðu, en frá stjórnmálanefnd kom hún þannig orðuð, að „Alþýðuflokkur- inn fordæmi ófriðaröfl, jafnt í austri sem vestri". Sigurður Guð- mundsson gerði þessa setningu m.a. að umræðuefni og sagðist andvígur henni, „með henni væri verið að gefa í skyn, að sami rass- inn væri undir þeim öllum", eins og hann orðaði það. Hann ítrekaði skoðanir sínar á þeirri hættu sem hann sagði felast í vígbúnaði Sov- étmanna á Kólaskaga. Þaðan streymdu kjarnorkukafbátar, sem okkur stæði sífelld ógn af. Hann benti máli sínu til stuðnings á að Norðmenn og Svíar hefðu þess vegna stóraukið varnir sínar og hið sama yrði upp á teningnum hér. Hann gerði að tillögu sinni, að í stað þessa að fordæma ófrið- aröfl Jafnt i austri sem vestri" kæmi: hvarvetna. Stjórnmálanefnd fjallaði um framkomnar breytingartillögur við drögin að stjórnmálaályktun. Eiður Guðnason gerði grein fyrir niðustöðum hennar, en hún lagði til að umrædd setning yrði svo- hljóðandi: „Alþýðuflokkurinn for- dæmir ófriðaröfl í veröldinni." Þessi tillaga var síðan borin undir atkvæði og samþykkt með 72 at- kvæðum gegn 14 atkvæðum. Móta- atkvæðin voru af stærstum hluta úr hópi ungra alþýðuflokksmanna, en fulltrúar þeirra höfðu lýst and- stöðu sinni við breytingartillögu Sigurðar Guðmundssonar. DAVÍÐ Björnsson, formaður Sam- bands ungra jafnaöarmanna, hlaut flest atkvæði, eða 97, í kosningum til framkvæmdastjórnar Alþýðuflokks- ins, sem fram fór á sunnudags- morgninum. Nítján gáfu kost á sér til kjörsins. í framkvæmdastjórn eru kjörnir sérstaklega sex fulltrúar, en auk þess skipar hana æðsta stjórn flokksins, sem kjörin var á laugar- dag. Hörður Zóphaníasson, Hafnar- firði, kom næstur Davíð með 83 FLOKKSÞING Alþýðuflokksins samþykkti á sunnudag með öllum greiddum atkvæðum gegn níu, að fella úr drögum að stjórnmálaálykt- un þingsins kafla þar sem deilt var á Alþýðubandalagið, sem tækifæris- sinnaðan öfgaflokk, sem ítrekað hefði sýnt ábyrgðarleysi í stjórnar- samstarfi. Einnig var í málsgreininni yfirlýsing um að stjórnarandstaðan væri veikari en skyldi. Kafli þessi var svo til samhljóða í setningarræðu Kjartans Jó- hannssonar í Gamla bfói á föstu- dagskvöld. Þá var og samþykkt, að ósk nýkjörins formanns, Jóns Baldvins Hannibalssonar, með öll- um greiddum atkvæðum gegn einu, að fella úr drögunum setn- ingu um að boða frumkvæði í sam- einingarmálum jafnaðar- og fé- Flokksþing Alþýðuflokksins sam- þykkti eftir miklar umræður að færa ákvörðun um framkvæmd og fyrir- komulag prófkjöra flokksins til við- komandi kjördæmisráðs, fulltrúa- ráðs eða flokksfélags. Var þetta gert með samþykkt álits laganefndar þingsins með þorra atkvæða gegn sex, en áður höfðu tvær tillögur, sem fram komu á þinginu verið felldar. Fyrirkomulag prófkjara Al- þýðuflokksins var bundið í lögum flokksins og samkvæmt þeim var atkvæði, þá Kristín Guðmunds- dóttir, Garðabæ, með 78, Guðríður Þorsteinsdóttir, Reykjavik, 71, Sigþór Jóhannesson, Hafnarfirði, 69, og í 6. sæti Jón Sæmundur Sig- urjónsson, Siglufirði, með 63 at- kvæði. Aðrir frambjóðendur, sem ekki náðu kjöri, voru: Ólafur Björnsson Keflavík 53 atkv., Guðmundur Árni Stefánsson ritstjóri Alþýðu- biaðsins, Hafnarfirði 51 atvk., Sjöfn Sigurbjörnsdóttir Reykjavík lagshyggjumanna „m.a. með form- legum viðræðum við Bandalag jafnaðarmanna." í umræðum um stjórnmála- ályktunina flutti prófessor Bjarni Guðnason harðorða ræðu vegna málsgreinarinnar um Alþýðu- bandalagið og sagði setninguna byggða á gamalli minnimáttar- kennd, engin ástæða væri til að vera sífellt að hnýta í Alþýðu- bandalagið eða stjórnarandstöð- una. Stjórnarandstaðan ætti að standa saman gegn