Morgunblaðið - 07.09.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.09.1988, Blaðsíða 2
2 í>Pr ÍT'íHM'TT'ía?! .V HnOAQlIMIVQíM (IIQAJSVUJOíIOM MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988 Jón Baldvin um fjárlagagerðina: Samdráttur en ekki „blóðugur niðurskurður“ „ÞAÐ ER misskilningur að þessar tillögur séu blóðugar niðurskurð- artíllögur. Þaer fela í sér að stöðva útgjaldaþensluna og um 1,5% samdrátt I viðbót,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármála- ráðherra aðspurður um gang fjárlagagerðar fyrir næsta ár. Hann var spurður að því hvort líf ríkisstjórnarinnar ylti á því að samkomulag tækist um fram- kvæmd hallalausra fjárlaga. „Já,“ svaraði Jón Baldvin. „Að óbreyttu verður halli á ríkis- búskap næsta árs á bilinu 3-3 V2 milljarður, en af minni hálfu hafa verið lagðar fram tillögur um það hvemig þeim hallarekstri megi snúa upp í jöfnuð. Það yrði gert að litlu leyti með aukinni tekjuöflun, en að stærstum hluta með lækkun út- gjalda. Þetta er vel innan marka þess sem er framkvæmanlegt og það er algjör forsenda fyrir því að aðrar efnahagsaðgerðir skili árangri. Sá tími sem menn hafa til þess að ná samstöðu um fjáriög er út af fyrir sig til þingsetningar. En vegna þess að tíminn knýr á um að ná samstöðu um efnahagsaðgerðir þurfa þessar tillögur að liggja fyrir fyrr, vegna þess að þær eru kjami þeirra tillagna." Fjármálaráðherra sagðist ekki vilja tjá sig um einstak- ar tillögur til að rétta hallann af. Coldwater: Hallarekstur á fyrstu sex mánuðum þessa árs HALLI var á rekstri Coldwater Seafood Corporation, dótturfyr- irtækis Sölumiðstöðvar hrað frystihúsanna í Bandarikjunum á fyrstu sex mánuðum þessa árs, Sala fyrirtækisins dróst saman auk þess sem verðfall varð á fisk- afurðum á Bandaríkjamarkaði Á siðustu fjórum árum hefur rekstur Coldwater skilað hagn- aði. „Við höfum ekki farið varhluta af þeim erfíðleikum, sem öll fyrir- tæki í sjávarútvegi eiga við að stríða," sagði Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater, í samtali við Morgunblaðið. „Á fyrstu sex mán- uðum þessa árs var halli á rekstri fyrirtækísins. Til þess að tryggja viðskiptavinum okkar örugga af- greiðslu erum við með vömr í birgð- um, en það hefur hins vegar í för með sér tap fyrir fyrirtækið þegar verð fellur eins og nú. Sambærilegt verðfall átti sér síðast stað 1984, en síðan á öðmm fjórðungi þess árs Útlendingnr veltir bíl ERLENDUR ferðamaður velti bílaleigubíl sem hann ók austan Úlfljótsvatns seinnipartinn í gær. Hann var einn í bílnum og skrám- aðist litillega. Maðurinn var að koma frá Þing- völlum er hann lénti í lausamöl. Valt bíllinn eina og hálfa veltu og hafnaði ofan í skurði. Ekki var tal- ið að maðurinn hefði verið á mikilli ferð. hefur fyrirtækið verið rekið með hagnaði." Verðlagsstofnun: vy,xx-,Sftívt' •' Wx-y ■ V- J . ria^***- ,."w ^ íL - • WWh' *’ * * - ■-■*>■• -í* .■•■ ■>•■ ■" '' ,.vx..v,. xv— . Xfr, 'V, . ; -- ^ . . - _ ~ ......................................................................................................................................................... , . •• ••><,.,&« Andarnefjan íSundahöfn Morgunblaðið/KGA ANDARNEFJAN, sem villtist að landi í Króka- lóni við Akranes á sunnudag, sást í sjónum við Sundahöfn, fyrir neðan Holtagarða, í gærdag. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær gerðu menn frá Slysavarnadeildinni á Akranesi tilraunir til að koma dýrinu út úr lóninu á dýpri sjó, en án árangurs. Svo virðist sem skepnan hafi komist út af sjálfsdáðum í nótt en í stað þess að synda á haf út hefur hún villst inn Kolla- fjörð. Að sögn sérfræðinga þjá Hafrannsókna- stofnun er slikt háttarlag afar óeðlilegt og hall- ast menn helst að þvi að andamefjan sé sjúk. Hún vár þó á leið út Kollafjörð þegar síðast spurðist til hennar. Gerir ekki athugasemdir við verðhækkanir á námsbókum Verðstöðvunin nær ekki til skólagjalda vegna fullorðinsfræðslu Verðlagsstofnun mun ekki gera athugasemdir við verðhækkun á námsbókum enda er litið svo á, að hækkunin hafi verið ákveðin áður en verðstöðvunin kom tíl. Þetta var niðurstaða fundar sem fulltrúar Verðlagsstofnunar og þriggja bókaforlaga héldu með sér í gær að því er Guðmundur Sigurðsson, hagfræðingur hjá Verðlags- stofnun, sagði í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði ennfremur að könnun á innritunargjöldum skóla, sem reknir eru lögum sam- kvæmt, hefði leitt í Jjós að slík skólagjöld falli ekki undir verðlags- lög og því nái verðstöðvunin ekki til skólagjalda í öldungadeildum framhaldsskólanna. ur skuli greiða fyrir slíkt nám með ákveðnum hætti, samkvæmt ákvörðun menntamálaráðuneytis- ins. Ráðuneytið hefði sent fram- haldsskólunum bréf um það síðast- liðið vor, hversu