Morgunblaðið - 30.10.1988, Blaðsíða 68
NÝTT FRÁ KODA
■WMHi
2BATTERY
uppirbsi?
RAFHLAÐA SEM ENDIST OG ENDIST
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Jón Baldvin
Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra:
V onbrigði
okkar
eru mikil
„Vonbrigði okkar eru mikil.
Ég gekk af fundi Schultz ut-
anríkisráðherra lullviss um að
það samkomulag sem hafði tekist
milli þjóða okkar í þessum málum
yrði haldið í einu og öllu,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anrikisráðherra i samtali við
Morgunblaðið er hann var spurð-
ur hvert álit hann hefði á tilraun-
um Bandaríkjastjórnar til að fá
Japani til liðs við sig um við-
skiptaþvinganir á Islendinga,
vegna hvalveiða í vísindaskyni.
Utanríkisráðherra sagði jafn-
framt: „Mér fínnst að við höfum
verið hafðir að fíflum. Það á engum
að líðast. En síst áttum við von á
því frá vinum okkar.“
Utanríkisráðherra var spurður
hvaða áhrif hann teldi að þetta at-
vik kæmi til með að hafa á sam-
skipti landanna: „Það ræðst mjög
af viðbrögðum Bandaríkjastjórnar,“
sagði Jón Baldyin, en hann kvaðst
á þessu stigi ekki geta gert sér í
hugarlund hver þau myndu verða.
Æðardúnn
hækkar um
flórðung
SALA á æðardúni hefur
gengið vel í haust. Búvöru-
deild Sambandsins hefur
þegar gengið fi-á sölu á rúm-
lega einu tonni af firam-
leiðslu sumarsins og áætlar
að selja í allt um tvö tonn.
Verð á æðardúni hefur
hækkað frá því í fyrra. í upp-
hafi síðasta sölutímabils fengu
bændum 18 þúsund krónur fyr-
ir kílóið af hreinum æðardúni
og nú eru greiddar 23 þúsund
krónur. Verðið hefur því hækk-
að um 25—30%, stafar það
bæði af verðhækkun í erlendri
mynt og gengisfellingu krón-
unnar.
I
iSiiiSv;
“S^íJtRfSÉí-
■
,-yáer. j s*..
‘ r *■'■* .í-'
t'*‘
Dauðadjúpar sprungur
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Vissara er að fara að öllu með gát þegar ferðast er á jöklum há-
lendisins. Hér virða ferðalangar á Tungnaáijökli fyrir sér hyldjúpa
sprungu, svo djúpa að ekki sést til botns. Jökuilinn er samfelld
svellglæra þessa dagana og má því Iítið út af bregða til þess að
ökutæki renni ekki af réttri leið og lendi í einni af fjölniörgum
gapandi sprungum. Jökullinn hopar stöðugt. í ár heftir hann hörf-
að um 70 metra, og að sögn Sigurjóns Rist vatnamælingamanns
hefúr Tungnaáijökull hörfað á þriðja kílómetra síðastliðin 30 ár.
Fiskmarkaðurinn í Bandaríkjimum:
Verðlækkunin hefur stöðvazt
en fátt bendir til hækkunar
- segir Pétur Másson upplýsingafulltrúi Coldwater
„ÞAÐ er óhætt að segja að
verð á firystum fiski hér í
Bandaríkjunum er hætt að
lækka. A hinn bóginn er reynd-
ar fátt, sem bendir til að það
fari hækkandi í nánustu
framtið. Hækkanir nú myndu
að öllum líkindum slá mjög á
söluna, sem gengur nú þokka-
lega vel,“ sagði Pétur Másson,
Landbúnaðarráðuneytið:
Reiknað með 1.500 tonna
útflutningi á kindakjöti
í ÁÆTLUN landbúnaðarráðu-
neytisins um útflutning kinda-
kjöts á nýbyrjuðu verðlagsári er
gert ráð fyrir 1.500 tonna út-
flutningi. Er þetta talsvert minni
útflutningur en undanfarin ár
og telur Jóhann Steinsson deild-
arstjóri í búvörudeild SÍS að
þessi útflutningur dugi rétt til
að halda í horfinu og að birgðir
i lok tímabilsins verði svipaðar
og í haust, eða 2.500 tonn.
