Morgunblaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986 Oliusamningiirinn við Rússa: Við skrifum ekki undir nema skil- yrðið verði fellt út - segir Matthías Bjarnason við- skiptaráðherra „ÞAÐ KEMUR ekki til greina að við undirritum samning við Sovét- menn um olíukaup, nema þeir felli út þetta ákvæði um að þeir geti valið í hvaða mynt þeir fá olíuna greidda," sagði Matthías Bjarnason viðskiptaráðherra í samtali við Morgunblaðið. Viðskiptaráðherra sagði að hann hefði gefíð um það fyrirmæli í ráðu- neyti sínu, að Rússum yrði greint frá þessari afstöðu íslenskra stjóm- valda, en hann kvaðst ekki vita hvenær svara Sovétmanna við þess- ari kröfu væri að vænta. „Svo mikið er víst, að það verður ekki ritað undir neinn olíukaupasamning við Sovétmenn, nema þetta ákvæði um að þeir geti valið í hvaða mynt hún verður greidd, verði fellt út. Við höfum greitt fyrir hana í Banda- rílqadollar, og ætlum að halda áfram að gera það,“ sagði við- skiptaráðherra. Eindagi hjá Visa breytist í tvö skipti - vegna mikils álags í bönkum Eindagi vegna greiðslu Visa- reikninga breytist um næstu mánaðamót og áramót en ein- ungis í þessi tvö skipti. Um næstu mánaðamót verður eindagi Visa 4. desember og í byrjun janúar verður eindagi 7. janúar. Eindagi Visagreiðslna er að jafnaði 2. hvers mánaðar eins og kunnugt er. Þessi breyting er gerð um næstu tvenn mánaðamót, að sögn Jóhanns Ágústssonar, stjómarformanns Visa, vegna þess að þá er óvenju- Opnunartím- ar verslana í desember HEIMILT er að hafa verslanir í Reykjavík opnar tíl kl. 16.00 i dag. I desember verða leyfilegir opnunartímar sem hér segir: Laugardaginn 6. desember til kl. 16.00, 13. desember til kl. 18.00, og 20. desember til kl. 22.00. Aðra virka daga er leyfilegt að hafa verslanir opnar til kl. 18.30, en á Þorláksmessu til kl. 23.00 og á aðfangadag til kl. 12.00. Verslan- ir mega vera opnar til hádegis á gamlársdag. Um þessa opnun- artíma gilda ákvæði í kjarasamningi Kaupmannasamtaka íslands og Verslunarmannafélags Reykjavík- ur. mikið álag bæði á starfsfólk og tækjabúnað bankanna. Er með þessu reynt að koma í veg fyrir óþægindi fólks af langri bið eftir afgreiðslu._ Jóhann Ágústsson benti á í þessu sambandi, að viðskiptamenn bank- anna gætu óskað eftir því, að Visagreiðslur væra skuldfærðar á viðskiptareikninga þeirra um hver mánaðamót og losnaði fólk þá við að bíða eftir afgreiðslu í bönkunum. 'O INNLENT Raðhúsin að Víðihlíð 5-11, sem hýsa sam- l, býli vangef- inna og 11 skammtíma- vist. Morgunblaðið/Bára Kristinsdóttir Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir Frá opnunarathöfn sambýlisins að Víðihlíð 5. f fremstur röð sitja Árni Jónsson, formaður byggingarnefndar, (t.v.) og Magnús Kristinsson, formaður Styrktarfélags vangefinna. MÚIi þeirra í næstu röð situr Sveinbjörg Kristjánsdóttir, for- stöðumaður sambýlisins, og yzt til hægri á myndinni er Sverrir Helgason, formaður lions- klúbbsins Freys. Sambýli vangefinna að Víðihlíð 5 tekið í notkun NÝTT sambýli vangefinna var tekið í notkun að Víðihlíð 5 í Reykjavík í gær. Er það fjórða heimilið, sem Styrktarfélag van- gefinna kemur upp í Víðihlíð, en fyrir voru tvö sambýli og skammtímaheimili. Forstöðumaður