Morgunblaðið - 28.04.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.04.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987 HVAÐ SEGJA ÞEIR UM ÚRSLITKOSNINGANNA ? STEINGRIMUR HERMANNSSON: Betri út- koma en ég þorði að vona STEINGRÍM- UR Her- mannsson forsætisráð- herra og formaður Framsóknar- flokksins segir að út- koma alþing- iskosning- anna hafi verið betri en hann hafi nokkurn tíma þorað að vona. Kvaðst hann vera ákaflega ánægður með það að Framsóknarflokkurinn fékk meira fylgi en Alþýðuflokkurinn. „Miðað við þá mörgu flokka sem voru í framboði og hafa eflaust tek- ið atkvæði frá öllum, þá er ég ánægður með útkomu Framsóknar- flokksins, og tel hana raunar vera betri en ég hefði nokkum tíma þor- að að vona,“ sagði Steingrímur í samtali við Morgunblaðið. Steingrímur kvaðst sérstaklega ánægður með útkomuna í Reykja- neskjördæmi og sagðist hann vera þakklátur sínum stuðningsmönnum í kjördæminu. „Ég er hinsvegar áhyggjufullur vegna útkomunnar á landsvísu. Ég hef sagt það hvað eftir annað að við þurfum stöðug- leika í stjómmálum. Það er enn mín skoðun að tveggja flokka stjóm sé styrkasta stjómin sem hægt er að mynda, en nú er slík stjóm ekki í myndinni og það eitt út af fyrir sig skapar óvissu. Ég útiloka á hinn bóginn ekki, að hægt verði að ná saman allgóðri þriggja flokka stjóm," sagði forsætisráðherra. Steingrímur sagðist mundu biðj- ast lausnar fyrir ráðuneyti sitt eftir hádegi í dag, þar sem stjómarflokk- amir hefðu misst þingmeirihluta. Steingrímur gékk á fund Vigdís- ar Finnbogadóttur forseta íslands í gærmorgun og þar kom fram að forsetinn hyggst taka sér góðan tíma til þess að ræða við forystu- menn stjómmálaflokkanna áður en hún felur einhveijum flokksform- annanna stjómarmyndunarumboð. ÞORSTEINN PÁLSSON: Mikið áfall fyrir Sjálf- stæðis- flokkinn „NIÐIIR- v STÖÐUR kosninganna eru mikið áfall fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Þetta er mik- ið fylgistap. Það var auð- vitað ljóst fyrir kosning- arnar að klofningur Borgara- flokksins myndi leiða til þess að Sjálstæðisflokkurinn yrði fyrir áfalli í kosningunum, en við höfð- um hins vegar vænst þess að það yrði minna, en raun varð á,“ sagði Þorsteinn Pálsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra. Þorsteinn sagði að mestu máli skipti nú að hefjast þegar handa við að styrkja stöðu flokksins á ný. „Við þurfum auðvitað að huga að ýmsum þáttum í okkar starfi og okkar vinnu og það munum við gera á næstu vikum. Það kemst enginn hjá því eftir áfall sem þetta að líta í eigin barrn," sagði Þor- steinn. Þorsteinn sagði að á þessari erf- iðu stundu fyrir Sjálfstæðisflokkinn væri sér efst í huga þakklæti til sjálfstæðisfólks sem staðið hefði í mikilli eldraún í kosningabarátt- unni. „Erfíðustu kosningabaráttu sem sjálfstæðisfólk hefur staðið í fyrr og síðar og það var ánægjulegt að finna það, þrátt fyrir þessa erfið- leika, hvað samheldni og innri styrkur var mikill. Mér er ekki síst þakklæti í huga til sjálfstæðisfólks- ins í mínu kjördæmi, Suðurlandi. Það lagði mikið á sig í kosningabar- áttunni eins og aðrir og ég þakka því fyrst og fremst að Sjálfstæðis- flokkurinn kemur þolanlegast út