Morgunblaðið - 10.09.1985, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1985
Sjö mörk á Ólafsfirði
SKALLAGRÍMUR úr Borgarnesi
sigraði Ólafsfirðinga þegar liðin
mættust á Ólafsfirði á laugar-
daginn. Sjð mörk voru skoruö í
all fjörugum leik, Skallagrímur
geröi fjögur mörk en heimamenn
þrjú. Leiftur er nú fallið í 3. deild
eftir eins árs veru í þeirri annarri.
Heimamenn sóttu talsvert meira
fyrstu mínútur leiksins og átti þá
Hafsteinn Jakobsson meöal annars
skot í stöng. Það voru þeir Skalla-
grímsmenn sem náöu fljótlega tök-
um á leiknum og þeir skoruöu fyrsta
markiö á 15. mínútu og var þar aö
verki Björn Jónsson. Aðeins um tíu
mínútum siöar skoraöi Gunnar
Orrason annaö mark Skallagríms
og töldu margir aö þar hafi veriö
um rangstööumark aö ræöa. Gunn-
ar Jónsson skoraöi síöan þriöja
mark Borgnesinga skömmu eftir
leikhlé.
Leiftur — Skallagr.
3:4
Heimamenn komu tvíefldir til
leiks í síöari hálfleik og sóttu mun
meira en Borgnesingar áttu hættu-
legar skyndisóknir og þeir skoruöu
úr einni slíkri. Fyrst skoruöu heima-
menn og var þar aö verki Hafsteinn
Jakobsson. Síöan lagaöi Jóhann
Örlygsson enn stööuna fyrir heima-
menn áöur en Björn Axelsson náöi
aö skora fyrir Skallagrím og staðan
þá oröin 2:4. Rétt fyrir leikslok tókst
Helga Jóhannssyni aö minnka enn
muninn og þannig lauk leiknum.
— JÁ
Völsungar betri
VÖLSUNGUR sigraði Njarðvík
þegar liðin mættust í Njarðvík á
sunnudaginn, 1:4 og var sigur
þeirra mjög sanngjarn. Þeir voru
betri aðilinn á vellinum og verö-
skulduðu sigurinn fullkomlega.
Með þessum sigri halda Húsvfk-
ingar sár í fimmta sæti 2. deildar
en Njarðvík er nú komið í það
sjöunda þar sem Skallagrímur úr
Borgarnesi skaust upp fyrir þá
með sigri á Leiftri.
Húsvíkingar hófu leikinn af mikl-
um krafti og strax á 6. mínútu komst
Kristján Olgeirsson einn inn fyrir
vörn heimamanna en Örn Bjarna-
son, markvöröur, bjargaði vel meö
úthlaupi. Aöeins þremur mínútum
síöar komust Njarövíkingar yfir í
leiknum og var þaö nokkuö klaufa-
legt hjá markverði Völsungs. Hann
fór í misheppnaö úthlaup út í víta-
teig sinn og þegar hann var aö
bakka í markið aftur skaut Haukur
Guömundsson af löngu færi yfir
markvöröinn og í netið. Markvörð-
urinn náöi aö vísu aö snerta knött-
inn en ekki nóg og inn fór hann.
Á 19 mín. jafnaði Jónas Hall-
UMFN — Völsungur
1 'A
grímsson fyrir Völsung meö skalla
eftir hornspyrnu og eftir aö knöttur-
inn haföi gengiö koll af kolli í nokk-
urn tíma í vítateignum. Helgi Helga-
son bætti síöan ööru marki viö meö
skalla eftir sendingu frá Ómari
Rafnssyni og rétt fyrir leikhlé skor-
aöi Kristján Olgeirsson þriöja mark
gestanna meö hörku skoti eftir
varnarmistök.
Ómar Rafnsson skoraöi síðan
fjóröa markiö rétt fyrir leikslok meö
skalla eftir hornspyrnu. Ómar og
Kristján voru bestir Völsunga en
Örn Bjarnason hjá heimamönnum.
Björn Olgeirsson var rekinn af leik-
velli undir iok leiksins fyrir aö
sparka Jón Halldórsson niður.
— ÓT
Sanngjam
sigur ÍR
ÍR-ingar urðu á laugardaginn ía-
landsmeistarar í 4. deild karia í
knattspyrnu þegar liðið sigraöi
Reyni á Akureyrarvelli í úrslita-
leiknum um þessi verðlaun. Sigur
ÍR var sanngjarn og sannfærandi,
þeir voru mun betri aöilinn í leikn-
um og eru vel að þessum sigri
komnir.
Þaö voru Reynismenn sem fengu
fyrsta marktækifærið í leiknum
þegar þeim var dæmd aukaspyrna
rétt utan vítateigs. Þórarinn Jó-
hannesson tók spyrnuna og skaut
efst í markhornið en Þorsteinn
Magnússon varöi mjög vel í horn.
Eftir þetta tóku ÍR-ingar leikinn í
sínar hendur og áttu fyrnin öll af
marktækifærum og óþarfi aö telja
þau öll upp — slíkt yröi of langt mál.
Fyrsta markið skoruöu þeir á 36.
mínútu. Vignir Sigurösson fékk þá
knöttinn við fjær stöng eftir horn-
spyrnu frá hægri. Hann tók knöttinn
viöstööuiaust á lofti og sendi hann
rakleiöis í netiö. Skömmu síöar átti
Sigfinnur skalla í þverslá og þvi var
staðan 1:0 í leikhléi þrátt fyrir mörg
tækifæri.
I upphafi síöari hálfleiks bættu
þeir við sínu ööru marki. Páll Rafns-
son komst inn í vítateig og skaut,
Gunnar Garöarsson varöi skot
hans en hélt ekki knettinum sem
barst út til Páls aftur og nú brást
honum ekki bogalistin og skoraöi
aföryggi.
