Morgunblaðið - 17.05.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.05.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987 Morgunblaðið/Sverrir Víkingar í vorverkum Víkingar tóku til hendinni á svæði Vikings við Hæðargarð í | inn og aðrir lögðu hönd að hellulögn og gróðursetningu, auk Reykjavík i gærmorgun. Meistaraflokksmenn sandbáru grasvöll- | þess sem bilastæði voru stækkuð og endurbætt. Morgunblaðið/Sverrir Þorsteinn Pálsson og Steingrímur Hermannsson heilsast við upphaf viðræðufundar þeirra í gærmorgun. Varaflugvöllur valinn með úttekt á sex flugvöllum VINNUHÓPUR á vegum Flugmálastjórnar er að hefja vinnu við tæknilega úttekt á sex flugvöllum með tilliti til uppbyggingar eins þeirra sem varaflugvallar fyrir Keflavíkurflugvöll. Samgönguráðu- neytið tryggði nýlega peninga til verksins og mun vinnan hefjast á næstunni. Niðurstaða á að liggja fyrir í haust. Flugvellimir sex eru á Blöndu- sendum. ósi, Sauðárkróki, Akureyri, Aðaldal (Húsavíkurflugvöllur), Egilsstöðum og Homafírði. Pétur Einarsson flugmálastjóri segir að þessir staðir verði bomir saman og metnir með tilliti til þess hlutverks sem vara- flugvöllur þarf að gegna. Athuguð yrðu aðflugsskilyrði, veðurfar og landstærð. Síðan yrði reynt að velja einn varaflugvöll á tæknilegum for- Jóhann H. Jónsson, fram- kvæmdastjóri flugvalladeildar Flugmálastjómar, stýrir vinnu- hópnum. Auk starfsmanna Flug- málastjómar eru í honum fulltrúar tilnefndir af Náttúruvemdarráði, Veðurstofu íslands, Félagi íslenskra atvinnuflugmanna og verkfræði- stofu. Rax tek- ur ljós- myndirá færeysk frímerki PÓSTVERK Föroya hefur ráðið Ragnar Axelsson Ijós- myndara Morgunblaðsins til að taka ljósmyndir á færeysk frímerki. Ónnur stærsta gjaldeyristekjulind Færey- inga á eftir útflutningi sjávarafurða er sala á frímerkjum og verða myndir Ragnars notaðar á frímerki næstu fimm árin og í upplýs- ingabæklinga, sem sendir eru föstum kaupendum frímerkj- anna. íslendingurinn Eðvarð T. Jóns- son er starfsmaður frímerkjadeild- ar Póstverks Föroya. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að Fær- eyingar legðu mikinn metnað í frímerkjaútgáfuna, enda væru þeir þekktir fyrir hana erlendis ásamt grindadrápi. Nú hefði verið nauð- synlegt að byggja upp safn liAorvnm^ O oív 4-il Koco VOIluwia IjVOIIIJ liuu Ug Wl hefðu þeir fengið bezta manninn, sem völ hefði verið á. Þeir hefðu reyndar helzt kosið að fá Færey- ing, en það hjálpaði til að Ragnar ætti ættir að rekja til eyjanna. Að sögn Eðvarðs hefur Ragnar ferðast um eyjamar undanfama daga og tekið myndir af kirkjum, feijum, fískiskipum, mannlífínu og sögufrægum stöðum. „Við væntum okkur mjög góðs af starfí Ragnars Axelssonar Síðan útgáfa fær- eyskra frímerkja hófst fyrir 11 ámm, hefur mjög verið til hennar vandað og svo verður áfram. Við gefum út að meðaltali um Qórar seríur á hverju ári og fastir kaup- endur era um 80.000. Til saman- burðar má geta þess, að fastir kaupendur íslenzkra frímerkja era um 15.000 og á hinum Norðurlönd- unum er ijöldinn litlu meiri en hjá okkur. Frímerki okkar era vinsæl vegna þess hve falleg þau era og gefa góða mynd af þjóðlífínu. Auk þess fylgja hverri seríu ítarlegar upplýsingar tengdar myndefni merkjanna," sagði Eðvarð T. Jóns- son. Þorsteinn Pálsson ræddi við Steingrím Hermannsson í gær: Viðræður ckki koiunar á híið stig að hylli undir ríkisstjórn ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, boðaði Stem- grím Hermannsson, formann Framsóknarflokksins, á sinn fund um hádegisbilið í gær. Þorsteinn sagði fyrir fundinn með Steingrimi að í framhaldi af viðræðum sinum við forystumenn Alþýðuflokksins á föstudaginn hefði hann áhuga á að ræða við formann Framsóknar- flokksins. Hann sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin um frekari viðræður, það yrði gert í framhi „Ég held að þetta sé flókin staða. Það sýndi sig strax eftir kosning- amar og mér sýnist nú, þegar tekið er á þessum formlegu viðræðum, að það sama sé upp á teningnum. Að mínu mati er hægt, ef vilji er fyrir hendi, að mynda starfhæfa ríkisstjóm, kannski af fleiri en einu tagi, en viðræðumar era ekki komn- ar á það stig, að það hylli undir hana,“ sagði Þorsteinn. Þorsteinn sagði að Sjálfstæðis- flokkurinn hefði ekki tekið neina ákvörðun um það hvaða stjómar- mynstur væri æskilegast, spuming- in væri um það hvaða tvo kosti li af fundi hans með Steingrími. flokkurinn myndi kjósa ef af for- mlegum stjómarmyndunarviðræð- um yrði. „Þessar viðræður sem við eigum í núna miða að því að leiða það í ljós. Ef Sjálfstæðisflokkurinn verður í ríkisstjóm þarf tvo aðra flokka til samstarfs og við eram að reyna að leiða það í ljós með þessum flokkum hvaða leiðir era vænlegastar í því efni.“ Þorsteinn sagði að á grandvelli þessara viðræðna myndi flokkurinn meta hvort tilefni væri til formlegra viðræðna um ákveðið stjómar- mynstur og ef svo er þá hvers konar. „Á þessu stigi er ekkert það væri samstarfsgrandvöUur um málefni milli þessara flokka. Það var farið jrfír málasviðið frá A til Þ og um sum mál fjallað allítarlega. Um sum mál var nokkum veginn samstaða, en um önnur talsverður ágreiningur. Það er svo þess sem viðræðumar leiðir að meta, að fengnum upplýsingum, hvort hann telur ágreiningsmálin innan marka þess leysanlega eða ekki,“ sagði Jón Baldvin. bandalag milli Sjálfstæðisflokksins og einhvers annars flokks. Við verð- um að meta hvaða tvo flokka við myndum kjósa að kalla til sam- starfs, ef til kemur,“ sagði Þor- steinn. „Þetta vora fróðlegar viðræður," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, um við- ræðumar við forystumenn Sjálf- stæðisflokksins á föstudag. „Tilgangurinn var að kanna hvort Fegurðardrottning íslands kjörin á Broadway: Tíu stúlkur keppa til úr- slita um hvítasunnuhelgina FEGURÐARSAMKEPPNI íslands 1987 verður haldin í veitinga- húsinu Broadway föstudaginn 5. júní og mánudaginn 8. júní næstkomandi. Tíu stúlkur keppa til úrslita og koma þær víðs vegar af landinu. Auk þess sem Fegurðardrottning íslands 1987 verður krýnd fer einnig fram lqör F egurðardrottningar Reykjavíkur 1987, bestu Ijósmyndafyrirsætunnar og vinsælustu stúlkunnar, sem keppendur velja sjálfir úr sinum hópi. Stúlkumar tíu sem keppa til úrslita í keppninni eru: Anna Margrét Jónsdóttir 19 ára Reykjavík, Bergrós Kjartansdóttir 19 ára ísafírði, Brynhildur Gunn- arsdóttir 20 ára Hafnarfirði, Fjóla Grétarsdóttir 19 ára Ölfusi, Hildur Guðmundsdóttir 19 ára Seltjam- amesi, íris Guðmundsdóttir 19 ára Akureyri, Kristín Jóna Hilm- arsdóttir 23 ára Keflavík, Magnea Magnúsdóttir 19 ára Reykjavík, Sigríður Guðlaugsdóttir 20 ára Hafnarfirði og Þóra Birgisdóttir 18 ára Akureyri. Kynningarkvöld verður föstu- daginn 5. júní og munu keppendur þá koma fram á kvöldkjólum og sundbolum. Þá verða valdar og krýndar vinsælasta stúlka keppn- innar og besta ljósmyndafyrirsæt- an, sem dómnefnd skipuð blaðaljósmynduram tilnefnir. Á Galakvöldi mánudaginn 8. júní verða Fegurðardrottningar íslands og Reykjavíkur krýndar og verða þær valdar af sérstak- lega skipaðri dómnefnd, en hana skipa: Berglind Johansen fyrram Fegurðardrottning íslands, Erla Haraldsdóttir formaður Dans- kennarasambands íslands, Frið- þjófur Helgason ljósmyndari, Hólmfríður Karlsdóttir fyrram Fegurðardrottning heims, Olafur Laufdal veitingamaður, Sigtrygg- ur Sigtryggsson fréttastjóri og Öm Guðmundsson ballettdansari og framkvæmdastjóri íslenska dansflokksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.