úr þessum kosningum á Suðurlandi, þar sem flokkurinn á nú hlutfalls- lega mest fylgi,“ sagði Þorsteinn. Þorsteinn var spurður hvort hann liti á niðurstöður kosninganna sem persónulegt áfall fyrir sig: „Það er útilokað annað en manni finnist það vera persónulegt áfall, þegar flokk- ur manns verður fyrir áfalli sem þessu. Maður hefði ekki miklar taugar til flokksins ef maður liti ekki á svona útkomu sem persónu- legt áfall," sagði Þorsteinn. Þorsteinn var spurður hvort hann íhugaði að segja af sér sem formað- ur Sjálfstæðisflokksins vegna þessarar útkomu: „Nei, ég hef ekki íhugað það. Hins vegar verð ég aldrei formaður Sjálfstæðisflokks- ins í óþökk sjálfstæðismanna og meðan ég nýt trausts og hef áhuga á að vinna að framgangi flokksins og stefnumála hans í þessu starfí, þá geri ég það,“ sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins. Þorsteinn kvaðst telja útilokað að spá um hvemig næsta ríkisstjóm yrði samansett, en kosningaúrslitin bæru það með sér að stjómarmynd- un yrði erfið. JÓN BALDVIN HANNIBALSSON: Unnum myndarleg- an kosn- ingasigur JÓN Baldvin Hannibalsson, formaður Al- þýðuflokksins segir að það sé tvennt við úrslit alþing- iskosning- anna sem sé sögulegt. Það sé klofningur Sjálfstæðis- flokksins annars vegar og hins vegar sú staðreynd að Alþýðu- bandalagið er nú minni flokkur en Alþýðuflokkurinn. „Það hefur verið sérkenni íslenska flokkakerfísins að „hægri öflin" hafa verið sameinuð. Ólafi Thors tókst það sem leiðtogum borgaralegra flokka tókst ekki - að skapa fjöldagrundvöll fyrir atvinnu- rekendaflokk. Sú staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er nú klofínn eftir þessar kosningar er sennilega merkilegasta niðurstaða kosning- anna,“ sagði Jón Baldvin í samtali við Morgunblaðið. „Annað sem var sögulegt við þessi kosningaúrslit er sú staðreynd að í fyrsta sinn frá árinu 1937 er Alþýðubandalagið og forverar þess minni aðili út úr kosningum en Ai- þýðuflokkurinn," sagði Jón Baldvin. Hann sagði að það gæti haft veru- lega merkingu ef litið væri til framtíðar. Jón Baldvin sagði að sigurvegar- ar kosninganna væru Kvennalisti, Albert Guðmundsson, Steingrímur Hermannsson og félagi hans, Stef- án Valgeirsson. „Alþýðuflokkurinn var sá eini hinna hefðbundnu fjögurra flokka sem vann myndarlegan kosninga- sigur. allir hinir voru á undanhaldi, þó að framsóknarmenn geti vissu- lega glaðst yfir einhverskonar vamarsigri. forsætisráðherra vann ótvírætt persónulegan sigur í sínu nýja kjördæmi,“ sagði Jón Baldvin. SVAVAR GESTSSON: * Anægjulegt að ríkis- stjórnin skuli fallin „ÞAÐ er nátt- úrlega mjög ánægjulegt að ríkisstjórnin skuli fallin. Nú er það sig- urvegarannaí kosningunum að sýna hvað i þeim býr og taka á mál- um,“ sagði Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins. Svavar sagðist vera mjög óán- ægður með útkomu Alþýðubanda- lagsins. „Við höfum í raun og veru ekki fengið jafnslæma útkomu í kosningum áður. Við munum ræða þessi mál á okkar vettvangi á næst- unni. Hverjar séu skýringamar á þessari útkomu og hvað megi til vamar verða," sagði Svavar. Svavar var spurður hvort útkoma Alþýðubandalagsins í kosningunum nú hefði verið það slæm að