Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
B 3
• Jón Þórir Jónsson hefur verið
Staðaní
2. deild
STAÐAN í 2. deild eftir fyrstu
umferð er þessi:
KA 1 1 0 0 4:0 3
Selfoss 1 1 0 0 4:1 3
Njarðvík 1 0 1 0 3:3 1
ÍBÍ 10 10 3:3 1
Víkingur 1 0 1 0 1:1 1
Þróttur 1 0 1 0 1:1 1
Völsung 1 0 1 0 0:0 1
KS 1 0 1 0 0:0 1
Skallagr. 1 0 0 1 1:4 0
Einherji 10 0 1 0:4 0
betri en enginn fyrir Breiðablik.
Hann hefur gert bæði mörk liðs-
ins í deildinni til þessa.
• Örn Bjarnason, markvörður Breiðabliks, grípur hér vel inn f leikinn gegn Val f gærkvöldi. Breiðabliksmenn, sem komu upp úr 2. deild
í fyrra, hafa svo sannarlega fengið óskastart og eru með fulK hús stiga eftir tvo leiki. Örn hefur staðið sig vel og ekki fengið á sig mark
og varði meðal annars vítaspyrnu gegn ÍBK á laugardaginn.
Ovæntur en sanngjarn sigur UBK
Hlfðarendavöllur 1. deild:
Valur-UBK 1:0 (0:0)
Mark UBKdón Þórir Jónsson (víti) á 57. mín.
Áhorfendur350.
Dómarí:Bragi Bergmann
Gul apjöld:Engin.
Einkunnagjöfin:
ValunStefán Arnarson 2, Jón Grétar Jónsson
2, Magnús Magnússon 2, Magni Pótursson
2, Ársœti Kristjánsson 2, Bergsveinn
Sampsted 2, Guöni Bergsson 3, Hilmar Sig-
hvatsson 2, Valur Valsson 2, Ingvar Guö-
mundsson 2, Ámundi Sigmundsson 2. Antony
Gregory (vm.)1, Bergþór Magnússon (vm.) 2.
Samtals 23 stig.
UBK:Örn Bjarnason 2, Ingjaldur Gústafsson
3, Ólafur Ðjörnsson 3, Magnús Magnússon
3, Benedikt Guömundsson 3, Jón Þórir Jóns-
son 3, Hákon Gunnarsson 3, Jóhann Grótars-
son 2, Guðmundur Guömundsson 3, Guö-
mundur Valur Sigurösson 3, Helgi Ingason
2. Vignir Baldursson (vm) 2, Rögnvaldur
Rögnvaldsson (vm)2.
Samtals 30 stig
„Þetta kemur óneitanlega þægi-
lega á óvart. Við ákváðum í upphafi
að hugsa bara um einn leik í einu,
og láta það hafa sem allra minnst
áhrif á leik okkar hvar við stæðum
í deildinni. Það breytir því engu
um leikaðferð okkar þó svona vel
hafi gengið í upphafi. Við gerum
okkur allir grein fyrir að við þurfum
að gefa allt sem við eigum til í alla
leikina, ef við eigum að halda okkur
í deildinni, og við munum ekkert
slaka á núna. Þvert á móti,“ sagði
Jón Hermannsson, þjálfari Breiða-
bliks, sem með sigrinum á Val í
gærkvöldi situr nú öllum á óvart á
toppi deildarinnar ásamt FH.
„Við reynum að spila nokkuð
agaða knattspyrnu, en ég er með
flinka menn í miövellinum, menn
sem geta haldið boltanum og leikið
á andstæðinga, og ég leyfi þeim
það. Ég hef mikla trú á þessu
Breiðabliksliði," sagðiJón.
Það var strekkingur á annað
markið á Valsvellinum í gærkvöldi,
og það setti óneitanlega svip sinn
á leikinn. Valsmenn léku undan
vindinum í fyrri hálfleik, en gekk
bölvanlega að hemja knöttinn.