hátt þetta gjald skyldi vera fyrir það námsár sem nú er að hefjast. Samkvæmt því næði verðstöðvunin ekki til skóla- gjalda í öldungadeildum. Hins vegar lægi ljóst fyrir að verðstöðvunin næði til skólagjalda ýmissa annarra sérskóla, svo sem dansskóla og tón- listarskóla, sem ekki hefðu ákveðið skólagjöld sín fyrir miðjan ágúst síðastliðinn. Guðmundur sagði að í máli full- trúa bókaforlaganna þriggja, Ið- unnar, Máls og menningar og Al- menna bókafélagsins, hefði m.a. komið fram að forlögin hefðu verð- Iagt námsbækumar í júní og júlí síðastliðnum og hefði verðlisti legið fyrir í byijun ágústmánaðar, eins og undanfarin ár, enda fæm pant- anir frá bókabúðum að berast strax í byrjun ágúst. Afgreiðsla forlag- anna á bókunum hófst um miðjan ágúst og var að mestu lokið fyrir 24. ágúst. Guðmundur sagði að Verðlagsstofnun hefði ekki séð ástæðu til að vefengja þetta og nið- urstaða fundarins því orðið sú að Verðlagsstofnun gerir ekki athuga- semdir við þessa verðlagningu enda gengið út frá, að bækumar hafí verið komnar I flestar bókaverslanir á þessu hækkaða verði áður en verðstöðvun var ákveðin. Guðmundur sagði jafnframt að nú væri orðið ljóst, að skólagjöld vegna fullorðinsfræðslu og endur- menntunar féllu ekki undir Verð- lagslög þannig að verðstöðvunin næði ekki til þeirra. Þau féllu hins vegar undir lög um framhaldsskóla þar sem kveðið er á um að nemend- „ENGAR líkur eru á að sama magn verði veitt af þorski á þessu ári og i fyrra,“ sagði Krist- ján Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, í samtali við Morg- unblaðið. „Skip á aflamarki fengu 6% minni kvóta á þessu Iceland Seafood Corporation: Salan að meðaltali 20% minni en í fyrra Dágóð sala í ágúst, að sögn Sigurðar Markússonar hjá Sambandinu ICELAND Seafood Corporation, dótturfyrirtæki Sambandsins, hefur selt 20% minna á Bandaríkjamarkaði í ár en í fyrra, miðað við meðaltal fyrstu 8 mánaða þessa árs. Dágóð sala var í síðasta mánuði, en samt sem áður telur Sigurður Markússon, fram- kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar Sambandsins, að of snemmt sé að fullyrða að staðan fari batnandi. Að sögn Sigurðar Markússonar ágúst 11 prósentum minna en I var sala Iceland Seafood í Banda- ríkjunum meiri í ágúst síðastliðn- um en búist hafði verið við. Sala fyrirtækisins á fyrstu 8 mánuðum þessa árs var 20% minni að meðal- tali en á síðasta ári. Hins vegar var söluverðmæti afurðanna í sama mánuði í fyrra og hvað magn varðar var samdrátturinn einungis 5%. Sigurður benti á, að salan á siðasta ári hefði verið góð og ágúst þá hefði verið sérlega hagstæður. Sá samdráttur, sem átt hefur sér stað á þessu ári, kemur einkum fram í mun minni sölu á fískflök- um, en sala á fiskréttum er ein- ungis 1% minni en í fyrra. Sigurð- ur sagði að skýringin á þessu væri meðal annars sú, að mikil aukning hefði orðið á sölu bol- fískafurða til Evrópu og Austur- Asíu. Samdrátturinn hefur ekki haft í för með sér breytingar á starfsmannahaldi í fískréttaverk- smiðju fyrirtækisins, enda hefur sala fískrétta minnkað óverulega. Þess má geta, að meðaltal sölu- Engar líkur á jafnmiklum þorskafla í ár og í fyrra - segir Kristján Ragnarsson ári en í fyrra og skip á sóknar- marki máttu veiða 10 dögum skemur í sumar en í fyrrasum- ar,“ sagði Kristján. „Skipin mega í ár veiða 5% af kvóta þeirra á næsta ári en ég held að þau geri lítið af því þar sem það myndi einungis koma niður á þeim á næsta ári,“ sagði Kristján. „Það hefur einnig verið opnaður mögu- leiki á að geyma 10% af aflanum til næsta árs en um síðustu áramót voru allar geymslur hreinsaðar upp. Ég hef hins vegar heyrt að ver- tíðarbátar ætli að geyma 10% af kvótanum til næsta árs en það gátu þeir ekki gert í fyrra. Bátamir veiddu um 19 þúsund tonnum minna af þorski fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma í fyrra og það em engar líkur á að þeir nái því upp í haust. Mörg skipanna em langt komin með kvótann og ef til vill verða frystihús í einhveijum mæli hráefn- islaus í haust vegna þess að leggja þarf skipum þegar þau em búin með kvóta sinn. Það hefur hins vegar aldrei komið til vemlegrar atvinnuröskunar slðan kvótinn var settur á árið 1984, enda þótt menn hafí oft spáð því,“ sagði Kristján Ragnarsson. verðmætisins var 11,7 milljónir dollara á mánuði á tímabiiinu frá janúar og fram I ágúst, en í ágúst- mánuði seldi Iceland Seafood vör- ur fyrir 12,9 milljónir dollara. Sig- urður Markússon telur að of snemmt sé að fullyrða, að staðan á mörkuðum vestra sé að batna eftir verðfall og sölutregðu á fyrra hluta þessa árs. Hann sagði, að ekki væri búist við neinum vem- legum sveiflum, heldur væri frekar gert ráð fyrir hægum bata.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.