Morgunblaðið - 28.01.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.01.1988, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 22. tbl. 76. árg. FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunbláðsins Austur-Þýskaland: Ofrægingarherferð gegn V-Þjóðverjum Austur-Berlfn, Reuter. ÓVENJU neikvæðar greinar um Vestur-Þýskaland birtust i gœr á forsíðum austur-þýskra dagblaða. Vestrænir stjómarerindrekar kváðust telja að Austur-Þjóðveijar viidu með þessu svara gagnrým vestur-þýskra ráðamanna vegna vaxandi hörku I garð andófsmanna í Austur-Þýskalandi. Heimildarmenn Æeuters-frétta- stofunnar sögðu að svo neikvæðar fréttir hefðu ekki birst í austur- þýskum blöðum frá því Erich Honecker, leiðtogi austur-þýska kommúnistaflokksins, kom í opin- bera heimsókn til Vestur-Þýska- lands í september á síðasta ári. I gær bárust einnig fréttir um að landamæraverðir hefðu skotið á tvo menn sem flúðu yfír Berlínarmúrinn í gær en talið hafði verið að stjóm- völd hefðu ákveðið að láta af slíkum árásum. Vestur-Þjóðverjar for- dæmdu þegar í stað árásina. Talsmaður vestur-þýska Græn- ingjaflokksins skýrði frá því að austur-þýskir landamæraverðir hefðu neitað tveimur þingmönnum flokksins, sem hugðust ná tali af andófsmönnum, um leyfi til að fara yfír landamærin. Undanfama tíu daga hafa stjóm- völd í Austur-Þýskalandi látið til skarar skríða gegn andófsmönnum og vom um 200 manns handteknir í fjöldagöngu í Austur-Berlín í síðustu viku. Flestum þeirra hefur verið sleppt úr haldi en á þriðjudag bámst fréttir um að sjö andófsmenn til viðbótar hefðu verið handteknir. Talið er að tíu andófsmenn séu nú í haldi og eiga fímm þeirra yfír höfði sér ákæm um landráð. Réttar- höld í máli einsþeirra hófust í gær. Ráðamenn í Vestur-Þýskalandi hafa gagnrýnt framferði stjóm- valda í Austur-Berlín harðlega og sögðu stjómarerindrekar að for- síðufréttir austur-þýskra dagblaða mætti rekja til þessa. Neues Deutschland, málgagn austur- þýska kommúnistaflokksins, birti frétt þess efnis að rúmlega 65.000 Vestur-Þjóðveijum hefði verið neit- að um leyfí til að ferðast úr landi á síðasta ári. Á sömu síðu gat einn- ig að líta frétt um að 450 manns hefðu látist sökum ofneyslu eitur- lyfla í Vestur-Þýskalandi og fylgdi fréttinni mynd af eiturþræl og önn- ur af látnum fíkniefnaneytanda. Reuter Róstur voru víða á herteknu svæðunum í ísrael í gær. Myndin sýnir unga Palestinumenn grýta ísraelska hermenn í Anata-flóttamanna- búðunum skammt fyrir utan Jerúsalem. Brottvísun fimm Palestínumanna frá ísrael frestað: Ráðamenn hafa áhyggjur af harkalegum víðbrögðum Tel Aviv, Waahington, Jerúsalem, New York. STJÓRNVÖLD f ísrael hafa ákveðið að fresta þvi að vísa fimm Palestínumönnum úr landi af ótta við að brottrekstur þeirra geti leitt til frekari óeirða auk þess sem ráðamenn eru uggandi um við- brögð á alþjóðavettvangi. Var þetta haft eftir ónefndum heimildar- mönnum innan fsraelsku öryggislögregiunnar i gær. Þá skýrðu yfirvöld frá þvf að 129 Palestinumenn hefðu verið hnepptir i varð- hald án þess að réttað hefði verið i málum þeirra. Ráðamenn í ísrael komu saman til fundar í gær og var ákveðið að fresta því að vísa fímm Palestínu- monnum, sem sakaðir eru um að hafa hvatt til mótmæla á herteknu svæðunum, úr iandi. Talsmaður Reuter Mannræningjar enn að íLíbanon Vopnaðir menn rændu Vestur-Þjóðveija, Ralph Schray að nafni, f Beirút í Libanon f gær. Talið er að ránið tengist réttarhöldum sem fram fara í Dilsseldorf i Vestur-Þýskalandi yfir Abbas Ali Hamadei, sem er sakaður um að hafa rænt tveimur Vestur-Þjóð- veijum í Libanon á sfðasta ári. Myndin sýnir eiginkonu Ralphs Schray ásamt foreldrum sfnum er hún hafði fengið fréttir af ráninu. Sjá einnig „Elsti Hamadei-bróðirinji. . . “ 6 bls. 28. utanríkisráðuneytisins. vildi hvorki játa né neita því að ákvörðun þessi hefði verið tekin af ótta við harka- leg viðbrögð á