sambýlisins er Sveinbjörg Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi. í nýja sambýlinu munu búa fimm menn. í sambýlunum þrem- ur f Víðihlíð munu 15 einstakling- ar búa og auk þess geta 7 einstaklingar dvalið samtímis í skammtímavist, sem er í einu rað- húsanna fjögurra ; Víðihlíð 5-11. Fyrsta heimilið var tekið í notkun f janúar 1985, sambýlið að Víðihlíð 11, en skammtímavistun- in í húsi númer 9, mánuði síðar. Sambýlið að Víðihlíð 7 var síðan opnað í nóvember fyrir ári. Styrkt- arfélag vangefinna annast nú rekstur 11 heimila og stofnana í Reykjavík. Alls dvelja um 150 manns á heimilunum. Að sögn Ama Jónssonar, for- manns bygginganefndar, nemur heildar kostnaður við smíði rað- húsanna fjögurra um 23 Vz milljón króna. Á móti kostnaðinum kemur rúmlega 10 milljóna króna fram- lag úr Framkvæmdasjóði fatlaðra og um 2ja m. kr. framlag Reykjavíkurborgar en afganginn, eða um helming heildarkostnaðar, hefur Styrktarfélag vangefinna lagt sjálft fram. Við athöfn í Víðihlíð 5 í gær afhenti Sverrir Helgason, formað- ur lionsklúbbsins Freys, sambýl- inu húsbúnað og heimilistæki að verðmæti 230 þúsund króna. Að sögn Magnúsar Kristinssonar, formanns Styrktarfélags vangef- inna, hefur Freyr styrkt félagið ómetanlega um langa hríð. Sverr- ir sagði húsbúnaðinn og heimilis- tækin hafa verið kejrpt fyrir ágóða af sölu jóladagatala, sem klúbb- félagar hafa selt árlega fyrir jól. Er hin árlega jóladagatalasala Freys og lionsklúbba um land allt að hefjast þessa dagana. Auk framangreindra fluttu ávörp við athöfnina í Víðihlíð í gær Ásta Eggertsdóttir, formaður svæðisstjómar styrktarfélagsins í Reykjavík, Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, og Albert Guðmundsson, iðnaðarráðherra, en við athöfnina var upphaf bygg- ingasögu húsanna rakin til fundar, sem haldin var að fram- kvæði Alberts 1982, en hann var þáverandi forseti borgarstjómar Reykjavíkur. Viðræður um stofnun hlutafélagsbanka: Alþýðubankinn og Samvinnu- bankinn taka ekki þátt í viðræðum YFIRMENN Samvinnubankans og Alþýðubankans ákváðu að afloknum fundum með banka- stjórum Seðlabankans í gær að taka ekki þátt í viðræðum um stofnun nýs einkabanka með að- ild Útvegsbankans. Verslunar- bankinn og Iðnaðarbankinn taka Formaður kjömefndar Alþýðuflokksins: Tók við félagaskrá eftir að frestur var útruimiim ÁSGEIR Ágústsson formaður kjömefndar Alþýðuflokksins tók við og samþykkti 180 manna fé- lagaskrá úr hendi Birgis Dýrfjörð sem stýrir kosningabaráttu Björg- vins Guðmundssonar, undir miðnætti ( fyrrakvöld, en frestur til þess að ganga ( Alþýðuflokkinn og öðlast rétt til þess að taka þátt í prófkjöri flokksins nú um helgina rann út kl. 19 i fyrradag. Heimild- ir Morgunblaðsins herma að Ásgeir sé stuðningsmaður Björg- Ásgeir var í gær spurður hvort það væri eðlilegt að hann tæki við þess- ari félagaskrá Rósarinnar, en svo nefhist þetta alþýðuflokksfélag, mörgum klukkustundum eftir að fresturinn var ranninn út: „Það var ákveðið að hætta kl. 19 að taka á móti nýjum inntökubeiðnum," sagði Ásgeir, „en síðan áttu öll félögin að fá tækifæri til þess að ganga frá þessu og- koma þessu í skrá. Þetta voru þvi ekki inntökubeiðnir, heldur