Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 1
48SÍÐUR OGLESBÓK STOFNAÐ 1913 138. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Margir handteknir eftir sprengingar Katmandu. Nepal, 21. júnf. AP. LÖGREGLAN í Nepal hefur hand- tckid 125 manns og fundið um hundr- að sprengjur víðs vegar í konungs- dæminu eftir að sex sprengjur sprungu í konungshöll, þinghúsi og stjórnarráði landsins í höfuðborginni Katmandu sl. fimmtudag. 7 manns létu lífið í þessum sprengingum, þar i meðal einn þingmaður, og 24 særð- ust. I dag lét ein kona lífið þegar spengja, sem hún bar á sér, sprakk í Birguni, fjórðu stærstu borg landsins. Stjórnarhermenn standa nú vörð um þær byggingar, þar sem sprengjurnar sprungu, og er mikill viðbúnaður í höfuðborginni. Marg- ir erlendir ferðamenn hafa farið frá landinu i kjölfar spreng- inganna. Þetta er í fyrsta sinn í nokkurn tíma, sem hermdar- verkamenn láta að sér kveða í Nep- al, en þó hefur verið róstusamt þar undanfarið. Mótmælin beinast einkum gegn konungsdæminu, sem komið var á 1960, en starfsemi margra stjórn- arandstöðuflokka í landinu er nú bönnuð. Konungur landsins, Birendra, kallaði þjóðþingið saman til skyndifundar í gær til að ræða sprengingarnar. Enn hefur enginn aðili lýst á hendur sér ábyrgð á þeim. Stjórn Birendras telur hins vegar, að hér hafi verið að verki pólitískir andstæðingar konungs, en þeir hafa krafist þess að lýðræði að vestrænni fyrirmynd verði kom- ið á í Nepal. Flugræninginn á Fornebu-fhigvelli í Osló vopnaður skammbyssu í dyrum Boeing 737-flugvélarínnar síðdegis ( gær. Verdens Gang/Slmamynd Ræninginn gafst upp eftir 4 klukkustundir Osló, 21. júní. Frá AP og Ragnhildi Sverr»dóttur, frétUritara MorgunbUAninn. DRUKKINN Norðmaður, sem rændi norskri farþegaþotu í innanlandsflugi eftir hádegi í dag, gafst síðdegis upp fyrir lögreglumönnum á Fornebu-flugvelli í Osló. Þá hafði hann haft flugvélina klukkustundir. Flugræninginn, sem er 24 ára að aldri og á afbrotaferil að baki, krafðist þess að fá að hitta að máli Káre Willoch, forsætisráðherra Noregs, og Monu Röekke, dóms- málaráðherra. Hann var vopnaður skammbyssu og hnffi. Vélin, sem er af gerðinni Boeing 737, var á leiðinni frá Þrándheimi til Oslóar. Um borð voru 116 far- þegar og fimm manna áhöfn. Ræninginn leyfði 70 farþegum að fara frá borði um klukkustund eftir að lent var á Fornebu-velli og síðan og áhöfn hennar á valdi sínu í fjórar peim, sem áttu eftir að yfirgefa vélina, í tveimur hópum. Hann heimtaði að fá bjór um borð og virðist sem mjöðurinn hafi lamað þrek hans til að fylgja kröfunum eftir. Þetta er í fyrsta sinn, sem flug- vél er rænt í Noregi. Slík atvik hafa tvisvar áður oriðið annars staðar á Norðurlöndum. Árið 1979 var sov- éskri vél rænt á leiðinni frá Osló til Stokkhólms og árið 1972 hótuðu öfgamenn frá Króatíu að sprengja upp SAS-vél í Malmö. AP/Sínumynd Frá mótmælafundi shíta á Beirút-flugvelli (gær, föstudag. Á borðanum, sem mótmælendur halda á, stendur á ensku: „Niöur með Bandarfkin!" Spennan eykst í gíslamálinu: Mótmæli shíta á Beirút-flugvelli Beiiiit, 21. júnf. AP. UM El'I’l' þúsund shítar söfnuðust saman á flugvellinum í Beirút í Líb- anon í dag til að lýsa yfir stuðningi sínum við flugræningjana, sem halda 40 Bandaríkjamönnum í gísl- ingu víðs vegar í Beirút og ná- grenni. Fólkið hafði jafnframt uppi hróp gegn Bandaríkjunum og ísra- el. Þykir atburður þessi hafa orðið til að auka spennuna í gíslamálinu. Hermenn Amal-sveita shíta, vopnaðir sovéskum rifflum, voru í varðstöðu við bandarísku far- þegaþotuna á vellinum, sem rænt var fyrir viku, og héldu þeir fólk- inu í hæfilegri fjarlægð frá henni. Um borð í vélinni eru enn þrír úr áhöfninni auk flugræn- ingja. I dag flugu tvær ísraelskar orrustuþotur yfir Beirút og rufu þær