Þeir reyndu hvað þeir gátu að
halda honum niðri, og spila þvert
á völlinn, en fengu engan frið frá
Blikunum. Breiðabliksmenn
reyndu aftur stungusendingar upp
í hornin á móti rokinu og gekk öllu
betur. Einnig tókst frískum miðju-
mönnum þeirra, Guðmundi Guð-
mundssyni og Guðmundi Vali Sig-
urðssyni nokkrum sinnum að ná
ágætum skotum að Valsmarkinu
eftir einleik upp miðjan völlinn. En
Valgeir með fyrstu þrennuna
Vestmannaeyjavöllur 1. deild:
|BV-|A 0:3 (0:0)
Mörk ÍA:Valgeir Barðason 3, á 72. min.,88.
mín.,89 mín.
Dómari:Ólafur Lárusson
Gul 8pjöld:Sveinbjörn Hákonarson, ÍA , Ólafur
Þórðarson ÍA.
Einkunnagjöfin:
ÍBV:Höröur Pálsson 2, Viðar Elíasson 2, Ólafur
Árnason 1, Elías Friöriksson 3, Jón Bragi
Arnarson 2, Þorsteinn Viktorsson 2, LúÖvík
Bergvinsson 1, Jóhann Georgsson 2, Páll
Hallgrímsson 1, Ómar Jóhannsson 2, Bergur
Ágústsson 2. ÞórÖur Hallgrímsson vm (lók of
stutt), Ingi Sigurösson vm (lók of stutt).
Samtals 20 stig.
ÍA:Birkir Kristinsson 2, Guöjón Þóröarson 2,
Heimir Guömundsson 2, Siguröur Lárusson
3, Siguröur B. Jónsson 2, Valgeir Baröason
3, Sveinbjöm Hákonarson 3, ólafur Þóröarson
3, Höröur Jóhannsson 1, Guðbjörn Tryggva-
son 2, Árni Sveinsson 2. Júlíus Ingólfsson vm
(lék of stutt), Stefán Viðarsson vm (lók of
stutt).
Samtals 25 stig.
ÞRjú glæsileg mörk Valgeirs
Barðasonar færðu ÍA góðan sigur
á ÍBV í Eyjum í gærkvöldi. Eyja-
menn eiga enn eftir að finna leiðina
í mark mótherjanna. Það var
hvasst í Eyjum í gærkvöldi og
raunar tafðist leikurinn um hálfa
klukkustund vegna erfiðleika
Skagamanna að komast út til eyja.
Vindurinn lék reyndar stærsta
hlutverkið í leiknum og fátt eitt var
það sem gladdi augað nema glæsi-
mörkin hans Valgeirs. Leikmenn
liðanna voru ekki öfundsverðir að
leika knattspyrnu við þessar að-
ÍBV-ÍA
0:3
stæður, en þeir eiga þó heiður
skilinn fyrir að reyna það.
Fyrri hálfleikinn léku Eyjamenn
með vindinn í bakið en gekk fremur
illa að nýta sér þann byr. Tilburöir
Skagamanna til sóknarleiks á móti
vindinum voru markvissari. Fátt
var um markverð tíðindi við mörkin
- sterkur varnarleikur Skagamanna
og máttlítill sóknarleikur Eyja-
manna. Á 9. mínútu var þó darr-
aðadans mikill stiginn í vítateig ÍA.
Birkir markvörður varði þá tvívegis
og í lokin var bjargað á línu. Hætta
var við mark ÍBV á 14. mínútu
þegar Hörður Pálsson missti frá
sér boltann, en strákurinn bætti
fyrir það og forðaði marki.
Á 34. mínútu var Jóhann Ge-
orgsson i góðu færi við mark ÍA,
en aftur var bjargað á marklínu á
elleftu stundu. Þetta varð nú það
markverðasta sem komst á blað í
fyrri hálfleik.
Dæmið snerist við í þeim síðari.
Það voru Skagamenn sem sóttu
með vindinn en Eyjamenn vörðust
með fangið fullt. Það var einkenn-
andi fyrir bæði liðin að þau léku
betur á móti vindinum. Eyjamenn
voru þvi mun hressari í síðari hálf-
leik en þeim fyrri. Þá reyndi mun
meira á spilið, en leikmenn freist-
uðust útí kílingar fram völlinn,
undan vindinum. Eyjamenn heimt-
uðu vítaspyrnu á 59. mínútu þegar
Ómari Jóhannssyni var hrint af
boltanum í ákjósanlegu færi.