Reiknað er með útflutningi á
markaði sem bestu verði hafa skilað
undanförnum árum, Svíþjóð,
Færeyjar og Finnland. Aætlað er
að 650 tonn fari til Svíþjóðar og
sama magn til Færeyja og rúmlega
200 tonn tii Finnlands. Ekki er
gert ráð fyrir neinum útflutningi
til Noregs. Norðmenn hafa keypt
600 tonn á undanförnum árum í
samræmi við EFTA-samninga þjóð-
anna, en vegna mikillar kindakjöts-
framleiðslu heima fyrir hafa þeir
selt íslenska kjötið til þriðja lands.
Þá er heídur ekki gert ráð fyrir
útflutningi til Evrópubandalagsins
vegna þess að ekkert sláturhús
hefur treyst sér til að leggja í þann
kostnað sem eftirlitsmenn EB
kröfðust við skoðun á síðasta ári.
Undanfarin ár hafa farið um 600
tonn til EB, aðallega Þýskalands
og Danmerkur, en enn lægra verð
hefur fengist þar fyrir kjötið en á
bestu mörkuðum íslendinga.
Jóhann sagði að þessi útflutning-
ur rétt dygði til að halda í horfinu
miðað við kindakjötsframleiðsluna
í haust og áætlaða innanlands-
neyslu. Full þörf væri fyrir meiri
útflutning en gert væri ráð fyrir til
að létta á birgðastöðunni en út-
flutningsáætlun Iandbúnaðarráðu-
neytisins réðist af þeim útflutnings-
uppbótum sem menn teldu að til
ráðstöfunar yrðu á tímabilinu.
upplýsingafulltrúi Coldwater í
Bandaríkjunum, í samtali við
Morgunblaðið.
Pétur sagði, að fyrirtækið keypti
blokkina nú á 1,25 dali pundið, en
heyrzt hefði um kaup á 1,30 dali.
Birgðir af blokk í heiminum væru
verulegar um þessar mundir eða
nálægt 80 milljónum punda. Slíkar
birgðir gæfu ekki tilefni til verð-
hækkana. Talið væri að 30 milljón-
ir væru til innan Bandaríkjanna
og mikið í Kanada, Noregi og
Danmörku. Reiknað væri með
samdrætti í afla helztu fiskveiði-
þjóðanna við norðanvert Atlants-
hafið á næsta ári og því hugsan-
legt að verð hækkaði eitthvað,
þegar eða skömmu áður en hans
færi að gæta í birgðunum.
Hann sagði að verð á ýsuflökum
frá Islandi væri núna 2,65 dalir á
pundið, en heldur lægra frá
Kanada og Noregi. Fyrir pundið í
5 punda pakkningum af þorsk-
flökum frá íslandi fengjust nú 2,30
dalir, en verð í Kanada væri 1,60
til 1,70 dalir á pundið af beztu flök-
unum. „Botninum í verðlagi er
örugglega náð. Eftir að háa verðið
hamlaði sölu er hún farin að ganga
þokkalega vel en verðhækkanir nú
myndu ábyggilega hægja á söl-
unni,“ sagði Pétur Másson.
Jóhann best-
ur norrænna
skákmanna
Skákdálkahöfúndur BT,
stærsta blaðs Danmerkur,
telur að frammistaða Jó-
hanns Hjartarsonar á Heims-
bikarmótinu sýni að hann sé
sterkasti skákmaður Norður-
landa.
í skákþætti sínum í BT sl.
miðvikudag segir Jorn Sloth:
„Ungi íslendingurinn Jóhann
Hjartarson er eini heimsmeist-
arakandidat Norðurlandanna.
En er hann betri en Ulf Anders-
son, Bent Larsen eða Simen
Agdestein? Frammistaða hans
á Heimsbikarmótinu bendir til
að svo sé! Eftir þ'rjú töp í upp-
hafi mótsins vann Jóhann
skyndilega skák eftir skák og
endaði rétt við toppinn.“
Til sannindamerkis er birt
skák Jóhanns við Jan Timman
en hana vann Jóhann í 25 leikj-
um.