Reynismenn minnkuöu muninn á
55. mínútu meö marki Björns Frið-
þjófssonar. Hann komst einn inn
fyrir vörn ÍR, lók á markvöröinn og
renndi knettinum í netiö.
Á 75. mínútu innsigluöu Breihylt-
ingar síöan sigur sinn í 4. deild
þegar Guömundur Magnússon ein-
lók frá miöjum vallarhelmingi Reyn-
is og komst inn í vítateiginn þar sem
hann skoraöi örugglega.
Eftir þetta áttu ÍR-ingar meöal
annars skot í þverslá og skömmu
fyrir leikslok var Braga Björnssyni,
einum besta leikmanni liösins, vikiö
gj leikvelli.
ÍR-iiöiö er mjög léttleikandi liö
og skemmtilegt. Bragi Björnsson,
Kari Þorgeirsson og Gústaf Björns-
son áttu allir góöan dag og þaö
sama má raunar segja um alla IR--
ingana. Hjá Reyni var Þórarinn Jó-
hannesson traustur í vörninni.
— AS
MOfjumwow/ rnopfOTur
•Benedikt Guðmundsson þrumar hér knattinum ( netið hjá Fylki. Ólafur markvörður liggur á jðrðinni og
Gunnar Gylfason stekkur yfir hann.
Fylkismenn eru fallnir
FYLKISMENN eru fallnir í 3. deild.
Liöið tapaði fyrir Breiðablik í
Kópavoginum á sunnudaginn, 0:1,
og eru þar með failnir í þriöju
deild ásamt Leiftri frá Ólafsfirði.
Leikurinn í Kópavoginum veröur
ekki lengi í minnum haföur nema
þá einna helst fyrir frábæra mark-
vörslu Sveins Skúlasonar í síöari
hálfleiknum þegar hann varöi víta-
spyrnu. Sveinn varði góöa víta-
spyrnu frá Kristni Guömundssyni,
og ekki nóg meö þaö. Sveinn hélt
ekki knettinum er hann varöi vítiö
UBK — Fylkir
1:0
og hrökk boltinn aftur út til Kristins
sem skaut föstu skoti en Sveinn var
fljótur á fætur og geröi sér lítiö fyrir
og varöi aftur. Frábær markvarsla
hjá Sveini.
Eina mark leiksins skoruöu
Breiöabliksmenn á 27. mínútu. Jón
Þórir Jónsson tók þá aukaspyrnu
viö vítateigshorniö, sendi háan
bolta aö fjærstönginni þar sem
Gunnar Gylfason náöi aö skalia aö
marki. Ólafur markvöröur varöi en
hélt ekki boltanum sem datt fyrir
fætur Benedikts Guömundssonar
sem var ekki seinn aö skora.
Breiöabliksmenn voru betri aöil-
inn í þessum leik og veröskulduöu
sigurinn. Fylkir lék þó stundum
ágætlega og þaö er synd aö þeir
þurfi aö leika í 3. deild aö ári.
— sus
Ekkert skorað
Staðan í
2. deild
STAÐAN í 2. deild, þegar ein
umferð er eftir, er þessi:
ÍBV 17 10 6 1 40:13 36
UBK 17 10 4 3 30:15 34
KA 17 10 3 4 32:15 33
KS 17 7 4 6 24:23 25
Völsung. 17 7 3 7 28:24 24
Skallagr. 17 6 4 7 25:38 22
Njarðvík 17 5 4 8 14:24 19
ÍBÍ 17 3 8 6 18:22 17
Fylkir 17 3 3 11 13:24 12
Leiftur 17 3 3 11 17:38 12
ÍSFIRÐINGAR og Siglfiröingar
gerðu markalaust jafntefli þegar
liðin mættust á ísafirði í 17. og
næstsíöustu umferð annarar
deildar íslandsmótsins í knatt-
spyrnu.
Meö þessu jafntefli komu ísfirö-
ingar sér úr allri fallhættu fyrst Fylk-
ir tapaöi í Kópavoginum og þeir eru
nú með 17 stig, fimm stigum meira
en Fylkir og Leiftur. Siglfiröingar
eru hins vegar í fjóröa sæti, einu
stigi á undan Völsungum en þessi
tvö liö geta sett strik í reikninginn í
toppbaráttunni því í síöustu um-
IBI — KS
0:0
feröinni eiga Breiöabliksmenn að
leika viö Völsung á Húsavík og KA
á leik á Siglufiröi en þessi tvö liö
berjast um aö fylgja Vestmanney-
ingum upp í fyrstu deild aö ári, en
auövitaö veröa Eyjamenn aö vinna
Njarövík á heimavelli til aö vera
alveg öruggir.
íslandsmeistarar ÍR
ÍSLANDSMEISTARAR (4. deild karla í knattspyrnu, aftari röð frá vinstri: Þorkell Ragnarsson, stjórnar-
maöur, Bergþór Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar, Hrafn Loftsson, Eyjólfur Sigurösson,
Halldór Halldórsson, Vignir Sigurðsson, Sigurfinnur Sigurjónsson, Hlynur Elísson, Páll Rafnsson,
Guðmundur Björgvinsson, Gústaf Björnsson, þjálfari, Björn Gunnarsson, stjórnarmaður, og Hans
Blomsterberg, stjórnarmaður. Fremri röð frá vinstri: Knútur Bjarnason, Bragi Björnsson, Þorlákur
Óskarsson, Guðmundur Magnússon, fyrirliöi, Þorsteinn Magnússon, Karl Þorgeirsson, Einar Svavars-
son, Birkir Blomsterberg.