félagaskráin." Ásgeir sagðist ekki vita hvort ein- ing væri í kjömefndinni um þennan skilning á reglunum. Hann hefði ekki rætt þetta mál við kjömefndina. Jón Baldvin Hannibalsson formað- ur Alþýðufiokksins sagði í samtali við Morgunblaðið um þetta mál: „Það er auðvitað geysilega þýðingarmikið að reglur um prófkjör séu haldnar. Hins vegar er partur af þessum regl- um, leiðbeiningar sem vísað var af fiokksstjómarfundi til kjörstjómar, með þeim almenna fyrirvara að hún annaðist að öllu leyti, framkvæmd og fyrirkomulag. Kjörstjóm hefur þannig ákveðið svigrúm til túlkunar." Jón Baldvin sagði að ef kjörstjóm teldi að skilyrðinu um tímafrest á inngöngu hefði verið fullnægt, og liti á seinni skil þeim augum að þar væri aðeins um praktískt atriði varð- andi samsetningu á kjörskrá að ræða, þá myndi hann ekki gera það að stóra deilumáli. „Hitt er annað mál, að hver sá sem ekki fór eftir því að skila innan tfmamarka," sagði Jón Baldvin, „á náttúrlega á hættu, að vekja upp deilumál um það hvemig reglum er framfylgt." enn þátt í viðræðunum. Að sögn Tómasar Ámasonar, bankasljóra Seðlabankans, hefur ekki verið ákveðinn nýr fundur með þessum aðilum og virðist málið nú í bið- stöðu. „Við vonumst til að stjóm- arflokkamir nái að marka sameiginlega stefnu í þessu máli sem fyrst,“ sagði Tómas. „Við teljum að það séu engar forsendur fyrir því að Alþýðubank- inn gangi inn í svo stóran banka," sagði Stefán M. Gunnarsson, bankastjóri Alþýðubankans. „Þetta er, að því er við teljum, vilji okkar hluthafa. Alþýðubankinn var ekki stofnaður út í bláinn, og við teljum að hag þeirra sem að honum standa sé best borgið með núverandi fyrir- komulagi." Stefán sagði að þar með væri punkturinn settur fyrir aftan þessar viðræður af hálfu bankans. Að þessari niðurstöðu hefðu stjóm- endur bankans komist að höfðu samráði við þau samtök sem að honum standa. „Vissulega yrði samkeppnisaðstaða Alþýðubankans mjög erfið ef þessir bankar kæmu saman í öflugum hlutafélagabanka en ég tel að það sé ekki tímabært að ræða þau mál núna. Enn sem komið er era þetta aðeins bollalegg- ingar." Geir Magnússon, bankastjón Samvinnubankans, sagði að for- sendur fyrir því að bankinn tæki þátt í viðræðum við ríkið um stofn- un hlutafélagabanka væra ekki fyrir hendi. „Til þess þyrfti að gera öllum einkabönkunum jafn hátt undir höfði," sagði Geir. „Hingað til hafa þessar viðræður aðeins snú- ið að Verslunarbankanum og Iðnaðarbankanum. Við teljum okk- Ur ekki eiga samleið með þessum aðilum." Geir sagði að það væri sín skoðun að vanda Útvegsbankans ætti að leysa innan ríkisbankakerf- isins. Það væri ekki hlutverk ríkis- ins að hafa áhrif á markaðstöðu einkafyrirtækja sem væru í sam- keppni með þvi að veita tveimur þeirra betra tækifæri en öðrum- „Ekki er þar með sagt að málinu sé lokið af okkar hálfu, því verði ákveðið að ráðast í veralega upp- stokkun út frá forsendum sem við getum samþykkt gæti Samvinnu- bankinn tekið þátt í slíkum viðræð- um. Ég vil líka benda á að hvern einkabankanna eiga þúsundir hlut- hafa, og það er óvíst að þær tillögur sem bankastjómimar kunna að leggja fram hljóti blessun hluthafa- funda."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.