Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1965 t Eiginkona min, móðir okkar og tengdamóöir, GUÐRÚN GUDMUNDSDÓTTIR, Hringbraut 64, Hafnarfiröi, andaöist i Landspitalanum aö morgni þess 17. mars. Útförin veröur augiýst siöar. Sigurjón Jónason, Þóra Sigurjónsdóttir, Atli Ágústsson, Jón Egill Sigurjónsson, Jóhanna Gisladóttir, Njéll B. Sigurjónsson, Ásta Hraunfjörö, Eyrún Sigurjónsdóttir, Dagbjartur Björnsson. t Móöir min, INGA K. ÞORSTEINSDÓTTIR, Nýbýlavagi 58, Kópavogi, lést aö morgni 17. mars. Þór Erling Jónsson. t Eiginkona min og móöir okkar, INGIBJÖRG ESTER EINARSDÓTTIR, Svinafelli, örssfum, lést i Borgarspitalanum 17. mars. Fyrir hönd barna okkar og annarra vandamanna. Guðlaugur Gunnarsson. t Móöir okkar, dóttir, systir og mágkona, ÓLAFÍA SIGRÚN ODDSDÓTTIR fré Sandi (Kjós, Kérsnesbraut 91, Kópavogi, lést mánudaginn 18. mars I985 i Landspitalanum. Aóstandendur. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, SIGURLÍNA ÁGÚSTA SIGURDARDÓTTIR, Miötúni 3, lést 16. mars á Öldrunardeild Borgarspítalans. Ágústa Sveinsdóttir, Sigurjón Sveinsson, Halla Hersir, og barnabörn. t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, VALDÍS TRYGGVADÓTTIR, Dalbraut 27, lést 15. mars sl. Hólmfríöur Ásgeirsdóttir, Svarrir Jónsson, Marfa Ásgeirsdóttir, Péll Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Faöir okkar, DAVÍD ÓSKAR GRÍMSSON, Bergstaöastreeti 25, lést aöfararnótt 16. mars á Elliheimilinu Grund. Börnin. t EOVALD B. MALMQUIST, lést i sjúkrahúsi sunnudaginn 17. mars sl. Fyrir hönd aöstandenda, Ásta Th. Malmquist. + Bróöír minn og mágur, GUDMUNDUR GUDMUNDSSON, tyrrverandi kirkjugarösvörður, Kirkjugarösstig 8, andaöist í Landakotsspitala þann 17. mars. Einar G. Guómundason, Margrét S. Ágústsdóttir. Adam Magnússon Akureyri Kveðja Allar þóttu þær sérstök lista- smíð. Þegar hann lagðist á bana- beð stóðu umgerðirnar að fjórum síðustu klukkunum fullsmíðaðar á verkstæðinu hans. Klukkuverkin höfðu tafist erlendis frá vegna verkfalls. ísetningu þeirra lauk holl sonarhönd áður en lista- smiðnum hvarf vitund. Honum varð rótt. Ég var nábúi þessa hljóðláta, viðmótsþekka úrvalssmiðs í 4 ár, t Vinur minn, HALLGRÍMUR GUNNAR ÍSLEIFSSON, Barónsstig 63, andaöist i Landspitalanum 14. mars. Vilhjálmur Jóhannesson. t Utför fósturmóöur okkar, GUONÝJARJÓNSDÓTTUR, Austurbergi 14, Reykjavfk, fer fram miövikudaginn 20. mars kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á Krabba- meinsfélag fslands. Eyrún Jónsdóttir, Þorvaröur Jónsson. t Útför eiginkonu minnar, móöur og fósturmóöur, ÓLAVÍU INGIBJARGAR DANÍELSDÓTTUR snyrtisérfreeóings, Engihlfö 14, fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 19. mars kl. 15.00. Siguröur Sveinsson, Linda Hrönn Siguröardóttir, Margrét Ágústsdóttir. t Sonur minn og fósturfaöir, SVEINN HELGASON, bókari, sem lést 11. þ.m. veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miö- vikudaginn 20. mars kl. 10.30 f.h. Jarösett veröur i Gufuneskirkjugaröi. Fyrir hönd systkina hans og annarra vandamanna, Magnea G. Magnúsdóttir, Einar Kárason. t Eiginmaöur minn og faöir, ÞÓRÐUR ÞÓRDARSON, fyrrverandi yfirlæknir, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, miövikudaginn 20. mars kl. 13.30. Louisa Þóröarson, Kristrún Þóröardóttir. Skrifstofur okkar veröa lokaðar fyrir hádegi á morgun, miövikudaginn 20 mars, vegna jarðarfarar. Brunabótafélag íslands Laugavegi 103. Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. I minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. en þó kynntumst við ekki náið. Hann bar ekki skoðanir sínar né tilfinningar á torg. Það hvarflaði heldur ækki að neinum að troða honum um tær í þeim efnum. Oft varð mér að leita til hans um við- gerðir og lagfæringar og hlaut ætið Ijúfa og góða úrlausn. Öðrum mun hafa reynst svo. Ungum sveinum úr nágrenni hans varð tíðgengið á verkstæði hans til að öðlast timburafganga i leikbú. Þeim var tekið með hlýju viðmóti og fúsri úrlausn. Ekki var ótitt, að menn litu sér aðeins til yndis inn á verkstæði hans, segðu fáein orð við smiðinn, en gæfu fyrst og fremst gaum að vinnubrögðum hans. Það var eins og hendur hans væru gæddar sjálfstæðu lífi. Þær gældu af sérstakri alúð við við- fangsefnið, og því meiri sem það var fíngerðara. Þar lá í augum uppi merking orðsins smiðshend- ur. Þetta var meðalmaður á vöxt, grannvaxinn, kvikur í hreyfingum en asalaus. Honum slapp varla verk úr hendi. Alúðarvinna var óður hans til lífsins. Þessi maður hét Adam Magn- ússon, átti rösk fjörutiu síðustu ár ævi sinnar heima að Bjarkarstíg 2, Akureyri, og var húsa- og hús- gagnasmiður að iðn. Einstakur öðlingsmaður að dómi allra, sem nokkuð kynntust honum. Hann andaðist 12. nóv. sl. eftir stutta legu. Sláttumaðurinn slyngi sýndi þessum mikla iðjumanni þá til- litssemi að láta hann ekki bíða náðarhvíldar lengi. Útför hans fór fram frá Akureyrarkirkju 20. síð- asta mánaðar að viðstöddu miklu fjölmenni. Hann hafði öðlast að- dáun, virðingu og þakklæti margra á lífsleið sinni. Líklega hefir vinum og góð- kunningjum Adams ýmsum hverj- um farið líkt og mér að búast fast- lega við, að aðrir færari minntust hans nokkrum orðum, og það svo ekki orðið hjá neinum. Or þessu vil ég bæta, þótt seint sé og fá- tæklegar verði en vert er. Adam Magnússon var fæddur að Brimnesi í Ólafsfirði 3. sept. 1903 og því liðlega 81 árs gamall er hann lést. Foreldrar hans voru hjónin Halldóra Þorsteinsdóttir útvegsbónda Jónssonar í ólafs- firði og Magnús Brandur Sölvason bónda Sæmundssonar á Þverá I Ólafsfirði. Magnús var smiður að iðn, hafði lært smíðar hjá hinum kunna trésmiðameistara og at- hafnamanni á sinni tið Snorra Jónssyni á Akureyri. Var Magnús á orði sem góður smiður og því eftirsóttur til þeirra verka. Vann hann að smíðum á vetrum, en til fiskjar réri hann á sumrum, því að mikils þurfti heimilið við: Á 12 ár- um eignuðust hjónin 8 bðrn. For- sjá Magnúsar naut þó ekki lengi við. Hann lést 43 ára gamall. Hall- dóra stóð eftir með hópinn þeirra, elsta barnið 12 ára, yngsta barnið á fyrsta ári. Adam, næst elstur, var þá 11 ára. En Halldóru Þorsteinsdóttur virðist ekki hafa verið fisjað sam- an. Með hagsýni og dugnaði tókst henni að sjá hópnum sínum far- borða í heimagarði nær órofa, vann myrkra milli að hverju verki sem fékkst, stóð löngum í fisk- verkun, en fékk sér líka prjónavél og stundaði prjónaskap, eftir þvf sem um var beðið. Og ekki lágu börnin á liði sínu, þegar þau fengu verk að vinna. Allt rann í sameig- inlegan heimilissjóð. Þá voru ekki tryggingar til, en hjálpsemi góð- vina blómstraði hins vegar ekki verr en fyrr og síðar. Það var ekki vanþakkað. Allur þessi stóri systkinahópur komst farsællega upp og lagði síðan þjóðarbúinu gott lið sitt um langa ævi. Lifa systkinin enn, þó ekki verði hér talin, nema elsti bróðirinn Sigur- steinn, skáld og skólastjóri í Ólafsfirði, og Adam. Þegar þyngstu brimskaflarnir voru að baki eftir föðurmissinn lærði Adam Magnússon til húsa- smíði í Ólafsfirði, en smiðshneigð hans lét sér það nám ekki nægja. Hann réð sig því í húsgagnasmíða- nám til Ólafs Ágústssonar á Ak- ureyri, sem þá var einn færastur talinn í þeirri iðn á Akureyri, og lauk einnig sveinsprófi i þeim smíðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.