hljóðmúrinn í grennd við flugvöllinn. Haft er eftir ónafngreindum heimildarmönnum meðal shíta, að flugræningjarnir íhugi að láta tvo gísla til viðbótar lausa. Það eru þeir Jimmy Dell Paller, 48 ára, og Claude Whitmoyer, sem er tæplega fertugur. Báðir eru þeir heilsuveilir. í kvöld var haft eftir heimild- um í Jerúsalem, að Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels, hefði í dag hringt i George Shultz, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sem er í Washington og látið í ljós stuðning við stefnu Banda- ríkjamanna í gíslamálinu. Flugræningjarnir krefjast þess, að um 700 shítar, sem eru í haldi í ísrael, verði látnir lausir í skiptum fyrir bandarísku gíslana. Bandaríkjamenn og ísraelar hafa þvertekið fyrir að fallast á þá kröfu. Sjá: „Reagan leitar til Rauða krossins", „Peres ber lof á Reagan og Shultz“ og „Báðu Rússar Assad að leysa gísla- málið?" á bls. 20. UNESCO: Samstaða um starfs- áætlun Parte. 21. jiaf. AP. SEX vikna fundi framkvæmdastjórn- ar UNESCO, Menningar- og vísinda- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, lauk í l’arís í dag með því að starfs- og fjárhagsáætlun 1986—87 var sam- þykkt án þess að gengið væri til at- kvæða. Verður hún nú lögð fyrir aðal- þing stofnunarinnar, sem haldið verð- ur í Sofia, höfuðborg Búlgarfu, ( Umhverfismálanefnd danska þingsins: Beitir sér gegn áformum íslend- inga um hvalveiðar í vísindaskyni KaupmmDnabörn, 21. júnf. UMHVERFISMÁLANEFND danska þingsins hefur ákveðið að gera brag- arbót á afstöðunni til hvalfriðunarmála. Kemur það fram hjá talsmönnum nefndarinnar, að hingað til hafi gætt-nokkurs tvískinnungs í þessu efni, en nú á að taka af skarið og hafa fulla samstöðu með þeim, sem vilja algera friðun, á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í júl( nk. Voru nefndarmenn sammála um þetta nema Pauli Ellefsen, fulltrúi Færeyinga. Þessar upplýsingar koma fram hafi verið tekin skýr afstaða til í fréttatilkynningu frá Sósialiska þjóðarflokknum (SF) í Danmörku en þar segir ennfremur, að auk þess sem ákveðið var að fylgja ávallt friðunarmönnum að máli hvalveiða Norðmanna, Islendinga og Færeyinga. Er hún þessi: — Komið skal í veg fyrir, að Norðmenn skilgreini veiðar sínar að nýju, þannig að um sé að ræða frumþörf en ekki veiðar i ábata- skyni. — Unnið skal gegn áætlunum íslendinga um að árlega í fjögur ár verði veiddar í visindaskyni 80 langreyðar, 80 hrefnur, 40 sand- reyðar, 10 steypireyðar og 10 hnúfubakar. — Barist skal gegn veiðum Færeyinga í vísindaskyni á stór- um, friðuðum hvölum. Umhverfismálanefnd danska þingsins leggur áherslu á, að hrefnuveiðar Grænlendinga verði tryggðar, og gerir hún greinar- mun á þeim og veiðum Norð- manna, lslendinga og Færeyinga. Danska sendinefndin á ársfund- inum i júli á einnig að vinna að því, að Alþjóðahvalveiðiráðið hafi með aðrar hvaltegundir að gera eins og lagt sé til i Alþjóðahaf- réttarsáttmálanum. hausL William Dodd, fulltrúi Breta í framkvæmdastjóminni, sagði að á fundinum hefðu Bretar ekki náð öllu því fram, sem þeir stefndu að. Lét hann i ljós óánægju með, að ekki hefði náðst samstaða um að skera niður útgjöld til umdeildra pólitískra verkefna. Breska ríkis- stjórnin hefur ákveðið að hætta að- ild að UNESCO um næstu áramót ef ekki verða gerðar umtalsverðar breytingar á starfsemi og skipulagi stofnunarinnar. Bandaríkjamenn hafa þegar hætt þátttöku i starf- inu. Yuri Khilchevsky, fulltrúi Sov- étríkjanna, kvaðst fagna því „póli- tíska raunsæi" sem fundarmenn hefðu sýnt á undanförnum vikum. Hann sagði, að Sovétmenn mundu halda áfram að berjast fyrir aðild UNESCO að nýskipan fjölmiðlunar i heiminum og ýmsum póltískum verkefnum er lúta að friði og af- vopnun. I I i I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.