Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 48
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1986 VERÐ LAUSASÖLU 40 KR. Læknar íhuga upp- sögn samninga ^ SÉRFRÆÐINGAR i læknastétt íhuga nú að segja upp samningi sínum við Tryggingastofnun ríkisins vegna þeirrar ákvörðunar TR að breyta gjaldskrá sérfræðinga í nokkrum greinum. Breyting- in hefúr í för með sér verulega lækkun launa hjá sumum sérfræð- ingum á stofú og gildir aftur i timann frá 1. september siðastliðn- um. Segi sérfræðingar upp samningi sínum við TR þýðir það að sjúklingar koma til með að bera allan kostnað af slíkum læknisvið- töium. Nú greiðir sjúklingur 325 krónur fyrir viðtal við sérfræð- ing, en Tryggingastofnunin 200-800 krónur á móti eftir lengd viðtalsins. Möguleikinn á uppsögn kom til tals á fundi 80-90 sérfræðinga í Læknafélagi Reykjavíkur sl. föstu- dag. Engin ákvörðun var tekin á fundinum, en samkvæmt heimild- um blaðsins voru tveir kostir á uppsögn teknir til umfjöliunar. Engey RE fékk á sig brot: Brúin fylltist aisjo SKUTTOGARINN Engey RE-1 fékk á sig brotsjó á Færeyja- banka á laugardag er hann var á Ieið í siglingu. Brúna fyllti en engin slys urðu á mönnum. Ágúst Einarsson forstjóri Hrað- frystistöðvarinnar sem gerir togar- ann út sagði að við brotið hefðu brotnað allar rúður i stýrishúsinu og það fyllst af sjó. Rafmagn hefði farið af öllum tækjum í brúnni. Skipið hélt áfram siglingu sinni og jpt'ar samferða togaranum Klakk VE, sem var á sömu leið. Tafðist hann þó um einn dag og er ráðgert að selja fiskinn úr honum í Cux- haven í Vestur-Þýskalandi á fímmtudag. Ágúst sagði að menn frá útgerðinni og tryggingafélag- inu myndu fara út í dag til að kanna skemmdir. Hann sagði lík- legt að flest siglingatækin í brúnni hefðu skemmst mikið við brotið, en þau er milljóna virði. Annars vegar að segja upp frá og með 1. febrúar og tæki uppsögnin þá gildi að þremur mánuðum liðn- um, eða þann 1. maí. Hitt var einnig talið koma til greina að slíta samningnum strax, þar eð Trygg- ingastofnunin hefði með ákvörðun sinni að láta gjaldskrárbreytinguna gilda frá 1. september í reynd leyst lækna undan samningnum frá þeim tíma. Fundur hefur verið ákveðinn með samninganefndum sérfræð- inga og Tryggingastofnunar ríkis- ins næstkomandi fimmtudag, þann 9. febrúar, og læknar munu síðan aftur koma saman til fundar um máliðþann 14.janúar. Verzlunarskólinn flyzt í nýja húsið Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg Verzlunarskólinn fluttist í nýju húsakynnin í Ofanleiti 1 í gær og gengu nemendur og kennarar með skólastjóra í fylkingarbijósti milli gamla og nýja skólans. Tveir nemendur báru skólabjölluna og hersingin fylgdi á eftir. Á myndinni ganga menn eftir Miklubraut á nýjar slóðir. Sjá nánari frásögn á bls. 18 og 19. Eimskip kaupir eignir þrotabúsins á 318 milljónir Hofsá fer í siglingar með ferskan fisk síðar í mánuðinum SAMNINGUR um kaup Eimskipafélags íslands á flestum eignum þrotabús Hafskips hf. var undirritaður í gær. Eimskip keypti þijú vöruflutningaskip þrotabúsins, gáma, lyftara, bíla, vagna og fleira. Kaupverð er 7.526 þúsund dollarar, jafnvirði rúmlega 318 milljóna króna, og greiðir Eimskip það með skuldabréfúm til Útvegsbanka íslands. Hofsá fer síðar í mánuðinum í siglingar með ferskan og fryst- an físk á milli íslands, Bretlands og meginlands Evrópu og með almenna stykkjavöru til landsins. Eimskip er að kanna með verkefni fyrir Rangá. Að sögn Harðar Sigur- gestssonar forstjóra Eimskips kemur til greina að hún verði notuð í strapd- siglingar hér innanlands, en gera verður verulegar breytingar á skipinu áður. Hörður sagði að engin föst áform væru með Selá og yrði leitað eftir kaupanda að henni. Hörður sagði að vegna aukinna verkefna þyrfti Eimskip að fjölga starfsfólki eitthvað, 6-8 manns yrðu ráðnir á skrifstofu Eimskips í Reykjavík, 15-20 í vöruafgreiðslu, auk áhafna skipanna. Tæplega 700 manns vinna nú hjá félaginu. Eimskip hefur nú þegar gengið frá ráðningu sex starfs- manna