alþjóðavettvangi. Embættismaður innan hersins sagði að skipun um brottrekstur mann- anna gæti komið hvenær sem er en talið er að þeir verði tæpast gerðir brottrækir í þessari viku. Skýrt var frá því í gær að 129 Palestínumönnum væri haldið föngnum án úrskurðar dómstóla en samkvæmt umdeildum lögum í ísrael má halda mönnum í varð- haldi í allt að sex mánuði án þess að þeir hafí verið kærðir fyrir af- brot. Talsmaður ísraelshers sagði að auk þeirra dveldust 1.753 Pal- estínumenn innan fangelsismúra og hefðu sérstakir herdómstólar dæmt 577 þeirra til fangelsisvistar. George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti í gær viðræður við Hosni Mubarak Egyptalands- forseta, sem kynnt hefur tillögur um leiðir til að binda enda á átök á hemumdu svæðunum. Síðar átti Shultz fund með tveimur fulltrúum hófsamra Palestínumanna og hvöttu þeir til að þess að komið yrði á fót alþjóðlegum friðargæslu- sveitum á hemámssvæðunum til að koma ( veg fyrir frekari ofbeldis- verk ísraelskra hermanna. Þykja þessir fundir sýna að Bandaríkja- menn hyggist beita sér frekar en áður fyrir þvl að friðsamleg lausn fínnist á deilumálum hinna stríðandi fylkinga. Sjá ennfremur „Bindið enda á . . . á bls. 26. Bandaríkin: Kennedy dómari í hæstarétti Washington, Reuter. Dómsmálanefnd öldungadeild- ar Bandaríkjaþings samþykkti í gær að mæla með Anthony Kennedy til embættis hæstarétt- ardómara. Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti útnefndi Kennedy til starfans og lögðu nefndarmenn blessun sína yfír þá ákvörðun forsetans með fjórtán atkvæðum gegn engu. Öld- ungadeildin þarf að staðfesta þennan úrskurð og er búist við að það gerist á næstu dögum. Bandaríkin: Hagvöxt- ur mikill New York, Reuter. VERÐBRÉF hækkuðu í gær í kauphöllinni í Wall Street í New York eftir að birtar voru hagtöl- ur síðasta ársfjórðungs ársins 1987. Hagvöxtur var 4,2% á tíma- bilinu en búist hafði verið við að hann yrði ekki meiri en 3'/2-4%. Nýju hagtölumar þylga benda til að efnahagslífið í Bandaríkjunum hafi staðið verðbréfahmnið í októ- ber óvenju vel af sér. Athygli vakti einnig að eftirspum eftir heimilis- tækjum og öðram slíkum vamingi jókst um 6,7% á síðustu þremur mánuðum ársins og þykir það bera allt öðra en kreppuhljóði vitni. Doll- arinn lækkaði í gær nokkuð gagnvart vestur-þýsku marki og japönsku jeni. Heilbrígðisþjónusta á Grænlandi: Landstjómin neitar að taka við rekstrinum Nuuk, frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. GRÆNLENSKA landstjórnin mun ekki taka við rekstri heil- brigðiskerfisins árið 1989 eins og áætlað hafði verið. Deilur eru koinnar upp milli grænlenskra ráðamanna og ríkisstjórnar Dan- merkur um fjárveitingar Dana til þessa málaflokks og hefur Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku landstjómarinnar, gert heyrinkunnugt að Grænlendingar hafi ákveðið að fresta því um fimm ár að yfirtaka reksturinn. Grænlenska landstjómin fer nú með flesta viðamestu málaflokka landsmanna og hafði náðst um það samkomulag við Dani að Grænlendingar myndu sjálfír ann- ast rekstur heilbrigðiskerfisins frá og með næstu áramótum. Danir hafa boðist til að greiða land- stjóminni 530 milljónir danskra króna (rúma þijá milljarða ísl. kr.) til rekstursins. í fjárlögum dönsku ríkisstjómarinnar fyrir þetta ár er gert ráð fyrir að þeirri upphæð verði varið í þessu skyni. Jonathan Motzfeldt hefur kraf- ist þess á fundum sem hann hefur átt með Poul Schliiter, forsætis- ráðherra Danmerkur, að Danir hækki upphæðina um 90 milljónir danskra króna. Segir Motzfeldt að byggja þurfi heilbrigðiskerfíð upp, sjúkrahús séu í niðumíðslu og tækjabúnaður bæði lítill og lélegur. Þá hefur Motzfeldt bent á að lækna og hjúkranarfólk vanti til starfa á Grænlandi og segir hann ástæðuna vera þá að Danir séu ekki reiðubúnir til að greiða þessu fólki nógu há laun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.