Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C 88. tbl. 76. árg. ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Flugránið á farþegaþotunni frá Kuwait: Sérfræðingar óttast veru- lega um geðheilsu gíslanna Ættíngi Kuwaitfursta biðst vægðar brostinni röddu Algeirsborg, Rcuter. FLUGRÆNINGJAR kúvœsku far- þegaþotunnar, sem enn er kyrr- sett á flugvellinum í Algeirsborg, neyddu í gær ættingja furstans Morðið á Wazir: Heimildar- menn innan hersinsstað- festa ábyrgð Israela SAMKVÆMT fréttum breska ríkisútvarpsins BBC hafa heimildarmenn innan ísraelshers, sem ekki vildu láta nafns síns getið, stað- fest að ísraelsstjórn hafi fyrirskipað morðið á Khalil al-Wazir, æðsta herstjóra Frelsissamtaka Palestinu (PLO). Að sögn heimildarmann- anna tóku froskmenn, land- hermenn og félagar úr sér- sveitum ísraelshers þátt í árás- inni, en í henni féll Wazir ásamt lífvörðum sínum. Wazir bar ábyrgð á mörgum blóðu- gustu hryðjuverkum PLO, nú síðast ráninu á langferðabif- reið í Negev-eyðimörkinni í fyrri mánuði. Þá féllu sex manns. Sjá einnig siður 36-7. af Kuwait tíl þess að biðja sér vægðar í gegnum talstöð flugvéi- arinnar og fara þess á leit að 17 hryðjuverkamönnum verði sleppt úr fangelsi í Kuwait, en lausn þeirra er aðalkrafa ræningjanna. Til þessa hefur Kuwait-stjórn ekki viljað ljá máls á þvi. Læknar hafa nú miklar áhyggjur af geðheilsu gíslanna og segja hana án efa vera mun verri en líkamlegt ástand þeirra, sem þó mun ekki vera beysið. Flugræningjamir neyddu einn gíslanna til þess að biðjast vægðar, en þegar hann byrjaði að tala skild- ist hann ekki. Sagðist flugræninginn ætla að ráðleggja honum að tala skýrar. Eftir nokkra bið heyrðist loks í gíslinum, en hann talaði arabísku mjög ógreinilega og drafandi röddu: „ ... [óskiljanlegt] Ég vil ... reyna að leysa alla fangana úr haldi ... lof sé Allah . ..“ Að þessu loknu sagði flugræning- inn að þetta hefði verið ættingi furst- ans af Kuwait og að fleira væri ekki um málið að segja. Sérfræðingar eru nú famir að ótt- ast mjög um geðheilsu gíslanna 31, sem enn eru í haldi flugræningjanna. Taugalæknirinn Sergio Cellis frá Chile, sem starfar í Alsír, sagði að gíslamir gætu að líkindum þolað tveggja mánaða gíslingu án þess að þeir biðu varanlegan líkamlegan skaða, en sagði að sinnið væri þegar farið að gefa sig og þann skaða væri erfitt að meta. Þeir gíslar, sem þegar hefur verið sleppt, hafa flestir haft einkenni al- varlegs taugaáfalls og margir þeirra eru enn sem í leiðslu og sinnulausir um sjálfa sig. Telja geðlæknar að gíslamir kunni að verða marki flug- ránsins brenndir í mörg ár og að margir þeirra muni ef til vill ekki ná sér það sem eftir er ævinnar. l-l t •' : | ||| uil . M’M 11 pI: í. ií]i i;. v 4 i t vfj P If- »' í ' * í i- * f 1 § i Reuter Líkneski afMaó hverfa Tvö stór líkneski af Maó formanni voru fjarlægð af lóð Peking- háskóla um helgina. Vinnupallar höfðu áður verið settir upp i kringum stærri styttuna, sem myndin er af, en stúdentarnir sögð- ust hafa haldið að fyrirhugað væri að hreinsa hana. Hótumim Irana verður svarað af fullri hörku - segir Reagan Bandaríkjaforsetí Washington, Nikósíu, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkjafor- seti varaði stjómvöld í íran i gær við frekari aðgerðum gegn her- afla Bandaríkjamanna á Persa- flóa og gaf i skyn að sérhverri ógnun yrði svarað af fullri hörku. í kjölfar árása Bandarílyamanna laust flotum ríkjanna saman og sökktu bandarísk herskip og flug- vélar einum írönskum eldflauga- bát og löskuðu tvær freigátur. íranska útvarpið sagði Banda- Olíuborpallur írana i ljósum logum eftir árás Bandarikjamanna. Reuter rikjamenn hafa lýst yfir striði gegn írönum og hét hefndum. „Ógni þeir okkur munu þeir gjalda þess dýru verði," sagði Reagan for- seti í ræðu er hann flutti síðdegis í gær. Sagði hann að ákveðið hefði verið að Bandaríkjafloti réðist á tvo iranska olíuborpalla á Persaflóa vegna þess að bandarísk freigáta hefði siglt á íranskt tundurdufl á flóanum á fímmtudag. Sagði Reagan aðgerðimar í gær til þess fallnar að gera írönum ljóst hvaða afleiðingar „óábyrgt framferði“ þeirra gæti haft. „Það verður að gera þeim ljóst að við veijum skip okkar og ógni þeir okkur muni þeir gjalda þess,“ sagði hann. Forsetinn bætti við að Bandaríkjamenn vildu bæta sam- skipti ríkjanna en það væri erfítt á meðan íranir réðust á skip hlut- lausra ríkja á Persaflóa, hefðu í hótunum við nágrannaríki sín, styddu hermdarverkastarfsemi ogj neituðu að binda enda á stríðið við íraka. Reagan forseti ákvað á aðfara- nótt mánudags að írönum skyldi refsað vegna tundurduflalagna þeirra og gaf fyrirskipun um árás á tvo íranska olíuborpalla á sunnan- verðum Persaflóa. Að sögn embætt- ismanna í bandaríska vamarmála- ráðuneytinu skaut íranskt varðskip eldflaug að einu bandarísku herskip- anna á meðan árásin stóð yfír. Eld- flaugin geigaði en bandarísku her- skipin sökktu íranska skipinu. Skömmu síðar réðust íranskir fall- byssubátar á olíuborpall við strönd Sameinuðu arabísku furstadæm- 0 200 [RAK kUv Bandarísk herskipj skjóta á íranska oiíuborpalla Bandarískar her- þotur gera árás á írönsk skip \6man[ anna auk þess sem þeir réðust á breskt olíuskip. Sjá nánari fréttir af átökunum á Persaflóa á siðu 34. ísrael: Demjanjuk fundmn sekur Jerúsalem, Reuter. ÍSRAELSKUR dómstóll sakfelldi í gær John Demjanjuk, en hann var ákærður fyrir stríðsglæpi og sagður vera „ívan grimmi" — alræmdur böðuil i útrýmingar- búðum nazista í Treblinka. Demjanjuk, sem er 68 ára að aldri, kann að verða hengdur fyrir vikið, en refsing hans verður ekki kveðin upp fyrr en á mánudag í næstu viku. Demjanjuk var ekki viðstaddur þegar dómurinn var lesinn upp, en sú lesning tók nærri tólf klukku- stundir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.