Morgunblaðið - 07.10.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.10.1987, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 226. tbl. 75. árg. MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987 Prentsmiðja Morgxinblaðsins Keuter Skákmeistari í ströngum æfingum Á laugardag hefst í Sevilla á Spáni einvígi þeirra Anatolys Karpov og Garys Kasparov um heims- meistaratitilinn i skák. Lfklegt er að þeir muni sitja að tafli í tvo mánuði áður en úrslit verða ráðin. Karpov er þegar mættur til Sevilla og í gær lék hann tennis af elju og offorsi enda skipt- ir líkamsstyrkur manna miklu við taflborðið ekki sfður en andlegt atgervi. Svíþjóð: Kjarnorkuver- um verður lokað Stokkhólmí, Reuter. INGVAR Carlsson, forsætisráð- herra Svfþjóðar, sagði á þingi í gær að rikisstjórnin hefði ákveð- ið að hætta orkuframleiðslu í kj arnorkuverum og yrði fyrsta kjamakljúfnum lokað árið 1995. Fjögur kjamorkuver eru starf- rækt f Svfþjóð og framleiða þau um helming þeirrar orku sem landsmenn þarfnast. í kjamorkuverunum flórum eru 12 kjamakljúfar en Svíar sam- þykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1980 að horfíð skyldi frá orku- framleiðslu í kjamorkuverum. Carlsson sagði fyrr á þessu ári að brýnt væri að fínna orkugjafa sem gæti komið í stað kjamorkunnar. Hópar umhverfísvemdarsinna hafa þrýst mjög á stjóm Carlssons um að loka kjamorkuverunum frá því að kjamorkuslysið varð í Chemobyl í Sovétríkjunum f aprfl á síðasta ári. Carlsson kynnti þingmönnum í gær stefnu ríkisstjómar sinnar er þing kom saman að nýju. Skýrði hann einnig frá tillögum stjómar- innar í umhverfísmálum og sagði að fyrsta kjamakljúfnum yrði lokað árið 1995 og hinum næsta ári síðar. Stefnt væri að því að loka öllum kjamorkuvemnum fyrir árið 2010. Ennfremur sagði Carlsson stjóm- inni vera umhugað um að draga úr mengun andrúmsloftsins og sagði að koma þyrfti í veg fyrir náttúmspjöll af völdum eiturefna auk þess sem biýnt væri að setja skýrar reglur um geymslu þeirra. Sovétríkin: Andófsmenn koma á fót mannréttindasamtökum Moskvu, Reuter. STOFNUÐ hafa verið f Sovétríkjunum mannréttindasamtök, sem munu gæta hagsmuna pólitískra fanga, fólks sem sætt hefur ofsókn- um sökum trúar sinnar og manna, sem vistaðir hafa verið á geðveikrahælum fyrir þær sakir að hafa haft f frammi andóf. Til- kynnt var um stofnun þeirra f gær en þau munu heyra undir Aiþjóðlegu mannréttindasamtökin f Frankfurt, sem hafa einkum haft afskipti af mannréttindabrotum austan járntjaldsins, og starfa í 20 þjóðlöndum. Höfuðstöðvar samtakanna verða í Moskvu en þau munu fylgjast með mannréttindabrotum hvar sem þau eru framin í Sovétríkjunum og skýra frá þeim á alþjóðavettvangi. Eru þetta fyrstu mannréttindasam- tökin sem stofnuð eru í Sovétrfkjun- um frá því að Helsinki-hópurinn svoneftidi leystist upp árið 1982 vegna hótana stjómvalda í garð þeirra fáu meðlima sem dvöldust utan fangelsismúra. Stofnendumir em fjórir andófsmenn, sem lengi hafa barist fyrir auknum lýðréttind- um í Sovétríkjunum. Skýrt var frá stofnun samtak- anna í gær er boðað var til blaða- mannafundar á heimili eins stofnendanna. í lok fundarins börðu lögreglumenn að dyrum en þeir hurfu á braut er einn fréttamann- anna krafði þá um skilríki. „Takmark okkar er að skýra þjóðum heims frá því sem er að gerast í Sovétríkjunum," sagði Vladimir Pimenov, sem mun verða samtökunum til ráðgjafar varðandi réttindi þeirra sem óska eftir leyfí að flytjast