erkióvininum: óvinveittu ríkisvaldi fjárplógs- flokkanna. Hann sagði sem dæmi máli sínu til stuðnings, að Mitt- errand hefði fyrst náð árangri í Frakklandi, þegar hann hefði hætt að hnýta í þarlenda komm- únista. Hið sama ætti Alþýðu- flokkurinn að gera, „Við eig- öllum þeim, sem náð höfðu 18 ára aldri og ekki voru flokksbundnir í öðrum stjórnmálaflokkum heimil þátttaka í þeim. Með breytingunni er ákvörðun um hverjum heimil verði þátttaka og fyrirkomulag færð heim í héruð. Fjölmargir þingfulltrúar tóku til máls um prófkjör flokksins. Gunnlaugur Stefánsson úr Hafn- arfirði, fyrrverandi þingmaður flokksins, sagði m.a. að með þess- ari tillögu laganefndar væri verið 46 atkv., Gréta Aðalsteinsdóttir Mosfellssveit 40 atkv., Jón Ár- mann Héðinsson Kópavogi 38 atkv., Snorri Guðmundsson Reykjavík 35 atkv., Ásgerður Bjarnadóttir Reykjavík 30 atkv., Emelía Samúelsdóttir Reykjavík og Marías Þ. Guðmundsson Reykjavík hlutu bæði 21 atkv., Vilhelm Júlíusson Reykjavík 20 atkv., Guðmundur Haraldsson Reykjavík 17 atkv., Helgi Guð- laugsson hlaut 14 atkv. og Stefán Gunnarsson Hofsósi 9 atkv. um að hætta þessu sífellda nöldri, þannig styrkjum við flokkinn og verkalýðshreyfinguna," sagði Bjarni m.a. Bjarni vildi aftur á móti halda inni setningunni um viðræður við Bandalag jafnaðar- manna. Meðal ræðumanna sem tóku undir orð Bjarna var Haukur Helgason, náinn samstarfsmaður Kjartans Jóhannssonar. Málsgreinin um stjórnarand- stöðuna og Alþýðubandalagið, sem felld var niður, var svohljóðandi: „Stjórnarandstaðan er veikari en skyldi. Stærsti flokkur stjórnar- andstöðunnar, Alþýðubandalagið, er tækifærissinnaður öfgaflokkur, sem ítrekað hefur sýnt ábyrgðar- leysi í stjórnarsamstarfi og dekrar við öfgastefnur í samræmi við uppruna sinn, en hættan er sú að einar öfgarnar magni aðrar.“ að leggja til afsláttarstefnu í lýð- ræði innan Alþýðuflokksins. Hann sagði kjósendur í prófkjörum aldr- ei hafa verið vandamál, vandinn hefði legið hjá óþroskuðum fram- bjóðendum, sem ekki kynnu að taka tapi. Hann lagði til, að mál- inu yrði vísað til flokksstjórnar, sem setja skyldi nefnd til nánari athugunar á málinu. Sú tillaga var síðar felld með meginþorra at- kvæða. Menn skiptust mjög i tvo hópa i skoðunum á hversu opin prófkjör- in ættu að vera. Kristján Möller frá Siglufirði sagði m.a. að hann hefði sjálfur tekið þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og sagði að i fámenninu væri við aðrar aðstæð- ur að eiga en á höfuðborgarsvæð- inu og því þyrftu menn þar að geta ákveðið sjálfir hvernig prófkjör- um skuli háttað. Björgvin Sig- hvatsson sagðist ætíð hafa verið á móti prófkjörum og væri hann þar ekki að tala fyrir hönd sonar síns. Hann kvað prófkjör handhæg vopn í höndum framagosa og um- renninga og að þau gætu snúist upp í bolabrögð og innanflokks- átök. Aðrir tóku undir málflutn- ing Gunnlaugs Stefánssonar. Snorri Guðmundsson úr SUJ gerði að tillögu sinni, að prófkjörin yrðu opin öllum 18 ára og eldri, sem ekki væru flokksbundnir annars staðar, nema % hluti kjördæmis- ráðs, fulltrúaráðs eða flokksfélags ákvæði annað. Sú tillaga var síðar felld með 83 atkvæðum gegn 37. Horgunblaðið/úlafur K. Magnúsaon. Nýir formenn og frifarandi formaður hylltir. Jóhanna Sigurðardóttir varaformaður Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson formaður og Kjartan Jóhannsson frifarandi formaður. Kosningar til framkvæmdastjómar: Formaður SUJ efstur með 97 atkvæði Þingfulltrúar biðu úrslitanna f formannskjörinu f mikilli spennu. Prófkjörsreglur: Akvörðun um framkvæmd og reglur heim i héruð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.