Þessu hafnaöi röggsamur dómari
leiksins, Ólafur Lárusson.
Og svo hófst Valgeirs þáttur
Barðasonar. Stráksins sem dáður
verður á Skaga alla vega næstu
dagana. 1:0 kom á 72. mínútu.
Löng fyrirgjöf kom fyrir mark ÍBV
og þar var Valgeir á hreinum sjó
og skallaði glæsilega inn með
fjærstönginni.
Valgeir var aftur á ferðinni á 88.
mín. Stefán Viðarsson sendi þá
boltann inn að markinu. Valgeir
stakk enn upp kollinum og boltinn
small upp í samskeytunum.
Rétt um það leyti sem leikurinn
var að fjara út, fylgdi Valgeir eftir
feiknalangri markspyrnu Birkis
markvarðar innfyrir vörn ÍBV og
vel utan vítateigs lét hann þrumu-
skot vaða á mark IBV og Hörður
Pálsson kom engum vörnum við.
Sigur Skagamanna var sann-
gjarn í alla staði. Þeir voru með
heilsteyptara lið. Eyjamenn eiga
þrautagöngu fyrir fótum. Þeim
gengur allt í móti á þessari fyrstu
viku íslandsmótsins.
verulega góð marktækifæri komu
engin í fyrri hálfleik.
Dæmið snerist svo auðvitað viö
í síðari hálfleik. Þá reyndu Blikar
að halda boltanum, en Valsmenn
að stinga upp t hornin. Jafnræði
var með liðunum, en sem fyrr voru
Breiðabliksmenn hættulegri og
náðu mun fleiri markskotum en
andstæðingarnir, þó fæst þeirra
hafi verið mjög hættuleg. Eina
markið í leiknum var klassískt
rokmark - Örn Blikamarkvörður átti
langt og hátt útspark undan rok-
inu, Ársæll missti boltann og Jón
Þóri framhjá sér, og Blikinn stór-
hættulegi kom sér laglega með
knöttinn beint framfyrir Ársæl,
þannig að hann eiginlega gat ekki
annað en skellt honum. Jón Þórir
skoraði sjálfur úr vítinu af öryggi.
Eftir markið sóttu Valsmenn öllu
meira, án teljandi hættu við Blika-
markið. Að leik loknum fögnuðu
nýliðarnir óskaplega, enda búnir
að vinna íslandsmeistarana á
þeirra heimavelli, en Valsmenn
vilja örugglega gleyma þessum leik
sem fyrst. Þeir voru slakir og vissu
það.
Luzern stigi nær
UEFA-keppninni
ZUrich, frá önnu Bjarnadóttur, fróttaritara Morgunblaöaina.
LEIK FC Luzern gegn FC Aarau
lauk með jafntefli, 1:1, í sviss-
nesku deildakeppninni á þriðju-
dagskvöld. Luzern hlaut þar
með sitt 37. stig og er enn í
þriðja sæti f deildakeppninni og
á góða möguleika á að komast
í UEFA-keppnina. Grasshop-
pers tapaði 0:2 gegn FC Zilrich
og er fallið f fimmta sæti í
deildakeppninni. Zurich er nú f
fjórða sæti með 35 stig.
Sigurður Grétarsson fékk
þriðja gula spjaldið á leiktímabil-
inu í kvöld og mun ekki leika með
Luzern gegn Sion á laugardag.
Sion varð bikarmeistari í svissn-
esku knattspyrnunni um helgina.
Lugano, lið Janusar Guðlaugs-
sonar, vann Winterthur 3:1 á
þriðjudagskvöld. Liðið er nú í 2.
sæti í annarri deild. Lugano var
efst í deildinni í allan vetur en
tapaöi síðan hverjum leiknum á
fætur öðrum siðastliðnar tvær
vikur þangað til í kvöld. Það leikur
gegn Bellinzona á laugardag en
Bellinzona er nú efst í annarri
deild í Sviss.