úr landi. Talsmenn sam- takanna sögðu að auk þess að skýra frá mannréttindabrotum stjóm- valda yrði lögð áhersla á að kynna Wall Street: Metfall á verðbréfa- vísitölu önnur brot gegn réttindum manna til að mynda ritskoðun bréfa og símahleranir. Einn talsmaðurinn kvaðst vita um 15 andófsmenn sem vistaðir hefðu verið á geðveikrahælum eftir að Mikhail S. Gorbachev komst til valda í Sovétríkjunum árið 1985. Sagðist hann efast stórlega um að breyting hefði orðið á stefnu stjóm- valda varðandi málefni andófs- manna í valdatíð Gorbachevs. Sem fyrr sagði munu samtökin nýstofnuðu heyra undir Alþjóðlegu mannréttindasamtökin í Frankfurt, en þau vora stofnuð árið 1972. Reuter Kverkarnar vættar Hegrinn á myndinni var gripinn heiftarlegum þorsta einn góð- viðrisdaginn í Ziirich í Sviss en þar eyðir hann ævidögum sínum í dýragarði borgarbúa. Ljósmyndari iZeuíers-frétta- stofunnar hafði á orði á fuglinn líktist einna mest stólum, sem fínna má við vínstúkur og hefur hann ef til vill ályktað að hér væri fundinn óminnishegrinn sem gjaman leggst á þaulsetna gesti. Tíbet: Fiji-eyjar: Rabuka lýsir yfir stofnun lýðveldis Suva, Fyi-eyjum, Reuter. ^ Lögreglusveitir í viðbragðsstöðu SITIVENI Rabuka, ofursti og byltingarleiðtogi á Fiji-eyjum, lýsti í gær eyjarnar lýðveldi og rauf þar með samband þeirra við breska konungdæmið. Skýrði Rabuka jafnframt frá þvi að ný stjóraarskrá yrði leidd í lög. í gær varð ljóst að ekki myndi nást samkomulag um stjómar- skrártillögur Rabukas er tilraunii' Ganilaus landstjóra og fulltrúa Bretadrottningar til að miðla mál- um fóra út um þúfur. Rabuka krafðist þess að ný stjómarskrá tryggði innfæddum Fiji-búum meirihluta á þingi. Skömmu eftir að viðræðunum var slitið tilkynnti Rabuka í út- varpsávarpi að eyjamar hefðu verið lýstar lýðveldi og að ný stjómarskrá yrði leidd í lög sem tryggja myndi réttindi innfæddra Fiji-búa. New York, Reuter. HLUTABRÉF á verðbréfamark- aðinum I New York féllu snögg- lega í verði i gær er Dow Jones-hlutabréfavísitalan féU um 91,22 stig. Er þetta mesta verð- fall sem orðið hefur á einum degi á markaðinum frá þvi að skráning hlutabréfa var tekin upp. Bréfin tóku að falla er upp komst kvittur um að virtur sérftæðingur, Robert Prechter, hefði endurskoðað spá sem hann hafði birt um framtfð markaðarins. Hafði hann sagt að Dow Jones-vísitalan myndi stíga í rúmlega 3.500 stig á næstunni og þannig verið í hópi bjartsýnismanna. Kaupahéðnum barst hins vegar njósn af þvi að Prechter hefði endurmetið afstöðu sína með tilliti til nýrra við- horfa á markaðinum, sem einkennd- ust af mun meiri varkámi f viðskiptum en áður. Nýju Delhf, Lhasa, Reuter. HUNDRUÐ Tíbetbúa hafa verið handtekin frá þvi að óeirðir blossuðu upp í Lhasa, höfuðborg Tíbets, sfðastliðinn fimmtudag, að sögn talsmanna Dalai Lama, trúarleiðtoga landsmanna. Mikill viðbúnaður er nú í borg- inni en í dag, miðvikudag, era 37 ár liðin frá því að kínverskar her- sveitir réðust inn í Tíbet. í gær bratu sveitir kínverskra lögreglumanna á bak aftur mót- mæli 60 Búddamunka í miðborg Lhasa og voru nokkrir þeirra hand- teknir. Að sögn sjónarvotta beittu lögreglumennimir munkana ofbeldi en þeir höfðu komið gangandi til borgarinnar frá klaustri einu í grendinni. Vegatálmunum hefur verið komið upp við Lhasa og landa- mæram Tíbets og Nepals hefur einnig verið lokað. Sjá ennfremur „Úlfúð inn- an . . .“ á bls. 28.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.