Hafskips, þriggja til umboðs- Rannsóknardeild ríkisskattsfióra grandskoðar Þýsk-íslenska hf.: -Telja birgðir vantaldar um tugi milljóna króna - og þannig hafi tekju- og eignar- skattur lækkað verulega 1984 REIKNA má með að alllangur tími líði þar til botn fæst í meint ^kattsvikamá! Þýsk-íslenska hf., sem nú er til rannsóknar hjá skattrannsóknadeild ríkisskattstjóra og sagt var frá í blaðinu á laugardaginn. Sérstök rannsókn hófst á bókhaldi, birgðahaldi og söluskattskilum fyrirtækisins í nóvember sl. Rannsóknin mun enn tiltölulega skammt á veg komin og hefúr ekki enn verið krafist opinberrar rannsóknar í málinu eða því vísað til ríkissaksóknara með ósk um umsögn embættis hans. Samkvæmt upplýsingum Morg- —>“unblaðsins telur skattrannsókna- deildin að fyrirtækið hafi vantalið tekjur sínar og eignir um rúmlega eitt hundrað milljón krónur á árinu 1984. Þá mun skattrannsóknadeild- in telja, að birgðir fyrirtækisins hafi verið verulega vantaldar, svo munar tugum milljóna króna. Þann- ig hafi hagnaður fyrirtækisins verið lækkaður með miklum afskriftum og tekju- og eignarskattur þar með lækkaður verulega. Ymsir vankant- ar á bókhaldi fyrirtækisins hafa einnig komið í ljós við rannsókn skattrannsóknadeildarinnar, skv. heimildum blaðsins. Þýsk-íslenska hf. var stofriað haustið 1956 en hefur undanfarinn áratug verið í eigu ijölskyldu Ómars Kristjánssonar forstjóra, sem er stjórnarformaður fyrirtækisins og aðaleigandi þess. Velta Þýsk- íslenska hf. á síðasta ári var ríflega tvö hundruð milljónir króna. skrifstofa erlendis og þriggja á flutn- ingasvið aðalskrifstofu í Reykjavík og verða einhveijir fleiri ráðnir síðar, m.a. í vöruafgreiðslu og áhafnir skipa. Með samningnum við þrotabúið keypti Eimskip eftirtaldar eignir: Skipin ms. Hofsá, ms. Rangá og ms. Selá; eignar- og leiguréttindi þrota- búsins við Faxaskála, A-skála og Ingólfsgarð við Reykjavíkurhöfn; 164 gáma; 38 vörulyftara og 1 sóp; 10 bifreiðir og 1 dráttarvél; 13 dráttar- vagna og 11 gámaflutningavagna; vélar, áhöld og annan búnað í lyft- ara-, bifreiða- og skipaverkstæði; lestunar- og losunarbúnað; skrif- stofuáhöld og innréttingar á skrif- stofu og hlutabréf í 8 félögum. Kaupverð er eins og áður greinir 7.526 þúsund dollarar sem Eimskip greiðir með skuldabréfum til Utvegs- bankans. Verða þau annars vegar að fjárhæð 4.158.868 dollarar sem greiðast á 8 árum með fyrstu af- borgun á árinu 1989. Þessi hluti greiðslunnar ber millibankavexti með viðauka og er fyrsta greiðsla vaxta á árinu 1986. Hins vegar er um að ræða 140.241 þúsund krónur, sem greiðist á 13 árum með fyrstu af- borgun á árinu 1989. Þessi hluti greiðslunnar er bundinn lánskjara- vísitölu en ber ekki vexti. Eimskip gerði tilboð í eignirnar þann 6. desember sl., þegar Hafskip hf. var lýst gjaldþrota. Söluverðið nú er um 78 milljónum lægra en tilboðið því ekki reyndist unnt að selja úr þrotabúinu allar þær eignir sem upphaflega tilboðið tók til. Er þar einkum um að ræða ms. Skaftá sem seld verður á nauðungaruppboði í Antwerpen og 389 gáma sem Hafskip var með á kaupleigusamningi og ekki er talið borga sig fyrir þrotabúið að leysa til sín og selja. Meginhluta eignanna afhentu for- ráðamenn þrotabúsins þegar við undirritun samningsins en undanskil- inn er þó hluti skrifstofubúnaðar, svo og hluti vörugeymslna og búnaðar vegna þeirra. Viðtaka farmgjalda og vöruafgreiðsla þrotabúsins verður fyrst í stað í óbreyttu hoifi, en sam- hliða gerð kaupsamningsins gerðu forráðamenn þrotabúsins samning við Eimskip um að það taki við rekstri vöruafgreiðslu fyrir þrotabúið frá og með 1. febrúar næstkomandi. Moi^unblaðið/Bjami Frá fúndi forráðamanna þrotabús Hafskips og Eimskipafélagsins, fyrir undirritun samnings aðila, f.v. Ragnar Halldór Hall og Markús Sigur- bjömsson borgarfógetar, Halldór Jónsson stjómarformaður Eimskips, Indriði Pálsson varaformaður, Hörður Sigurgestsson forstjóri og Helgi V. Jónsson lögfræðingur Eimskips. , VZterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.