hann íhugaði að segja af sér formennsku: „Mér finnst það nú í raun og veru ekki vera aðalatriðið. Það er ljóst að ég ber pólitíska ábyrgð á flokkn- um, frekar en allir aðrir menn í flokknum. Varðandi það hvort ég sit áfram í þessu starfi eða ekki, er hlutur sem ég mun svara til um á landsfundi flokksins þegar þar að kernur," sagði Svavar. ALBERT GUÐMUNDSSON: Efst í huga þakklæti til stuðn- ingsmanna „ÉG er auð- vitað mjög ánægður með niðurstöðu kosninganna og á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti til stuðnings- manna okkar. Engin orð fá lýst mínum tilfinningum til þessa fólks“, sagði Albert Guðmunds- son, leiðtogi Borgaraflokksins og efsti maður á lista hans í Reykjavík. Albert sagði að niðurstaða kosn- inganna hefðu staðfest þá vakningu sem orðið hefði um allt land þegar Borgaraflokkurinn var stofnaður fyrir réttum mánuði. „Þessi vakning gerði okkur kleift að bjóða fram í öllum kjördæmum og ganga frá framboðum á rúmum sólarhring. Ég vil því nota tækifærið og þakka öllum þeim sjálfboðaliðum, víðs vegar um landið, sem lögðu á sig mikla vinnu til að það mætti ta- kast. Árangur þessarar miklu vinnu hefur nú skilað sér í sjö þingsætum, sem er stórkostlegur árangur. Er- lendir blaðamenn, sem hafa rætt við mig nú eftir kosningamar telja margir þetta vera einsdæmi þegar þess er gætt, að flokkurinn er að- eins mánaðargamall." Aðspurður sagði Albert að árangur Borgaraflokksins væri mun meiri en hann hafði búist við. „Ég hafði gælt við þá tilhugsun að fá fimm menn kjöma og hefði gert mig mjög ánægðan með það. Það hefði orðið stórsigur. Þetta fór því langt fram úr okkar björtustu von- um og í Reykjavík emm við með heldur meira en helming af fylgi Sjálfstæðisflokksins, sem er auðvit- að stórkostlegur árangur. Eins náðum við meiri árangri bæði á Reykjanesi og á Suðurlandi en ég hafði búist við. Mest kom mér þó á óvart árangur okkar á Vesturl- andi. Ég átti tæplega von á því að Ingi Bjöm næði inn þegar kosninga- baráttan hófst, en líkumar jukust alltaf eftir því sem leið á og það er mér mjög mikið ánægjuefni að hann skyídi þannig vinna á með framkomu sinni." Albert kvaðst ekkert vilja tjá sig um stjómarmyndunarviðræður á þessu stigi. „Ég er búinn að boða til fyrsta þingflokksfundar nú í vik- unni og vil ekkert segja um væntanlegar stjómarmyndunarvið- ræður fyrr en ég hef rætt við mína félaga um þau mál.“ GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR: Krafa um bætt kjör kvenna og barna „ÉG er nátt- úrlega fjarska án- ægð og við kvennalista- konur allar með þessi úr- slit,“ sagði Guðrún Agn- arsdóttir, efsti maður á lista Samtaka um kvennalista í Reykjavík og talsmaður samtakanna. Hún sagði að kvennalistakonur fyndu til mikillar ábyrgðar og þær tækju mjög alvarlega þau skila- boð sem kjósendur sendu þeim í þessum kosningum. „Þetta er krafa um bætt kjör kvenna og bama, og þessi skilaboð em ekki bara til Kvennalistans, heldur til allra ráðamanna um að nú eigi að vinna að því að bæta kjör kvenna og bama,“ sagði Guð- rún. Guðrún sagði að það yrði að ráð- ast nú á næstu dögum hvort Kvennalisti yrði aðili að næstu ríkis- stjóm. „Það hefur verið lögð ákveðin skuldbinding