Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 1
64SÍÐUR B STOFNAÐ1913 43. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins írakar skjóta niður íranska farþegavél Þingmenn og fulltrúi Khomeinis meðal þeirra sem fórust Nikósíu, Teheran, 20. febrúar. AP. ÍRANIR skýrðu frá því í dag, að íraskar orrustuþotur hefðu skotið niður íranska farþegaflugvél í innanlandsflugi og að allir um borð hefðu farist. Irakar neita þessari frétt. Óljósar fréttir eru af stríðj þjóðanna. írakar segjast sækja að íranska innrásarliðinu en íranir halda þvi fram, að áhlaupunum hafi verið hrundið. Grænland: Þingmenn vilja skólastj óralaun Kaupmannahöfn, 20. feb. Frá Nils Jörgen Bruun, Grænlandsfréttaritara Morgunblaðsins. GRÆNLENSKU þingmennirnir eru allir á einu máli um að stór- hækka við sig launin. Finnst þeim við hæfi, að þeir hafi sömu laun og skólastjórar. Laun grænlensku landsþings- mannanna verða hér eftir um 833.000 fsl. kr. á ári, þau sömu og skólastjórar hafa, og þar við bætast 176.000 kr. fyrir símakostnað, leigubíla og fleira smálegt. Heildar- launin munu því losa eina milljón króna. Að auki á hið opinbera að greiða allan ferðakostnað þing- manna. Um þetta var einhugur á landsþinginu en ekki um hitt hvem- ig launa skuli „ráðherrana". Meiri- hluti stjómarflokkanna, Siumut og Inuit Ataqatigiit, vill margfalda þingmannslaunin með þremur, að þau verði nærri tvær og hálf milljón ísl. kr., en stjómarandstöðunni, Atassut, finnst nóg að tvöfaida þau. íranir skýrðu frá þvi í dag, að íraskar herþotur hefðu skotið niður farþegaflugvél, sem var í áætlunarflugi milli Teheran og Ahvaz. Hefðu allir, sem með henni vom, 46 manns, farist, þar á meðal nokkrir þingmenn og sérlegur fulltrúi Khomeini erki- klerks, Fadhollah Mahallagi. Flugvélin var af gerðinni Fokker Friendship og eftir heimildum í Bahrain er haft, að hún hafi verið á vegum íranska hersins. írakar neita fullyrðingum írana, segjast aðeins gera árásir á hemaðarleg skotmörk. írakar segja her sinn sækja að olíuborginni Faw, sem nú er í höndum Irana, en íranir halda því fram, að árásunum hafí verið hmndið og að þeir sæki enn vestur eftir strandlengju Iraks við Persaflóa. Veður hefur verið vont á þessum slóðum síðustu daga en í dag gekk það niður og hörðnuðu þá bardagar mjög. Fréttamenn, sem fengið hafa að fara til vígstöðvanna, segja, að írakar haldi uppi gífurlegum ár- ásum á Irana úr lofti og á landi en lítið sé um að þeir síðamefndu svari skothríðinni. Bandar íkj aþing: Filippseyja- sljóm svipt aðstoðinni? Washington, 20. febrúar. AP. EIN af undimefndum Bandaríkjaþings samþykkti í dag einróma að hætt yrði beinni efnahagsaðstoð við stjórn Ferdinands Marcos á Filippseyjum. Lagði hún til, að þess í stað yrði hluti af framlagi Bandaríkjamanna fenginn í hendur kaþólsku kirkjunni i landinu. Corazon Aquino hefur lýst yfir stuðningi sínum við frumvarpið eins og það kemur frá nefndinni. Undimefnd fulltrúadeildarinnar um málefni Asíu- og Kyrrahafsríkja samþykkti með 9 atkvæðum gegn engu, að hernaðaraðstoð Bandaríkj- anna við Filippseyjar yrði lögð til hliðar og geymd þar til við völdum tæki „lögmæt ríkisstjóm", sem nyti stuðnings þjóðarinnar. í frumvarpi nefndarinnar er ennfremur lagt til, að efnahagsaðstoðin og framlög til mannúðarmála verði látin ganga beint til kaþólsku kirkjunnar á Filippseyjum. Formaður nefndar- innar, Stephen Solarz, kvaðst hafa haft samband við Corazon Aquino, forsetaframbjóðanda stjómarand- stöðunnar á Filippseyjum, og hefði hún lýst ánægju sinni með frum- varpið. Fulltrúar ríkisstjómarinnar báðu nefndina um að fresta afgreiðslu þessa máls þar til Philip Habib, sendimaður Reagans, forseta, kæmi frá Filippseyjum en Solarz sagði, að ekki hefði mátt bíða með að „skýra Filippseyingum frá því, að stuðningi við stjóm Marcosar yrði hætt en stuðningi við fílippísku þjóðina haldið áfram". Frumvarpið verður nú sent utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings til umQöllunar. í flárhagsáætlun fyrir árið 1986 er gert ráð fyrir 245 milljón dollara beinni hemaðar- og efnahagsaðstoð við Filippseyjar en ef fyrmefnt frumvarp nær fram að ganga mun mestur hluti þess fjár ekki fara um hendur Marcosar og stjómar hans. Moskva: A geðveikra- hæli vegna friðarstarfs Moskvu, 20. febrúar. AP. FÉLAGI í óopinberri friðar- hreyfingu í Sovétríkjunum var í gær handtekinn og lokaður inni á geðveikrahæli. Eru þessar fréttir hafðar eftir öðrum félaga í hreyfingunni. Talsmaður friðarhreyfíngarinnar eða „Samtaka um aukinn skilning milli Sovétmanna og Bandaríkja- manna" sagði í dag í Moskvu, að Nina Kovalenko, ung kona og félagi í hreyfingunni, hefði verið hand- tekin í gær þegar hún var á leið til fundar hjá samtökunum og síðan lokuð inni á geðveikrahæli. Tveir aðrir vora handteknir og er ekki enn vitað hvar þeir em niðurkomn- ir. Fyrr í þessum mánuði voru 16 félagar í samtökunum handteknir og hafðir í haldi daglangt. Stríðið í Chad Franskar flugbrautarsprengjur sprínga á líbýskum flugvelli í Norður-Chad. Fremst á myndinni sjást tvær slíkar sprengjur svífa niður í fallhlíf. Frakkar, sem styðja stjórnina i Chad, hafa að undanförnu sent þangað aukinn liðsafla vegna nýrra árása uppreisnarmanna. Njóta þeir fulitingis Khadafys, Líbýuleiðtoga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.