á herðar okk- ar og það tökum við mjög alvar- lega,“ sagði Guðrún, „en við munum fara okkur með hæfilegri gát og vanda mjög til undirbúnings- vinnu og við munum gera mjög strangar kröfur," sagði Guðrún. Guðrún var spurð hvort ágrein- ingur væri innan samtakanna um hvort rétt væri að stefna að aðild að næstu ríkisstjóm: „Við erum allar sammála um að það sem tekur við núna er vönduð undirbúnings- vinna og síðan að setja fram ákveðnar kröfur. Við emm að sjálf- sögðu reiðubúnar til viðræðna við alla og við tökum þá ábyrgð alveg hiklaust að fara út í þessar viðræð- ur,“ sagði Guðrún. Guðrún bætti við að fundur Kvennalistans með Jóni Baldvin Hannibalssyni hefði einungis verið óformlegur rabbfundur sem einung- is bæri að skoðast sem slíkur. FRIÐRIK SQPHUSSON: Markmiðið að sameina sjálfstæðis- menn „ÞAÐ er ljóst að Sjálfstæð- isflokkurinn tapar fyrst og fremst at- kvæðum til Borgara- flokks enda var sá flokkur stofnaður til höfuðs Sjálf- stæðisflokkn- um undir forystu manns sem áður skipaði efsta sætið á okkar lista. Kvennalistinn eykur fylgi sitt á kostnað Alþýðubandalags- ins og Alþýðuflokkurinn endur- lieimtir hluta þeirra sem áður kusu Bandalag jafnaðarnianna," sagði Friðrik Sophusson, vara- formaður Sjálfstæðisflokksins og efsti maður á lista flokksins í Reykjavík, um úrslitin í kjör- dæminu. „Hin neikvæða kosningabarátta Borgaraflokksins hefur án efa skað- að okkur mest og leitt til þess að okkur tókst ekki að koma því til skila hve nauðsynlegt það er fyrir festu í íslenskum stjórmálum að Sjálfstæðisflokkurinn sé stór og sterkur," sagði Friðrik. Hann sagði einnig: „Þótt Framsóknarflokkur- inn hafi lítið sem ekkert unnið á í Reykjavík, er það ljóst, þegar litið er til úrslitanna á landinu öllu, að klofningur í röðum sjálfstæðis- manna hefur fært Framsóknar- flokknum nokkurt fylgi þeirra sem vildu áframhaldandi festu og stöð- ugleika. Við sjálfstæðismenn munum að sjálfsögðu endurmeta okkar stöðu, þar á meðal áherslur í stefnunni, vinnubrögð og starfshætti, í ljósi úrslitanna. Framtíðarverkefnið er síðan að sameina alla sjálfstæðis- menn í einum flokki. Það hefur verið styrkur Sjálfstæðisflokksins að borgaraleg öfl hafa getað starfað í einum flokki. Sem dæmi um það hvað gerist þegar menn skiptast í marga flokka má benda á vinstri væng íslenskra stjómmála, þar sem upplausnarástand og skortur á gagnkvæmu trausti hefur ríkt á undanfömum áratugum. Sjálfstæð- isflokkurinn er nú sem endranær opinn öllu því fólki sem vill starfa í anda sjálfstæðisstefnunnar og markmið okkar er að það fólk sam- einist í einum flokki. Við munum herðast í þessum erfiðleikum og erum ákveðin í að endurheimta okkar fyrri styrk. Ég óska nýkjömum þingmönnum til hamingju með kjörið og áma þeim heilla á nýjum starfsvett- vangi. Það er fagnaðarefni fyrir okkur að fá Geir H. Haarde í þing- flokkinn, þó betra hefði verið að Sólveig Pétursdóttir hefði einnig bæst í hópinn. Að lokum vil ég sérs- taklega þakka sjálfstæðisfólki fyrir mjög vel unnin störf við erfíðar aðstæður og hvetja menn til að herða róðurinn. Það koma kosning- ar eftir þessar," sagði Friðrik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.